21 íslenskur keppandi á Norðurlandamótinu í Haugesund

Norðurlandamótið í ólympískum lyftingum fer fram í Haugesund í Noregi dagana 20. – 22. nóvember. Ísland sendir 21 keppanda. Í fyrsta sinn keppa allir aldursflokkar á sama stað og sömu helgi: fullorðnir, U20 (junior) og U17 (youth).

Íslenska liðið er mjög fjölmennt. Í því eru 13 konur og átta karlar. Fjórir keppa í flokki U17, fimm í flokki U20 og 12 í flokki fullorðinna. Mótið verður því frábært tækifæri fyrir yngri keppendur okkar til að stíga sín fyrstu skref á alþjóðlega sviðinu við hlið reyndari lyftara. Þar má nefna Kötlu Björk Ketilsdóttur og Guðnýju Björk Stefánsdóttur, sem kepptu á heimsmeistaramótinu í Kína fyrr í mánuðinum. Emilía Nótt Davíðsdóttir, sem bætti Íslandsmet sitt á EM U20 í október, keppir líka.

Með í för eru þjálfararnir Ingi Gunnar Ólafsson, Hrund Scheving Sigurðardóttir og Þorvaldur Hafsteinsson. Tveir íslenskir dómarar starfa einnig á mótinu. Þetta eru Indíana Lind Gylfadóttir landsdómari (NTO) og Sólveig Ásta Gautadóttir alþjóðlegur dómari (ITO Cat. 2).

Keppni hefst kl. 09:30 að staðartíma (08:30 að íslenskum tíma) alla þrjá dagana. Nákvæmar tímasetningar íslensku keppendanna liggja ekki fyrir en við munum uppfæra þær um leið og upplýsingar berast.

Föstudagur 20. nóvember – U17

  • Theodór Einar Magnússon, 75 kg flokki karla U17 (hópur 2)
  • Birna Salóme Friðriksdóttir, 61 kg flokki kvenna U17 (hópur 3)
  • Hólmfríður Bjartmarsdóttir, 77 kg flokki kvenna U17 (hópur 3)
  • Guðjón Gauti Vignisson, +95 kg flokki karla U17 (hópur 4)

Laugardagur 21. nóvember – U20 og fullorðnir

  • Kristinn Þór Hilmarsson, 75 kg flokki karla U20 (hópur 5, kl. 09:30 / 08:30 á Íslandi)
  • Birna Ólafsdóttir, 49 kg flokki kvenna U20 (hópur 6)
  • Emilía Nótt Davíðsdóttir, 69 kg flokki kvenna U20 (hópur 6)
  • Steindís Elín Magnúsdóttir, 69 kg flokki kvenna U20 (hópur 6)
  • Kristófer Logi Hauksson, 85 kg flokki karla U20 (hópur 7)
  • Katla Björk Ketilsdóttir, 61 kg flokki kvenna (hópur 9)
  • Freyja Björt Svavarsdóttir, 61 kg flokki kvenna (hópur 9)

Sunnudagur 22. nóvember – fullorðnir

  • Ingimar Jónsson, 75 kg flokki karla (hópur 11)
  • Snædís Líf Pálmarsdóttir Dison, 69 kg flokki kvenna (hópur 12)
  • Andrea Rún Þorvaldsdóttir, 69 kg flokki kvenna (hópur 12)
  • Tindur Eliasen, 85 kg flokki karla (hópur 13)
  • Rökkvi Guðnason, 95 kg flokki karla (hópur 13)
  • Guðný Björk Stefánsdóttir, 77 kg flokki kvenna (hópur 14)
  • Hallfríður Anna Benediktsdóttir, 77 kg flokki kvenna (hópur 14)
  • Ásdís Hjálmsdóttir Annerud, 86 kg flokki kvenna (hópur 14)
  • Valdís Brynjarsdóttir, 86 kg flokki kvenna (hópur 14)
  • Viktor Jóhannes Kristófersson, 110 kg flokki karla (hópur 15)

Mótið er sýnt í beinu streymi á direktesport.no. Athugið að stofna þarf aðgang til að horfa. Dagskrá og úrslit má finna á nordicweightlifting.com.

Við óskum öllu íslenska liðinu góðs gengis í Haugesund!

Færðu inn athugasemd