Íslandsmeistaramót

Íslandsmeistaramót 2013

Úrslit kvennaIMG_5172-001

Íslandsmeistaramóti 2013 var haldið 13. apríl á Akureyri. Mótið fékk talsverða fréttaumfjöllun, en m.a. má lesa um mótið hér: News of Iceland, MBL.

Fjölmörg íslandsmet féllu á mótinu, Anna Hulda Ólafsdóttir setti met 3 met í -63kg flokki þegar hún snaraði 68kg, jafnhenti 87kg og náði þar með samanlagt 155kg.

Katrín Tanja Davíðsdóttir setti tvö met í -69kg flokki meyja annars vegar og kvenna hins vegar þegar hún snaraði 76kg og náði samanlagt 160kg.

Lilja Lind Helgadóttir setti 2 íslandsmet í -75kg flokki stúlkna annars vegar og kvenna hins vegar, þegar hún snaraði 69kg og náði 153kg samanlagt.

Sigurður B. Einarsson setti 3 íslandsmet í -94kg flokki þegar hann snaraði 119kg, jafnhenti 145kg og náði því samanlagt 264kg.

Niðurstöðurstöður mótsins fóru svo.

Kvennaflokkur:

Stigakeppni kvenna (sinclair stig)

1. Anna Hulda Ólafsdóttir, samtals 155kg og 210,54 sinclair stig

2. Katrín Tanja Davíðsdóttir, samtals 160kg og 202,01 sinclair stig

3. Lilja Lind Helgadóttir, samtals 153kg og 83,46 sinclair stig

Íslandsmeistarar eftir flokkum:

-63kg flokki:

1. Anna Hulda Ólafsdóttir, LFR, 68kg snörun, 87kg jafnhending, samtals 155kg.

-69kg flokki:

Katrín Tanja Davíðsdóttir, Ármann, LFR, 76kg snörun, 84kg jafnhending, samtals 160kg.

-75kg flokkur:

1. Lilja Lind Helgadóttir, Ármann, 69kg snörun, 83kg jafnhending, samtals 153kg.

+75kg flokkur:

1. Guðrún Sólveig Sigurgrímsdóttir, Ármann, 43kg snörun, 64kg jafnhending, samtals 107kg.

2. Fríða Björk Einarsdóttir, KFA, 35kg snörun, 50kg jafnhending, samtals 85kg.

3. Hildur Björk Þórðardóttir, 85 LFR, 32kg snörun, 45kg jafnhending, samtals 77kg.

Stigakeppni karla (sinclair stig)

1. Gísli Kristjánsson, LFR, samtals 315kg og 336,14 sinclair stig

2. Sigurður Bjarki Einarsson, Ármann, samtals 264kg og 302,92 sinclair stig

3. Andri Gunnarsson, Ármann, samtals 270kg, 285,97 sinclair stig

-69kg flokki:
1. Kjartan Ágúst Jónasson, UÍA, 67kg snörun, 97kg jafnhending, samtals 163kg.

-77kg flokki:

1. Stefán Þór Jósefsson, KFA, 55kg snörun, 75kg jafnhending, samtals 130kg.

-85kg flokki:
1. Ari Bragi Kárason, Ármann, 86kg snörun, 117 jafnhending, samtals 203kg
2. Gísli Rafn Gylfason, Ármann, 75kg snörun, 100kg jafnhending, samtals 175kg

-94kg flokki:

1. Sigurður Bjarki Einarsson, Ármann, 119 snörun, 154kg jafnhending, samtals 264kg

2. Bjarmi Hreinsson, UÍA, 90kg snörun, 130 jafnhending, samtals 220kg
3. Haukur Sigurðsson, Ármann, 86kg snörun, 114 jafnhending samtals 200kg

-105kg flokki:
1. Árni Freyr Stefánsson, KFA, 110kg snörun, 130kg jafnhnöttun, samtals 240kg.

+105kg flokki:

1. Gísli Kristjánsson, LFR, 150kg snörun, 165kg jafnhending, samtals 315kg

3. Kristján Logi Einarsson, KFA, 61kg snörun, 75kg jafnhending, samtals 136kg

2. Andri Gunnarsson, Ármann, 110kg snörun, 160kg jafnhending, samtals 270kg

——————————————————————————————————————————————————-

Laugardaginn 24.3 2012 fór fram  Íslandsmeistaramótið í ólympískum lyftingum í Borgarnesi.  Mikil gróska er í ástundun ólympískra lyftinga á Íslandi um þessar mundir og var mótið hið fjölmennasta í áraraðir. Margir ungir og efnilegir lyftingamenn þreyttu frumraun sína á mótinu og gefur frammistaða þeirra góð fyrirheit um framtíð Ólympískra lyftinga á Íslandi. Sérstaklega var ánægjulegt að sjá nýja og vel þjálfaða kynslóð lyftingakvenna, sem flestar hafa kynnst Ólympískum lyftingum í gegnum ástundun sína á Crossfit.

Besta árangri mótsins náðu þau Gísli Kristjánsson, sem hlaut 345 Sinclair stig, og Þuríður Erla Helgadóttir sem hlaut 185,0 Sinclair stig.

——————————————————————————————————————————————————-

Íslandsmeistaramótið í Ólympískum Lyftingum 2011 var haldið í húsnæði Lyftingafélags Reykjavíkur í Skeifunni 8. þann 28. maí 2011. Fjölmargir áhorfendur mættu á mótið og bein útsending var frá mótinu á http://www.sporttv.is.

Fjölmörg met litu dagsins ljós og eru þau eftirfarandi.

Guðmundur Högni Hilmarsson með 3 Drengjamet í 69 kg. flokki!
67 kg. í Snörun
90 kg. í Jafnhöttun
157 kg. í Samanlögðu
Jafnhöttun og Samanlagt er einnig Unglingaflokksmet í 69 kg. flokki!
Til hamingju Guðmundur Högni Hilmarsson

Bjarki Guðmundsson með 1 unglingaflokksmet!
70 kg. í Snörun
Til hamingju Bjarki Guðmundsson

Annie Mist Þórisdóttir með 3 Íslandsmet í 69 kg. Kvennaflokki!
68 kg. í Snörun
87 kg. í Jafnhöttun
155 kg. í Samanlögðu
Til hamingju Annie Mist Þórisdóttir

Síðan viljum við þakka öllum sem komu að Íslandsmeistaramótinu kærlega fyrir aðstoðina. Þetta var frábært mót í alla staði og hefði ekki verið hægt án ykkar.

Nýlegar færslur

Tvö gull, silfur og brons á Norðurlandamóti fullorðinna

Norðurlandamót fullorðinna í ólympískum lyftingum fór fram í Noregi um helgina. Tólf íslenskir keppendur tóku þátt og Ísland kom heim með tvö gull, eitt silfur og eitt brons. Auk þess setti fjöldi keppenda persónuleg met og Íslandsmet í U23.

Katla Björk Norðurlandameistari með yfirburðum
Katla Björk Ketilsdóttir sigraði í -61 kg flokki kvenna. Hún snaraði 86 kg og jafnhenti 105 kg, aðeins 1 kg frá sínum besta árangri í jafnhendingu. Samanlagt lyfti hún 191 kg, sem var 16 kg meira en næsta kona. Hún varð þriðja stigahæsta konan þvert á alla flokka. Virkilega góður árangur.

Guðný Björk vann með minnsta mun
Guðný Björk Stefánsdóttir varð Norðurlandameistari í -77 kg flokki eftir harða baráttu við Körlu Nygaard Nielsen frá Danmörku. Guðný snaraði 90 kg og lyfti öllum þremur jafnhendingum. Sú síðasta var 117 kg og samanlagt lyfti hún 207 kg, aðeins 1 kg meira en Karla.

Silfur hjá Ingimari
Ingimar Jónsson nældi sér í silfur í -75 kg flokki karla. Hann bætti sig í snörun með 122 kg og jafnhenti 147 kg, samanlagt 269 kg. Aðeins Norðmaðurinn Stefan Rønnevik lyfti meiru, 276 kg. Það sem er áhugavert við árangur Ingimars er að hann var aðeins 4 kg frá sínum besta samanlagða árangri sem hann á í mun þyngri flokk, gamla -88 kg flokknum. Auk þess bætti hann sinn besta árangur í snörun um 2 kg.

Rökkvi með sex gildar lyftur og brons
Rökkvi Guðnason lyfti öllum sex lyftunum sínum í -95 kg flokki og bætti sig í snörun, jafnhendingu og samanlögðu. Hann snaraði 125 kg og jafnhenti 160 kg, sem var mesta jafnhendingin í flokknum. Samanlagt lyfti hann 285 kg, jafnmikið og Daninn Johannes Bjørn Schwerin sem fékk silfrið, en Rökkvi hafnaði í þriðja sæti. Rökkvi stórmætti auk þess eigin Íslandsmet í U23 í öllum greinum.

Bætingar hjá fleiri keppendum
Freyja Björt Svavarsdóttir varð fimmta í -61 kg flokki og bætti sig í öllum greinum: 70 kg í snörun, 92 kg í jafnhendingu og 162 kg samanlagt. Hallfríður Anna Benediktsdóttir varð fimmta í -77 kg flokki. Hún bætti sig í snörun um 4 kg með 86 kg og samanlagt með 180 kg. Auk þess bætti hún U23 Íslandsmet Bergrósar Björnsdóttur í snörun. Snædís Líf Pálmarsdóttir bætti sig í jafnhendingu með 97 kg og jafnaði sitt besta samanlagða, 171 kg.

Önnur úrslit

  • Andrea Rún Þorvaldsdóttir, -69 kg: 83 / 95 / 178 kg, 7. sæti
  • Snædís Líf Pálmarsdóttir, -69 kg: 74 / 97 / 171 kg, 9. sæti
  • Ásdís Hjálmsdóttir Annerud, -86 kg: 80 / 105 / 185 kg, 5. sæti
  • Valdís Brynjarsdóttir, -86 kg: 82 / 95 / 177 kg, 6. sæti og setti auk þess þrjú Íslandsmet í U23.
  • Tindur Eliasen, -85 kg: 124 / 143 / 267 kg, 5. sæti
  • Viktor Jóhannes Kristófersson, -110 kg: snaraði 130 kg en náði ekki gildri jafnhendingu (163, 165, 165)

Öll úrslit má finna á vef Norræna lyftingasambandsins: https://nordicweightlifting.com/results-senior-nordics-2026/

  1. Þrettán Íslandsmet á öðrum degi NM Skildu eftir svar
  2. Fjöldi Íslandsmeta á fyrsta degi NM Skildu eftir svar
  3. 21 íslenskur keppandi á Norðurlandamótinu í Haugesund Skildu eftir svar
  4. Skráning hafin á jólamót LSÍ og LFK, EMOM-mótið Skildu eftir svar
  5. Erla reyndi við Íslandsmet í jafnhendingu Skildu eftir svar
  6. Friðný Fjóla með 220 kg samanlagt á HM í Kína Skildu eftir svar
  7. Þórbergur Ernir steig á svið í fyrsta sinn á HM fullorðinna Skildu eftir svar
  8. Guðný Björk hafnaði í 26. sæti á HM í Kína Skildu eftir svar
  9. Bergur með tvö Íslandsmet í 85 kg flokki á HM Skildu eftir svar