Haustmótið: Skráningarlistinn er kominn á netið

Keppandalistinn fyrir Haustmótið er kominn á netið, tímaseðill kemur á morgunn. Uppfærður listi verður í gagnagrunni sambandsins allar leiðréttingar og afskráningar verða að berast á lsi@lsi.is sem fyrst: http://results.lsi.is/meet/haustmot-2015

  Nafn Félag Þyngdarflokkur
Fjöldi Konur
1 Birna Dís Ólafsdóttir LFH -48kg
3 Jakobína Jónsdóttir LFR -58kg
4 Álfrún Tinna Guðnadóttir LFR -58kg
5 Anna Hulda Ólafsdóttir LFR -63kg
6 Hjördís Ósk Óskarsdóttir FH -63kg
7 Lára Kristín Friðriksdóttir LFK -63kg
8 Ásta Karen Kristjánsdóttir ÁRM -63kg
9 Harpa Almarsdóttir HEN -63kg
10 Þuríður Erla Helgadóttir ÁRM -63kg
11 Birna Blöndal Sveinsdóttir KFA -63kg
12 Sandra H ÁRM -63kg
13 Birna Almarsdóttir Hengill -63kg
14 Sólveig Sigurðardóttir LFG -63kg
15 Viktoría Rós Guðmundsdóttir LFH -69kg
16 Una Mist Óðinsdóttir LFR -69kg
17 Hrafnhildur Vala Friðriksdóttir ÁRM -69kg
18 Sunna Viium ÁRM -69kg
19 Sirra Sigrún Sigurðardóttir ÁRM -69kg
20 Aníta Líf Aradóttir LFR -69kg
21 María Rún Þorsteinsdóttir Hengill -69kg
22 Álfrún Ýr Björnsdóttir LFH -75kg
23 Freydís María Friðriksdóttir LFK 75kg+
24 Anna Dröfn Óladóttir ÁRM 75kg +
Fjöldi Karlar Félag Þyngdarflokkur
1 Viktor Kári Bukasa LFK -62kg
2 Jökull Máni Þrastarson ÁRM -69kg
3 Einar Ingi Jónsson LFR -69kg
4 Jón Úlfsson Stjarnan -77kg
5 Daníel Askur Ingólfsson LFH -77kg
6 Árni Rúnar Baldursson Hengill -77kg
7 Guðmundur Steinn Gislason Kjeld LFR -77kg
8 Örn Freyr Jóhannsson LFR -77kg
9 Davíð Björnsson ÁRM -77kg
10 Orri Bergmann Valtýsson LFH -85kg
11 Stefán Ernir Rossen FH -85kg
12 Arnór Gauti Haraldsson LFH -85kg
13 Birkir Örn Jónsson KFA -85kg
14 Daníel Ómar Guðmundsson LFR -85kg
15 Davíð Rósenkrans ÁRM -85kg
16 Steinar Grettisson ÁRM -85kg
17 Gunnar Gylfason Stjarnan -94kg
18 Goði Ómarsson LFG -94kg
19 Kristján Óðinn Unnarsson Hengill -94kg
20 Jón Elí Rúnarsson LFR -94kg
21 Bjarmi Hreinsson LFR -94kg
22 Árni Freyr Bjarnason ÁRM -94kg
23 Einar Alexander Haraldsson Hengill -94kg
24 Jan Hinrik Hansen Hengill -94kg
25 Birgir E. Einarsson ÁRM 105 +

Guðmundur Högni með unglingamet í snörun og samanlögðu

Guðmundur Högni Hilmarrson (LFR) keppti í B hópi 85kg flokks unglinga á Evrópumeistaramóti unglinga og undir 23 ára í morgun. Guðmundur Högni opnaði á 118kg í snörun og bætti þar sem sitt eigið unglingamet um 1kg. Hann bætti um betur í annari tilraun með því að lyfta 123kg, en 126kg í þriðju tilraun voru of þung í þetta skiptið.

Í jafnhendingunni lyfti Guðmundur Högni 147kg í fyrstu tilraun og bætti þar með unglingametið í samanlögðu í 270kg, bæting um 5kg. Honum mistókst síðan í tvígang að lyfta 152kg sem hefðu tryggt honum Íslandsmet unglinga og fullorðinna jafnhendingu og í samanlögðu í flokki fullorðina.

Guðmundur Högni Hilmarsson (LFR)

Guðmundur Högni Hilmarsson (LFR)

LSÍ óskar Guðmundi Högna, og þjálfara hans Guðmundi Sigurðssyni, til hamingju með góða frammistöðu á sínu fyrsta alþjóðlega stórmóti. Næsta mót Guðmundar Högna er Norðurlandamót Unglinga sem fram fer í Noregi í lok mánaðarins.

A hópur 85kg flokksins keppir á morgun (7. okt.) kl 16 að staðartíma (13 að íslenskum tíma). Úrslit og vefsendingu frá EM er að finna á síðu Lyftingasambands Evrópu: http://ewfed.com/news_det.php?id=100

Guðmundur Högni á EM unglinga

Í dag hefst keppni á Evrópumeistaramóti unglinga og 23 ára og yngri í ólympískum lyftingum. Mótið fer fram dagana 3. til 10. október og er haldið í borginni Klaipeda í Litháen. Fulltrúi Íslands á mótinu er Guðmundur Högni Hilmarsson (LFR) sem keppir í 85kg flokki unglinga (20 ára og yngri). Guðmundur Högni er 19 ára og því gjaldgengur í unglingaflokk á næsta ári líka.

17 keppendur eru skráðir í 85kg flokk unglinga og keppir Guðmundur Högni í B hópi á þriðjudaginn (6. okt.) kl 11 að staðartíma (kl 8 að íslenskum tíma). A hópurinn keppir svo á miðvikudeginum (7. okt.) kl 16 að staðartíma.

Keppendur og hópaskipting í 85kg flokki á EM unglinga

Keppendur og hópaskipting í 85kg flokki á EM unglinga

Besti árangur Guðmundar Högna í 85kg flokki er 117kg í snörun, 150kg í jafnhendingu og 265kg í samanlögðu. Allt eru þetta Íslandsmet unglinga auk þess að jafnhendingin er einnig Íslandsmet fullorðinna. Guðmundur er í góði formi og er Íslandsmet fullorðinna í samanlögði í stórhættu en það er 272kg í eigu Björvins Karls Guðmundssonar.

Frekari upplýsingar um mótið má finna á síðu Lyftingasambands Evrópu: http://ewfed.com/news_det.php?id=90

Með Guðmundi í för er þjálfari hans og afi, Guðmundur Sigurðsson, sem lyftingafólki er að góðu kunnur. LSÍ óskar Guðmundi Högna góðs gengis.

Gísli Heimsmeistari og með Heimsmet í snörun

Gísli Kristjánsson (LFR) varð rétt í þessu Heimsmeistari í 105kg flokki 50-54 ára á Heimsmeistaramóti öldunga sem fram fer í finnsku borginni Rovaniemi.

Gísli setti glæsilegt heimsmet í snörun í flokknum er hann lyfti 142kg og bætti gamla metið um 7kg. Gísli lyfti síðan 150kg í jafnhendingu en mistókst tvívegis við 159kg sem hefði tryggt honum heimsmet í samanlögðu. Gísli lyfti því samnlagt 292kg og sigraði með yfirburðum en næsti maður lyfti 228kg.

Þá varð Gísli stigahæsti keppandinn í flokki 50-54 ára með 414.83 Meltzer-Faber stig.

Gísli á efsta þrepi verðlaunapallsins á HM öldunga í Rovaniemi

Gísli á efsta þrepi verðlaunapallsins á HM öldunga í Rovaniemi

Úrslit mótsins fá finna hér : http://www.masters2015.fi/results en Gísli keppti í session 32.

LSÍ óskar Gísla til hamingju með titilinn og heimsmetið.

Gísli á HM öldunga

Heimsmeistaramót öldunga (35 ára og eldri) fer fram dagana 12. – 19. september í Finnlandi, nánar tiltekið í borginni Rovaniemi, höfuðstað Lapplands. Mótið er mjög fjölmennt en alls eru 525 keppendur skráðir til leiks, þar af 19 sem eru komnir yfir áttrætt.

Lógó mótsins er tilvísun í tilkall Rovaniemi sem heimili jólasveinsins

Lógó mótsins er tilvísun í tilkall Rovaniemi sem heimili jólasveinsins

Gísli Kristjánsson (LFR) er skráður til leiks í 105kg flokki 50-54 ára. Keppendur í flokki Gísla eru 6 og miðað við forskráningar hefur Gísli talsverða yfirburði. Gísli keppir á fimmtudeginum 17. september kl 15:30 að staðartíma (12:30 að íslenskum tíma).

Gísli Kristjánsson á góðri stund

Gísli Kristjánsson á góðri stund

Gísli er í góðu formi og ætti að geta gert atlögu að heimsmetunum í sínum flokki. Metið í snörun er 135kg sett af Svíanum Stefan Jakobsson árið 1999, metið í jafnhendingu er 166kg sett árið 2009 af Bretanum Gurdawar Singh Dhesi og metið í samanlögðu er 300kg einnig sett af Stefan Jakobsson árið 1999.

Lyftingasambandið óskar Gísla góðs gengis.

Frekari upplýsingar um mótið er að finna á heimasíðu þess: http://www.masters2015.fi/ og á facebook síðunni: https://www.facebook.com/masters2015

Norðurlandamót: Dagur 2

Jakob Daníel Magnússon varð í öðru sæti

Jakob Daníel Magnússon varð í öðru sæti

Jakob Daníel Magnússon (LFH) nældi sér í silfurverðlaun í dag á norðurlandamóti fullorðinna þar sem hann laut í lægra haldi fyrir íslandsvininum Sami Raappana frá Finnlandi. Jakob snaraði 122kg og jafnhenti 146kg, hann tók jafnhendinguna í þriðju tilraun eftir að hafa klikkað á 145 og 146kg einu sinni, frábært !

Bjarmi Hreinsson (LFR) átti ekki góðan dag á pallinum, hann klikkaði á 125, 128 og 129kg í snörun eftir að hafa átt góða upphitun. Hann meiddist á olnboga í síðustu tilraun í snöruninni og ákvað að hætta keppni.

Sigmundur Davíðsson stóðst síðan cat.2 alþjóðlegt dómarapróf og er hann því þriðji íslenski dómarinn með virk alþjóðaréttindi.

Þar með lýkur þátttöku íslensku keppendanna á NM 2015.

Norðurlandamót 2015: Dagur 1

20150829_181740

f.v. Árni Björn, Oddrún Eik, Freyja, Hjördís, Þuríður og Ingi Gunnar

Íslensku stelpurnar stóðu sig frábærlega í dag, frekari lýsing á mótinu mun koma seinna í dag en úrslit munu fara inn í gagnagrunn sambandsins þegar þau berast: http://results.lsi.is/meet/nordic-championship-ntf-2015

Þuríður Erla Helgadóttir (Ármann) varð í dag norðurlandameistari í -58kg flokki kvenna á Norðurlandameistaramótinu í ólympískum lyftingum sem fram fer í Slagelse í Danmörku núna um helgina.

Þuríður lyfti 78kg í snörun sem var bæting um 2kg á íslandsmeti Önnu Huldu Ólafsdóttur sem varð norðurlandameistari 2014 í sama flokki. Íslenska liðið var með öndina í hálsinum eftir að hún hafði klikkað á byrjunarþyngdinni 73kg og fyrri tilraun á 78kg. Þuríður lyfti hinsvegar þyngdinni í lokatilraun og kom sér í yfirburðarstöðu fyrir jafnhendinguna. Þar lyfti hún síðan 97kg sem jafnframt var bæting á hennar eigin íslandsmeti um 1kg. Hún reyndi við 104kg í lokatilrauninni sem hefði verið persónulegt met.

Oddrún Eik Gylfadóttir (Ármann) keppti einnig í sama flokki og hefur átt betri daga á pallinum, hún fór með opnunarþyngdirnar sínar 64kg í snörun og 77kg í jafnhendingu. Hún endaði í 6.sæti í -58kg flokki.

Hjördís Ósk Óskarsdóttir (FH) varð önnur í -63kg flokki kvenna, hún snaraði 70kg og jafnhenti 102kg. Í lokatilraun reyndi hún við 106kg sem hún rétt missti í efstu stöðu.

Freyja Mist Ólafsdóttir (LFR) keppti síðan síðust íslensku keppandanna í dag og lyfti 76kg í snörun og 92kg í jafnhendingu sem gáfu henni bronsverðlaun eftir æsi spennandi keppni við hina dönsku Karina Hauge en þær lyftu sömu þyngd en Karina var 2kg léttari og fékk því silfur.