Fjöldi Íslandsmeta á fyrsta degi NM

Íslensku keppendurnir í flokki 17 ára og yngri unnu til fernra verðlauna á Norðurlandamótinu í ólympískum lyftingum, sem hófst í Haugesund í Noregi í gær, föstudaginn 20. nóvember. Fjöldi nýrra Íslandsmeta í aldursflokkum voru sett.

Guðjón Gauti Vignisson átti frábæran dag í +95 kg flokki og tók silfur. Hann fór í gegnum allar sex lyfturnar af miklu öryggi. Hann snaraði mest 112 kg og jafnhenti 133 kg, 245 kg samanlagt. Það er 19 kg bæting á hans besta samanlagða árangri auk þess sem hann setti ný Íslandsmet U17 í snörun, jafnhendingu og samanlögðu. Svíinn Hugo Sjödén sigraði flokkinn með 255 kg samanlagt.

Hólmfríður Bjartmarsdóttir vann einnig silfur, í -77 kg flokki, með mest 58 kg í snörun og 74 kg í jafnhendingu, 132 kg samanlagt. Rikke Christiani frá Danmörku sigraði.

Theodór Einar Magnússon lenti í 3. sæti í -75 kg flokki. Hann snaraði mest 90 kg, sem jafnar hans besta árangur, og jafnhenti 117 kg, sem er sjö kg bæting. Samanlagt lyfti hann 207 kg. Með því bætti hann eigin Íslandsmet í jafnhendingu og samanlögðu í 75 kg flokki, í U17, U20 og U23, í heldina sex ný Íslandsmet.

Birna Salóme Friðriksdóttir fékk brons í -61 kg flokki með mest 61 kg í snörun og 70 kg í jafnhendingu, 131 kg samanlagt. Það er aðeins einu kg frá hennar besta árangri. Engin Íslandsmet eru skráð í -61 kg flokki í U17 og U20 eftir síðustu þyngdarflokkabreytingar og því setti Birna sex ný Íslandsmet í -61 kg flokki í U17 og U20.

Mynd: Aðsend

Færðu inn athugasemd