Gull og silfur á HM öldunga í Aþenu

Þrír íslenskir keppendur tóku þátt á heimsmeistaramóti öldunga í ólympískum lyftingum (WMC) sem fór fram í Aþenu í Grikklandi í september. Uppskeran var frábær, einn heimsmeistaratitill, eitt silfur og fjöldi meta.

Anna Guðrún heimsmeistari í annað sinn

Anna Guðrún Halldórsdóttir varð heimsmeistari í -86 kg flokki kvenna 55–59 ára (W55). Hún lyfti samtals 135 kg, 55 kg í snörun og 80 kg í jafnhendingu.

Í snörun opnaði Anna Guðrún á 53 kg. Hún missti 55 kg í annarri tilraun en kláraði þá þyngd í þeirri þriðju. Í jafnhendingu tryggði hún sér titilinn strax í fyrstu lyftu með 73 kg og bætti svo við 76 kg. Í síðustu lyftu reyndi hún við 80 kg, sem er nýtt Evrópumet og 1 kg betra en fyrra met hennar, 79 kg. Lyftan var gild á þremur hvítum ljósum. Hún setti einnig met í jafnhendingu í flokkum 50 og 55 ára.

Anna Guðrún kom inn í mótið sem sigurstranglegust. Hún varð heimsmeistari árið 2024 og er ríkjandi Evrópumeistari í sínum flokki. Þrátt fyrir nokkuð stuttan keppnisferil á hún nú tvo heimsmeistaratitla, eitt silfur á HM, þrjá Evrópumeistaratitla og sex Evrópumet í tveimur þyngdarflokkum.

Silfur og metaregn hjá Hrund

Hrund Scheving keppti í -77 kg flokki kvenna 45–49 ára (W45) og náði sér í silfur. Hún átti sex gildar lyftur: 65, 69 og 71 kg í snörun og 85, 88 og 90 kg í jafnhendingu, eða 161 kg samtals. Með 71 kg snörun, 90 kg jafnhendingu og 161 kg samanlagt setti hún met í flokkum 35, 40 og 45 ára.

Steinunn í keppni í flokki 60 ára

Steinunn Sveinsdóttir keppti í -86 kg flokki kvenna 60–64 ára (W60). Hún lyfti 29 kg í fyrstu tilraun í snörun en næstu tvær tilraunir voru ekki gildar. Hún náði því miður ekki gildri lyftu í jafnhendingu og fékk því ekki skráðan samanlagðan árangur.

Lyftingasamband Íslands óskar keppendum innilega til hamingju með árangurinn!

Öll úrslit má sjá á results.lsi.is.


Anna Guðrún jafnhattar 80 kg á HM öldunga í Aþenu. Ljósmynd: aðsend úr einkasafni

Heimildir:

Ný Íslandsmet og nýir þyngdarflokkar í gildi frá 1. ágúst

Nýir þyngdarflokkar IWF tóku gildi 1. ágúst síðastliðinn þrátt fyrir þyngdarflokkabreytingu sem átti sér stað 1. júní 2025.

Áfram eru keppnisflokkarnir átta en dreifingin er aðeins önnur en í flokkunum 2025, í kvennaflokki eru 3 nýir þyngdarflokkar og í karlaflokki eru 4 nýir þyngdarflokkar, í U17 og U15 eru 4 nýir þyngdarflokkar kvenna og 6 þyngdarflokkar karla. Í eldri flokkum er ekki gerð breyting á metum, heldur standa eldri met. Þetta er svipuð aðferð og önnur lönd og sambönd eru að beyta. Í nýjum flokkum byrja mót frá 1. ágúst að telja og sömu reiknisformúlur eru notaðar við áætlun á stöðluðum metum líkt og áður. Ekki er settur staðall í unglinga eða öldungaflokki.

Hægt er að sjá öll met í afreksgagnagrunni sambandsins: https://results.lsi.is/records

Flokkarnir eru eftirfarandi:

Konur
Senior/Opin flokkur, U20 and U23 og öldungaflokkar:
-49 kg Nýr flokkur – Nýr staðall í opnum flokk (72/89/161)
-53 kg Gamall flokkur – engin breyting
-57 kg Nýr flokkur – Nýr staðall í opnum flokk (84/104/188)
-61 kg Nýr flokkur – Nýr staðall í opnum flokk (88/107/195)
-69 kg Gamall flokkur – engin breyting
-77 kg Gamall flokkur – engin breyting
-86 kg Gamall flokkur – engin breyting
+86 kg Gamall flokkur – engin breyting

Karlar
Senior/Opin flokkur, U20 and U23 og öldungaflokkar:
-60 kg Gamall flokkur – engin breyting
-65 kg Gamall flokkur – engin breyting
-70 kg Nýr flokkur – Nýr staðall í opnum flokk (118/145/263)
-75 kg Nýr flokkur – Nýr staðall í opnum flokk (123/151/274)
-85 kg Nýr flokkur – Nýr staðall í opnum flokk (131/161/292)
-95 kg Nýr flokkur – Nýr staðall í opnum flokk (136/169/305)
-110 kg Gamall flokkur – engin breyting
+110 kg Gamall flokkur – engin breyting

Konur
U17 and U15
-45 kg Nýr flokkur – enginn staðall
-49 kg Nýr flokkur – enginn staðall
-53 kg Gamall flokkur – engin breyting
-57 kg Nýr flokkur – enginn staðall
-61 kg Nýr flokkur – enginn staðall
-69 kg Gamall flokkur – engin breyting
-77 kg Gamall flokkur – engin breyting
+77 kg Gamall flokkur – engin breyting

Karlar
U17 and U15
-55 kg Nýr flokkur – enginn staðall
-60 kg Gamall flokkur – engin breyting
-65 kg Gamall flokkur – engin breyting
-70 kg Nýr flokkur – enginn staðall
-75 kg Nýr flokkur – enginn staðall
-85 kg Nýr flokkur – enginn staðall
-95 kg Nýr flokkur – enginn staðall
+95 kg Nýr flokkur – enginn staðall

Athygli er vakin á því að á Ólympíuleikunum í Los Angeles verður keppt í sex þyngdarflokkum í karla og sex í kvennaflokki.

Karlar: -65 kg, -75 kg, -85 kg, -95 kg, -110 kg og +110 kg

Konur: -53 kg, -61 kg, -69 kg, -77 kg, -86 kg og +86 kg

Ísland á þrjá keppendur á HM öldunga í Aþenu

Heimsmeistaramót öldunga fer fram í Aþenu dagana 17. – 26. september.

Við eigum þrjá keppendur á mótinu, allt konur.

Steinunn Sveinsdóttir keppir laugardaginn 19. september kl. 12:15 á staðartíma í W60 86 kg flokki

Anna Guðrún Halldórsdóttir keppir sunnudaginn 20. september kl. 11:45 á staðartíma í W55 í 86 kg flokki

Hrund Scheving keppir þriðjudaginn 22. september kl. 15:15 í W45 í 77 kg flokki

Mótið er í beinu streymi á YouTube

LSÍ mun eftir bestu getur flytja fréttir frá mótinu. Fylgist með á lsi.is og miðlum (Instagram og Facebook).

Frumherjamótið 2026 – keppendalisti

Það er mikið gleðiefni að sjá 33 skráða keppendur frá átta félögum á Frumherjamótið, haustmót LSÍ og Heimsklassa sem fer fram í WorldFit salnum í Kringlunni laugardaginn 19. september.

Mikið hefur verið lagt í umgjörð mótsins en þar má meðal annars nefna:

  • Allir keppendur fá gjafabréf frá Frumherja
  • Áhorfendur fá afsláttarmiða í skoðun hjá Frumherja
  • Frumherjaverðlaunin verða veitt í fyrsta sinn
  • UPP og Gatorade styðja við endurheimt efstu þriggja keppenda í karla- og kvennaflokki

Verðlaunaafhending fer fram í loks móts um kl. 15:30

Keppendalisti – Konur

  • Vigtun frá kl. 07:00
  • Keppni hefst í B flokki kl. 09:00 og í A flokki kl. 11:10
NafnFélagFæðingarárFlokkurTotalHópur
Margrét Bára ÞórkelsdóttirLyftingafélag Kópavogs198369140B
Íris ArnarsdóttirLyftingafélagið Heimsklassi200177135B
Erla GuðmundsdóttirLyftingafélag Kópavogs198077130B
Máney Dögg BjörgvinsdóttirLyftingafélag Kópavogs199586+130B
Sigríður Lína ViðarsdóttirLyftingafélag Kópavogs198877120B
Birna ÓlafsdóttirLyftingafélagið Heimsklassi200849110B
Bjarnheiður HauksdóttirLyftingafélag Kópavogs19808680B
Harpa Björg BjörnsdóttirLyftingarfélag Kópavogs200886+80B
Anna Dóra ÁgústsdóttirHamar19697776B
NafnFélagFæðingarárFlokkurTotalHópur
Guðný Björk StefánsdóttirKraftlyftingafélag Mosfellsbæjar200177200A
Emilía Nótt DavíðsdóttirLyftingafélag Kópavogs200669175A
Hallfríður Anna BenediktsdóttirLyftingafélagið Heimsklassi200577175A
Snædís Líf PálmarsdóttirLyftingafélag Reykjavíkur200061165A
Freyja Björt SvavarsdóttirLyftingafélagið Heimsklassi200561160A
Indíana Lind GylfadóttirLyftingafélagið Heimsklassi200086+160A
Hildur Marín BjarnadóttirLyftingafélagið Heimsklassi200169155A
Valdís BrynjarsdóttirLyftingafélag Reykjavíkur200477155A
Auður Arna EyþórsdóttirStjarnan199886152A
Eyvör Halla JónsdóttirLyftingafélag Reykjavíkur199977145A
Sigrún ÁgústsdóttirLyftingafélagið Heimsklassi199669145A

Keppendalisti – Karlar

  • Vigtun frá kl. 08:00
  • Keppni hefst kl. 13:10
NafnFélagFæðingarárFlokkurTotalHópur
Bergur SverrissonKA199485291A
Viktor Jóhannes KristóferssonKA1999110280A
Rökkvi Hrafn GuðnasonLyftingafélag Reykjavíkur200595270A
Tindur EliasenLyftingafélag Reykjavíkur200585270A
Einar KarelssonStjarnan1998110240A
Guðmundur Grétar MagnússonLyftingafélag Kópavogs2004110240A
Sigurður Óli MagnússonLyftingafélagið Heimsklassi199595220A
Kristófer Logi HaukssonLyftingafélagið Heimsklassi200885220A
Guðjón Gauti VignissonKraftlyftingafélag Akraness200995210A
Theodór Einar MagnússonLyftingafélagið Heimsklassi201075200A
Ían Bergmann GuðmundssonLyftingafélagið Heimsklassi199985200A
Kristinn Þór HilmarssonLyftingafélagið Heimsklassi200775180A
Bergsteinn ArasonLyftingafélag Reykjavíkur197595140A

Fjöldi keppenda frá félögum

FélagKarlarKonur
Stjarnan11
Lyftingafélag Reykjavíkur33
Lyftingafélag Kópavogs17
Lyftingafélagið Heimsklassi57
Kraftlyftingafélag Akraness10
Hamar01
KA20
Kraftlyftingafélag Mosfellsbæjar01

Ferðin okkar byrjar hjá KILROY

Lyftingasamband Íslands og KILROY hafa undirritað samstarfssamning til næstu tveggja ára þar sem KILROY verður ferðasamstarfsaðili sambandsins og annast ferðabókanir í tengslum við landsliðs- og æfingaferðir LSÍ.

Markmið samstarfsins er að byggja upp traust og farsælt langtímasamband þar sem KILROY getur nýtt sér þekkingu á ferðamynstri og þörfum LSÍ til að veita sambandinu markvissa og persónulega þjónustu. Samstarfið mun jafnframt skapa aukið utanumhald um ferðir sambandsins og stuðla að hagkvæmum og öruggum ferðalausnum fyrir LSÍ og landsliðsfólk þess.

Við hjá LSÍ erum mjög ánægð með þetta nýja samstarf við KILROY. Ferðir eru stór og mikilvægur hluti af starfsemi sambandsins og því skiptir miklu máli að hafa traustan samstarfsaðila sem getur veitt okkur góða ráðgjöf og þjónustu. Við hlökkum til að byggja upp samstarfið á komandi árum, segir Arnór Ásgeirsson, framkvæmdastjóri LSÍ.

Samstarf KILROY og LSÍ mun þó ekki eingöngu snúa að ferðatengdri þjónustu. Aðilar hyggjast einnig kanna frekara markaðs- og sýnileikasamstarf samhliða ferðasamstarfinu. Það getur meðal annars falið í sýnileika KILROY í tengslum við ferðir og starfsemi LSÍ, merkingum á fatnaði eða búnaði, samfélagsmiðlum, viðburðum og öðrum verkefnum sem skapa gagnkvæmt virði.

Við hjá KILROY hlökkum til að taka utan um ferðamál LSÍ og nýta okkar reynslu til að gera ferðirnar eins einfaldar og hagkvæmar og hægt er. Okkar markmið er ekki bara að bóka ferðir, heldur að kynnast starfsemi sambandsins, ferðamynstrinu og þörfum landsliðsfólksins þannig að við getum veitt sem besta þjónustu og ráðgjöf hverju sinni. Með því getum við einfaldað utanumhald, fundið hagkvæmar lausnir og tryggt að afreksfólkið sem fer út fyrir Íslands hönd geti einbeitt sér að sínu verkefni, segir Sæmundur Hrafn Linduson, rekstrarstjóri KILROY.

Undirritun samningsins fór fram í höfuðstöðvum KILROY í viðurvist Arnórs Ásgeirssonar, framkvæmdastjóra LSÍ og Sæmundar Hrafns Lindusonar, rekstrarstjóra KILROY. Með þeim á myndinni er landsliðsfólk LSÍ, þau Þórbergur Ernir Hlynsson, Eygló Fanndal Sturludóttir og Emilía Nótt Davíðsdóttir.

Ferðin þín byrjar hér – og næstu tvö árin byrjar ferðin okkar hjá KILROY.

Frumherjamótið fer fram 19. september

LSÍ og Frumherji taka höndum saman og kynna haustmót LSÍ.

Mótið fer fram laugardaginn 19. september í WorldFit salnum í Kringlunni í umsjá lyftingafélagsins Heimsklassa. Skráning fer fram á Abler.

Áætlað er að hefja vigtun kl. 07:00 og mótið sjálft kl. 09:00.

Sem einn af aðalsamstarfsaðilum LSÍ mun Frumherji sjá til þess að umgjörðin verður sem glæsilegust en þar má nefna;

  • Allir keppendur fá gjafabréf í skoðun
  • Áhorfendur fá 15% afsláttarmiða
  • Frumherji mótsins verður valinn, en þann heiður hlýtur sá keppandi sem að mati dómnefndar á bestu tilþrif mótsins, óvænta innkomu eða sýnir með einum eða öðrum hætti yfirburða íþróttamennsku

Skráning á mótið er opin til og með sunnudagsins 13. september

Guðmundur Sigurðsson 80 ára

Guðmundur Sigurðsson lyftingafrömuður varð 80 ára þann 9. júní. Hann þarf vart að kynna til leiks en þó er líklegt að ekki þekki allir af yngri kynslóðinni afrek hans og framlag til lyftinga.

Guðmundur var sá fyrsti sem gerður var að Heiðursfélaga Lyftingasambandsins árið 2023 þegar afhendingar hófust á 50 ára starfsafmæli sambandsins.

Í tilefni af 70 ára afmæli hans tókum við saman myndir og yfirlit af árangri hans sem enn á vel við: https://lsi.is/2016/06/09/gudmundur-sigurdsson-70-ara/

Sumarmót LSÍ – keppendalisti

18 keppendur eru skráðir á sumarmót LSÍ sem fer fram í Íþróttahöllinni á Akureyri, sunnudaginn 24. maí. Lyftingadeild KA hefur umsjón með mótinu.

Vigtun hefst kl. 10:45 fyrir alla keppendur

Keppni í kvennaflokki hefst kl. 12:45

Keppni í karlaflokki hefst kl. 14:45

Konur

Last NameFirst NameTeamBirth YearCategoryEntry Total
ÓlafsdóttirBirnaLyftingafélag Kópavogs200853100
FriðriksdóttirBirna SalómeLyftingafélag Reykjavíkur200963127
BjarnadóttirBrynja MaríaLyftingafélag Reykjavíkur199086130
JónsdóttirEyvör HallaLyftingafélag Reykjavíkur199969150
SvavarsdóttirFreyja BjörtLyftingafélag Reykjavíkur200558160
BjartmarsdóttirHólmfríðurLyftingafélag Reykjavíkur200977125
KjartansdóttirHólmfríður KLyftingafélag Kópavogs199569145
MagnúsdóttirSteindís ElínLyftingafélag Reykjavíkur200869160
BrynjarsdóttirValdísLyftingafélag Reykjavíkur200477160

Karlar

Last NameFirst NameTeamBirth YearCategoryEntry Total
KristjánssonArnar BjarkiKA200188212
SverrissonBergurKA199488270
EinarssonBjarki FreyrUMFN – Massi200288188
VignissonGuðjón GautiKraftlyftingafélag Akraness200994200
ÆvarssonJóhannes ÞórLyftingafélag Kópavogs197394170
HaukssonKristófer LogiLyftingafélag Kópavogs200888200
EliasenTindurLyftingafélag Reykjavíkur200588269
EinarssonTristan BergmannLyftingafélag Reykjavíkur201171120
KristóferssonViktor JóhannesKA1999110265

Skráning hafin á Sumarmót LSÍ

Skráning fyrir Sumarmót LSÍ í ólympískum lyftingum sem fer fram sunnudaginn 24. maí 2026.

SKRÁNING HÉR

Skráningu lýkur 21. maí 2026 kl. 23:59.

Mótið er í umsjá lyftingadeildar KA og fer fram í Íþróttahöllinni við Skólastig á Akureyri

Mótið er Sinclair stigamót og þrír stigahæstu einstaklingarnir af hvoru kyni eru verðlaunaðir.

Afrek á results.lsi.is eru skráð í þann þyngdarflokk sem einstaklingurinn vigtast inn í á mótið þ.e. ekki þarf að ná vigt í þeim flokki sem keppandi skráir sig í.

Upplýsingar um keppendur verða einungis notaðar í tengslum við mótið.

Upplýsingar um keppendur hvers félags verða sendar á forsvarsmenn félaganna til staðfestingar.

Keppnisgjald er kr. 10.000,- og bera keppendur ábyrgð á greiðslu keppnisgjalds (breytingar á mótareglum og þ.m.t. gjaldskrá, tóku gildi 6. maí).

Forskráningargjald er kr. 8.000,- og gildir til og með sunnudagsins 17. maí.

*Stefnt er að því að hefja vigtun kl. 10:30 til að koma til móts við þá sem koma með flugi um morguninn (áætluð koma til Akureyrar með fyrsta flugi frá Reykjavík er kl. 10:15).

Frekari upplýsingar um mótið veitir Birkir Örn Jónsson fyrir hönd KA, á netfangið lyftingar@ka.is eða í síma 844 7377.

Þórbergur nálægt sínu besta í Batumi

Þórbergur Ernir Hlynsson, -110 kg, steig á svið í Batumi í morgun í C hóp. Æfingar hafa gengið vel undanfarið og því var hann vel undirbúinn og klár í slaginn. Hann opnaði á 144 kg í snörun sem fór upp. Næst reyndi hann svo við 3 kg bætingu á sínu besta en missti stöngina í botnstöðu. Hann mætti ákveðinn í þriðju lyftu, 150 kg sem fóru því miður ekki upp. Eftir góða hvíld opnaði hann í 173 kg í jafnhendingu sem fóru auðveldlega upp. Hann fylgdi því eftir með virkilega góðum 179 kg, 1 kg frá sínum besta árangri. Þriðja og seinasta lyftan var svo tilraun til Íslandsmets en upp vildu ekki 183 kg. Samanlagt lyfti hann því 323 kg, sem er 2 kg frá hans besta árangri. Niðurstaðan 2. sæti af 8 keppendum í C hóp.

Þórbergur er á góðu skriði og þessi frammistaða sýnir góðan stöðugleika og spennandi tíma framundan. Þegar þetta er skrifað þá er hann sem stendur í 11. sæti af 29 keppendum þegar tíu eiga eftir að lyfta í A hóp. Hann mun því neðst geta endað í 21. sæti.

@craftverslun
@frumherji_hf
@gatoradeiceland
@sbdapparel

#LyftingasambandÍslands #oly #weightlifting #batumi