Katla Björk steig fyrst Íslendinga á svið á HM

Katla Björk Ketilsdóttir var fyrst Íslendinga til að keppa á heimsmeistaramótinu í Kína. Hún keppti í 61 kg flokki í D riðli ásamt níu öðrum keppendum. Besti árangur hennar á stórmóti er frá Evrópumeistaramótinu í Georgíu 2026 þegar hún lyfti samtals 195 kg (89/106).

Katla opnaði 86 kg í snörun sem flugu upp. Fyrir aðra tilraun voru margir keppendur að hækka um 1 kg og ákvað Katla að taka stökk í 90 kg í annarri tilraun, sem var einnig tilraun til Íslandsmets. Það tókst ekki. Hún mætti ákveðin í þriðju lyftu við sömu þyngd og fór undir stöngina en missti hana því miður fram fyrir sig. Að snörun lokinni var hún í 4. sæti af 10 keppendum.

Hún hóf jafnhendinguna á 100 kg sem fóru upp. Næst lét hún reyna við 103 kg sem fóru líka upp. Hún lagði allt undir og gerði heiðarlega tilraun til að bæta sinn besta árangur og tilraun til Íslandsmets í jafnhendingu en upp vildu 107 kg ekki. Pressan hennar er hlutfallslega mjög sterk og því var meiri barátta við togið og beygjuna í jafnhendingunni.

Að jafnhendingu lokinni var hún í 5. sæti af 10 keppendum.

Hún lyfti samtals 189 kg, 6 kg frá hennar besta árangri og endaði í 5. sæti af 10 keppendum í sínum riðlu. Hún endaði í 31. sæti af 42 skráðum keppendum. Það er ljóst að heimsmeistaramótið í Kína er gríðarlega sterkt og fjölmennt.

Photo: ATG
Photo: ATG / Katla snarar 86 kg
Photo: ATG / Katla í jafnhendingunni

Færðu inn athugasemd