RIG 2016: Fjáröflun fyrir íþróttamenn

rig-logo-2016

Sjá skjal: FJÁRÖFLUN ÍÞRÓTTAFÓLKS

Aðgangspassinn á RIG kostar 5.000 krónur og veitir aðgang að öllum 20 keppnisgreinum leikanna. Aðgangur að hverri keppni kostar 1.000 kr og því óhætt að segja að aðgangspassinn sé góð kaup fyrir íþróttaáhugafólk.

Sölufólkið (þeir sem eru skráðir í lyftingasamband íslands) fá síðan 80% (4.000 krónur) í sérstakan ferðasjóð sem er eyrnamerktum íþróttamanninum. Þegar miðin er keyptur er kennitala viðkomandi sett inn sem „auðkenni sölumanns“.

 

Hægt er að kaupa miða á eftirfarandi hátt

1)      Senda þessa slóð á vini og ættingja, biðja þau að kaupa miða og minna á að skrá kennitöluna þína í reitinn „auðkenni sölumanns“:  
https://tix.is/is/event/2392/reykjavikurleikar-2016/

 

2)      Fara á facebook síðu RIG og deila pósti um sölu á aðgangspössum til allra vina ásamt upplýsingum um þína kennitölu:
https://www.facebook.com/reykjavik.international.games/

 

3)      Opna tix.is í símanum eða tölvunni og skrá allar upplýsingar fyrir þann sem þú ert að selja aðgangspassa:
https://tix.is/is/buyingflow/tickets/2392/

 

4)      Skrá niður nöfn, kennitölur, símanúmer og netföng þeirra sem vilja kaupa af þér aðgangspassa. Þegar þau hafa lagt 5.000 kr inná reikninginn þinn ferð þú á tix.is og kaupir aðgangspassa fyrir þau og passar að skrá þína kennitölu í reitinn „auðkenni sölumanns“:
https://tix.is/is/buyingflow/tickets/2392/

 

 

 

 

Lyftingafólk ársins

Lyftingasamband Íslands hefur valið lyftingafólk ársins

Lyftingakona ársins

Þuríður Erla Helgadóttir (f.1991), Ármanni. Hún varð stigahæst íslenskra kvenna á árinu þegar hún snaraði 81kg og jafnhenti 100kg í -58kg flokki á Heimsmeistaramótinu í lyftingum sem fram fór í Houston, Texas. Sá árangur tryggði henni einnig svokallaðan Elite pin Lyftingasambands Norðurlanda og er hún fyrst íslenskra kvenna og fjórði Íslendingurinn til að hljóta þann heiður. Hún varð einnig Norðurlandameistari í -58kg flokki (78+97). Stigahæsta konan á Íslandsmeistaramótinu 2015 (80+103) og sigurvegari RIG 2015 (74+96). Hún setti alls 14 íslandsmet á árinu í -58kg og -63kg flokki kvenna og var með 249,72 Sinclair stig að meðaltali í þeim fjórum mótum sem hún keppti á.

Lyftingakarl ársins

Andri Gunnarsson (f.1983), Lyftingafélagi Garðabæjar. Andri er stigahæsti lyftingamaður ársins en sá árangur náðist á Íslandsmeistaramótinu 2015 þegar hann snaraði 150kg og jafnhenti 180kg í +105kg flokki. Það er þyngsta jafnhending og samanlagði árangur Íslendings undanfarin 10 ár.

Lyftingasambandið veitir aftur verðlaun til bestu ungmenna (20 ára og yngri) í karla og kvenna flokki.

Ungmenni ársins (karlaflokkur)

Guðmundur Högni Hilmarsson (f.1996), Lyftingafélagi Reykjavíkur. Guðmundur var stigahæstur pilta 20 ára og yngri og næst hæstur karla á árinu. Bestum árangi náði hann þegar hann snaraði 125kg og jafnhenti 158kg á Smáþjóðleikunum sem tryggði honum bronsverðlaun í stigakeppni mótsins. Hann varð Norðurlandameistari unglinga í -85kg flokki og í 14. sæti á EM unglinga í -85kg flokki. Hann setti 8 íslandsmet í flokki fullorðinna þar með jafnhendingu bæði í -85kg og -94kg , auk 16 Íslandsmeta í öllum greinum í -85kg og -94kg flokki unglinga (20 ára og yngri) og 8 íslandsmeta í flokki ungkarla (23 ára og yngri)

Ungmenni ársins (kvennaflokkur)

Lilja Lind Helgadóttir (f.1996) Lyftingafélag Garðabæjar. Hún varð stigahæst kvenna 20 ára og yngri þegar hún lyfti 80kg í snörun og 97kg í jafnhendingu á Kaupmannahafnarleikunum í lyftingum. Hún varð Norðurlandameistari í unglingaflokkum 3. árið í röð og í 10. sæti á HM 20 ára og yngri í -75kg flokki. Setti Íslandsmet í -75kg flokki fullorðinna í öllum greinum.

lilja_CWC

Lilja Lind keppti í Kaupmannahöfn á fyrsta móti ársins

15738545313_2cd1d2b2fd_z

Þuríður vann glæsilegan sigur á RIG 2015

IMG_4612 (800x600)

Guðmundur Högni varð stigahæstur íslendinganna á smáþjóðleikunum í Mónakó

17321179686_490fdaf918_z

Andri Gunnarsson og Þuríður Erla Helgadóttir urðu stigahæst á Íslandsmeistaramót

lilja

Lilja Lind keppti á HM unglinga í Póllandi

IMG_4073

Þurí varð norðurlandameistari í -58kg flokki kvenna

11147201_10206467562959242_5950148576416437075_n

Guðmundur Högni keppti á EM unglinga í Litháen

GHHpallurNM

Guðmundur Högni á verðlaunapalli á NM unglinga í Noregi

thury_77

Þurí kláraði síðan árið á HM fullorðinna í Texas

Jólamót LSÍ

Jólamót LSÍ verður haldið í húsakynnum Lyftingafélags Reykjavíkur 20.Desember. Mótið er þriðja og síðasta mótið í liðabikar LSÍ: http://results.lsi.is/admin/TeamCompetition

Skráning fer fram á lsi@lsi.is og er skráningarfrestur 14.Desember.

Þátttökugjald er 2500kr og rennur það til mótshaldara (Lyftingafélags Reykjavíkur).

Þetta er síðasti séns til þess að vinna sér inn þátttökurétt á RIG, 8 bestu KK og KVK verða boðin þátttaka, ef einhver af þeim neitar þá verður farið niður listann.

Karlar 2015: http://results.lsi.is/ranking/total/2015/m

Konur 2015: http://results.lsi.is/ranking/total/2015/f

Að lokum er þetta síðasti séns fyrir þau sem eru fædd 1998 að setja met í flokkum 17 ára og yngri og fyrir þau sem eru fædd 1995 að setja met í flokkum 20 ára og yngri.

Ragnheiður Sara með bætingar og met

Ragnheiður Sara Sigmundsdóttir lauk keppni síðust Íslendinga á Heimsmeistaramótinu í ólympískum lyftingum sem fram fer í Houston og endar á morgun Sunnudaginn 29.Nóvember.

12318278_927370284018155_1903839857_o

Ragnheiður Sara og Ingi Gunnar kláruðu mótið fyrir Íslands hönd

Sara keppti í gær í -75kg flokki og vigtaðist inn 70.89kg. Hún byrjaði snörunina á 80kg sem er jafnt íslandsmeti Lilju Lindar og fór auðveldlega með það. Því næst fór hún í 85kg en náði ekki að lyfta þeirri þyngd í annari og þriðju tilraun og ætlaði Sara sér eflaust meira þar.

Hún kom sterk til baka og kláraði 100kg og 105kg auðveldlega en báðar lyfturnar voru íslandsmet í kvennaflokki í jafnhendingu og samanlögðum árangri. Sara fór í 110kg í jafnhendingu í síðustu tilraun, hún fékk lyftuna dæmda gilda en kviðdómur ógildi hana fyrir pressu. Verður að segjast að dómurinn virkar gríðarlega harður og alveg í lagi að svekkja sig á því eins og sjá má á myndbandinu hér að ofan.

 

Annie með íslandsmet

Þær Hjördís Ósk, Annie Mist og Katrín Tanja luku keppni á heimsmeistaramótinu í Houston í gærkvöldi og nótt.

hjordis_snatch

Hjördís með 72kg í snörun

Hjördís hóf leikinn í C hóp -63kg flokki kvenna með því að lyfta 67kg, 72kg og loks 75kg í snörun sem er jafnt hennar besta árangri. Hún opnaði síðan á 100kg í jafnhendingu, fór í 105kg sem hún clean-aði en missti jarkið. Hún reyndi síðan við nýtt íslandsmet 106kg en það fór ekki upp. Hjördís getur gengið sátt og reynslunni ríkari frá þessu móti.

Screenshot from 2015-11-24 22:08:56

Heildarúrslit -63kg C-hóps kvenna

Dagurinn endaði síðan á D hóp -69kg flokki kvenna en 44 keppendur eru skráðir í þann flokk á mótinu. Þær stöllur Katrín og Annie stóðu sig mjög vel en Katrín varð íslandsmeistari í Crossfit fyrir um viku síðan. Þær voru nokkuð samstíga í snöruninni, opnuðu báðar á 78kg og fóru því næst í 84kg, Katrín fór í þriðju tilraun í 87kg sem hefði verið bæting á íslandsmeti hennar um 2kg og stóð hún upp með þá þyngd en fékk ógilt þar sem vinstri olnbogi fór aðeins úr lás í botnstöðu. Annie fór í 88kg í lokatilraun og fékk hana gilda, 3kg bæting á Íslandsmeti í hús og bæting á persónulegum árangri.

16724832464_58d38ee0fc_z

Katrín Tanja lyfti 85kg í snörun á Íslandsmeistaramótinu í Ólympískum Lyftingum fyrr á þessu ári. Hún þurfti að sjá á eftir íslandsmetinu til Annie

Í jafnhendingunni byrjaði Katrín á 90kg, því næst 94kg en klikkaði í þriðju tilraun á 98kg sem hefði verið persónuleg bæting um 1kg frá því á Íslandsmótinu í Apríl. Annie keppti ekki á íslandsmeistaramótinu í crossfit og kom því hvíldari inn í mótið en Katrín og gerði frábæra hluti í jafnhendingunni með því að opna á 100kg, taka síðan 105kg og loks 108kg í lokatilraun. Það var 3kg bæting á íslandsmetinu hennar í -69kg flokki kvenna og 6kg bæting á metinu í samanlögðum árangri eða 196kg.

RIG_OL

Þessi mynd var tekin á RIG 2014 þá lyfti Annie 95kg í jafnhendingu

Screenshot from 2015-11-25 07:08:36

Heildarúrslit D-hóps -69kg flokk kvenna

Katrín endaði 9/11 keppendum í hópnum og Annie 5/11 keppendum en 4 keppendur lyftu sömu heildarþyngd (196kg) og Annie og er þeim því raðað eftir þeirri þyngd sem þeir vigtuðust inn í mótið.

Ragnheiður Sara Sigmundsdóttir er síðust íslensku keppendanna en hún keppir föstudaginn 27.Nóv í -75kg flokk og munum við gera því betri skil þegar nær dregur.

12295556_926182567470260_700470433_o

Annie og Katrín með þjálfurnum að lokinni keppni (f.v. Árni, Annie, Katrín, Ingi, Frederik)

Hægt er að sjá upptöku af lyftunum hjá Annie og Katrínu á: https://www.instagram.com/floelite/

Allar lyftur úr flokkunum hjá Hjördísi má sjá á eftirfarandi síðum: Snörun og jafnhending

 

 

 

HM í lyftingum 24.Nóv

Þrír íslenskir keppendur keppa 24.Nóvember

12297792_925598107528706_994805093_o

f.v. Annie, Hjördís, Katrín, Ingi Gunnar á æfingu í gær

Fyrst keppir Hjördís Ósk Óskarsdóttir FH í -63kg flokki, en Hjördís keppir klukkan 14:00 á staðartíma eða 20:00 í C hóp.

Screenshot from 2015-11-23 18:06:59

Hjördís á best 75kg í snörun og 105kg í jafnhendingu síðan á íslandsmótinu í Apríl.

Crossfit stjörnurnar Annie Mist Þórisdóttir og Katrín Tanja Davíðsdóttir  úr Lyftingafélagi Reykjavíkur keppa síðan klukkan 21:25 á staðartíma í D hóp -69kg flokks kvenna eða 03:25 25.Nóv. Screenshot from 2015-11-23 18:12:50

Tia-Clair Toomey sem vann til silfurverðlauna á heimsleikunum í crossfit keppti í gær með Þuríði í -58kg flokki með 82kg í snörun og 105kg í jafnhendingu.

 

Þuríður með ný íslandsmet

Þuríður Erla Helgadóttir úr Ármanni keppti fyrst íslensku keppendanna á HM í ólympískum lyftingum sem fram fer í Houston, Texas þessa daganna. Hún átti gott mót í -58kg flokki þar sem hún snaraði 73kg, 77kg og loks nýtt íslandsmet 81kg sem var bæting um 3kg á hennar eigin íslandsmeti.

thury_77

77kg fóru upp hjá Þurí

Thuri3rdsnatch81

81kg nýtt íslandsmet í -58kg flokki kvenna

Í jafnhendingu lyfti hún 96kg í fyrstu lyftu og síðan 100kg (íslandsmet) í annari tilraun. Í lokatilraun reyndi hún við 104kg en missti lyftuna í lokin. Þetta er stigahæsti árangur Þuríðar, sex kílóa bæting á íslandsmetinu í -58kg flokki í samanlögðu og jafnframt stigahæsti árangur allra tíma í kvennaflokki á Íslandi eða 256,2 Sinclair stig.

Thuri2ndcj_100

100kg í jafnhendingu var bæting um 3kg á íslandsmetinu í

Thuri3rdcj104

Þuríður var hársbreidd frá því að klára 104kg en rétt missti þyngdina fram þegar hún stóð upp með jarkið

Þessi árangur dugði henni í 7.sæti af 12.keppendur í C hóp -58kg flokks. Ennþá eiga B og A flokkurinn eftir að ljúka keppni svo loka staða hennar kemur þá í ljós en keppendum er raðað í A,B og C hóp eftir árangri inn í mótið.

Screenshot from 2015-11-22 19:29:31

Flokkurinn var nokkuð jafn og hefði Þuríður farið upp um 3 sæti við það að klára lokalyftuna með 104kg

12279409_925130980908752_1398092494_o

Þjálfararnir og Þurí eftir mótið (f.v. Guðrún, Árni, Þuríður, Ingi Gunnar)

Með þessum árangri þá varð hún einnig fyrst íslenskra lyftingakvenna til að fá Elite Pin frá Norðurlandasambandinu (NTF) en áður hafa þrír íslenskir lyftingakarlar náð lágmarksárangri fyrir þá viðurkenningu; Guðmundur Sigurðsson, Gústaf Agnarsson og Haraldur Ólafsson: http://iof3.idrottonline.se/ImageVaultFiles/id_139780/cf_104/Elite_pins_151112.PDF

The Nordic Elite pin might be given to an active weightlifter who is qualified for these results:

Women:            Men:
48 kg 143 kg     56 kg 248 kg
53 kg 161 kg     62 kg 265 kg
58 kg 176 kg    69 kg 282 kg
63 kg 189 kg    77 kg 299 kg
69 kg 202 kg     85 kg 313 kg
75 kg 213 kg     94 kg 325 kg
+75 kg 234kg  105 kg 337 kg
+ 105 kg 354 kg