Eftirfarandi eru upplýsingar fyrir keppendur á íslandsmótinu !
Greinasafn fyrir flokkinn: Uncategorized
Lágmörk í keppnisferðir 2015
Lágmörk í keppnisferðir á vegum LSÍ fyrir árið 2015 eru komin á netið, það er ósk LSÍ að senda sem flesta keppendur á mót erlendis og munum við því nota þetta fyrirkomulag: lagmork_2015
Árangur á árinu 2014 og 2015 gildir sem viðmið.
Lágmörk fyrir árið 2016 munu birtast í Desember 2015.
Íslandsmeistaramótið 2015: Tímaseðill
Skorað hefur verið nokkrum sinnum á LSÍ að hafa konur á eftir körlum, það verður því prufað í fyrsta skipti á þessu móti.
Tímaseðill (birtur með fyrirvara)
—
Vigtun fer fram í suðurbæjarlaug í Hafnarfirði
Vigtun KK (8:00-9:00)
Vigtun KVK (9:00-10:00)
—
KK Hópur 1 (8 KK) (90 min) 10:00-11:30
Þyngdarflokkar: -69kg og -77kg
KK Hópur 2 (11 KK) (120 min) 11:40-13:40
Þyngdarflokkar: -85kg, -94kg, -105kg og 105kg+
KVK Hópur 1 (11 KVK) (120 min) 13:50-15:50
Þyngdarflokkar: -48kg, -53kg, -58kg og -63kg
KVK Hópur 2 (8 KVK) (90 min) 16:00-17:30
Þyngdarflokkar: -69kg, -75kg og +75kg
Íslandsmeistaramótið: skráningarlistinn kominn á netið
Skráningarlistinn er kominn á netið
Smáþjóðleikar í lyftingum: Ísland í öðru sæti
SJÁ frétt mbl um mótið:http://www.mbl.is/sport/frettir/2015/04/26/island_i_odru_saeti/
Smáþjóðleikarnir í ólympískum lyftingum fóru fram í Mónakó í gær en mótið er árlegt mót á milli smáþjóðanna þar sem árangur þriggja bestu lyftingamanna er talinn saman til að finna sigurvegara.
Sex þjóðir sendu lið til keppni þetta árið en það voru ásamt mótshöldurum í Mónakó; Ísland, Kýpur, Malta, Lúxemborg og San Marínó. Lið Íslands og Kýpur háðu harða keppni um stigabikar mótsins og fór það svo að Kýpur sigraði með um 15 Sinclair stigum eða samtals 997,8 stigum á móti 985,1stigum Íslands.
Stigahæstur íslendinganna var hinn 18 ára gamli Guðmundur Högni Hilmarsson sem snaraði 125 kg og jafnhenti 158 kg sem er nýtt Íslandsmet í -94kg flokki karla en Guðmundur vigtaðist inn 86,71 kg. Hann var jafnframt þriðji stigahæsti maður mótsins með 334,9 Sinclair stig
Björgvin Karl Guðmundsson snaraði 122 kg og jafnhenti 150 kg, Sigurður Bjarki Einarsson snaraði 127 kg (sem er nýtt Íslandsmet í -94 kg flokki karla) og jafnhenti 156 kg og að lokum snaraði Andri Gunnarsson 140 kg og jafnhenti 170 kg en hann reyndi við 183 kg í jafnhendingu sem hafði tryggt Íslandi sigur en missti lyftuna í efstu stöðu.
Þeir verða allir í eldlínunni ásamt besta lyftingafólki landsins næstu helgi (2.maí) þegar Íslandsmótið fer fram í Kaplakrika milli 10-18 og er aðgangur ókeypis.
Evrópumeistaramót í lyftingum
Ísland átti enga keppendur á evrópumeistaramótinu í ólympískum lyftingum sem lauk í Georgíu í gær laugardaginn 18.Apríl. Ákveðið var að senda frekar keppendur á Heimsmeistaramótið í Houston þar sem ferðin til Georgíu er löng og dýr.
Norðurlandaþjóðirnar sendu allar keppendur (14kvk og 11kk) að undanskildu Íslandi og eru úrslit þeirra keppenda komin inn í gagnagrunn LSÍ: http://results.lsi.is/meet/evropumeistaramot-ewf-2015
Heildarúrslit mótsins má sjá á heimasíðu easywl þar sem einnig má sjá myndbönd af flest öllum lyftum mótsins: http://www.easywl.com/results/
Bestu norðurlandabúarnir voru Ruth Kasirye (NOR) í kvennaflokki sem varð fimmta í -69kg flokki með 105kg í snörun og 127kg í jafnhendingu, það gaf henni 292,1 stig. Í karlaflokki skoraði Miika Antti-Roiko (FIN) hæst með 150kg í snörun og 195kg í jafnhendingu í -94kg flokki, sá árangur færði honum 394,8 stig.
Íslandsmeistaramót 2015: Skráning hafin
Lift the world: Heimildarmynd um lyftingar frá IWF
Myndin fjallar um lyftingar út um allan heim og er skyldu áhorf fyrir alla áhugamenn um íþróttir.
Smáþjóðleikar 2015
37. Smáþjóðleikarnir í ólympískum lyftingum fara fram í Monte Carlo 24-26. Apríl.
Eitt af síðustu hlutverkum fyrri stjórnar var að velja liðið sem fer. Líkt og áður er keppt í stigakeppni þar sem þrír stigahæstu lyftingamennirnir keppa óháð kyni, á þessu verður vonandi bót á næstu árum.
Landslið Íslands að þessu sinni skipa:
Björgvin Karl Guðmundsson (Hengill)
Andri Gunnarsson (LFG)
Guðmundur Högni Hilmarsson (LFR)
Sigurður Bjarki Einarsson (FH)
Farastjóri
Ásgeir Bjarnason
Frekari upplýsingar um mótið má finna á heimasíðu mótsins: http://europeansmallnationswl.weebly.com/
Bætingamót LFR
Úrslit úr mótinu má sjá í afreksgagnagrunni LSÍ: http://results.lsi.is/meet/baetingamot-lfr-2015
Bætingamót LFR verður haldið í húsakynnum Crossfit-Reykjavík/Lyftingafélags-Reykjavíkur sunnudaginn 15.mars og hefst mótið klukkan 13. Tímaseðill: Vigtun 11:00-12:00 KVK 13:00-14:30 KK 14:30 – 17:00
8Högni Hjálmtýr KristjánssonKK100494-2219-85LFR
| # | Nafn | Flokkur | Kennitala | Þyngdarflokkur | Félag |
| KVK | |||||
| 1 | Hjördís Ósk Óskarsdóttir | KVK | 250684-2829 | -63 | FH |
| 2 | Harpa Dögg Steindórsdóttir | KVK | 210891-3079 | -63 | LFR |
| 3 | Annie Þórisdóttir | KVK | 180989-2429 | -69 | LFR |
| 4 | Katrín Tanja Davíðsdóttir | KVK | 100593-4169 | -69 | LFR |
| 5 | Gígja Árnadóttir | KVK | 200182-3919 | -69 | LFR |
| 6 | Hildur Björk Þórðardóttir | KVK | 050985-2459 | 75 | LFR |
| 7 | Erna Héðinsdóttir | KVK, m35 | 100176-3009 | -75 | Ármann |
| 8 | Freyja Mist Ólafsdóttir | KVK, u20 | 011196-2309 | -75 | LFR |
| KK | |||||
| 1 | Einar Ingi Jónsson | KK,u20 | 150296-4399 | -69 | LFR |
| 2 | Guðmundur Steinn Gíslason Kjeld | KK, u20 | 160195-2159 | -77 | LFR |
| 3 | Víðir Tómasson | KK, u20 | 130895-2129 | -77 | LFR |
| 4 | Snorri Björnsson | KK | 050394-2129 | -85 | LFR |
| 5 | Björgvin Karl Guðmundsson | KK | 240992-2729 | -85 | Hengill |
| 6 | Styrmir Vilhjálmsson | KK | 310893-2779 | -85 | LFR |
| 7 | Grétar Eiríksson | KK | 220689-2479 | -85 | LFR |
| 9 | Frederik Aegidius | KK | 110787-1167 | -94 | DK/Gestur |
| 10 | Hinrik Ingi Óskarsson | KK | 060994-2429 | -94 | LFR |
| 11 | Jón Elí Rúnarsson | KK, u20 | 231095-2179 | -94 | LFR |
| 12 | Stefán Ingi Jóhannsson | KK | 090894-2939 | -105 | LFR |
| 13 | Gísli Kristjánsson | KK, m50 | 280864-3829 | 105+ | LFR |


