Íslensku keppendurnir í flokki 20 ára og yngri unnu til þrennra bronsverðlauna á öðrum keppnisdegi Norðurlandamótsins í ólympískum lyftingum í Haugesund í Noregi, laugardaginn 21. nóvember. Alls voru sett þrettán ný Íslandsmet í U20 og U23.
Kristófer Logi Hauksson tók brons í -85 kg flokki eftir jafna baráttu um verðlaunasætið. Hann snaraði mest 107 kg og jafnhenti 131 kg í síðustu tilraun, 238 kg samanlagt. Þetta er 10 kg bæting á hans besta samanlagða árangri. Hann bætti sig líka um fjögur kg í snörun og fimm kg í jafnhendingu. Þar með bætti hann eigin Íslandsmet U20 í -85 kg flokki í snörun, jafnhendingu og samanlögðu. Finninn Veikko Ojala sigraði flokkinn með 268 kg samanlagt.
Birna Ólafsdóttir vann brons í -49 kg flokki. Tvær stelpur í U17 voru einnig settar saman í hennar hóp. Það má því segja að Birna hafi unnið sinn flokk í U20. Hún fór í gegnum allar þrjár snaranirnar og snaraði mest 50 kg, sem jafnar hennar besta skráða árangur. Hún jafnhenti 53 kg, 103 kg samanlagt. Með því setti hún ný Íslandsmet í snörun, jafnhendingu og samanlögðu í -49 kg flokki, bæði í U20 og U23, í heildina sex ný Íslandsmet. Emine Tefre Grønnevik frá Noregi sigraði með 113 kg samanlagt.
Kristinn Þór Hilmarsson fékk brons í -75 kg flokki með mest 80 kg í snörun og 102 kg í jafnhendingu, 182 kg samanlagt. Svíinn Vilgot Lütz sigraði flokkinn með 248 kg.
Emilía Nótt Davíðsdóttir hafnaði í 4. sæti í -69 kg flokki, sex kg frá bronsinu. Hún snaraði mest 76 kg og jafnhenti 105 kg, 181 kg samanlagt. Það er tveggja kg bæting bæði í jafnhendingu og samanlögðu, og þar með bætti hún eigin Íslandsmet í U20 og U23, alls fjögur ný met. Kaisa Rautio frá Finnlandi sigraði flokkinn með 194 kg.
Steindís Elín Magnúsdóttir keppti einnig í -69 kg flokki og lenti í 7. sæti. Hún snaraði mest 68 kg og jafnhenti 90 kg, 158 kg samanlagt, sem er sami árangur og hún náði á EM U20 og U23 í október.
