Ferðasaga frá Kósovó

Sólveig Ásta Gautadóttir dómari fór út fyrir hönd Íslands á Evrópumeistaramót U15 og U17 sem fór fram í Pristína í Kósovó. Við fengum hana til að segja okkur frá sinni upplifun og deilum einnig með ykkur myndum frá mótinu.

Evrópumeistaramót unglinga U15 og U17 var haldið dagana 20. – 27. ágúst 2026 í Pristína, Kósovó. Alls áttu 39 þjóðir keppendur á mótinu og voru keppendur 360 talsins. Keppt var í tveimur aldurshópum, U15 og U17.

Þetta er ekki í fyrsta skipti sem þetta mót er haldið í Pristína en sama mót fór einmitt fram þar árið 2017. Þetta mót er 23. U17 Evrópumeistaramótið en fyrsta Evrópumeistaramót U15 var haldið árið 2013.

Það koma margir að svona stóru móti. Allt í allt voru 40 dómarar (e. ITO), þar af voru átta sem skipuðu kviðdóm (e. jury) og 16 sem skipuðu dómarasæti (e. referee).

ITO’s eða International Technical Officials sinna ýmsum störfum á mótum sem þessum. Undirrituð var í stöðu dómara (e. referee) en önnur hlutverk þeirra sem eru með ITO réttindi eru kviðdómur (e. jury) sem fer með ákvörðunarvald móts, baksviðsstjóri e. (chief marshal), sem sér um að skrá breytingar á lyftum, mótastjóri (e. technical controller) sem sér um að mótið gangi samkvæmt áætlun og að allur búnaður sé samkvæmt lögum og reglum, kynnir (e. speaker) sem sér um að tilkynna keppendur sem og breytingar á þyngdum, ritari (e. secretary) sem sér um vigtun ásamt dómurum, tímavörður (e. timekeeper) sem heldur utan um tímann sem keppendur hafa og svo læknir (e. doctor).

Það er mögnuð upplifun að fá tækifæri eins og þetta. Ekki aðein að ferðast á framandi slóðir, sjá unglinga sem hafa lagt blóð, svita og tár til að ná árangri sem þessum, heldur líka reynslan og tækifæri til að vinna með þessu frábæra fólki sem kemur að svona móti.

Þetta er reynsla og upplifun sem mun fylgja mér um ókomna tíð.

Með bestu kveðjum,
Sólveig Ásta

Sólveig Ásta lengst til hægri á myndinni
Keppnissvæðið
Allir ITO’s samankomnir á mynd
Sólveig Ásta Gautadóttir, ITO Cat. 2

Tveir Evrópumeistaratitlar og glæsilegur árangur íslenska liðsins í Belgíu

Heildarúrslit má nálgast HÉR

Íslenskir keppendur náðu glæsilegum árangri á Evrópumeistaramóti öldunga í ólympískum lyftingum sem fram fór í Waregem í Belgíu dagana 19. – 27. júní. Níu keppendur kepptu fyrir Íslands hönd og uppskar íslenska lyftingafólkið okkar tvo Evrópumeistaratitla auk fjölda góðra einstaklingsárangra.

Anna Guðrún Halldórsdóttir varð Evrópumeistari í flokki W55 -86 kg. Anna Guðrún lyfti 58 kg í snörun og 76 kg í jafnhendingu, samtals 134 kg og tryggði sér þar með gullverðlaunin. Þetta er jafnframt þriðji Evrópumeistaratitill hennar í röð. Hún hafnaði jafnframt í 16. sæti af 417 keppendum sem kláruðu keppni þvert á flokka.

Annar Evrópumeistaratitill Íslands kom í flokki W45 -77 kg þar sem Hrund Scheving stóð uppi sem sigurvegari með 70 kg í snörun, sem jafnframt er bæting á Íslandsmeti um 6 kg og 86 kg í jafnhendingu, sem jafnframt er bæting á Íslandsmeti um 1 kg, samtals 156 kg og 7 kg bæting á Íslandsmeti hennar. Hrund hafnaði í 31. sæti af 417 keppendum sem kláruðu keppni þvert á flokka.

Í sama flokki hafnaði Erla Guðmundsdóttir í fimmta sæti með 63 kg í snörun, 85 kg í jafnhendingu og 148 kg samanlagt.

Jóhannes Þór Ævarsson keppti í flokki M50 -94 kg og hafnaði í 11. sæti með 78 kg í snörun, 100 kg í jafnhendingu og 178 kg samanlagt.

Gísla Rún Kristjánsdóttir keppti í flokki W45 -63 kg og hafnaði í 12. sæti með 40 kg í snörun, 56 kg í jafnhendingu, sem jafnframt er bæting á Íslandsmeti hennar um 2 kg og 96 kg samanlagt, einnig bæting um 2 kg á Íslandsmeti.

Dísa Edwards keppti í flokki W35 -63 kg og hafnaði í 7. sæti með 68 kg í snörun, 80 kg í jafnhendingu og 148 kg samanlagt.

Margrét Bára Þorkelsdóttir keppti í flokki W40 -69 kg og hafnaði í 4. sæti með 60 kg í snörun, 88 kg í jafnhendingu og 148 kg samanlagt.

Steinun Sveinsdóttir keppti í W60 -86 kg og hafnaði í 5. sæti með 32 kg í snörun, sem jafnramt var bæting á Íslandsmeti im 1 kg, 38 kg í jafnhendingu og 70 kg samanlagt.

Sigríður Lína Viðarsdóttir keppti í W35 -77 kg og hafnaði í 15. sæti með 57 kg í snörun, 70 kg í jafnhendingu og 127 kg samanlagt.

Íslenska kvennliðið hafnaði jafnfram í 9. sæti í stigakeppni þjóða af 10 þjóðum með samtals 164 stig, einu stigi minna en Írland í 8. sæti. Frakkland sigraði liðakeppni kvenna með 215 stig.

Þess má geta að íslensku keppendurnir náðu allir gildum lyftum. Frábær árangur okkar fólks.

Lyftingasamband Íslands óskar öllum keppendum innilega til hamingju með glæsilegan árangur á Evrópumeistaramótinu.

Anna Guðrún Halldórsdóttir með gullverðlaun sín eftir sigur í W55 -86 kg á Evrópumeistaramóti öldunga í Waregem í Belgíu. Þetta er þriðji Evrópumeistaratitill hennar í röð.
Hrund Scheving og Erla Guðmundsdóttir á góðri stundu eftir vel heppnaða keppni.
Kári Walter þjálfari með þeim Hrund Scheving og Erlu Guðmundsdóttur.

Glæsileg frammistaða Erlu á EM

Erla Ágústsdóttir, +86 kg, sýndi glæsilega takta á stóra sviðinu í Batumi þegar hún keppti í B hóp. Mikill og góður gangur hefur verið á æfingum undanfarið og því mætti Erla með mikið sjálfstraust og áræðni. Frammistaðan endurspeglaði greinilega framfarir síðustu vikna.

Erla opnaði snörun á 103 kg sem fóru ekki upp og einhver hrollur gerði vart um sig. Hún sýndi mikinn styrk og reif upp sömu þyngd auðveldlega í næstu lyftu og reyndi svo við 106 kg sem voru nálægt því að fara alla leið. Í jafnhendingu náðí hún fullu setti þar sem hún byrjaði á 120 kg, fór næst í 124 kg, sem fóru upp og endaði svo á því að lyfta glæsilega 127 kg og þar með bæta sinn besta árangur samanlagt um 2 kg.

Samtals því 103/127 = 230 kg og 13. sæti niðurstaðan.

@craftverslun
@frumherji_hf
@gatoradeiceland
@sbdapparel

#LyftingasambandÍslands#oly#Batumi

EM U20 og U23 í Albaníu

Evrópumeistaramót ungmenna, U20 og U23 fer fram dagana 28. október – 4. nóvember í Dürres, Albaníu. Ísland á þrjá keppendur á mótinu.

Thelma Mist Oddsdóttir keppir í -58 kg flokki U23 þann 30. október kl. 19:00 á staðartíma (18:00 á íslenskum tíma)

Tindur Eliasen keppir í -88 kg flokki U20 þann 1. nóvember kl. 11:00 á staðartíma (10:00 á íslenskum tíma).

Þórbergur Ernir Hlynsson keppir í -110 kg flokki U20 þann 3. nóvember kl. 09:00 á staðartíma (08:00 á íslenskum tíma)

Sigurður Darri Rafnson og Erla Ágústsdóttir fóru með íslenska liðinu sem þjálfarar og Emilía Nótt Davíðsdóttir sem aðstoðarmaður.

Smelltu hér til að fylgjast með lifandi stöðutöflu.

Smelltu hér til að fylgjast með beinu streymi.

Smelltu hér til að skoða úrslit mótsins.

Fylgist vel með hópnum á Instagram LSÍ.

Anna Hulda með nýtt íslandsmet í jafnhendingu

Anna Hulda Ólafsdóttir lauk í dag keppni á Evrópumeistaramótinu í Ólympískum Lyftingum sem fram fór í Tel Aviv í Ísreal. Anna Hulda keppti eins og áður hefur komið fram hér á síðunni í B-flokki 63kg kvenna. Hún vigtaðist léttust inn allra kvenna í 63kg flokki eða 61,58kg.

Anna Hulda hitar upp baksviðs í Tel Aviv

Anna Hulda hitar upp baksviðs í Tel Aviv

Hún endaði í 8.sæti af 10 keppendum í sínum flokki og í 14.sæti af 18 keppendum í heildar keppninni. Hún hóf leikinn með öruggri lyftu í snörun 70kg og fór því næst í 73kg en íslandsmet hennar er 75kg frá því á Jólamóti LSÍ 2013. Tvær tilraunir með 73kg fóru ekki í gegn en þyngdin virkaði létt í höndunum á henni og ekki er ólíklegt að smá stress hafi slegið hana út af laginu. Gott dæmi um hversu auðvelt það er að missa lyftur er að sigurvegarinn í 63kg flokki kvenna hin rússneska Tima Turieva missti byrjunar þyngdina sína tvisvar sinnum áður en hún loks lyfti henni í þriðju tilraun. Tveir keppendur í A-flokki duttu einnig út í jafnhendingu þar sem þeir náðu ekki gildri lyftu í jafnhendingu.

Anna og Sarah í Tel Aviv

Anna og Sarah í Tel Aviv

En Anna var ekki að baki dottin, hún háði nokkuð harða keppni við hina dönsku Söru Krarup sem einnig keppir í Crossfit eins og Anna. Anna byrjaði því á að lyfta 87kg og fór síðan í 90kg til að tryggja sér sigur á henni og loks í 94kg sem var tilraun til nýs íslandsmet og bæting um 1kg á meti Þuríðar Erlu Helgadóttur frá því á RIG leikunum í janúar. Sú lyfta fór létt upp og Anna lauk því leik með glæsibrag með 164kg í samanlögðum árangri sem er 3kg frá íslandsmeti hennar í samanlögðum árangri í 63kg flokki kvenna en Anna hefði farið upp um eitt sæti hefði hún bætt það met. Hún fagnaði metinu með heljarstökki sem vakti lukku áhorfenda.

Samsett mynd sem sýnir m.a. íslandsmets lyftu Önnu

Samsett mynd sem sýnir m.a. heljarstökk Önnu eftir íslandsmetið

Þriðji fulltrúi norðurlandaþjóðanna hin finnska Anna Everi ein besta lyftingakona norðurlandanna ætlaði sér stóra hluti en hún fór aðeins með opnunarþyngdir sínar í gegn en lyfti þó 186kg í samanlögðu, það dugði henni í 6.sætið í B grúppunni.

Anna Hulda með nýtt íslandsmet 94kg. Ljósmyndari: Kari Kinnunnen

Anna Hulda með nýtt íslandsmet 94kg. Ljósmyndari: Kari Kinnunnen

Heildar úrslit má sjá á: http://www.easywl.com/results/scoreboard.php?sessid=330

Anna Hulda lyftir á morgun

Anna Hulda Ólafsdóttir keppir á morgun á Evrópumeistaramótinu í ólympískum lyftingum sem fram fer í Tel Aviv í Ísrael. Hún mun keppa klukkan 11:30 að staðartíma en það er klukkan 8:30 á Íslandi.

Hægt verður að fylgjast með beint í gegnum eftirfarandi síðu: http://www.easywl.com/results/index.php?idgara=142

Anna Hulda í upphitunaraðstöðunni í Tel Aviv

Anna Hulda í upphitunaraðstöðunni í Tel Aviv

Undirbúningur fyrir mótið hefur gengið vel og mun þessi reynsla nýtast Önnu í framtíðinni.

Listi yfir lyftingakonur sem keppa við Önnu Huldu

Listi yfir lyftingakonur sem keppa við Önnu Huldu

Frekari upplýsingar um mótið má finna á síðu evrópskalyftingasambandsins: http://ewfed.com/news_det.php?id=65