
Lyftingaþing 2018
Lyftingaþing 2018 fór fram 17.mars og var nýr formaður LSÍ kosinn og ný stjórn:
Formaður: Ingi Gunnar Ólafsson
Varaformaður: Ásgeir Bjarnason
Ritari: Lína Viðarsdóttir
Gjaldkeri: Katrín Erla Bergsveinsdóttir
Meðstjórnandi: Eyþór Einarsson
Varastjórn: Árni Freyr Bjarnason, Andri Gunnarsson, María Rún Þorsteinsdóttir og Jens Andri Fylkisson
Fráfarandi formaður Ásgeir Bjarnason var sæmdur gullmerki LSÍ og fráfarandi ritari Stefán Ragnar Jónsson var sæmdur silfurmerki ÍSÍ.
—
Fylgiskjöl þings:
Smáþjóðleikar í lyftingum á Íslandi: 28.Apríl
40. Smáþjóðleikarnir í ólympískum lyftingum verða haldnir í fyrsta sinn á Íslandi Laugardaginn 28.Apríl í Íþróttahúsinu Strandgötu.
Fjórar þjóðir keppa að þessu sinni Ísland, Kýpur, Malta og San Marino. Einnig er keppt um besta karl og kvenn keppanda. Liðin skipa 3 karlar og 2 konur.
Tímaseðill
11:00 Konur
13:00 Karlar
15:00 Verðlaunaafhending
Lið Íslands skipa að þessu sinni
Karlar
Einar Ingi Jónsson (LFR)
Bjarmi Hreinsson (LFR)
Björgvin Karl Guðmundsson (Hengill)
Konur
Þuríður Erla Helgadóttir (LFK)
Björk Óðinsdóttir (KFA)
EM 2016: Úrslit
Evrópumeistaramótinu 2016 lauk í Rúmeníu á Sunnudaginn, Ísland átti tvo keppendur að þessu sinni þau Einar Inga Jónsson (LFR) og Anítu Líf Aradóttir (LFG).
Heildarúrslit má sjá m.a. hér: http://www.easywl.com/results/index.php
Einar Ingi var að keppa á sínu fyrsta stórmóti í fullorðinsflokki og átti hann gott mót en hann bætti sig og íslandsmet sín í -77kg flokki, fyrst með því að lyfta 120kg í snörun og síðan 123kg. Í jafnhendingu lyfti hann 145kg, 150kg en náði ekki að klára jarkið í 155kg. Hann setti einnig met í samanlögðum árangri.
Aníta Líf Aradótti náði sér ekki á strik og féll úr leik í snörun með 73kg, hún jafnhenti síðan örugglega 90,95 og 100kg.
–
27 þjóðir áttu fulltrúa á mótinu en Rússland, Úkraína, Armenía, Hvíta Rússland, Moldóva og Tyrkland eru öll í banni fram í September vegna fjölda brota á lyfjalögum í tengslum við ólympíuleikana 2008 og 2012.
Þetta nýttu aðrar þjóðir sér og áttu Svíar tvo verðlaunahafa, ólympíufarinn Angelica Roos lyfti 85kg í snörun og 106kg í jafnhendingu samtals 191kg í -58kg flokk sem tryggði henni silfur í samanlögðu. Það voru þremur kg minna en Þuríður Erla Helgadóttir lyfti á HM 2017 þar sem hún varð í 10.sæti.
Samlandi hennar Patricia Strenius lyfti 98kg í snörun og 131kg í jafnhendingu í -69kg flokk sem einnig var norðurlandamet í jafnhendingu. Samtals 230kg og sá árangur tryggði henni glæsileg gullverðlaun í flokknum. Fyrstu gullverðlaun svía í kvennaflokki á stórmóti í lyftingum.
Íslandsvinurinn Anni Vuhijoki lyfti bronsi í -63kg flokk með 203kg og það sama gerði samlandi hennar Meri Ilmarinen með 223kg í samanlögðu í -75kg flokk.
Frétt um árangur Angelicu Roos: https://www.insidethegames.biz/articles/1063224/first-senior-glory-for-latvias-koha-and-a-landmark-weightlifting-moment-for-sweden
Frétt um árangur Patricu Strenius: https://www.insidethegames.biz/articles/1063300/strenius-is-first-swedish-woman-and-first-crossfit-weightlifter-to-win-european-gold
Evrópumót fullorðinna, Rúmeníu
Evrópumótið í olympískum lyftingum hefst þann 26.mars næstkomandi og munum við senda 2 keppendur í ár, þau Anítu Líf Aradóttir sem keppir í -69 kg flokki og Einar Inga Jónsson sem keppir í -77 kg flokki
Þau munu bæði keppa á fimmtudaginn 29.mars í Bucharest í Rúmeníu
Hérna er hægt að sjá dagskrá mótsins
Click to access EWC2018startbook.pdf

Dómaranámskeið í Danmörku
Erna Héðinsdóttir (cat.2) alþjóðadómari var fulltrúi Íslands á dómaranámskeiði í Danmörku fyrir alþjóðadómara á vegum Evrópska lyftingasambandsins (EWF) síðustu helgi. Fyrri daginn var farið yfir reglur IWF og seinni daginn dæmdu dómararnir á danska meistaramótinu.
f.v. Astrid Hasani (gjaldkeri EWF), Erna Héðinsdóttir, Hasan Akkus (aðalritari EWF), Tina Baiter (Danmörku)
44. Lyftingaþing 17.mars klukkan 10:00
Minnum á lyftingaþingið á Laugardaginn, þar sem fram fer kjör til stjórnar LSÍ og lagðar eru fram lagabreytingar, ársreikningarsambandsins, afreksstefna og annað sem viðkemur starfi LSÍ.Þingið hefst klukkan 10:00.
Undirritaður formaður gefur ekki kost á sér til formennsku þar sem hann er að flytja erlendis.
Ég vil hvetja félög og félaga til að fjölmenna á þingið, ég minni á lög sambandsins þar sem segir í 10.grein að starfssvið stjórnar LSÍ er að framkvæma ályktanir lyftingaþings.
Dagskrá lyftingaþings samkvæmt lögum LSÍ er eftirfarandi:
1) Þingsetning.
2) Kosin kjörbréfanefnd 3ja manna.
3) Kosning fyrsta og annars þingforseta og tveggja þingritara.
4) Kosnar nefndir þingsins:
a) Fjárhagsnefnd.
b) Laga- og leikreglnaefnd
c) Allsherjarnefnd.
d) Kjörnefnd.
Nefndir þessar eru skipaðar 3 mönnum hver
5) Fráfarandi stjórn gefur skýrslu sína
6) Gjaldkeri leggur fram, endurskoða reikninga sambandsins til samþykktar.
7) Stjórn leggur fram fjárhagsáætlun fyrir næsta ár.
8) Lagðar fram laga- og leikreglnabreytingar þær, sem fram hafa komið.
9) Teknar til umræðu aðrar tillögur og önnur mál sem borist hafa til stjórnarinnar, svo og önnur mál er þingið vill ræða.
ÞINGHLÉ
10) Nefndarálit og tillögur og atkvæðagreiðsla um þær.
11) Ákveðið gjald ævifélaga
12) Kosning stjórnar, varastjórnar, skoðunarmanna og fulltrúa á Íþróttaþing.
a) Formaður.
b) 1-2 úr fráfarandi stjórn.
c) 2-3 meðstjórnendur.
d) 4 varamenn.
e) 2 skoðunarmenn,
f) Fulltrúi Íþróttaþing.
13) Kosinn formaður dómaranefndar.
14) Önnur mál.
15) Þingfundargerðir lesnar og staðfestar.
16) Þingslit.
Úrslit af íslandsmótinu 2018
Íslandsmótið 2018 fór fram laugardaginn 17.Febrúar í íþróttahúsinu Varmá í umsjón Lyftingafélag Kópavogs og Lyftingafélags Mosfellsbæjar og var öll mótsumgjörð til fyrirmyndar.
Öll úrslit má sjá hér http://results.lsi.is/meet/islandsmeistaramot-2018
Birna Aradóttir (LFR) átti frábært mót og bætti íslandsmet í U20 bæði í snörun og jafnhendingu, en hún snaraði 80 kg og jafnhenti 90 kg og endaði hún mótið með 231 sinclair stig og varð stigahæst kvenna. Þess má geta að norðurlandametin í snörun í flokki 20 ára og yngri eru 78kg í -58kg flokk og 82kg í -63kg flokk. Birna lyfti því yfir metinu í -58kg flokk en hún vigtaðist um 59kg inn í mótið.
Bjarmi Hreinsson (LFR) varð stigahæstur karla þegar hann snaraði 131kg og jafnhenti síðan nýju íslandsmeti karla í -94kg flokk 161kg og á Bjarmi þá öll þrjú metin í flokknum en metið í snörun og samanlögðu setti hann á RIG í lok Janúar. Bjarmi reyndi við 140kg í snörun og 170kg í jafnhendingu í þriðju tilraununum sínum.
Lyftingafélag Kópavogs (LFK) varð íslandsmeistari liða, en í fyrsta sinn var afhentur bikar fyrir besta liðið.
Liðakeppni
| # | Félag | Stig | Niðurbrot stiga |
|---|---|---|---|
| 1 | LFK | 47 | 7 + 7 + 5 + 5 + 5 + 5 + 4 + 4 + 3 + 2 |
| 2 | LFR | 40 | 7 + 7 + 7 + 7 + 5 + 5 + 2 |
| 3 | LFG | 27 | 7 + 7 + 7 + 3 + 2 + 1 |
| 4 | LFH | 16 | 7 + 5 + 4 |
| 5 | UMFN | 13 | 5 + 4 + 4 |
| 6 | Ármann | 7 | 7 |
| 7 | Hengill | 3 | 3 |
Önnur met sem sett voru á mótinu voru öldungamet hjá Hrund Scheving í flokki 35-39 ára og 40-44ára en þyngsta jafnhendingin hennar var yfir heimsmeti í masters flokki 40-44ára en skráð met er 92.5kg.
Rökkvi Guðnason tvíbætti íslandsmetin í flokki -62kg karla 15 ára og yngri þegar hann snaraði 63kg og 66kg, hann jafnhenti síðan 80kg og 83kg.
Frábær umfjöllun stöðvar 2 um mótið: http://www.visir.is/section/MEDIA99&fileid=VTVB73BC90A-9897-45C1-B275-37F0BAE3B3CD
Svipmyndir frá mótinu má sjá hér að neðan:
https://www.instagram.com/p/BfWsoy6lM5v/?hl=en&taken-by=danielgudmundsson
Íslandsmót: Skráningarlisti og Tímaseðill
| Tímaseðill | |
| 8:00-9:00 | Vigtun (KVK) |
| 9:00-10:00 | Vigtun (KK) |
| 10:00-12:00 | KVK (-48,-53,-58,-63) – 13 keppendur |
| 12:05-13:45 | KVK (-69,-75,-90kg) – 10 keppendur |
| 13:45 | Verðlaunaafhending KVK |
| 14:00-16:30 | KK (Allir flokkar) – 18 keppendur |
| 16:30 | Verðlaunaafhending KK |
| Þyngdarflokkur | Nafn | Félag |
| -48kg | Ásrún Arna Sch Kristmundsdóttir | LFK |
| -53kg | Eir Andradóttir | LFG |
| -53kg | Hrafnhildur Arnardóttir | LFK |
| -53kg | Líney Dan Gunnarsdóttir | LFK |
| -58kg | Kristrún Ingunn S. Sveinsdóttir | LFK |
| -63kg | Álfrún Tinna Guðnadóttir | LFR |
| -63kg | Íris Rut Jónsdóttir | UMFN |
| -63kg | Birna Aradóttir | LFR |
| -63kg | Inga Arna Aradóttir | LFR |
| -63kg | Margrét Þórhildur Maríudóttir | LFK |
| -63kg | Amalía Ósk Sigurðardóttir | LFK |
| -63kg | Hrafnhildur Finnbogadóttir | LFK |
| -69kg | Birta Líf Þórarinsdóttir | LFR |
| -69kg | Aþena Eir Jónsdóttir | UMFN |
| -69kg | Hrund Scheving | LFK |
| -69kg | Thelma Hrund Helgadóttir | Hengill |
| -69kg | Viktoría Rós | LFG |
| -69kg | Arna Eyþórsdóttir | LFG |
| -75kg | Álfrún Ýr Björnsdóttir | LFH |
| -75kg | Kristín Jakobsdóttir | Ármann |
| -75kg | Eygló Fanndal Sturludóttir | LFK |
| -75kg | Sandra Pawlik | LFK |
| Karlar | ||
| Þyngdarflokkur | Nafn | Félag |
| -62kg | Matthías Abel Einarsson | Hengill |
| -62kg | Rökkva Hrafn Guðnason | LFR |
| -69kg | Guðbjartur Árni Björnsson | LFK |
| -69kg | Róbert Þór Guðmarsson | LFH |
| -77kg | Ingimar Jónsson | LFG |
| -77kg | Matthías Björn Gíslason | LFH |
| -77kg | Alexander Sólon Kjartansson | LFH |
| -85kg | Guðmundur Jökull Ármannsson | LFG |
| -85kg | Daníel Róbertsson | LFK |
| -85kg | Emil Ragnar Ægisson | UMFN |
| -85kg | Almar Kristmannsson | LFG |
| -85kg | Sveinn Atli Árnason | LFK |
| -94kg | Bjarmi Hreinsson | LFR |
| -94kg | Daníel Ómar Guðmundsson | LFR |
| -94kg | Veigar Ágústsson Hafþórsson | LFH |
| -105kg | Sigurjón Guðnason | LFR |
| (+105kg) | Ingólfur Þór Ævarsson | KFA |
| (+105kg) | Ingvi Karl Jónsson | Ármann |
Íslandsmótið í ólympískum lyftingum
Skráning er hafin á Íslandsmótið sem haldið er 17.febrúar
ATHUGIÐ skráningafrestur til 12.febrúar á lsi@lsi.is
