Viktor og Freyja hlutskörpust á glæsilegu sumarmóti LSÍ

Sumarmót LSÍ fór fram sunnudaginn 24. maí í Íþróttahöllinni á Akureyri í umsjá lyftingadeildar KA. Óhætt er að segja að mótahaldið hafi verið til fyrirmyndar, skipulagið var til gott og fagleg vinnubrögð einkenndu mótið frá upphafi til enda.

Keppendur stóðu sig frábærlega og sýndu margir hverjir feiknagóða takta á pallinum. Hér á eftir fylgja helstu úrslit dagsins

Nálgast má heildarúrslit í gagnagrunni sambandsins: https://results.lsi.is/meet/sumarm-t-ls-2026

Stigahæstu keppendur í karlaflokki

Í karlaflokki sáust gríðarlega flottar lyftur þar sem Viktor Jóhannes Kristófersson tryggði sér efsta sætið með glæsilegum árangri.

  1. Viktor Jóhannes Kristófersson (KA)
    • -110 kg, 130/162 = 292 kg og 329.4 Sinclari stig
  2. Tindur Eliasen (Lyftingafélag Reykjavíkur)
    • -88 kg, 120/138 = 258 kg og 319.4 Sinclair stig
  3. Arnar Bjarki Kristjánsson (KA)
    • -88 kg, 104/137 = 241 kg og 295.7 Sinclair stig

Stigahæstu keppendur í kvennaflokki

Kvennemegin var keppnin sömuleiðis jöfn og spennandi þar sem Freyja Björt Svavarsdóttir fór með sigur af hólmi eftir harða baráttu.

  1. Freyja Björt Svavarsdóttir (Lyftingafélag Reykjavíkur)
    • -58 kg, 64/90 = 154 kg og 214.1 Sinclair stig
  2. Steindís Elín Magnúsdóttir (Lyftingafélag Reykjavíkur)
    • -69 kg, 72/95 = 167 kg og 208.7 Sinclair stig
  3. Valdís Brynjarsdóttir (Lyftingafélag Reykjavíkur)
    • -77 kg, 82/93 = 175 kg og 207.0 Sinclair stig

Íslandsmet

Lyftingakarl ársins 2025 Bergur Sverrisson setti nýtt íslandsmet á heimavelli í opnum flokki í snörun í -88 kg flokki þegar hann lyfti 138 kg. Hann náði því miður ekki gildri lyftu í jafnhendingu en Bergur var að reyna við lágmörk á Heimsmeistaramótið sem fram fer í Kína í lok október þar sem hann stefnir að því að keppa í -85 kg flokki.

Birna Salóme Friðriksdóttir setti jafnhendingarmet í flokki -63 kg U17, 73 kg.

Hólmfríður Bjartmarsdóttir setti tvö met í -77 kg flokki U17, þegar hún jafnhenti 78 kg og einnig met í samanlögðum árangri 138 kg.

Tristan Bergmann Einarsson setti fjölmörg met í -71 kg U15 og U17 og lyfti mest 57 kg í snörun, 80 kg í jafnhendingu, samanlagt 137 kg.

Guðjón Gauti Vignisson setti sömuleiðis nokkur met í -94 kg U17 þegar hann lyfti 100 kg í snörun, 120 kg í jafnhendingu og 220 kg í samanlögðum árangri.

Jóhannes Þór Ævarsson setti þrjú met í -94 kg M50 flokki þegar hann snaraði 78 kg, jafnhenti 104 kg og best 182 kg í samanlögðum árangri.

Liðakeppnin

Lyftingafélag Reykjavíkur sýndi mikla breidd á mótinu og vann liðakeppnina með talsverðum yfirburðum. Heimamenn í KA og Lyftingafélag Kópavogs háðu sömuleiðis harða baráttu.

Lokastaða félaga (samanlagður stigafjöldi karla og kvenna):

SætiFélagStig
1.Lyftingafélag Reykjavíkur47 stig
2.Lyftingafélag Kópavogs20 stig
3.KA12 stig
4.Kraftlyftingafélag Akraness8 stig
5.UMFN – Massi5 stig

LSÍ óskar keppendum til hamingju með árangurinn og færir lyftingadeild KA bestu þakkir fyrir frábæra framkvæmd og framúrskarandi umgjörð á Akureyri!

Við þökkum Gatorade á Íslandi, Next Level Gaming og Hreysti fyrir stuðninginn við umgjörð mótsins en sigurvegarar í karla- og kvennaflokki fengu auk verðlauna, veglegar gjafir.

Sumarmót LSÍ – keppendalisti

18 keppendur eru skráðir á sumarmót LSÍ sem fer fram í Íþróttahöllinni á Akureyri, sunnudaginn 24. maí. Lyftingadeild KA hefur umsjón með mótinu.

Vigtun hefst kl. 10:45 fyrir alla keppendur

Keppni í kvennaflokki hefst kl. 12:45

Keppni í karlaflokki hefst kl. 14:45

Konur

Last NameFirst NameTeamBirth YearCategoryEntry Total
ÓlafsdóttirBirnaLyftingafélag Kópavogs200853100
FriðriksdóttirBirna SalómeLyftingafélag Reykjavíkur200963127
BjarnadóttirBrynja MaríaLyftingafélag Reykjavíkur199086130
JónsdóttirEyvör HallaLyftingafélag Reykjavíkur199969150
SvavarsdóttirFreyja BjörtLyftingafélag Reykjavíkur200558160
BjartmarsdóttirHólmfríðurLyftingafélag Reykjavíkur200977125
KjartansdóttirHólmfríður KLyftingafélag Kópavogs199569145
MagnúsdóttirSteindís ElínLyftingafélag Reykjavíkur200869160
BrynjarsdóttirValdísLyftingafélag Reykjavíkur200477160

Karlar

Last NameFirst NameTeamBirth YearCategoryEntry Total
KristjánssonArnar BjarkiKA200188212
SverrissonBergurKA199488270
EinarssonBjarki FreyrUMFN – Massi200288188
VignissonGuðjón GautiKraftlyftingafélag Akraness200994200
ÆvarssonJóhannes ÞórLyftingafélag Kópavogs197394170
HaukssonKristófer LogiLyftingafélag Kópavogs200888200
EliasenTindurLyftingafélag Reykjavíkur200588269
EinarssonTristan BergmannLyftingafélag Reykjavíkur201171120
KristóferssonViktor JóhannesKA1999110265

Skráning hafin á Sumarmót LSÍ

Skráning fyrir Sumarmót LSÍ í ólympískum lyftingum sem fer fram sunnudaginn 24. maí 2026.

SKRÁNING HÉR

Skráningu lýkur 21. maí 2026 kl. 23:59.

Mótið er í umsjá lyftingadeildar KA og fer fram í Íþróttahöllinni við Skólastig á Akureyri

Mótið er Sinclair stigamót og þrír stigahæstu einstaklingarnir af hvoru kyni eru verðlaunaðir.

Afrek á results.lsi.is eru skráð í þann þyngdarflokk sem einstaklingurinn vigtast inn í á mótið þ.e. ekki þarf að ná vigt í þeim flokki sem keppandi skráir sig í.

Upplýsingar um keppendur verða einungis notaðar í tengslum við mótið.

Upplýsingar um keppendur hvers félags verða sendar á forsvarsmenn félaganna til staðfestingar.

Keppnisgjald er kr. 10.000,- og bera keppendur ábyrgð á greiðslu keppnisgjalds (breytingar á mótareglum og þ.m.t. gjaldskrá, tóku gildi 6. maí).

Forskráningargjald er kr. 8.000,- og gildir til og með sunnudagsins 17. maí.

*Stefnt er að því að hefja vigtun kl. 10:30 til að koma til móts við þá sem koma með flugi um morguninn (áætluð koma til Akureyrar með fyrsta flugi frá Reykjavík er kl. 10:15).

Frekari upplýsingar um mótið veitir Birkir Örn Jónsson fyrir hönd KA, á netfangið lyftingar@ka.is eða í síma 844 7377.

Emilía Nótt keppir á HM U20

Emilía Nótt Davíðsdóttir er okkar fulltrúi á HM U20 sem fer fram í Ismailia í Egyptalandi 🇪🇬

Emilía keppir þriðjudaginn 5. maí í -69 kg flokki í B hóp. Í hennar flokki eru samtals 20 keppendur.

Keppni í B hóp hefst kl. 08:00 á 🇮🇸 tíma og verður í beinu streymi á Facebook síðu IWF facebook.com/iwfnet.

Áfram Emilía og áfram Ísland!

Craftverslun

Frumherji

SBD

Gatorade

Glæsileg frammistaða Erlu á EM

Erla Ágústsdóttir, +86 kg, sýndi glæsilega takta á stóra sviðinu í Batumi þegar hún keppti í B hóp. Mikill og góður gangur hefur verið á æfingum undanfarið og því mætti Erla með mikið sjálfstraust og áræðni. Frammistaðan endurspeglaði greinilega framfarir síðustu vikna.

Erla opnaði snörun á 103 kg sem fóru ekki upp og einhver hrollur gerði vart um sig. Hún sýndi mikinn styrk og reif upp sömu þyngd auðveldlega í næstu lyftu og reyndi svo við 106 kg sem voru nálægt því að fara alla leið. Í jafnhendingu náðí hún fullu setti þar sem hún byrjaði á 120 kg, fór næst í 124 kg, sem fóru upp og endaði svo á því að lyfta glæsilega 127 kg og þar með bæta sinn besta árangur samanlagt um 2 kg.

Samtals því 103/127 = 230 kg og 13. sæti niðurstaðan.

@craftverslun
@frumherji_hf
@gatoradeiceland
@sbdapparel

#LyftingasambandÍslands#oly#Batumi