Sumarmót LSÍ fór fram sunnudaginn 24. maí í Íþróttahöllinni á Akureyri í umsjá lyftingadeildar KA. Óhætt er að segja að mótahaldið hafi verið til fyrirmyndar, skipulagið var til gott og fagleg vinnubrögð einkenndu mótið frá upphafi til enda.
Keppendur stóðu sig frábærlega og sýndu margir hverjir feiknagóða takta á pallinum. Hér á eftir fylgja helstu úrslit dagsins
Stigahæstu keppendur í karlaflokki
Í karlaflokki sáust gríðarlega flottar lyftur þar sem Viktor Jóhannes Kristófersson tryggði sér efsta sætið með glæsilegum árangri.
- Viktor Jóhannes Kristófersson (KA)
- -110 kg, 130/162 = 292 kg og 329.448 Sinclari stig
- Tindur Eliasen (Lyftingafélag Reykjavíkur)
- -88 kg, 120/138 = 285 kg og 319.933 Sinclair stig
- Arnar Bjarki Kristjánsson (KA)
- -88 kg, 104/137 = 241 kg og 295.727 Sinclair stig
Stigahæstu keppendur í kvennaflokki
Kvennemegin var keppnin sömuleiðis jöfn og spennandi þar sem Freyja Björt Svavarsdóttir fór með sigur af hólmi eftir harða baráttu.
- Freyja Björt Svavarsdóttir (Lyftingafélag Reykjavíkur)
- -58 kg, 64/90 = 154 kg og 214.102 Sinclair stig
- Steindís Elín Magnúsdóttir (Lyftingafélag Reykjavíkur)
- -69 kg, 72/95 = 167 kg og 208.728 Sinclair stig
- Valdís Brynjarsdóttir (Lyftingafélag Reykjavíkur)
- -77 kg, 82/93 = 175 kg og 206.975 Sinclair stig
Liðakeppnin
Lyftingafélag Reykjavíkur sýndi mikla breidd á mótinu og vann liðakeppnina með talsverðum yfirburðum. Heimamenn í KA og Lyftingafélag Kópavogs háðu sömuleiðis harða baráttu.
Lokastaða félaga (samanlagður stigafjöldi karla og kvenna):
| Sæti | Félag | Stig |
| 1. | Lyftingafélag Reykjavíkur | 193 stig |
| 2. | Lyftingafélag Kópavogs | 99 stig |
| 3. | KA | 53 stig |
| 4. | Kraftlyftingafélag Akraness | 28 stig |
| 5. | UMFN – Massi | 25 stig |
LSÍ óskar keppendum til hamingju með árangurinn og færir lyftingadeild KA bestu þakkir fyrir frábæra framkvæmd og framúrskarandi umgjörð á Akureyri!
Við þökkum Gatorade á Íslandi, Next Level Gaming og Hreysti fyrir stuðninginn við umgjörð mótsins en sigurvegarar í karla- og kvennaflokki fengu auk verðlauna, veglegar gjafir.


