Íslensku keppendurnir stóðu sig mjög vel, og vorum við Íslendingar í harðri baráttu um gullið. Ísland hafnaði í 2. sæti í liðakeppninni.
Úlfhildur varð í 2 sæti yfir stigahæstu konuna, Gerald Brimir einnig, ásamt því að bæði Íslenska karla og kvennaliðið höfnuðu bæði í 2. sæti í þeirri keppni. Úlfhildur Arna Unnarsdóttir tók 80-83-86x í snörun og 100-104-106 í jafnhendingu, og voru bæði 104kg og 106kg bæting á hennar eigin Íslandsmeti í flokki u17.
Birta Líf kom einnig sterk inn í keppnina. Hún tók seríuna 77-81-85 og 100-103-105, með allar sínar lyftur gildar.
Daníel Róbertson tók 115kg í snörun, en meiddist í hnéi í annarri tilraun við 120kg. Daníel reyndi samt aftur við 120, sem gekk því miður ekki upp. Daníel lét sig þó ekki vanta og gerði sitt af mörkum fyrir liðið, en hann opnaði á 110-120-127, allar lyftur gildar. Danni tók í raun bara „rúmenska“ kraftvendingu, með beinar fætur.
Gerald Brimir Einarsson tók seríuna 110-116-120 í snörun, og 150-156-161x í jafnhendingu. Var það bæting á hans besta árangri um 6kg. Gerald átti strangheiðarlega tilraun við 161kg en rétt missti jerkið, og var það tilraun til Íslandsmets.
Alex Daði var svo í síðustu grúbbuni. Keppnin hjá Alex Daða byrjaði ekki vel, en hann missti fyrstu tilraun við 110kg, en tók það í seinni tilraun. Í síðstu tilraun við snörun reyndi hann við 116 sem gekk ekki upp. Alex Daði á best 130kg í snörun á móti, svo þetta var töluvert undir væntingum hjá honum þar. Í jafnhendingunni mætti hann þó galvaskur til leiks, og opnaði í 150kg sem flaug upp. Hann bað um 163kg í annari tilraun, en rétt missti jerkið. Hann kom svo sterkur inn í síðustu tilraun og lyfti 163kg nokkuð auðveldlega, sem var nýtt Íslandsmet í -96kg flokki fullorðinna.
Ingi Gunnar Ólafsson hélt liðinu saman, en hann fór út sem landsliðsþjálfari. Erna Héðinsdóttir fór út sem Cat. 1 dómari, og Árni Rúnar Baldursson fór út til að þeyta Cat. 2 alþjóðlegt dómararéttindapróf.
Var mikil umgjörð um mótið, en Milan Mihajlovic, sem er General Secretary hjá Evrópska lyftingasambandinu, hélt námskeið um tæknileg atriði og reglur í lyftingum, Denise Offerman hélt Anti-doping námskeið, og Dr. Mike Irani, fyrrverandi forseti alþjóða lyftingasambandsins (IWF) hélt fyrirlestur um meiðsli og meðferðir við meiðslum.
Smáþjóðaleikarnir eru haldnir í ár í Limassol, Kýpur. Smáþjóðaleikarnir eru liðakeppni, og eru 3 karlar og tvær konur sem keppa, og samanlögð Sinclair stig þeirra ráða úrslitum. Allir íslensku keppendurnir keppa laugardaginn 5. nóvember. KVK keppendur okkar eru þær Úlfhildur Arna Unnarsdóttir og Birta Líf Þórarinsdóttir. KK keppendur eru Alex Daði Reynisson, Daníel Róbertsson og Gerald Brimir Einarsson. Eygló Fanndal Sturludóttir, Evrópumeistarinn okkar var skráður til keppni, en þurfti að draga sig til baka með mjög litlum fyrirvara. Landsliðsþjálfara var falið það verk að meta ástand mögulegs staðgengils, og með mikilli lukku fengum við Birtu Líf inn, innan við tveimur dögum frá upphafi ferðalags.
Linkur á live stream má finna á facebook síðu Lyftingasambandsins í Kýpur.
Eygló Fanndal Sturludóttir varð Evrópumeistari unglinga í ólympískum lyftingum á Evrópumeistaramóti unglinga sem fram fór í Durres í Albaníu á dögunum. Eygló Fanndal er fyrsti íslenski Evrópumeistarinn í ólympískum lyftingum í 50 ára sögu Lyftingasamband Íslands. Áhugi á lyftingum hefur aukist mikið hér á landi undanfarin ár og hefur konum í sportinu fjölgað hratt. Til að ræða aukinn áhuga og árangur íslenskra kvenna í íþróttinni fáum við til okkar á eftir Evrópumeistararnn Eygló Fanndal ásamt Helgu Hlín Hákonardóttur Evrópumeistara 2020 og heimsmeistara 2022 í sínum aldurs og þyngdarflokki.
Það er margt sem vert er að rýna í þegar skoðaður er árangur Eyglóar Fanndal á nýafstöðnu Evrópumeistaramóti 23 ára og yngri.
Samanburður á alþjóðlegan mælikvarða
Ólympíuleikarnir í París 2024 munu verða með 5 þyngdarflokka í kvennaflokki -49kg, -59kg, -71kg, -81kg og +81kg, þ.e. -71kg flokkurinn er ólympíuflokkur á síðustu leikum í Tokyo var -59kg og -76kg. Úrtökuferlinu verður gerð betri skil seinna en einstaklingsúrtökuferli fer fram yfir 18 mánaðatímabil sem hefst á Heimsmeistaramótinu í Kólembíu um miðjan Desember og lýkur 28.Apríl 2024.
ISAAC MORILLAS / @isaac_morillas
Árangur Eyglóar í -71kg flokki kvenna 217kg setur hana í 16. sæti á heimslista2022, þar af eru Kólembía með 2 keppendur fyrir ofan hana og Bandaríkin tvo. Sex keppendur eru yngri en Eyglófæddir fyrir 2001 og 9 keppendur eldri.
Eina álfumótið sem er eftir á árinu er Afríku meistaramótið sem er í lok mánaðarins en Eyglóhefði náð á pall á öllum stórmótum utan Pan-America meistaramótsins en efstu tvær manneskjurnar þar skipa einnig tvö efstu sætin á heimslista, 217kg hefðu dugað í 5.sæti þar.
Í samanburði við íslenskan árangur þá er þetta lang þyngsti samanlagði árangur íslensk keppanda yfir alla þyngdarflokka. Þyngsta snörun og þyngsta jafnhending.
Þuríður Erla Helgadóttir sem hefur verið okkar helsti keppandi Íslands síðustu 10 ár náði þó betri árangri á Sinclair stigum á HM 2017 þar sem hún endaði í 10.sæti með 86kg í snörun og 108kg í jafnhendingu í -58kg flokki kvenna. Það gáfu henni 269 Sinclair stig en Eygló reiknast með 267 stig samkvæmt sömu formúlu.
Þuríður Erla Helgadóttir lyftir 86kg í snörun og 110kg í jafnhendingu á HM 2017
—
Samanburður við Norðurlöndin
Eins og sést hér að ofan er núverandi Evrópumeistari í -71kg flokki sænskur (Patricia Strenius) og á hún jafnframt norðurlandametin í fullorðinsflokki ásamt þeim sænsku. Íslensku metin eru nú hærri en þau Norsku, Dönsku og Finnsku.
Grein
Þyngd
Land
Nafn
Hvar
Hvenær
Snörun
104
Svíþjóð/NTF
Patrica Strenius
Tashkent (UZB)
13.12.2021
Jafnhending
133
Svíþjóð/NTF
Patricia Strenius
Chiang Mai, (THA)
07.01.2019
Total
231
Svíþjóð/NTF
Patricia Strenius
Tashkent (UZB)
13.12.2021
Snörun
95
Noregur
Ruth Kasirye
Tønsberg Kam.
03.03.2019
Jafnhending
116
Noregur
Ruth Kasirye
Tønsberg Kam.
10.04.2019
Total
210
Noregur
Ruth Kasirye
Tønsberg Kam.
03.03.2019
Snörun
95
Danmörk
Line Ravn Gude
Senior DM
13.05.2022
Jafnhending
122
Danmörk
Line Ravn Gude
NM Senior
08.10.2022
Total
215
Danmörk
Line Ravn Gude
Senior DM
13.05.2022
Snörun
95
Finnland
Anni Vuohijoki
RoRe
09.07.2019
Jafnhending
118
Finnland
Janette Ylisoini
Bodonos
09.03.2022
Total
209
Finnland
Anni Vuohijoki
RoRe
09.07.2019
Snörun
97
Ísland
Eygló Fanndal Sturludóttir
Albania
21.10.2022
Jafnhending
120
Ísland
Eygló Fanndal Sturludóttir
Albania
21.10.2022
Total
217
Ísland
Eygló Fanndal Sturludóttir
Albania
21.10.2022
Samanburður á landsmetum í -71kg flokki kvenna
Þróun á árangri Eyglóar
Á árinu 2022 hefur Eygló bætt sig um 5 kg í snörun og 10kg í jafnhendingu. Hennar besti árangur 2021 var á heimsmeistaramótinu 2021 en þar lyfti hún 92kg í snörun og 110kg í jafnhendingu sem gaf henni 20.sæti. 217kg hefði dugað henni í 11.sæti af 26 keppendum en hvert kíló byrjar að skipta gríðarlegu máli nálægt toppnum.
Eygló á HM 2021 í UzbekistanÖll lyftingamót sem Eygló hefur tekið þátt í frá fyrsta mótinu í Febrúar 2018. Tæp 100kg hafa bæst við samanlagðan árangur en líkamsþyngd haldist mjög jöfn.
Hún hefur keppt á 4 mótum 2022, 8 mótum 2021, 1 móti 2020 (Covid), 4 mótum 2019 og 2 mótum 2018. 2020 lyfti hún (74/95)169kg á Norðurlandameistaramóti unglinga og bætti sig því um 18kg í snörun og 15kg í jafnhendingu á árinu 2021.
Eygló Fanndal Sturludóttir (f.2001) hreppti í dag fyrstu gullmedalíur á Evrópumeistaramóti í lyftingum, frá upphafi. Ein gullmedalía dugði ekki heldur gerði hún gott betur og kemur heim með gull í öllum greinum. Snörun, jafnhendingu og samanlögðu. Eygló bar höfuð og herðar yfir aðra keppendur, en sú sem varð í 2. sæti var 12kg undir Eygló í samanlögðum árangri.Þess má geta að Eygló heldur nú öllum íslandsmetum í U20, U23 og Senior í 71 kg og 76 kg flokki kvenna. Einnig heldur hún norðurlandametum U20 í snörun bæði í 71 kg flokki og 76 kg flokki.
6/6 hjá EyglóISAAC MORILLAS / @isaac_morillas
Brynjar Logi Halldórsson (f.2002) átti einnig gott mót, en hann tvíbætti íslandsmetið í snörun, 132kg sem hann lyfti í annari tilraun og fór svo örugglega með 135kg í 3 og síðustu tilraun. Í jafnhendingunni náði hann 156kg sem er bæting á hans eigin íslandsmeti, og reyndi við 161kg í síðustu tilrauninni, sem gekk ekki upp í þetta skiptið. Brynjar hefur stefnt að því frá því í fyrra að ná 300 kg í samanlögðum árangri fyrir lok 2022 og á hann nú bara 9 kg eftir af því markmiði.
ISAAC MORILLAS / @isaac_morillas
Úlfhildur Arna Unnarsdóttir (f.2005) keppti einnig, en fór einungis upp með opnunarlyftungar sínar, 83kg í snörun og 101kg í jafnhendingunni. Hún hefur verið á mikilli siglingu undanfarin ár, og einungins 17 ára gömul. Við eigum eftir að sjá töluvert meira af henni í framtíðinni.
Evrópumeistaramót u20/u23 er að þessu sinni haldið í Durres í Albaníu. Á Ísland 3 keppendur á mótinu. Úlfhildur Arna Unnarsdóttir keppir á morgun klukkan 9 á Íslenskum tíma í -71kg B
Hollið hennar Úlfhildar
Brynjar Logi Halldórsson keppir svo í -89kg B á föstudaginn kl 8:30 að íslenskum tíma
Hollið hjá Brynjari
Og loks stígur Eygló Fanndal Sturludóttir á pallinn klukkan 14 að íslenskum tíma á föstudaginn.
Eygló Fanndal Sturludóttir með 110kg Myndir : Hafsteinn Snær Þorsteinsson
Haustmót LSÍ var haldið af Worldfit í glæsilegu húsnæði þeirra í Kringlunni. Mótið gekk með eindæmum vel, og voru aðstæður til fyrirmyndar. Dagurinn gekk mjög vel, og voru sett 17 Íslandsmet. Eygló Fanndal Sturludóttir sigraði keppnina kvennamegin, en hún snaraði 90-94-97kg og tvíbætti hún því Íslandsmetin í snörun í annari og þriðju tilraun. Í jafnhendingunni byrjaði Eygló á 110kg, en greip stönginna illa og féll í yfirlið. Hún var þó fljót að ná áttum og stóð upp, og sagðist ætla að gera þetta aftur. Það gerði hún og stöngin flaug gott sem áreynslulaust upp fyrir haus. Hún gerði svo gott betur og tók 112kg í síðustu tilraun og kláraði því mótið með 209kg í samanlögðum árangri, sem er þyngsti samanlagði árangur sem Íslensk kona hefur náð!
Úlfhildur Arna Unnarsdóttir með 103kg Myndir : Hafsteinn Snær Þorsteinsson
Úlfhildur Arna Unnarsdóttir var í öðru sæti, og átti hún frábært mót. Hún snaraði 83kg í fyrstu tilraun, og tók svo 87kg Íslandsmet í annari tilraun og átti heiðarlega tilraun við að tvíbæta metið með 90kg í þriðju tilraun. Það gekk ekki upp í þetta skiptið en virðist stutt í að hún felli 90kg múrinn. Í jafnhendingunni opnaði Úlfhildur á 103kg lyftu, og gerði það glæsilega. Það var eina lyftan sem fór upp hjá henni þann daginn í jafnhendingunni og var það hvorki meira né minna en bæting á Íslandsmeti um 2kg. Hún átti tvær góðar tilraunir við 105kg en það gekk ekki upp. Úlfhildur kláraði því mótið með 190kg í samanlögðum árangi. Úlfhildur er fædd árið 2005, og er því 17 ára gömul! Í þriðja sæti var svo Snædís Líf Pálmarsdóttir en hún kláraði mótið með 68kg í snörun og 87kg í jafnhendingu. Hún á stuttan lyftingaferil að baki, en hún keppti á sínu fyrsta móti á Sumarmóti LSÍ 2021, og eigum við því von á að sjá miklu meira af henni í framtíðinni!
Hjá körlum vann Brynjar Logi Halldórsson öruggan sigur. Hann kláraði mótið með 131kg í snörun og 155kg í jafhendingu, 286kg í samanlögðu og setti alls 6 Íslandsmet. Brynjar hefur verið á mikilli siglingu undanfarið og verður gaman að fylgjast með afrekum hans á komandi tímum.
Daníel Róbertsson var í öðru sæti með 120kg í snörun og 145kg í jafnhendingu. Daníel er þaulreyndur lyftingamaður, en bestu tölunum sínum, 132-158kg, náði hann árið 2020. Verður gaman að sjá hvort að Daníel toppi þær tölur á næstunni. Í þriðja sæti var Bjarki Breiðfjörð en hann kláraði mótið með 110kg í snörun og 127kg í jafnhendingu. Bjarki er 19 ára gamall og virðist eiga töluvert mikið inni, og því mikið rými fyrir bætingar! Bjarki er maður sem vert er að fylgjast með á næstu árum!