Fjögur efnileg ungmenni voru valin úr hópi sterka og öflugra iðkenda í æfingabúðir evrópska lyftingasambandsins (EWF) í Macolin í Sviss dagana 12. – 19. júlí. Æfingabúðirnar eru fyrir ungmenni á aldrinum 13-17 ára.
Þetta eru þau Theodór Einar Magnússon f. 2010, Guðjón Gauti Vignisson f. 2009, Birna Salóme Friðriksdóttir f. 2009 og Hólmfríður Bjartmarsdóttir f. 2009. Þau eru jafnframt stigahæst allra ungmenna okkar þegar horft er til Sinclair stiga.
Með þeim í för eru þjálfararnir Ingi Gunnar Ólafsson og Þorvaldur Hafsteinsson.
Þau eru virk í hringrásinni á Instagram: instagram.com/icelandic_weightlifting/
Við þökkum samstarfsaðilum okkar fyrir stuðninginn: Craftverslun og Frumherji.
