Upplýsingar fyrir HM

Það er 6 tíma munur á Houston og Íslandi.
Þurí er kl 17:30 22.11
Hjördís kl 20:00 24.11
Annie og Katrín eru kl 03:25 aðfararnótt miðvikudagsins 25. nóv
Sara kl 14:00 27.11

Hægt er að horfa á mótið og sjá stöðuna í flokkunum á meðan keppni er í gangi hér: http://www.iwf.net/houston_live/

Dagskrá mótsins má sjá hér: http://www.houstoniwf2015.com/fg-schedule.html

Við minnum á instagram síðu Lyftingasambandsins: https://instagram.com/icelandic_weightlifting/

Einnig bendum við á All Things Gym en þeir eru með mikið af fréttum af mótinu: http://www.allthingsgym.com/

Guðrún Linda er með hópnum úti og mun hún setja uppfærslur á snapchat undir: crossfitsport

Það er til app fyrir mótið sem finnst í App store og Play store: 2015 IWF World championships

23 keppendur af Norðurlöndunum eru skráðir til leiks, 17 konur og 6 karlar.

Finnland 5KVK/3KK
Ísland 5KVK/0KK
Danmörk 3KVK/2KK
Svíþjóð 3KVK/0KK
Noregur 1KVK/1KK

Nokkuð Jöfn dreifing er í kvennaflokkum en -69kg flokkurinn þó fjölmennastur með 44 keppendur
-48 KVK = 39 Keppendur
-53 KVK = 39 Keppendur
-58 KVK = 37 Keppendur
-63 KVK = 37 Keppendur
-69 KVK = 44 Keppendur
-75 KVK= 34 Keppendur
+75 KVK = 36 Keppendur
Total = 266

HM hefst á morgun

HM lyftingum hefst á morgun 20.Nóvember: http://www.houstoniwf2015.com/

Búið er að birta keppendalistann á netinu og í hvaða grúppum hver keppir: http://www.iwf.net/wp-content/uploads/downloads/2015/11/Start_Book_HOUSTON.pdf

Þuríður Erla Helgadóttir keppir fyrst íslensku keppendanna klukkan 11:30 sunnudaginn 22.Nóv

Hjördís Ósk Óskarsdóttir er næst klukkan 14:00 Þriðjudaginn 24.Nóv

Annie Mist Þórisdóttir og Katrín Tanja Davíðsdóttir klukkan 21:25 Þriðjudaginn 24.Nóv
Ragnheiður Sara Sigmundsdóttir klukkan 8:00 Föstudaginn 27.11.Nóv

 

Screenshot from 2015-11-19 22:30:26

Þuríður jafnhenti 103kg á Íslandsmeistaramótinu í Apríl.

Við munum gera hverjum flokki góð skil, Þuríður ríður á vaðið en hæsta „entry total“ í hennar hóp eru 190 sem hin suður-kóreska Kim Sohwa er með. Sjá heildarlista C grúppu -58kg flokks hér að neðan. Þuríður á best 183kg í samanlögðu í -63kg flokki frá því á Íslandsmótinu í Apríl og verður því spennandi að sjá Screenshot from 2015-11-19 22:23:54

Þetta er fjórða mót Þuríðar á árinu en hún hóf árið með því að sigra á RIG sem stigahæsti kvenn keppandinn, því næst sigraði hún á Íslandsmeistaramótinu í -63kg flokki og varð jafnframt stigahæst kvenn keppenda og loks varð hún Norðurlandameistari -58kg flokki.

http://results.lsi.is/lifter/turidur-erla-helgadottir

RIG 2016: Upplýsingar

rig-logo-2016

RIG 2016 fer fram 30. Janúar milli 10:00-13:00, útsending verður á RÚV frá 15:30-17:00 samdægurs.

Fjórir erlendir keppendur eru staðfestir:

Karlar
Colin Burns (USA,-94kg)
Sami Raapanna (Finnland, -85kg)

Konur
Cortney Batchelor (USA, -58kg)
Anni Vuohijoki (Finnland, -69kg).

Átta (8) bestu körlum og konum á Íslandi verður boðin þátttaka að loknu jólamótinu (19.Des). Stuðst verður við niðurröðun samkvæmt árinu 2015 sem hægt er að kalla fram í gagnagrunni LSÍ:
http://results.lsi.is/ranking/total/2015/m
http://results.lsi.is/ranking/total/2015/f

20.Desember Verða boðskort send út
3.Janúar Keppendur verða að svara um þátttöku annars er næstu mönnum á lista boðin þátttaka
17.Janúar Loka keppendalistinn birtur

Frekari upplýsingar munu birtast hér á síðunni seinna og á heimasíðu RIG leikanna: http://www.rig.is/index.php/sports-88/olympic-weightlifting

Norðurlandamót unglinga 2016

Fjórir Norðurlandameistaratitlar unnust á Norðurlandamóti unglinga sem fram fór í Haugasund, Noregi um helgina. Lilja Lind Helgadóttir (LFG) sigraði í  69kg flokki stúlkna (20 ára og yngri). Þetta er þriðja árið í röð sem Lilja Lind verður Norðurlandameistari, en hún sigraði í +75kg flokki stúlkna í fyrra og +69kg flokki meyja árið 2013. Freyja Mist Ólafsdóttir (LFR) sigraði í 75kg flokki stúlkna og varði titilinn sem hún vann í sama flokki í fyrra.

Freyja Mist og Lilja Lind sáttar með gullin.

Freyja Mist og Lilja Lind sáttar með gullin.

Einar Ingi Jónsson (LFR) sigraði í 69kg flokki pilta (20 ára og yngri) og Guðmundur Steinn Gíslason Kjeld (LFR) vann til silfurverðlauna í sama flokki.

Einar Ingi og Guðmundur Steinn á verðlaunapalli.

Einar Ingi og Guðmundur Steinn á verðlaunapalli.

Guðmundur Högni Hilmarsson (LFR) sigraði í 85kg flokki pilta (20 ára og yngri) og bætti eigin Íslandsmet í piltaflokki bæði í snörun og samanlögðu sem hann setti á EM unglinga í síðasta mánuði.

Guðmundur Högni á verðlaunapalli.

Guðmundur Högni á verðlaunapalli.

Þá vann Arnór Gauti Haraldsson (LFH) til bronsverðlauna í 77kg flokki drengja (17 ára og yngri) og Jón Elí Rúnarsson (LFR) hlaut sömuleiðis brons í 105kg flokki pilta (20 ára og yngri). Sannarlega glæsileg uppskera hjá íslensku keppendunum.

Keppnishópurinn ásamt þjálfurum og fararstjórum, þeim Árna Birni Kristjánssyni og Inga Gunnari Ólafssyni.

Keppnishópurinn ásamt þjálfurum og fararstjórum, þeim Árna Birni Kristjánssyni og Inga Gunnari Ólafssyni.

Úrslit íslensku keppendanna má finna hér: http://results.lsi.is/meet/nordic-junioryouth-championship-ntf-2015

Sjá umfjöllun mbl um mótið: http://www.mbl.is/sport/frettir/2015/11/02/fjorir_islenskir_nordurlandameistarar/

Fimm konur á HM í lyftingum

Ísland mun eiga fimm keppendur á HM í ólympískum lyftingum sem fram fer í Houston daganna 20-28. Nóvember: http://www.houstoniwf2015.com/fan-guide/

Þuríður Erla Helgadóttir -58kg flokki
Hjördís Ósk Óskarsdóttir -63kg flokki
Annie Mist Þórisdóttir -69kg flokki
Katrín Tanja Davíðsdóttir -69kg flokki
Ragnheiður Sara Sigmundsdóttir -75kg flokki

Við munum birta ýmsar upplýsingar í aðdraganda mótsins.

Morgunblaðið gerir frábærlega skil á þátttöku íslensku keppendanna í íþróttablaðinu 29.10

http://www.mbl.is/sport/frettir/2015/10/29/crossfit_stjornur_horfa_til_rio/

NM JR 2016

Norðurlandamót unglinga fram í Haugasund í Noregi næstu helgi 30.Október – 1.Nóvember. Strákarnir úr hópnum hittust á föstudaginn og tóku þunga æfingu saman fyrir mótið.

Við munum miðla öllum upplýsingum sem við fáum að utan hér á síðuna en einnig bendum við á heimasíðu norska lyftingasambandins fyrir upplýsingar: http://www.vektlofting.no/Sider/default.aspx

f.v. Davíð Björnsson, Arnór Gauti, Jón Elí, Sindri Pétur, Guðmundur Steinn, Einar Ingi, Guðmundur Högni

f.v. Davíð Björnsson, Arnór Gauti, Jón Elí, Sindri Pétur, Guðmundur Steinn, Einar Ingi, Guðmundur Högni

Norðurlandamót Unglinga 2016: Keppendur

Norðurlandamót unglinga í ólympískum lyftingum fer fram í Haugesund, Noregi daganna 30.Október til 1.Nóvember.

10 keppendur fara frá Íslandi á mótið og allir eru þeir á mikilli siglingu:

Keppendalisti: Info Start List Nordic Youth and Junior 2015_B(2)

U17 KVK (-53kg flokkur)

Rakel Ragnheiður Jónsdóttir

U17 KK (-85kg flokkur)

Arnór Gauti Haraldsson

U20 KVK

-69Kg flokkur

Lilja Lind Helgadóttir

-75kg flokkur

Freyja Mist Ólafsdóttir

U20 KK

-69kg flokkur

Guðmundur Steinn Gíslason Kjeld

Einar Ingi Jónsson

-77kg flokkur

Sindri Pétur Ingimundarson

-85kg flokkur

Davíð Björnsson

-94kg flokkur

Guðmundur Högni Hilmarsson

Jón Elí Rúnarsson

Þjálfarar eru Árni Björn Kristjánsson og Ingi Gunnar Ólafsson

Haustmót LSÍ: Úrslit

Úrslit: http://results.lsi.is/meet/haustmot-2015

Upptaka af mótinu: https://drive.google.com/a/lsi.is/file/d/0B0bSk6AOPuiMcjNmNHY3UTlYVWM/view

Myndir frá mótinu á facebook síðu Lyftingafélagsins Hengils: https://www.facebook.com/lfhengill

19 konur og 22 karlar hófu keppni á Haustmóti LSÍ í íþróttahúsinu í Hveragerði, Laugardaginn (17.Okt). Mótið var það fyrsta sem Lyftingafélagið Hengill hélt en mótið er jafnframt það fjölmennasta sem haldið hefur verið síðustu ár og sýnir glöggt vöxt íþróttarinnar. Það var samróma álit allra að Hengill hafi haldið utan um mótið með allra besta móti.

Mótið var annað mótið af þremur í Bikarkeppni LSÍ og má segja að nokkur breyting hafi átt sér stað á en Lyftingafélag Reykjavíkur tók forustuna af Lyftingafélagi Garðabæar. Keppnin er nokkuð jöfn en tíu lyftingafélög hafa tryggt sér stig: http://results.lsi.is/admin/TeamCompetition

Liðabikar LSÍ 2015

Lið Stig
LFR 60
LFG 45
Ármann 41
LFH 40
Hengill 35
FH 19
Stjarnan 16
LFK 8
UMFN 7
KFA 3

Ómögulegt er að fara yfir hverja lyftu en reynt verður að stikla á stóru í þessu yfirliti

Birna Dís Ólafsdóttir (LFH) setti ný íslandsmet met í öllum lyftum í -48kg flokki kvenna og tók 50kg í snörun og 65kg í jafnhendingu. Sá árangur dugði henni í 6. sæti í heildarkeppninni.

Jakobína Jónsdóttir (LFR) sem hefur um árabil keppt í Crossfit keppti á sínu fyrsta lyftingamóti og stóð stig mjög vel, lyfti 68kg í snörun og 82kg í jafnhendingu í -58kg flokki kvenna. Sá árangur tryggði henni bronsið í heildarkeppninni.

Jakobína Jónsdóttir LFR

Jakobína Jónsdóttir LFR (Mynd: Lyftingafélagið Hengill)

Í -63kg flokki kvenna var hörð keppni framundan á milli Önnu Huldu Ólafsdóttur (LFR) og Hjördísar Ósk Óskarsdóttur (FH). Anna gerði sér lítið fyrir og snaraði 76kg sem er jöfnun á persónulegum árangri, Hjördís snaraði 73kg í annari tilraun. Í jafnhendingunni fór Hjördís með 100kg en Anna Hulda 90kg. Árangur Hjördísar dugði henni til sigurs í mótinu en Anna varð að láta sér nægja silfur að þessu sinni. Hjördís verður meðal þátttakenda á HM í lyftingum sem fram fer í Houston í Nóvember og var mótið liður í undirbúningi.

Hjördís Ósk Óskarsdóttir (FH) var stigahæst kvenna

Hjördís Ósk Óskarsdóttir (FH) var stigahæst kvenna (Mynd: Lyftingafélagið Hengill)

Anna Hulda Ólafsdóttir átti góða innkomu eftir að hafa verið að glíma við meiðsli bróður part af árinu

Anna Hulda Ólafsdóttir átti góða innkomu eftir að hafa verið að glíma við meiðsli bróður part af árinu. (Mynd: Lyftingafélagið Hengill)

Aníta Líf Aradóttir (LFR) átti gott mót en hún snaraði 68kg og bætti sig um heil 10kg í jafnhendingu þar sem hún tók 95kg. Má leiða líkum að því að hún skelli sér í 100kg jafnhendingarhópinn fljótlega. Árangur hennar dugði henni í 4.sæti í heildarkeppninni.

Aníta Líf Aradóttir (LFR) jafnhenti 95kg

Aníta Líf Aradóttir (LFR) jafnhenti 95kg (Mynd: Lyftingafélagið Hengill)

Sólveig Sigurðardóttir (LFG) kom sterk inn í mótið og bætti sig mikið í snörun og jafnhendingu þar sem hún snaraði 70kg og jafnhenti 85kg og endaði í 5.sæti í heildarkeppninni.

Sólveig Sigurðardóttir (LFG) bætti sig

Sólveig Sigurðardóttir (LFG) bætti sig. (Mynd: Lyftingafélagið Hengill)

Þær Lára Kristín Friðriksdóttir (LFK) og Una Mist Óðinsdóttir (LFR) settu báðar nokkur met í flokki 15 ára og yngri og standa metin í -69kg flokki í 34kg í snörun í eigu Láru og 47kg í jafnhendingu í eigu Unu. Frábær innkoma hjá þeim en þær eru aðeins 14 ára gamlar.

Í karlaflokki var Einar Ingi Jónsson (LFR) sjóðandi heitur hann bætti íslandsmet sín í -69kg flokki karla þegar hann snaraði 103kg og bætti síðan um betur í jafnhendingu og lyfti 128kg í annari tilraun sem einnig var met. Þessi árangur gaf honum 315,8 Sinclair stig sem er bætin um 12 stig og var jafnframt stigahæsti árangur mótsins. Einar er 19 ára á árinu og voru þetta því unglingamet 20 ára og yngri sem og 23 ára og yngri.

Einar Ingi Jónsson (LFR) setti met og varð stigahæstur karla

Einar Ingi Jónsson (LFR) setti met og varð stigahæstur karla. (Mynd: Lyftingafélagið Hengill)

Árni Freyr Bjarnason (Ármann) var einnig í bætingagír og snaraði 112kg og jafnhenti 143kg, það dugði til silfurverðlauna í heildarkeppninni.

Guðmundur Steinn Gíslason Kjeld (LFR) varð þriðji en hann bætti sig um 5kg í snörun og lyfti 102kg, í jafnhendingu bætti hann sig einnig og lyfti 121kg. Guðmundur vann brons. Einar Ingi og Guðmundur Steinn eru báðir á leiðinni á Norðurlandamót Unglinga í lok mánaðrins og er þetta því mjög gott veganesti fyrir þá.

Guðmundur Steinn (LFR) varð þriðji með fínar bætingar

Guðmundur Steinn (LFR) varð þriðji með fínar bætingar. (Mynd: Lyftingafélagið Hengill)

Bjarmi Hreinsson (LFR) skilaði stigum í Bikarkeppnina en hefur átt betri daga, hann snaraði 115kg í opnunarþyngd og klikkaði síðan tvisvar sinnum á 122kg, í jafnhendingu fór hann í gegn með opnunarþyngdina 145kg. Bjarmi lyfti samt sem áður mestu þyngd mótsins og kemur vel til baka eftir að hafa meitt sig lítillega á NM í Ágúst. Árangur hans var fjórði stigahæsti á mótinu.

Bjarmi jafnhenti þyngstu lyftunni 145kg

Bjarmi jafnhenti þyngstu lyftunni 145kg. (Mynd: Lyftingafélagið Hengill)

Árni Rúnar Baldursson (Hengill) fór með allar sínar lyftur í gegn og snaraði 95kg og jafnhenti 120kg í -77kg flokki karla og endaði fimmti.

Goði Ómarsson (LFG) og Jón Elí Rúnarsson (LFR) háðu harða keppni á stigum en Goði vigtaðist 10gr léttari en Jón Elí en þeir lyftu sömu heildarþyngd. Goði var 6.sæti með 102kg/143kg en Jón Elí 110kg/135kg. Jón Elí keppir á NM unglinga í lok mánaðarins.

Goði Ómarsson (LFG) átti fínt mót

Goði Ómarsson (LFG) átti fínt mót. (Mynd: Lyftingafélagið Hengill)

Arnór Gauti Haraldsson (LFH) bætti öll piltametin (17 ára og yngri) þegar hann snaraði 92kg og jafnhenti 113kg í -85kg flokki. Metin voru áður í eigu Guðmunds Högna Hilmarssonar, Arnór er einnig meðal keppenda á NM unglinga í lok mánaðarins.

Arnór Gauti (LFH) bætti metin í -85kg flokki karla (U17)

Arnór Gauti (LFH) bætti metin í -85kg flokki karla (U17). (Mynd: Lyftingafélagið Hengill)

LSÍ vill enn og aftur koma þökkum á framfæri við alla sem að mótinu komu bæði skipuleggjendur sem og starfsmenn.