Nýlegar færslur

Ferðasaga frá Kósovó

Sólveig Ásta Gautadóttir dómari fór út fyrir hönd Íslands á Evrópumeistaramót U15 og U17 sem fór fram í Pristína í Kósovó. Við fengum hana til að segja okkur frá sinni upplifun og deilum einnig með ykkur myndum frá mótinu.

Evrópumeistaramót unglinga U15 og U17 var haldið dagana 20. – 27. ágúst 2026 í Pristína, Kósovó. Alls áttu 39 þjóðir keppendur á mótinu og voru keppendur 360 talsins. Keppt var í tveimur aldurshópum, U15 og U17.

Þetta er ekki í fyrsta skipti sem þetta mót er haldið í Pristína en sama mót fór einmitt fram þar árið 2017. Þetta mót er 23. U17 Evrópumeistaramótið en fyrsta Evrópumeistaramót U15 var haldið árið 2013.

Það koma margir að svona stóru móti. Allt í allt voru 40 dómarar (e. ITO), þar af voru átta sem skipuðu kviðdóm (e. jury) og 16 sem skipuðu dómarasæti (e. referee).

ITO’s eða International Technical Officials sinna ýmsum störfum á mótum sem þessum. Undirrituð var í stöðu dómara (e. referee) en önnur hlutverk þeirra sem eru með ITO réttindi eru kviðdómur (e. jury) sem fer með ákvörðunarvald móts, baksviðsstjóri e. (chief marshal), sem sér um að skrá breytingar á lyftum, mótastjóri (e. technical controller) sem sér um að mótið gangi samkvæmt áætlun og að allur búnaður sé samkvæmt lögum og reglum, kynnir (e. speaker) sem sér um að tilkynna keppendur sem og breytingar á þyngdum, ritari (e. secretary) sem sér um vigtun ásamt dómurum, tímavörður (e. timekeeper) sem heldur utan um tímann sem keppendur hafa og svo læknir (e. doctor).

Það er mögnuð upplifun að fá tækifæri eins og þetta. Ekki aðein að ferðast á framandi slóðir, sjá unglinga sem hafa lagt blóð, svita og tár til að ná árangri sem þessum, heldur líka reynslan og tækifæri til að vinna með þessu frábæra fólki sem kemur að svona móti.

Þetta er reynsla og upplifun sem mun fylgja mér um ókomna tíð.

Með bestu kveðjum,
Sólveig Ásta

Sólveig Ásta lengst til hægri á myndinni
Keppnissvæðið
Allir ITO’s samankomnir á mynd
Sólveig Ásta Gautadóttir, ITO Cat. 2
  1. Ungmenni á vegum LSÍ í æfingabúðum EWF í Sviss Skildu eftir svar
  2. Tveir Evrópumeistaratitlar og glæsilegur árangur íslenska liðsins í Belgíu Skildu eftir svar
  3. Guðmundur Sigurðsson 80 ára Skildu eftir svar
  4. Viktor og Freyja hlutskörpust á glæsilegu sumarmóti LSÍ Skildu eftir svar
  5. Sumarmót LSÍ – keppendalisti Skildu eftir svar
  6. Skráning hafin á Sumarmót LSÍ Skildu eftir svar
  7. Emilía Nótt keppir á HM U20 Skildu eftir svar
  8. Glæsileg frammistaða Erlu á EM Skildu eftir svar
  9. Þórbergur nálægt sínu besta í Batumi Skildu eftir svar