Sumarmót LSÍ fór fram sunnudaginn 24. maí í Íþróttahöllinni á Akureyri í umsjá lyftingadeildar KA. Óhætt er að segja að mótahaldið hafi verið til fyrirmyndar, skipulagið var til gott og fagleg vinnubrögð einkenndu mótið frá upphafi til enda.
Keppendur stóðu sig frábærlega og sýndu margir hverjir feiknagóða takta á pallinum. Hér á eftir fylgja helstu úrslit dagsins
Nálgast má heildarúrslit í gagnagrunni sambandsins: https://results.lsi.is/meet/sumarm-t-ls-2026
Stigahæstu keppendur í karlaflokki
Í karlaflokki sáust gríðarlega flottar lyftur þar sem Viktor Jóhannes Kristófersson tryggði sér efsta sætið með glæsilegum árangri.
- Viktor Jóhannes Kristófersson (KA)
- -110 kg, 130/162 = 292 kg og 329.4 Sinclari stig
- Tindur Eliasen (Lyftingafélag Reykjavíkur)
- -88 kg, 120/138 = 258 kg og 319.4 Sinclair stig
- Arnar Bjarki Kristjánsson (KA)
- -88 kg, 104/137 = 241 kg og 295.7 Sinclair stig
Stigahæstu keppendur í kvennaflokki
Kvennemegin var keppnin sömuleiðis jöfn og spennandi þar sem Freyja Björt Svavarsdóttir fór með sigur af hólmi eftir harða baráttu.
- Freyja Björt Svavarsdóttir (Lyftingafélag Reykjavíkur)
- -58 kg, 64/90 = 154 kg og 214.1 Sinclair stig
- Steindís Elín Magnúsdóttir (Lyftingafélag Reykjavíkur)
- -69 kg, 72/95 = 167 kg og 208.7 Sinclair stig
- Valdís Brynjarsdóttir (Lyftingafélag Reykjavíkur)
- -77 kg, 82/93 = 175 kg og 207.0 Sinclair stig
Íslandsmet
Lyftingakarl ársins 2025 Bergur Sverrisson setti nýtt íslandsmet á heimavelli í opnum flokki í snörun í -88 kg flokki þegar hann lyfti 138 kg. Hann náði því miður ekki gildri lyftu í jafnhendingu en Bergur var að reyna við lágmörk á Heimsmeistaramótið sem fram fer í Kína í lok október þar sem hann stefnir að því að keppa í -85 kg flokki.
Birna Salóme Friðriksdóttir setti jafnhendingarmet í flokki -63 kg U17, 73 kg.
Hólmfríður Bjartmarsdóttir setti tvö met í -77 kg flokki U17, þegar hún jafnhenti 78 kg og einnig met í samanlögðum árangri 138 kg.
Tristan Bergmann Einarsson setti fjölmörg met í -71 kg U15 og U17 og lyfti mest 57 kg í snörun, 80 kg í jafnhendingu, samanlagt 137 kg.
Guðjón Gauti Vignisson setti sömuleiðis nokkur met í -94 kg U17 þegar hann lyfti 100 kg í snörun, 120 kg í jafnhendingu og 220 kg í samanlögðum árangri.
Jóhannes Þór Ævarsson setti þrjú met í -94 kg M50 flokki þegar hann snaraði 78 kg, jafnhenti 104 kg og best 182 kg í samanlögðum árangri.
Liðakeppnin
Lyftingafélag Reykjavíkur sýndi mikla breidd á mótinu og vann liðakeppnina með talsverðum yfirburðum. Heimamenn í KA og Lyftingafélag Kópavogs háðu sömuleiðis harða baráttu.
Lokastaða félaga (samanlagður stigafjöldi karla og kvenna):
| Sæti | Félag | Stig |
| 1. | Lyftingafélag Reykjavíkur | 47 stig |
| 2. | Lyftingafélag Kópavogs | 20 stig |
| 3. | KA | 12 stig |
| 4. | Kraftlyftingafélag Akraness | 8 stig |
| 5. | UMFN – Massi | 5 stig |
LSÍ óskar keppendum til hamingju með árangurinn og færir lyftingadeild KA bestu þakkir fyrir frábæra framkvæmd og framúrskarandi umgjörð á Akureyri!
Við þökkum Gatorade á Íslandi, Next Level Gaming og Hreysti fyrir stuðninginn við umgjörð mótsins en sigurvegarar í karla- og kvennaflokki fengu auk verðlauna, veglegar gjafir.











