Lyftingasamband Íslands (LSÍ) og Frumherji hf. hafa undirritað samstarfssamning til tveggja ára. Með samningnum gerist Frumherji einn af aðalsamstarfsaðilum sambandsins og styður þannig beint við bakið á öflugu starfi og framúrskarandi afreksfólki í ólympískum lyftingum.
Sem hluti af samstarfinu mun vörumerki Frumherja prýða allan æfinga- og keppnisfatnað sambandsins. Það er því ljóst að merki þessa öfluga fyrirtækis mun fylgja íþróttafólkinu okkar á keppnisgólfin, jafnt innanlands sem utan, næstu tvö árin.
Það er LSÍ mikið gleðiefni að fá jafn rótgróið og öflugt fyrirtæki og Frumherja í hóp bakhjarla. Nafnið „Frumherji“ á sérstaklega vel við í þessu samstarfi, þar sem íslenskt lyftingafólk hefur svo sannarlega verið brautryðjendur á sínu sviði á undanförnum árum. Með miklum dugnaði og elju hefur íþróttafólkið okkar náð eftirtektarverðum árangri á alþjóðavísu og rutt brautina fyrir komandi kynslóðir.
„Við erum afar stolt af því að fá Frumherja til liðs við okkur. Að sjá vörumerki þeirra á fatnaði okkar er tákn um sterkt bakland sem hjálpar okkur að vaxa enn frekar,“ segir Arnór Ásgeirsson, framkvæmdastjóri LSÍ.
Samstarfið mun renna styrkari stoðum undir rekstur sambandsins og undirbúning keppenda fyrir stórmót næstu tveggja ára.
