Ársþing Lyftingasambands Íslands 2026

Boðun ársþings Lyftingasamband Íslands

Stjórn Lyftingasambands Íslands boðar hér með til ársþings sambandsins í samræmi við lög LSÍ.

Ársþingið verður haldið miðvikudaginn 25. mars 2026 kl. 17:00
í fundarsal Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands (ÍSÍ), 3. hæð, Laugardal, Reykjavík.

Dagskrá samkvæmt lögum LSÍ

  1. Þingsetning.
  2. Innganga nýrra lyftingafélaga.
  3. Kosnir 3 einstaklingar í  kjörbréfanefnd.
  4. Kosning þingforseta og þingritara.
  5. Fráfarandi stjórn gefur skýrslu sína.
  6. Gjaldkeri leggur fram, skoðaða reikninga LSÍ til samþykktar.
  7. Stjórn leggur fram fjárhagsáætlun fyrir næsta ár.
  8. Lagðar fram lagabreytingar og breytingar á mótareglum, sem fram hafa komið.
  9. Umræða um aðrar tillögur og önnur mál sem borist hafa til stjórnarinnar, svo og önnur mál er þingið vill ræða.
  10. Kosning stjórnar og varastjórnar. 
  11. Kosning skoðunarfólks reikninga.
  12. Kosning formanns tækninefndar.
  13. Önnur mál.
  14. Þingslit.

Þingfulltrúar

Aðildarfélög eiga rétt á að senda þingfulltrúa í samræmi við lög LSÍ. Kjörbréf skulu liggja fyrir við upphaf þings.

Tillögur til þingsins

Málefni sem óskað er eftir að tekin verði fyrir á ársþingi skulu berast stjórn LSÍ eigi síðar en miðvikudaginn 4. mars 2026 (21 degi fyrir þing).

Framboð til stjórnar

Framboð til stjórnar skulu berast stjórn LSÍ eigi síðar en sunnudaginn 15. mars 2026 (10 dögum fyrir þing).
Tilkynning um framboð skal liggja fyrir eigi síðar en föstudaginn 20. mars 2026 (5 dögum fyrir þing).

Þinggögn

Dagskrá og þinggögn skulu send aðildarfélögum eigi síðar en miðvikudaginn 11. mars 2026 (14 dögum fyrir þing).

Stjórn Lyftingasambands Íslands
Reykjavík, 21. febrúar 2026

Mikil stemning á Íslandsmóti í ólympískum lyftingum í Miðgarði

Fréttin var uppfærð síðast kl. 18:45.

Mikil orka og frábær stemning var í Miðgarði í dag þegar Íslandsmót í ólympískum lyftingum fór fram í glæsilegri aðstöðu Stjörnunnar. Mótið var haldið í samstarfi Lyftingasambands Íslands og Lyftingafélags Mosfellsbæjar, með öflugri aðstoð starfsfólks Miðgarðs og lyftingadeildar Stjörnunnar.

Þátttaka á mótinu var mjög góð en alls mættu 46 keppendur til leiks, þar af 13 karlar og 33 konur. Keppnin var hörð í mörgum þyngdarflokkum og sýndu keppendur mikinn metnað, styrk og fagmennsku.

Skipulag mótsins gekk afar vel og var umgjörð þess til fyrirmyndar, bæði hvað varðar aðstöðu keppenda og upplifun áhorfenda. Áhorfendur fjölmenntu í Miðgarð og sköpuðu skemmtilega og hvetjandi stemningu fyrir keppendur.

Við viljum færa samstarfsaðilum okkar kærar þakkir fyrir góðan stuðning. Þar ber helst að nefna Gatorade, Kjörís, Next Level Gaming, Craft og SBD.

Að lokum viljum við þakka öllum sjálfboðaliðum sem lögðu mikla vinnu á sig við framkvæmd mótsins, sem og öllum þeim sem lögðu leið sína í Miðgarð til að styðja við íslenskt lyftingafólk og njóta spennandi keppni.

Myndir: Mattías Már Heiðarsson @mattimar.vz

Heildarúrslit Íslandsmóts LSÍ 2026

https://results.lsi.is/meet/slandsmeistaram-t-2026

Íslandsmeistarar í heildarkeppni urðu þau Þórbergur Ernir Hlynsson, LFR, 325 kg og 362,741 Sinclair stig og Guðný Björk Stefánsdóttir, LFM, 209 kg og 256,697 Sinclair stig.

Karlar

-79 kg flokkur – 2 keppendur

  • 1. sæti, Kristinn Hilmarsson, LFR, 200 kg (90/110)
  • 2. sæti, Brynjar Örn Thorlacius Kristjánsson, LFK, 170 kg (70/100)

-88 kg flokkur – 1 keppandi

  • 1. sæti, Kristófer Logi Hauksson, LFK, 215 kg (95/115)

-94 kg flokkur – 4 keppendur

  • 1. sæti, Rökkvi Hrafn Guðnason, LFR, 281 kg (123/158)
  • 2. sæti, Bergur Sverrisson, KA, 280 kg (130/150)
  • 3. sæti, Sigurður Óli Magnússon, LFA, 255 kg (110/145)

-110 kg flokkur – 6 keppendur

  • 1. sæti, Þórbergur Ernir Hlynsson, LFR, 325 kg (145/180)
  • 2. sæti, Einar Karelsson, Stjarnan, 254 kg (112/142)
  • 3. sæti, Guðmundur Grétar Magnússon, LFK, 240 kg (105/135)

Konur

Mynd: -53 kg, -58 kg og -63 kg
Mynd: -69 kg og -86 kg
Mynd: -77 kg og +86 kg

-53 kg flokkur – 1 keppandi

  • 1. sæti, Birna Ólafsdóttir, LFK, 101 kg (46/55)

-58 kg flokkur – 2 keppendur

  • 1. sæti, Freyja Björt Svavarsdóttir, LFR, 155 kg (65/90)
  • 2. sæti, Íris Rut Jónsdóttir, UMFN – Massi, 151 kg (65/86)

-63 kg flokkur – 5 keppendur

  • 1. sæti, Snædís Líf P Dison, LFR, 160 kg (70/90)
  • 2. sæti, Disa Edwards, UMFN – Massi, 154 kg (69/85)
  • 3. sæti, Vigdís Lilja Guðmundsdóttir, LFK, 145 kg (64/81)

-69 kg flokkur – 8 keppendur

  • 1. sæti, Sigurbjörg Eiríksdóttir, LFM, 171 kg (77/94)
  • 2. sæti, Steindís Elín Magnúsdóttir, LFR, 163 kg (73/90)
  • 3. sæti, Hólmfríður K. Kjartansdóttir, LFK, 155 kg (70/85)

-77 kg flokkur – 8 keppendur

  • 1. sæti, Guðný Björk Stefánsdóttir, LFM, 209 kg (91/118)
  • 2. sæti, Elín Birna Hallgrímsdóttir, LFR, 186 kg (78/108)
  • 3. sæti, Aþena Eir Jónsdóttir, UMFN – Massi, 170 kg (74/96)

-86 kg flokkur – 4 keppendur

  • 1. sæti, Ásdís Hjálmsdóttir Annerud, Stjarnan, 184 kg (80/104)
  • 2. sæti, Ásta Sachi Jónasdóttir, LFR, 160 kg (75/85)
  • 3. sæti, Auður Arna Eyþórsdóttir, Stjarnan, 142 kg (64/78)

+86 kg flokkur – 5 keppendur

  • 1. sæti, Friðný Fjóla Jónsdóttir, Stjarnan, 228 kg (100/128)
  • 2. sæti, Erla Ágústsdóttir, LFK, 226 kg (98/128)
  • 3. sæti, Unnur Sjöfn Jónasdóttir, LFK, 159 kg (66/93)

Íslandsmót LSÍ 2026 – Keppendalisti

Keppendalisti Íslandsmóts LSÍ 2026, haldið í Miðgarði í samstarfi við Lyftingafélag Mosfellsbæjar og lyftingadeild Stjörnunnar laugardaginn 7. febrúar hefur verið birtur með fyrirvara um villur.

Karlar – vigtun kl. 07:00 – keppni hefst kl. 09:00

Konur – vigtun kl. 08:00 – keppni hefst kl. 11:30

Mótið er þyngdarflokkamót þar sem verðlaunað er fyrir þrjú efstu sætin í hverjum flokki af hvoru kyni. Einnig eru verðlaun veitt fyrir hæsta samanlagðan árangur karla og kvenna. Verðlaunafhending er að loknum hverjum hópi fyrir sig.

Afrek á results.is eru skráð í þann þyngdarflokk sem einstaklingurinn skráir sig í, hægt er að skipta um þyngdaflokk þar til daginn fyrir mót. Vinsamlegast sendið þyngdarflokkabreytingar á lsi@lsi.is*.

*Á mótum þar sem keppt er í þyngdarflokkum hljóta keppendur 15 ára og yngri keppnisrétt í þeim flokki sem þeir vigtast inn í. Ef keppendur eru of léttir fyrir skráðan flokk fara þeir niður um flokk og ef þeir eru of þungir fyrir skráðan flokk fara þeir upp um flokk. 16 ára og eldri þurfa að vigtast inn í þann flokk sem þeir eru skráðir í á mótum sem keppt er í þyngdarflokkum á, en annars fyrirgera þeir rétti sínum til að keppa.

Keppendur eru beðnir að yfirfara skráningu og senda allar athugasemdir ef við á, á netfangið lsi@lsi.is.

Hópur 1 kl. 09:00

NafnKynFélagFlokkurFæðingarár
Brynjar Örn Thorlacius KristjánssonKarlLFK-791997
Kristinn HilmarssonKarlLFR-792007
Kristófer Logi HaukssonKarlLFK-882008
Bergur SverrissonKarlKA-941994
Sigurður Óli MagnússonKarlLFA-941995
Rökkvi Hrafn GuðnasonKarlLFR-942005
Viktor Jóhannes KristóferssonKarlKA-1102009
Guðmundur ÁsgeirssonKarlLFK-1101981
Guðmundur Grétar MagnússonKarlLFK-1102004
Jóhannes Þór ÆvarssonKarlLFK-941973
Hilmar Örn PéturssonKarlLFR-1102005
Þórbergur Ernir HlynssonKarlLFR-1102005
Einar KarelssonKarlStjarnan-1101998

Hópur 2 kl. 11:30

NafnKynFélagFlokkurFæðingarár
Birna ÓlafsdóttirKonaLFK-532008
Freyja Björt SvavarsdóttirKonaLFR-582005
Íris Rut JónsdóttirKonaUMFN – Massi-581991
Gísla Rún KristjánsdóttirKonaLFK-631981
Vigdís Lilja GuðmundsdóttirKonaLFK-632001
Snædís Líf P DisonKonaLFR-632000
Disa EdwardsKonaUMFN – Massi-631987
Elísabet Sara GísladóttirKonaUMFN – Massi-632003

Hópur 3 kl. 13:10

NafnKynFélagFlokkurFæðingarár
Birna Salóme FriðriksdóttirKonaLFR-692009
Erla GuðmundsdóttirKonaLFK-691980
Hólmfríður K. KjartansdóttirKonaLFK-691995
Margrét Bára ÞórkelsdóttirKonaLFK-691983
Sara Líf ÓlafsdóttirKonaLFK-692010
Sigrún ÁgústsdóttirKonaLFK-691996
Sigurbjörg EiríksdóttirKonaLFM-692001
Rakel Sara SnorradóttirKonaLFR-692006
Steindís Elín MagnúsdóttirKonaLFR-692008
Steinunn SveinsdóttirKonaLFK-861963
Ásta Sachi JónasdóttirKonaLFR-862000
Brynja María BjarnadóttirKonaLFR-861990
Ásdís Hjálmsdóttir AnnerudKonaStjarnan-861985
Auður Arna EyþórsdóttirKonaStjarnan-861998

Hópur 4 kl. 15:40

NafnKynFélagFlokkurFæðingarár
Aþena Eir JónsdóttirKonaUMFN – Massi-771998
Elín Birna HallgrímsdóttirKonaLFR-772000
Guðný Björk StefánsdóttirKonaLFM-772001
Guðrún Björg ElíasdóttirKonaLFK-771974
Signý SveinbjörnsdóttirKonaLFK-772004
Sigríður Lína ViðarsdóttirKonaLFK-771988
Valdís BrynjarsdóttirKonaLFR-772004
Erla ÁgústsdóttirKonaLFK+862001
Friðný Fjóla JónsdóttirKonaStjarnan+861997
Hildur Björk ÞórðardóttirKonaÍA+861985
Máney Dögg BjörgvinsdóttirKonaLFK+861995
Unnur Sjöfn JónasdóttirKonaLFK+862004

Lyftingasamband Íslands og New Wave Iceland hefja samstarf

Lyftingasamband Íslands (LSÍ) og New Wave Iceland (NWI), umboðsaðili Craft á Íslandi, hafa gert með sér samstarfssamning þess efnis að NWI mun útvega keppendum og þjálfurum landsliðs LSÍ æfinga- og ferðafatnað frá hinu þekkta íþróttavörumerki Craft.

Samstarfið er liður í því að efla umgjörð íslenskra lyftingamanna og tryggja að keppendur og þjálfarar klæðist vönduðum fatnaði sem styður við þægindi og fagmennsku, bæði á æfingum og í keppnisferðum innanlands sem utan.

Craft er alþjóðlega viðurkennt vörumerki á sviði íþróttafatnaðar og er þekkt fyrir vandaða hönnun, tæknileg efni og mikla áherslu á gæði og endingu. Með samstarfinu fá keppendur og þjálfarar LSÍ aðgang að fatnaði sem hentar kröfum afreksíþróttafólks.

Aðilar eru sammála um að samstarfið muni styrkja ímynd íslenskra lyftinga og styðja við áframhaldandi uppbyggingu íþróttarinnar á Íslandi.

Heimasíða Craft á Íslandi er https://craftverslun.is/.

Á myndinni má sjá þau Eygló Fanndal Sturludóttur Íþróttamann ársins, Þórberg Erni Hlynsson Norðurlandameistara ungmenna, Harald Jens Guðmundsson framkvæmdastjóra NWI og Arnór Ásgeirsson framkvæmdastjóra LSÍ, við undirritun samnings.
Eygló Fanndal Sturludótttir og Þórbergur Ernir Hlynsson.

Íslandsmótið í ólympískum lyftingum 2026 – Skráning er hafin!

Skráningareyðublað fyrir Íslandsmót LSÍ í ólympískum lyftingum þann 7. febrúar 2026*.
Skráningu lýkur 30. janúar 2026 kl. 23:59.

Mótið er í umsjá Lyftingafélags Mosfellsbæjar og Lyftingasambands Íslands og fer fram í Miðgarði, Garðabæ í aðstöðu Stjörnunnar.

Mótið er þyngdarflokkamót þar sem verðlaunað er fyrir þrjú efstu sætin í hverjum flokki af hvoru kyni. Einnig eru verðlaun veitt fyrir hæsta samanlagðan árangur karla og kvenna.

Afrek á results.is eru skráð í þann þyngdarflokk sem einstaklingurinn skráir sig í, hægt er að skipta um þyngdaflokk þar til daginn fyrir mót. Vinsamlegast sendið þyngdarflokkabreytingar á lsi@lsi.is*.

*Á mótum þar sem keppt er í þyngdarflokkum hljóta keppendur 15 ára og yngri keppnisrétt í þeim flokki sem þeir vigtast inn í. Ef keppendur eru of léttir fyrir skráðan flokk fara þeir niður um flokk og ef þeir eru of þungir fyrir skráðan flokk fara þeir upp um flokk. 16 ára og eldri þurfa að vigtast inn í þann flokk sem þeir eru skráðir í á mótum sem keppt er í þyngdarflokkum á, en annars fyrirgera þeir rétti sínum til að keppa.

Upplýsingar um keppendur verða einungis notaðar í tengslum við mótið.
Upplýsingar um keppendur hvers félags verða sendar á forsvarsmenn félaganna til staðfestingar.Keppnisgjald er kr. 7500,- og greiðir félag keppanda heildarupphæð til mótshaldara.

*Stefnt er að því að hefja keppni kl. 10:00

Jólamót LSÍ 2025 – úrslit

Jólamót LSÍ 2025 fór fram í húsakynnum CrossFit Reykjavíkur með góðri aðstoð Lyftingafélags Reykjavíkur. Við þökkum sjálfboðaliðum og samstarfsaðilum okkar, Next Level Gaming, Nóa Síríus og Ölgerðinni fyrir að tryggja glæsilega umgjörð.

Heildarúrslit í gagnagrunni LSÍ: https://results.lsi.is/meet/j-lam-t-ls-2025

Karlar

Sigurður Óli Magnússon, LFA, sem keppti á sínu fyrsta móti, fór með gullið heim eftir harða keppni við Einar Karelsson, Stjörnunni og Guðmund Gunnarsson, LFR.

Úrslit – smella hér

Konur

Thelma Mist Oddsdóttir, LFK stóð uppi sem sigurvegari eftir mikla baráttu við Sigurbjörgu Eiríksdóttur og Aþenu Eir Jónsdóttur, báðar úr UMFN – Massa. Úrslitin réðust í seinustu lyftunum.

Úrslit – smella hér

Jólamót LSÍ 2025 – Keppendalisti

Keppendalisti* jólamóts LSÍ 2025, haldið í húsakynnum CrossFit Reykjavíkur, sunnudaginn 14. desember hefur verið birtur með fyrirvara um breytingar.

Hópur 1 – vigtun kl. 12:00 – keppni hefst kl. 14:00

Hópur 2 – vigtun kl. 12:00 – keppni hefst kl. 16:40

Verðlaunaafhending áætluð kl. 19:00

Keppendur eru beðnir að yfirfara skráningu og senda allar athugasemdir ef við á, á netfangið lsi@lsi.is.

Skjöl

Start list

*Uppfært 12. desember

Mótshaldari er Lyftingafélag Reykjavíkur.

Hópur 1 kl. 14:00

NafnKynFélagFlokkur
Ásta Sachi JónasdóttirKonaLFR86+
Aþena Eir JónsdóttirKonaUMFN – Massi-77
Brynja María BjarnadóttirKonaLFR-86
Dísa EdwardsKonaUMFN – Massi-63
Eyvör Halla JónsdóttirKonaLFR-77
Hólmfríður K. KjartansdóttirKonaLFK-69
Hrund SchevingKonaLFK-77
Sigurbjörg EiríksdóttirKonaUMFN – Massi-69
Thelma Mist OddsdóttirKonaLFK-63
Unnur Sjöfn JónasdóttirKonaLFK86+
Valdís BrynjarsdóttirKonaLFR-77

Hópur 2 kl. 16:40

NafnKynFélagFlokkur
Bergsteinn ArasonKarlLFR-110
Breki GuðmundssonKarlÍA-94
Duc Hung BuiKarlLFR-60
Einar KarelssonKarlStjarnan110+
Guðjón Gauti VignissonKarlÍA-94
Guðmundur GunnarssonKarlLFR-94
Haukur Parelius FinnssonKarlLFR-94
Sigurður Óli MagnússonKarlLyftingafélag Austurlands-94
Theodór Einar MagnússonKarlLFR-88
Tristan Bergmann EinarssonKarlLFR-65

Fyrir hönd LSÍ
Arnór Ásgeirsson
Framkvæmdastjóri

Íslendingar með glæsilegan árangur á Norðurlandamóti ungmenna í ólympískum lyftingum

Norðurlandamót ungmenna, U17 og U20 fór fram síðustu helgina í nóvember í höfuðstöðvum Eleiko í Halmstad í Svíþjóð. Eleiko er eitt fremsta fyrirtæki heims í lyftingabúnaði og hefur framleitt stangir og lóð fyrir heimsmeistaramót í ólympískum lyftingum frá árinu 1963. Fyrirtækið var einnig fyrst til að framleiða gúmmíhúðaðar stálplötur og mótaði litakerfið sem notað er í dag: grænar plötur 1 og 10 kg, gular 1,5 og 15 kg, bláar 2 og 20 kg og rauðar 2,5 og 25 kg.

Ísland sendi sterkt lið til keppni að þessu sinni, tíu keppendur alls, fimm í U17 og fimm í U20. Liðið átti margar glæsilegar frammistöður og náði í verðlaunasæti í fjölmörgum flokkum.


U17 – Mikil og góð reynsla

Birna Ólafsdóttir – hetjuleg barátta

Birna Ólafsdóttir var fyrst til að stíga á pallinn fyrir Íslands hönd. Hún sýndi mikinn karakter í snörun þar sem hún náði 45 kg í þriðju tilraun eftir tvær mjög tæpar lyftur í sömu þyngd. Í jafnhendingu opnaði hún í 50 kg, hækkaði í 55 kg og náði þeirri þyngd í þriðju tilraun. Því miður var lyftan dæmd ógild vegna „press out“. Birna lauk keppni með 95 kg í samanlögðu og góða reynslu í farteskinu.


Sterkir drengir í -88 kg flokki

Í -88 kg flokki átti Ísland tvo keppendur þá Guðjón Gauta Vignisson og Kristófer Loga Hauksson.

  • Guðjón Gauti Vignisson snaraði þyngst 90 kg. Í jafnhendingu lyfti hann þyngst 112 kg og reyndi síðan við 117 kg sem tókst ekki.
  • Kristófer Logi Hauksson snaraði þyngst 92 kg og 116 kg í jafnhendingu. Hann lyfti 120 kg í þriðju tilraun, en lyftan var dæmd ógild.

Þeir enduðu báðir á verðlaunapalli:
Guðjón Gauti í 3. sæti með 202 kg, og Kristófer Logi í 2. sæti með 208 kg í samanlögðu.


Hólmfríður og Steindís luku U17 keppninni með stæl

Hólmfríður Bjartmarsdóttir – öflug frammistaða í +77 kg

Hólmfríður náði öllum þremur snörunum: 55 kg, 60 kg og 63 kg. Í jafnhendingu lyfti hún 70 kg og 75 kg og reyndi síðan við 80 kg sem hún náði að koma upp fyrir höfuð en ekki að læsa olnbogunum. Hún lauk keppni með 138 kg í samanlögðu, þetta skilaði henni þriðja sæti. 

Steindís – stöðug og traust

Steindís keppti í -69 kg flokki. Hún opnaði í öruggum 60 kg í snörun, lyfti síðan 64 kg og reyndi að lokum við 67 kg sem rétt misheppnaðist. Í jafnhendingu náði hún öllum sínum lyftum: 75 kg, 80 kg og 84 kg. Hún endaði því með 148 kg í samanlögðu.


U20 – Glæsilegur seinni dagur hjá íslenska liðinu

Emilía með góða frammistöðu

Emilía Nótt Davíðsdóttir var fyrst á svið í U20. Hún keppti í -69 kg flokki og lyfti 68 kg í snörun í fyrstu tilraun en bætti við 71 kg í annarri tilraun. Í jafnhendingu opnaði hún í 90 kg, mistókst 94 kg í fyrstu en náði þeirir þyngd glæsilega í þriðju tilraun. Emilía endaði með 165 kg í samanlögðu.


Rökkvi tryggði sér silfur eftir æsispennandi keppni í -88 kg

Í flokki þar sem Ísland, Svíþjóð og Finnland háðu harða baráttu um verðlaunasætin, sýndi Rökkvi Hrafn Guðnason mikla festu. Hann lyfti 115 kg í snörun, Finninn 113 kg og Svíinn 117 kg. Rökkvi reyndi við 118 kg en náði ekki.

Í jafnhendingu opnaði Svíinn í 140 kg, en Rökkvi svaraði með 143 kg. Þá hækkaði hann í 148 kg og negldi lyftuna. Svíinn reyndi við 149 kg en mistókst, sem tryggði Rökkva 2. sætið. Hann reyndi síðan við 151 kg í lokin sem fór upp, en var dæmd ógild.


Freyja Björt – 6 af 6 og 3. sæti í -58 kg

Freyja Björt Svavarsdóttir átti stórkostlegt mót og fékk allar sex lyftur gildar.

  • Snörun: 60 kg, 62 kg, 64 kg
  • Jafnhending: 80 kg, 83 kg, 85 kg

Þessi stöðugi og öflugi árangur tryggði henni verðskuldaðan verðlaunapening í sínum flokki.


Tindur í -94 kg, traust frammistaða og brons

Tindur Eliasen opnaði öruggur í 110 kg í snörun, hækkaði í 115 kg og endaði á 120 kg. Í jafnhendingu náði hann 132 kg, fékk 141 kg dæmt ógilt og missti að lokum 146 kg.
Hann endaði samt sem áður með 252 kg í samanlögðu og 3. sæti í -94 kg flokki.


Þórbergur tryggði Íslandi Norðurlandameistaratitilinn

Síðastur á svið var Þórbergur Ernir Hlynsson, sem var fullur sjálfstrausts. Markmið hans var skýrt: að verða bæði Norðurlandameistari U20 og stigahæsti karllyftari mótsins. Undirbúningurinn hafði þó ekki verið ákjósanlegur eftir höfuðhögg á EM U20 fyrr á árinu.

Þórbergur og helsti keppinautur hans, finnskur lyftari, fylgdust að í baráttunni. Eftir þokkalega jafna snörun þar sem Þórbergur hafði þó 4 kg forskot þegar í jafnhendinguna var komið. Finninn opnaði í 163 kg, Þórbergur í 165 kg og hélt forystunni. Þegar Finninn lyfti 173 kg í sinni síðustu tilraun þurfti Þórbergur að ákveða hvort hann ætti að tryggja titilinn eða taka séns á að ná bæði titlinum og hæstu stigunum. Útreikningar þjálfara og liðsfélaga Þórbergs voru skýr þar sem 178 kg voru nauðsynleg.

Þórbergur lagði allt undir. Hann lyfti stönginni upp af öryggi og yfirvegun, framkvæmdi jafnhöttunina (e. jerk) fullkomlega og tryggði sér með því bæði Norðurlandameistaratitilinn 2025 og titilinn stigahæsti lyftari mótsins. Algjör stórsigur fyrir Þórberg og íslenska landsliðið.

Við óskum okkar frábæru ungmennum til hamingju með vel heppnaða ferð. Að sögn þjálfara var öll ferðin til fyrirmyndar og mikil samheldni sem einkenndi hópinn, sem jókst eftir því sem leið á.

Framtíðini er svo sannarlega björt! Áfram Ísland.

Jólamót LSÍ 2025

Jólamót LSÍ í ólympískum lyftingum fer fram þann 14. desember 2025. Stefnt er að því að hefja keppni kl. 14:00.

Skráningu lýkur 9. desember 2025 kl. 23:59. Hámarksfjöldi keppenda er 40.

Mótið er í umsjá Lyftingafélags Reykjavíkur og Lyftingasambands Íslands og fer fram í sal CrossFit Reykjavíkur.

SMELLA HÉR TIL AÐ SKRÁ Á MÓT

Myndefni frá Matthíasi Má og Per Wiklund

EM U20 og U23 í Albaníu

Evrópumeistaramót ungmenna, U20 og U23 fer fram dagana 28. október – 4. nóvember í Dürres, Albaníu. Ísland á þrjá keppendur á mótinu.

Thelma Mist Oddsdóttir keppir í -58 kg flokki U23 þann 30. október kl. 19:00 á staðartíma (18:00 á íslenskum tíma)

Tindur Eliasen keppir í -88 kg flokki U20 þann 1. nóvember kl. 11:00 á staðartíma (10:00 á íslenskum tíma).

Þórbergur Ernir Hlynsson keppir í -110 kg flokki U20 þann 3. nóvember kl. 09:00 á staðartíma (08:00 á íslenskum tíma)

Sigurður Darri Rafnson og Erla Ágústsdóttir fóru með íslenska liðinu sem þjálfarar og Emilía Nótt Davíðsdóttir sem aðstoðarmaður.

Smelltu hér til að fylgjast með lifandi stöðutöflu.

Smelltu hér til að fylgjast með beinu streymi.

Smelltu hér til að skoða úrslit mótsins.

Fylgist vel með hópnum á Instagram LSÍ.