Minnum á skráningu á lsi@lsi.is því fyrr því betra !
Lilja Lind hefur lokið keppni
Lilja Lind Helgadóttir (f.1996) hefur lokið keppni á heimsmeistaramóti unglinga í Póllandi. Hún fór aðeins með opnunarþyngdirnar sínar í gegn 72kg í snörun og 90kg í jafnhendingu. Hún átti mjög góðar tilraunir við 75kg og 77kg í snörun. Í aðdraganda mótsins tognaði hún lítillega á læri sem setti strik í lokaundirbúning fyrir mótið en hún reyndi tvisvar sinnum við 95kg í jafnhendingu en lappirnar leyfðu það ekki í dag. Það dugði þó Lilju þó í 10. sæti í keppninni en 12 hófu leik, keppandi frá Braselíu og Suður-Kóreu helltust úr leik í jafnhendingunni.
Við óskum henni til hamingju með að klára sitt fyrsta stórmót og vonandi kemur hún tvíelfd til leiks á næsta mót. Mótið er liður í forkeppni ólympíuleikanna og fer árangur Lilju Lindar því á heimslistann.
Lilja Lind keppir í dag
Lilja Lind Helgadóttir hefur keppni í -75kg flokki kvenna á heimsmeistaramóti unglinga í Wroclow í Póllandi klukkan 10 á íslenskum tíma.
Einhver færsla varð á keppendum milli flokka en keppendalistinn er eftirfarandi:
Hægt er að fylgjast með beinni útsendingu á netinu á eftirfarandi vefsíðu: http://www.iwf.net/wroclaw_live/
Við munum koma með fréttir eins fljótt og þær berast og við mælum einnig með nýstofnaðari instagram síðu lyftingasambandsins þar sem hægt er að sjá fréttir í formi mynda: https://instagram.com/icelandic_weightlifting/
Æfingabúðir EWF á Spáni 5-12 Júlí
Evrópska lyftingasambandið (EWF) heldur æfingabúðir í Valencia á Spáni dagana 5-12. Júlí. Öll aðildarsambönd mega senda einn þjálfara, einn pilt (17 ára eða yngri) og eina stúlku (17 ára eða yngri) og greiðir EWF uppihald og þátttöku kostnað.
LSÍ óskaði eftir tilnefningu að þátttakendum og fór það svo að eftirtaldir fara:
Þjálfari: Lárus Páll Pálsson (Ármann)
KK: Arnór Gauti Haraldsson (f.1998) (LFH)
KVK: Helena Ingvarsdóttir (f.1999) (LFK)
LSÍ styrkir hópinn um 50.000kr per einstakling, eftirtaldir einstaklingar voru með hæsta Sinclair 17 ára og yngri í karla og kvenna flokki.
Sjá frekari upplýsingar um æfingabúðirnar: http://ewfed.com/news_det.php?id=89
Guðmundur Sigurðsson: Afmæliskveðja
Lyftingasamband Íslands óskar Guðmundi Sigurðsyni til hamingju með 69 árin. Guðmundur er einn af upphafsmönnum íþróttarinnar á Íslandi og keppti fyrst árið 1963 og síðasta mót var árið 2012.
Hann keppti á fjölda alþjóðlegra móta á árunum 1972-1982 í milliþungavigt (-90kg) meðal annars Ólympíuleikunum 1972 þar sem hann varð í 13. sæti og Ólympíuleikunum 1976 þar sem hann varð í 8.sæti.
Hann keppti 4x á Evrópumeistaramótum (’72, ’74, ’76 og ’80) og náði bestum árangri 1974 eða 8. sæti. Hann keppti einnig á HM ’74 og ’79 og varð í 11.sæti á HM 1974.
Einnig hefur hann verið virkur keppandi í öldungaflokkum og hefur þar sett 9 heimsmet og orðið heimsmeistari ’89, ’91, ’93, ’95 og 2006, þá varð hann Evrópumeistari öldunga 2008.
Flest mót Guðmundar eru í gagnagrunni LSÍ og getur verið gaman að rýna þar í árangur hans: http://results.lsi.is/lifter/gudmundur-sigurdsson
Sumarmót LSÍ: Skráning hafin
Þjálfaramenntun ÍSÍ: Sumarfjarnám
Sumarfjarnám 1. og 2. stigs þjálfaramenntunar ÍSÍ mun hefjast mánudaginn 29. júní nk. og tekur það átta vikur á 1. stigi en fimm vikur á 2. stigi. Nám beggja stiga er allt í fjarnámi, engar staðbundnar lotur og gildir námið jafnt fyrir allar íþróttagreinar. Námið hefur verið afar vinsælt undanfarin ár og þátttakendur komið frá fjölda
íþróttagreina. Námið veitir réttindi til íþróttaþjálfunar og jafnframt rétt til áframhaldandi náms til frekari réttinda. Þátttökugjald á 1. stig er kr.25.000.- og öll námskeiðsgögn eru innifalin í því verði og send á heimilisföng þátttakenda. Þátttökugjald á 2. stig er kr. 22.000.-
Skráning er á namskeid@isi.is eða í síma 514-4000 og þarf henni að vera lokið fyrir föstudaginn 26. júní. Með skráningu þarf að fylgja fullt nafn, kennitala, heimilisfang, netfang og símanúmer og taka þarf skýrt fram á hvaða stig verið er að skrá. Rétt til þátttöku á 1. stigi hafa allir sem lokið hafa grunnskólaprófi.
Allar nánari uppl. um fjarnámið og aðra þjálfaramenntun ÍSÍ gefur Viðar Sigurjónsson í síma 460-1467 & 863-1399 eða á vidar@isi.is
Svæðisleikarnir í Crossfit
Lyftingasamband Íslands óskar keppendum á „Evrópuleikunum“ í crossfit til hamingju með árangurinn og þeim sem tryggðu sér þátttökurétt á Heimsleikunum í Júlí. Í raun er mun stærra svæði en Evrópa sem tekur þátt í þessum leikum en „Meridian svæðið“ spannar Evrópu, allt Rússland, Mið-Austurlönd og Afríku.
Við óskum Björvin Karli (Hengill) og liði Crossfit Reykjavíkur til hamingju með árangurinn en Björgvin var í 2.sæti í einstaklingskeppninni og CFR í 3.sæti í liðakeppninni.
8 konur á allra tíma topp 10 listanum frá breytingu á þyngdarflokkum 1998 voru á meðal þátttakenda og tryggðu 5 þeirra sér þátttökurétt á leikunum. En 5 stigahæstu einstaklingarnir í karla og kvenna keppnunum tryggja sér þátttökurétt á heimsleikunum.
Ragnheiður Sara Sigmundsdóttir (1.sæti) – Svæðismeistari í Crossfit 2015
Katrín Tanja Davíðsdóttir (2.sæti)
Annie Mist Þórisdóttir (3.sæti)
Þuríður Erla Helgadóttir (5.sæti)
Anna Hulda Ólafsdóttir (3.sæti í liðakeppninni)
Björk Óðinsdóttir (7.sæti)
Hjördís Ósk Óskarsdóttir (11.sæti)
Oddrún Eik Gylfadóttir (18.sæti)
Hin Rússneska Oxana Slivenko, silfurverðlaunahafi frá ólympíuleikunum 2008 og þrefaldur heimsmeistari og fjórfaldur evrópumeistari í ólympískum lyftingum var á meðal keppenda og endaði í 8.sæti.
Hér má sjá allra tíma topp-10 listann (1.6.2015)
| # | Nafn | Félag | Fæðingarár | Árangri náð | Líkamsþyngd | Mót | Samanlagt | Sinclair |
| 1 | Þuríður Erla Helgadóttir | Ármann | 1991 | 2.5.2015 | 59,75 | Íslandsmeistaramót 2015 | 183 | 252,19 |
| 2 | Hjördís Ósk Óskarsdóttir | FH | 1984 | 2.5.2015 | 62,55 | Íslandsmeistaramót 2015 | 180 | 240,35 |
| 3 | Annie Mist Þórisdóttir | LFR | 1989 | 15.3.2015 | 68,4 | Bætingamót LFR 2015 | 188 | 237,14 |
| 4 | Anna Hulda Ólafsdóttir | LFR | 1985 | 31.5.2014 | 57,18 | Nordic Championship 2014 | 166 | 236,16 |
| 5 | Björk Óðinsdóttir | KFA | 1988 | 31.5.2014 | 61,49 | Nordic Championship 2014 | 172 | 232,34 |
| 6 | Katrín Tanja Davíðsdóttir | LFR | 1993 | 2.5.2015 | 68,9 | Íslandsmeistaramót 2015 | 182 | 228,58 |
| 7 | Lilja Lind Helgadóttir | LFG | 1996 | 25.10.2014 | 76,84 | Nordic Junior/Youth Championship 2014 | 183 | 216,37 |
| 8 | Ragnheiður Sara Sigmundsdóttir | UMFN | 1992 | 31.5.2014 | 68,72 | Nordic Championship 2014 | 168 | 211,32 |
| 9 | Oddrún Eik Gylfadóttir | NCBC/Ármann | 1988 | 3.1.2015 | 57,3 | Ladies Open 2015 | 145 | 205,97 |
| 10 | Freyja Mist Ólafsdóttir | LFR | 1996 | 24.1.2015 | 68,6 | Reykjavik International Games 2015 | 163 | 205,25 |
Lilja Lind keppir á HM Unglinga
Lilja Lind Helgadóttir (LFG) (f.1996) mun keppa á HM unglinga, föstudaginn 12.Júní í Wraclow í Póllandi. Mótið er firnasterkt enda eitt af heimslistamótum fyrir Ólympíuleikana í Ríó 2016.
Búið er að birta keppendalistann fyrir mótið en Lilja Lind keppir í B-grúppu í -75kg flokki kvenna ásamt bestu lyftingakonum heims í þessum þyngdarflokk á aldursbilinu 18-20 ára: http://www.iwf.net/wp-content/uploads/downloads/2015/05/COMPETITORS_by_category.pdf
Lilja Lind eina konan af norðurlöndunum sem mætir til leiks en Finnar senda þrjá karla til keppni.

Lilja Lind Helgadóttir og þjálfari hennar Árni Björn Kristjánsson eftir að hafa sett Norðurlandamet unglinga í Svíþjóð 2014
Hér má sjá keppendalistann fyrir -75kg flokk kvenna, síðasta talan er árangur inn í mótið og er hann notaður til þess að raða í A og B grúppu. Lilja á best 183kg í samanlögðum árangri sem hún náði á Norðurlandamóti unglinga í fyrra þar sem hún setti frábært norðurlandamet í jafnhendingu 103kg í +75kg flokki kvenna. Hún hefur keppt í -75kg flokki það sem af er árinu og lyft mest 177kg samanlagt en það gerði hún á Copenhagen Weightlifting Cup í Janúar. Hún er búinn að vera í mikilli uppbyggingu fyrir heimsmeistaramótið og verður spennandi að fylgjast með henni.
Hún er fyrsta íslenska konan sem keppir á heimsmeistaramóti unglinga.
Fyrir þá sem hafa áhuga á sögu lyftinga á Íslandi þá hefur Ísland tvisvar sinnum sent keppendur á HM unglinga, árið 1982 fór Haraldur Ólafsson til Sao Paulo í Brasilíu en datt úr leik í snörun eftir brösulegan undirbúning hjá mótshöldurum.
Árið eftir (1983) í Kaíró í Egyptalandi náði Ingvar Jóel Ingvarsson hinsvegar frábærum árangri þegar hann var í 6.sæti í -100kg flokki með 130kg í snörun og 177,5kg í jafnhendingu. Baldur Borgþórsson féll þar úr leik í jafnhendingu eftir að hafa snarað 140kg í -90kg flokki karla.
Liðabikar LSÍ
LSÍ kynnir liðabikar LSÍ.
Sjá reglugerð um liðabikar: lidabikar_final
——–
Mót sem teljast til liðabikars 2015 eru Sumarmótið (4.Júlí), Haustmótið (17.Október) og Jólamótið (19.Desember).
Mótin eru stigamót þar sem verðlaunað er fyrir fyrsta, annað og þriðja sæti samkvæmt Sinclair stigatöflu í karla og kvenna flokki.
7 konur skipa fullt lið í þyngdarflokkunum -48kg,-53kg,-58kg,-63kg,-69kg,-75kg og +75kg.
8 karlar skipa fullt lið í þyngdarflokkunum -56kg, -62kg, -69kg, -77kg, -85kg, -94kg, -105kg, +105kg
Mest telja 2 einstaklingar í hverjum þyngdarflokk.
Hægt er að vera með 2 varamenn í kvenna keppni og 2 varamenn í karla keppni sem telja ef einstaklingur fellur úr keppni.
Eftirfarandi fjöldi stiga er veittur:
- sæti í þyngdarflokk fær 7 stig
- sæti í þyngdarflokk fær 5 stig
- sæti í þyngdarflokk fær 4 stig
- sæti í þyngdarflokk fær 3 stig
- sæti í þyngdarflokk fær 2 stig
- sæti í þyngdarflokk fær 1 stig
Liðabikarinn er farandbikar og er afhentur því liði sem hlýtur flest samanlögð stig út úr þessum þremur mótum. Liðin í öðru og þriðja sæti fá einnig silfur og brons verðlaun.
Ef tvö lið eru jöfn að stigum í lok keppninnar þá vinnur það lið sem hefur flesta sigra (1.sæti). Ef ennþá eru tvö lið jöfn þá vinnur það lið sem hefur hærri samanlagðan Sinclair af öllum sigurvegurum (1.sæti).
Allir íþróttamenn verða að vera skráðir í Felix kerfi ÍSÍ til þess að mega keppa á mótum hjá LSÍ og íþróttamaðurinn má ekki keppa fyrir tvö mismunandi lið í áðurnefndri liðakeppni á keppnisárinu.
Íþróttamenn sem taka þátt í liðakeppni LSÍ verða að hafa íslenskt vegabréf eða vera með fasta búsetu á Íslandi.
——








