ÍM 2016: Tímaseðill

Skráningu er lokið á Íslandsmeistaramótið 2016.

29 konur og 28 karlar eru skráðir til leiks á má nálgast keppendalistann á eftirfarandi vefslóð: http://results.lsi.is/meet/islandsmeistaramot-2016

Tímaseðill er eftirfarandi:

Laugardagur
Vigtun allir flokkar, fyrra holl forgangur 11:00-12:00
-58kg,-63kg,-75kg 13:00-14:50
-53kg, -69kg og +75kg 15:00-16:40
Verðlauna afhending KVK 16:50
Sunnudagur
Vigtun allir flokkar, fyrra holl forgangur 11:00-12:00
-69kg, -77kg, -105kg og +105kg 13:00-14:30
-85kg og -94kg 14:40-16:10
Verðlauna afhending KK 16:20

Smáþjóðleikar 2016

Smáþjóðleikar 2016 í ólympískum lyftingum fara fram í borginni Limassol á Kýpur 18-19.mars

Breyting er á mótinu í ár þar sem þrír karlar og tvær konur telja til stiga en þetta er í fyrsta sinn sem konur skipa lið með körlum. Ísland sendir 6 keppendur til Kýpur en liðið skipa eftirfarandi:

Karlar:
Einar Ingi Jónsson [LFR] [f. 1996]
Bjarmi Hreinsson [LFR] [f. 1993]
Guðmundur Högni Hilmarsson [LFR] [f.1996]
Gísli Kristjánsson [LFR] [f.1964]

Konur:
Lilja Lind Helgadóttir [LFG] [f.1996]
Freyja Mist Ólafsdóttir [LFR] [f.1996]

 

Íslandsmeistaramótið 2016: Skráning hafin

Íslandsmeistaramótið í ólympískum lyftingum verður haldið helgina 27.Feb-28.Feb í húsakynnum Lyftingafélags Garðabæjar / Crossfit XY. Við stefnum að því að mótið keyri bæði laugardag og sunnudag frá 13-17, konur keppa á laugardeginum (27.Feb) og karlar á sunnudeginum (28.Feb). Ef við teljum ekki þörf á því að vera með mótið á tveimur dögum þá munum við sameina þetta í einn dag (laugardaginn).

Skráning er hafin á lsi@lsi.is (nafn, kennitala, lyftingafélag, þyngdarflokkur). Skráningarfrestur er til 21.Febrúar.

Lyftingaþing 2016

Lyftingaþing LSÍ verður haldið 26.mars í húsakynnum ÍSÍ, kjörbréf munu berast félögum á næstu dögum.

Við hvetjum áhugasama til að kynna sér lög sérsambandsins, mæta á þingið og taka þátt í starfinu. Lögin má nálgast hér: https://lsi.is/wp-content/uploads/2015/03/log_lsi_2015.pdf

Ég vill sérstaklega benda áhugasömum á 5.grein

5. grein.
Lyftingaþingið fer með æðsta vald í málefnum LSÍ. Þingið sitja fulltrúar frá þeim aðilum, sem mynda LSÍ. Fulltrúafjöldi hvers aðila fer eftir tölu virkra lyftingaiðkenda í skráningarkerfi ÍSÍ, þannig að fyrir allt að 25 menn koma 2 fulltrúar og síðan fyrir hverja 25 eða brot úr 25 upp í allt að 100 iðkendur og þá 1 fulltrúi að auki fyrir hverja 50 iðkendur þar fram yfir.

Þingið skal árlega háð fyrir 30.mars. Skal boða það bréflega með minnst eins mánaða fyrirvara. Málefni, sem sambandsaðilar óska að tekin verði fyrir á þinginu, skulu tilkynnt stjórn LSÍ minnst 21 degi fyrir þingið (5.mars). Þá skal stjórn LSÍ tilkynna sambandsaðilum dagskrá þingsins, ásamt tillögum og lagabreytingum, sem borist hafa, í síðasta lagi 14 dögum fyrir þing. Lyftingaþingið er lögmætt, ef löglega hefur verið til þess boðað.

RIG 2016 Lokið

RIG 2016 lauk í gær, heildarúrslit má nálgast á eftirfarandi síðu: http://results.lsi.is/meet/reykjavik-international-games-2016-2016

Myndir frá mótinu:

Karlar: https://www.flickr.com/…/103688949…/albums/72157663432596249
Konur:https://www.flickr.com/…/103688949…/albums/72157663976300251

Upptaka frá mótinu: http://www.ruv.is/sarpurinn/ruv/reykjavikurleikarnir/20160130-0

Umfjöllun mbl.is um mótið: http://www.mbl.is/sport/reykjavikurleikar/2016/01/30/einar_og_ingunn_med_islandsmet/

Sjá svipmyndir frá mótinu hér að neðan, eins og alltaf þökkum við Haraldi Leví Jónssyni fyrir myndatöku.