Nýlegar færslur

Bergur með tvö Íslandsmet í 85 kg flokki á HM

Bergur Sverrisson steig á svið í 85 kg flokki D riðli á HM á mánudagsmorgni. Hann gerði sér lítið fyrir og setti tvö Íslandsmet í 85 kg flokki, í snörun og í samanlögðu. Bergur var jafnframt að keppa léttari en áður og ánægjulegt að hann hafi náð stöðugri og öflugri frammistöðu. Hann jafnaði árangur sinn frá heimsmeistaramótinu í fyrra, þá í gamla 88 kg flokknum. Besti árangur Bergs á stórmóti er frá Evrópumeistaramótinu 2025 þegar hann lyfti 302 kg (140/162).

Bergur opnaði á 130 kg í snörun sem flugu upp. Töluverð bið var áður en hann gat farið í lyftu tvö, sem truflaði aðeins taktinn hjá honum. Bergur missti næstu þyngd, 135 kg aðeins fram fyrir sig en safnaði kröftum og reif sömu þyngd upp í þriðju lyftu. Þetta var einnig Íslandsmet í 85 kg flokki karla. Að snörun lokinni var hann í 3. sæti af 9 keppendum.

Hann hóf jafnhendinguna á 153 kg sem fóru ekki upp en dómarar dæmdu lyftuna ekki gilda. Hann lét reyna við sömu þyngd sem flaug upp og mikil stemning í íslenska hópnum í stúkunni. Í þriðju lyftu setti hann 158 kg á stöngina og lét vaða. Upp fór stöngin og gleðin leyndi sér ekki hjá Bergi og íslenska hópnum.

Að jafnhendingu lokinni var hann í 5. sæti af 9 keppendum.

Hann lyfti samtals 293 kg, 9 kg frá hans besta árangri en nú í léttari þyngdarflokk. Hann setti Íslandsmet í snörun (135 kg) og í samanlögðu (293 kg) og endaði í 4. sæti af 10 keppendum í sínum riðli. Það kemur í ljós síðar í dag í hvaða lokasæti hann endar þegar allir hafa lokið keppni.

Photo: ATG – Bergur Sverrisson, 85 kg D riðill
Photo: ATG – 135 kg snörun
Photo: 158 kg jafnhending
  1. Katla Björk steig fyrst Íslendinga á svið á HM Skildu eftir svar
  2. Sex íslenskir keppendur á heimsmeistaramótinu í ólympískum lyftingum í Kína Skildu eftir svar
  3. Þórbergur Ernir með Íslandsmet í snörun og samanlögðum árangri Skildu eftir svar
  4. Emilía Nótt bætti Íslandsmet sitt á EM U20 Skildu eftir svar
  5. Þrír íslenskir keppendur á Evrópumeistaramóti U20 og U23 Skildu eftir svar
  6. Gull og silfur á HM öldunga í Aþenu Skildu eftir svar
  7. Ný Íslandsmet og nýir þyngdarflokkar í gildi frá 1. ágúst Skildu eftir svar
  8. Ísland á þrjá keppendur á HM öldunga í Aþenu Skildu eftir svar
  9. Frumherjamótið 2026 – keppendalisti Skildu eftir svar