Guðný Björk hafnaði í 26. sæti á HM í Kína

Guðný Björk Stefánsdóttir keppti í 77 kg flokki kvenna á heimsmeistaramótinu í ólympískum lyftingum í Ningbo í Kína. Hún keppti í C riðli þar sem hún lyfti samtals 211 kg, 96 kg í snörun og 115 kg í jafnhendingu. Það skilaði henni 26. sæti í flokknum.

Guðný hóf keppni í snörun með 93 kg sem fóru örugglega upp. Hún hækkaði síðan í 96 kg í annarri tilraun og náði einnig þeirri lyftu. Í þriðju tilraun reyndi hún við 99 kg og nýtt Íslandsmet en sú lyfta tókst ekki.

Í jafnhendingu hóf Guðný keppni á 115 kg sem fóru upp. Hún reyndi næst við 118 kg en náði ekki að ljúka lyftunni með góðum árangri. Í þriðju og síðustu tilraun reyndi hún við 120 kg og nýtt Íslandsmet, en sú lyfta tókst ekki heldur. Hún lauk því keppni með 115 kg í jafnhendingu og 211 kg samanlagt, sem tryggði henni 26. sætið í flokknum af 35 keppendum.

Þetta er þriðja heimsmeistaramót Guðnýjar en hún hefur áður keppt á mótinu árin 2024 og 2025. Á síðasta heimsmeistaramóti lyfti hún 213 kg samanlagt. Persónulegt met hennar í samanlögðu er 218 kg, sem hún setti á Íslandsmeistaramótinu árið 2025.

Photo: ATG
Photo: ATG
Photo: ATG / Guðný snarar 96 kg
Photo: ATG / 115 kg fóru upp í jafnhendingu

Færðu inn athugasemd