Hjördís og Anna Hulda ljúka keppni

Hjördís Ósk Óskarsdóttir og Anna Hulda Ólafsdóttir luku keppni á evrópumeistaramótinu í ólympískum lyftingum nú í kvöld.

Í snöruninni opnaði Hjördís á 72kg en klikkaði síðan 2x á 76kg sem hefði verið bæting um 1kg. Anna Hulda gerði sér lítið fyrir og opnaði á 75kg og fór síðan með glæsilegt nýtt íslandsmet 81kg í 3.tilraun. Það var jafnframt bæting um 3kg á hennar besta árangri í snörun og hún er því búin að bæta sig um 5kg á árinu.

Í jafnhendingunni hóf Anna leik með 90kg, lyfti síðan 92kg og reyndi við 94kg í síðustu tilraun. Hjördís átti góða jafnhendingu þar sem hún lyfti 96kg, 100kg og 104kg. Við það bætti hún árangur sinn frá því á HM um 1kg og líkt og Þuríður fer hún með þann árangur á heimslista fyrir ólympíuleikana í Ríó 2016 en skilyrði fyrir því að komast á listann er að hafa keppt á tveimur „stigamótum“.

Aðeins C-hópurinn hefur lokið keppni í -63kg flokk en Hjördís var önnur og Anna Hulda þriðja í þeim hóp. Flokkarnir klárast á morgun og er A-hópurinn sýndur beint á Eurosport klukkan 14:35.

Heildarúrslit munu koma í gagnagrunn LSÍ: http://results.lsi.is/meet/evropumeistaramotid-2016

Þuríður hefur lokið keppni

Þuríður Erla Helgadóttir lauk keppni með 80kg í snörun og 103kg í jafnhendingu í -58kg flokki kvenna á Evrópumeistaramótinu í ólympískum lyftingum sem fram fer í Förde í Noregi. Hún varð í 14.sæti af 22.keppendum.

Þuríður opnaði í snörun á 76kg fór því næst í 80kg og lokatilraun hennar var við 83kg sem hefði verið bæting um 2kg á íslandsmeti hennar í snörun, hún sat undir þeirri þyngd en missti lásinn á hægri olnboga og lyftuna síðan aftur fyrir sig. Í jafnhendingu opnaði hún á 98kg, fór því næst í 103kg sem hún lyfti auðveldlega og í lokatilraun fór hún í 105kg sem hefði gefið henni 3.sætið í hópnum og nýtt íslandsmet í jafnhendingu. 105kg lyftan fór ekki upp og Þuríður endar því með 183kg í samanlögðum árangri og 259,2 Sinclair stig sem er aðeins 1kg og 0,8stigum frá hennar besta árangri.

thury_2

Loka niðurstaða B-hóps

Þessi árangur er bæting um 2kg á árangri hennar frá því á HM 2015 og þetta þýðir því að hún fer upp um einhver sæti á heimslistanum fyrir Ólympíuleikana 2016 en loka listinn mun liggja fyrir 20.Júní. Minnum á afreksgagnagrunn sambandsins: http://results.lsi.is/meet/evropumeistaramotid-2016

thury_warmup

Upphitun hjá Þuríði

 

Evrópumeistaramótið í Lyftingum

Evrópumeistaramótið í ólympískum lyftingum fer fram í Förde daganna 10-16. Apríl.

Íslendingar eiga þrjá keppendur í kvennaflokki á mótinu en þetta er fjölmennasta evrópumeistaramót sem haldið hefur verið og jafnframt svokallaður liða qualifier fyrir Ólympíuleikana í Ríó þar sem 7 landslið munu tryggja sér sæti fyrir karlkeppanda og 6 landslið munu tryggja sér sæti fyrir kvenn keppenda.

Allar íslensku stelpurnar keppa á þriðjudaginn (12.Apríl), Þuríður Erla Helgadóttir keppir klukkan 9 á íslenskum tíma eða 11 á staðartíma í B grúppu -58kg flokks. Þuríður er með 7. besta árangur í flokknum.

thury

Þær Hjördís Ósk Óskarsdóttir og Anna Hulda Ólafsdóttir keppa í C grúppu -63kg flokks kvenna. En nokkuð margir keppendur eru með í kringum 180kg í entry total og má því búast við harðri keppni við keppendur í B grúppu. Þær hefja keppni 19:30 á íslenskum tíma eða 21:30 að staðartíma.

anna_hjordis

63kg_B


Mikilvægar upplýsingar um mótið eru á ATG (t.d. vefsjónvarp):
http://www.allthingsgym.com/2016-european-weightlifting-ch…/

KEPPENDASKRÁ:
http://ewfed.com/documents/2016/Forde/Results/StartBook.pdf

ENDANLEG KEPPNISKRÁ (keppnisdagar – keppnistund) og sjónvarpsútsendingaskrá – EM2016 (Førde – 10.-16.apríl):
http://ewcforde2016.no/schedule/

EM2016-home-page:
http://ewcforde2016.no/

EM2016-facebook:
https://www.facebook.com/European-Weightlifting-Champions…/…

EM2016-facebook-event:
https://www.facebook.com/events/1702837633324277/

 

Ný tölublöð World Weightlifting og Vísindatímarits EWF

Út er komið 136. tölublað tímarits Alþjóðalyftingasambandsins (IWF) World Weightlifting. Meðal efnis í blaðinu er umfjöllun um Heimsmeistaramótið sem fram fór í Houston í nóvember. Er gaman að segja frá því að á bls. 11 í umfjöllun um 58kg flokk kvenna er að finna mynd af Þuríði Erlu Helgadóttur. Tímaritið má nálgast hér.

Picture7

Einnig er komið út 4. tölublað Vísindarits Lyftingasambands Evrópu (EWF Scientific Magazine). Í blaðinu er fjallað um ólympískar lyftingar, almenna styrktarþjálfun og tengda þætti frá vísindalegu sjónarhorni. Er það öllum opið og má nálgast hér.

Lyftingaþing 2016: Lokið

Lyftingaþing LSÍ fór fram laugardaginn 26.Mars síðastliðinn í húsakynnum ÍSÍ. Þingið var átakalaust en 13 fulltrúar frá 7 lyftingafélögum mættu. Stjórn og formaður voru endurkjörin til eins árs en Arnar Þór Tulinius og Guðmundur Már Þorvarðsson hættu í varastjórn og í þeirra stað koma Jakob Daníel Magnússon og Vilhelm Patrick Bernhöft inn. Við þökkum Arnari og Guðmundi fyrir sitt innlegg í starf LSÍ.

Ármenningum var afhentur Liðabikar LSÍ fyrir árið 2015.

Smáþjóðleikarnir 2016

Hinir 38. árlegu smáþjóðleikar í Ólympískum lyftingum fóru fram í Kýpur nú um helgina. Í fyrsta sinn eru konur partur af liðakeppninni en 2 konur og 3 karlar telja til stiga fyrir hvert land.

Beðið er eftir nánari úrslitum úr keppninni en Ísland vitað er að Ísland endaði í öðru sæti á eftir Kýpur í heildarstigakeppninni.

Þær Lilja Lind Helgadóttir og Freyja Mist Ólafsdóttir kepptu fyrir Íslands hönd á föstudeginum en báðar eru þær á síðasta ári í unglingaflokki (20 ára og yngri). Lilja lyfti 70kg í snörun og 85kg í jafnhendingu sem gáfu 197,5 stig.

 

Freyja átti góðan dag og lyfti 75kg í snörun og 96kg í jafnhendingu sem var bæting um 1kg á persónulegu meti og nálgast unglingamet Lilju Lindar í jafnhendingu sem er 97kg og norðurlandamet unglinga 101kg í eigu hinnar finnsku Meri Ilmarinen.

 

 

Í karla keppninni var Einar Ingi Jónsson fyrstur og bætti hann enn og aftur íslandsmet sitt í snörun þegar hann lyfti 107kg í -69kg flokk karla. Það var bæting um 2kg á meti sem hann setti á Íslandsmeistaramótinu fyrir rétt rúmum 3 vikum. Hann jafnhenti síðan 136kg og fékk fyrir það 328,6 Sinclair stig.

 

 

Guðmundur Högni Hilmarsson og Bjarmi Hreinsson voru síðan báðir í -94kg flokk þó nokkur þyngdarmunur var á þeim. Guðmundur Högni vigtaðist inn 87,7kg en Bjarmi 94kg slétt.

 

 

Báðir áttu þeir mjög góða snörun, Guðmundur Högni snaraði nýtt unglingamet 130kg og Bjarmi nýtt fullorðinsmet 133kg. Þeir opnuðu síðan báðir á 152kg í jafnhendingu sem fór auðveldlega upp, það var líka nýtt met í samanlögðum árangri hjá Bjarma. Því næst klikkaði Bjarmi 2x á 157kg og Guðmunudur Högni á 160kg. Guðmundur Högni varð því stigahæstur í íslenska liðinu með 331,9 Sinclair stig og Bjarmi með 325,1 Sinclair stig.

 

 

Smáþjóðaleikar: Keppendalisti

Keppendalistinn á Smáþjóðaleikana hefur verið birtur. Konurnar keppa á föstudaginn kl.19:30 að staðartíma (17:30 að íslenskum tíma) og karlarnir kl 10:15 á laugardaginn (8:30 að íslenskum tíma).

Keppendalistann má sjá hér að neðan. Breyting er á mótinu í ár þar sem þrír karlar og tvær konur telja til stiga en þetta er í fyrsta sinn sem konur skipa lið með körlum.

SmallNations2016Entries

Íslandsmeistaramót 2016: Úrslit

 

Alls mætti 51 keppandi til leiks á íslandsmótið 2016, 24 konur og 27 karlar. Enn einu sinni var þátttökumet slegið á lyftingamóti á Íslandi. Heildarúrslit má nálgast í gagnagrunni sambandsins: http://results.lsi.is/meet/islandsmeistaramot-2016

Laugardagur

Stiklað er á stóru hér að neðan

-53kg flokk­ur kvenna
1. Rakel Ragn­heiður Jóns­dótt­ir (f. 1999) LFG 50/​62

Rakel Ragnheiður Jónsdóttir (LFG) f.1999 átti stórgott mót þar sem hún fór með allar lyftur í gegn -53kg flokki kvenna og voru 45kg og 50kg í snörun met í bæði U17 og U20 ára flokki. Í jafnhendingu gerði hún betur og setti met með því að lyfta 55kg, 60kg og loks 62kg.

-58kg flokk­ur kvenna
1. Þuríður Erla Helga­dótt­ir (f. 1991) Ármann 80/​104
2. Jakobína Jóns­dótt­ir (f. 1985) LFR 69/​87
3. Sig­ríður Jóns­dótt­ir (f. 1992) LFK 35/​51

Þuríður Erla Helgadóttir (Ármanni) átti afrek dagsins þegar hún tvíbætti íslandsmet sitt í jafnhendingu og samanlögðum árangri með því að lyfta 102kg og síðan 104kg. Þetta gaf henni einnig stigahæsta árangur mótsins og í fyrsta sinn sem íslensk lyftingakona fer yfir 260 stiga Sinclair múrinn.

Jakobína Jónsdóttir (LFR) náði næst hæsta Sinclair árangri mótsins með góðri bætingu í jafnhendingu 87kg og endaði í öðru sæti í -58kg flokki kvenna.

-63kg flokk­ur kvenna
1. Helena Ingvars­dótt­ir (f. 1999) LFK 50/​70
2. Katla Björk Ket­ils­dótt­ir (f. 2000) UMFN 54/​66
3. Hrafn­hild­ur Finn­boga­dótt­ir (f. 2000) Ármann 42/​50

 

Í -63kg flokki kvenna setti kviðdómur nokkuð óvænta spennu í flokkinn þegar hann dæmdi tvær lyftur af Hjördísi Ósk Óskarsdóttur (FH) í jafnhendingu og hætti hún í kjölfarið keppni.

Tvær ungar stelpur Helena Ingvarsdóttir (LFK) og Katla Björk Ketilsdóttir (UMFN) höfðu háð harða baráttu í flokknum um silfurverðlaun fengu því gull og silfur en þær lyftu sömu þyngd samanlagt.

Báðar settu þær met í snörun og jafnhendingu í U17 ára, fyrst Helena Ingvarsdóttir með 50kg og síðan Katla með 54kg.

Í jafnhendingunni skiptust þær á að bæta metið en það fór á endanum þannig að Helena Ingvarsdóttir lyfti 70kg í síðustu tilraun og vann því á því að vera um hálfu kílói léttari en Katla en Helena vigtaðist inn 58,25kg og Katla 58,75kg. Þessar stelpur eiga mikla framtíð fyrir sér og verður gaman að fylgjast með þeim á næstu árum.

-69kg flokk­ur kvenna
1. Lilja Lind Helga­dótt­ir (f. 1996) LFG 72/​87
2. Ing­unn Lúðvíks­dótt­ir (f. 1977) Ármann 67/​90
3. Sandra Hrönn Arn­ar­dótt­ir (f. 1994) Ármann 67/​86
Lilja Lind Helgadóttir (LFG) átti sterkt mót og nálgast hratt sitt besta form eftir meiðsli á seinni hluta síðasta árs. Lilja fór með allar lyftur í gegn og vann flokkin með 2kg forustu.
Ingunn Lúðvíksdóttir (Ármann) bætti jafnhendingarmetið sitt í 35-39ára flokki kvenna enn og aftur þegar hún lyfti 90kg í þriðju og síðustu tilraun.
Sandra Hrönn Arnardóttir (Ármann) átti góðar bætingar í snörun og jafnhendingu sem gáfu henni bronsverðlaun í þessum fjölmennasta flokk en 9 keppendur voru í flokknum.
-75kg flokk­ur kvenna
1. Freyja Mist Ólafs­dótt­ir (f. 1996) LFR 74/​95
2. Soffía Bergs­dótt­ir (f. 1987) Ármann 68/​80
3. Erna Héðins­dótt­ir (f. 1976) LFR 57/​81
Freyja Mist Ólafsdóttir (LFR) bætti sinn besta árangur á móti í jafnhendingu þegar hún jafnhenti 95kg.
Soffía Bergsdóttir sem keppti á sínu fyrsta móti um jólin varð önnur.
Erna Héðinsdóttir (Ármann) varð þriðja og setti met í flokki 40-44ára þegar hún snaraði 57kg og jafnhenti 70, 75 og 81kg en allt voru það met.
+75kg flokk­ur kvenna
1. Sonja Björk Ing­ólfs­dótt­ir (f.1994) Ármann 60/​75
2. Hild­ur Björk Þórðadótt­ir (f.1985) LFR 50/​57
 Sunnudagur
-69kg flokk­ur karla
1. Ein­ar Ingi Jóns­son (f. 1996) LFR 105/​138
2. Jök­ull Máni Þrast­ar­son (f. 1998) Ármann 80/​90

Einar Ingi Jónsson (LFR) raðaði inn metum þegar hann snaraði 105kg og tvíbætti íslandsmet sitt í jafnhendingu með 134kg og 138kg. Þetta voru einnig met í U20 og U23 ára flokkum.

Jökull Máni Þrastarson (Ármann) átti fínar bætingar en hann keppti á sínu öðru móti.

 

-77kg flokk­ur karla
1. Davíð Björns­son (f. 1995) Ármann 106/​131
2. Árni Rún­ar Bald­urs­son (f. 1995) Heng­ill 104/​126
3. Arnþór Ingi Guðjóns­son (f. 1995) UMFN 90/​120
Í -77kg flokki voru allir að bæta sig, Davíð Björnsson bætti sinn besta árangur í snörun um 1kg og jafnhendingu um 5kg. Árni Rúnar Baldursson vigtaðist aðeins um 70kg inn í mótið snaraði 104kg og bætti sig um 6kg í snörun og 6kg í jafnhendingu.

https://www.instagram.com/p/BCWIoA7I75m/?taken-by=arninn95&hl=en

Arnþór Ingi Guðjónsson keppti síðan á sínu fyrsta móti og tók bronsið í þessum flokk en 8 keppendur börðust um þessi sæti.
-85kg flokk­ur karla
1. Daní­el Ró­berts­son (f. 1991) Ármann 110/​132
2. Stefán Ern­ir Rossen (f. 1994) FH 102/​131
3. Daní­el Ómar Guðmunds­son LFR 105/​127
Daníel Róbertsson vann góðan sigur í -85kg flokk, en hart var barist um silfur verðlaunin. Fór það svo að Stefán Rossen fór upp fyrir Daníel Ómar Guðmundsson með því að bæta sig um 6kg í jafnhendingu og lyfta 131kg.
-94kg flokk­ur karla
1. Goði Ómars­son (f. 1991) LFG 98/​150
2. Gunn­ar Gylfa­son (f. 1989) Stjarn­an 110/​121
3. Berg­ur Sverris­son (f. 1994) LFR 101/​121
Í -94kg flokki karla átti Goði Ómarsson gríðarlega góða jafnhendingu og vann hann upp 12kg forskot og gott betur sem Gunnar Gylfason var búinn að vinna sér inn í snöruninni.
Bergur Sverrisson varð þriðji en hann var að keppa á sínu fyrsta móti.
-105kg flokk­ur karla
1. Ingólf­ur Þór Ævars­son (f. 1991) KFA 122/​152
2. Sig­ur­jón Guðna­son (f. 1999) LFR 75/​97
+105kg flokk­ur karla
1. Andri Gunn­ars­son (f. 1983) LFG 157/​186
Afrek mótsins í karlaflokki átti Andri Gunnarsson sem bætti íslandsmet Gísla Kristjánssonar í +105kg flokki karla um 1kg í snörun og 1kg í jafnhendingu en samanlagðan árangur um 6kg. Hann varð stigahæsti karl mótsins með 354,6 Sinclair stig.