Bergur Sverrisson steig á svið í 85 kg flokki D riðli á HM á mánudagsmorgni. Hann gerði sér lítið fyrir og setti tvö Íslandsmet í 85 kg flokki, í snörun og í samanlögðu. Bergur var jafnframt að keppa léttari en áður og ánægjulegt að hann hafi náð stöðugri og öflugri frammistöðu. Hann jafnaði árangur sinn frá heimsmeistaramótinu í fyrra, þá í gamla 88 kg flokknum. Besti árangur Bergs á stórmóti er frá Evrópumeistaramótinu 2025 þegar hann lyfti 302 kg (140/162).
Bergur opnaði á 130 kg í snörun sem flugu upp. Töluverð bið var áður en hann gat farið í lyftu tvö, sem truflaði aðeins taktinn hjá honum. Bergur missti næstu þyngd, 135 kg aðeins fram fyrir sig en safnaði kröftum og reif sömu þyngd upp í þriðju lyftu. Þetta var einnig Íslandsmet í 85 kg flokki karla. Að snörun lokinni var hann í 3. sæti af 9 keppendum.
Hann hóf jafnhendinguna á 153 kg sem fóru ekki upp en dómarar dæmdu lyftuna ekki gilda. Hann lét reyna við sömu þyngd sem flaug upp og mikil stemning í íslenska hópnum í stúkunni. Í þriðju lyftu setti hann 158 kg á stöngina og lét vaða. Upp fór stöngin og gleðin leyndi sér ekki hjá Bergi og íslenska hópnum.
Að jafnhendingu lokinni var hann í 5. sæti af 9 keppendum.
Hann lyfti samtals 293 kg, 9 kg frá hans besta árangri en nú í léttari þyngdarflokk. Hann setti Íslandsmet í snörun (135 kg) og í samanlögðu (293 kg) og endaði í 4. sæti af 10 keppendum í sínum riðli. Það kemur í ljós síðar í dag í hvaða lokasæti hann endar þegar allir hafa lokið keppni.


