Skráningafrestur framlengdur á íslandsmeistaramótið

Skráningafrestur hefur verið framlengdur fyrir íslandsmeistaramótið fram til 3. apríl. en þá mun einnig vera síðasta tækifæri til að breyta þyngdarflokkum.

Skráningargjald er 5.000 kr – innifalið er keppnisgjald, banquet laugardagskvöldið og aðstaða til að fara í sund og gufu á laug og sunnudag.

Kennitala 631080-0309 – Reikningsnúmer: 0302-26-631080

Í skráningunni þarf að koma fram:
Fullt nafn*
Kennitala*
Félag*
Mót*
Þyngdarflokkur*

Skráningar skal senda á netfangið: kfakureyri@gmail.com

Íslandsmótið á Akureyri 13 Apríl.

Kraftlyftingafélag Akureyrar sér um að halda
Íslandsmeistaramótið 2013 í lyftingum 13. apríl næstkomandi.

Keppnisfyrirkomulag:
Klukkan 10:00 – Konur -48 kg : +75 kg
Klukkan 14:00 – Karlar -56-: +05 kg
Kvöldverður: Krua Siam klukkan 20.00 (hlaðborð)

Skráningafrestur rennur út 30. mars

Lokaskráningarfrestur til að breyta þyngdarflokkum rennur út 3. Apríl. Skráningargjald er 5.000 kr – innifalið er keppnisgjald, banquet
laugardagskvöldið og aðstaða til að fara í sund og gufu á laug og sunnudag.

Kennitala 631080-0309 – Reikningsnúmer: 0302-26-631080

Í skráningunni þarf að koma fram:
Fullt nafn*
Kennitala*
Félag*
Mót*
Þyngdarflokkur*

Skráningar skal senda á netfangið: kfakureyri@gmail.com

Keppnistaður
Sunnuhlíð 12

Mótaskipulag annast Kraftlyftingafélag Akureyrar, allar nánari upplýsing er hægt að nálgast
hjá Grétari Skúla í síma 8484460

Úrslitin í RIG 2013

This slideshow requires JavaScript.

Fjöldamörg Íslandsmet voru bætt á Reykjavíkurleikunum árið 2013 en þar að auki bættu allir erlendu keppendurnir sinn besta árangur. Verðlaun voru einungis veitt út frá sinclair stigum. Mótið heppnaðist einstaklega vel og var sýnt beint frá seinni hluta mótsins á RÚV.

Anna Hulda Ólafsdóttir setti ný Íslandsmet í 58 kg flokki kvenna í snörun og samanlögðu. Hrannar Guðmundsson setti einnig ný met í 77 kg flokki karla í snörun jafnhendingu og samanlögðu. Þá bætti bandaríski meistarinn í flokki 20 ára og yngri, Mark Kollin Cockrell, sinn besta árangur.

Úrslit í karlaflokki urðu þau að í fyrsta sæti varð Mark Kollin Cockrell frá Bandaríkjunum. Í öðru sæti varð Gísli Kristjánsson úr Lyftingafélagi Reykjavíkur og í þriðja sæti varð Yngve Apneseth frá Noregi.

Úrslit í kvennaflokki urðu þau að í fyrsta sæti varð Anna Hulda Ólafsdóttir úr Lyftingafélagi Reykjavíkur. Í öðru sæti varð Þuríður Erla Helgadóttir og í þriðja sæti Hjördís Ósk Óskarsdóttir, báðar úr Ármanni.

Karlar RIG 2013 Konur RIG 2013

Tengill

Þjálfaranámskeið í Ólympískum Lyftingum.

Ólympískar lyftingar með Harvey Newton

Langar þig að læra grundvallaratriðin í lyftingum og læra að miðla þeirri þekkingu áfram? Nú gefst einstakt tækifæri til að bæta kennslutækni í lyftingum og fá þá þekkingu beint frá einum fremsta lyftingaþjálfara Bandaríkjanna.

Námskeiðið verður haldið í Keili í Reykjanesbæ, *dagana 21. – 23. janúar, kl. 17:00-21:00 og 25. janúar kl. 16:00-21:00

Hægt er að skrá sig í gegnum lsi@lsi.is til 11. janúar 2013.

Lyftingamaður og kona ársins 2012

Anna Hulda og Gísli Kristjánsson.tiff

Gísli Kristjánsson er einn reyndasti og farsælasti lyftingarmaður Íslands um þessar mundir. Hann er margfaldur Íslandsmeistari og hefur á sínum ferli keppt víða um heim og hefur meðal annars orðið Norðurlandameistari.

Á árinu 2012 keppti Gísli á tveimur stórum mótum, Reykjavík International Games (RIG) og Íslandsmótinu í ólympískum lyftingum sem var haldið í Borgarnesi.

Bæði mótin sigraði Gísli nokkuð örugglega. Á Reykjavíkurleikunum setti hann nýtt Íslansmet í snörun í sínum flokki (+105) þegar hann lyfti 156kg. Sú lyfta er jafnframt 14kg yfir núverandi heimsmeti í hans aldursflokki (45-49 ára) en þetta mót telur því miður ekki þegar kemur að heimsmetinum, en vonandi nær hann að slá þetta heimsmet á stóru móti á næstu árum.

Besti árangur Gísla á árinu var 156kg í snörun og 175kg í jafnhendingu sem hann náði á Reykjavíkur leikunum.

Anna Hulda Ólafsdóttir hefur æft ólympískar lyftingar í rúmt ár en hún kemur sterk inn í íþróttina með bakgrunn úr fimleikum. Anna Hulda tók þátt á sínu fyrsta móti í Ólympískum lyftingum á Reykjavík International Games (RIG) í janúar 2012 og setti þá strax tvö íslandsmet þegar hún snaraði 55 kg og var með 120kg samanlagt í sínum flokki (-58kg).

Anna Hulda var þó ekki hætt þar en í september fór hún á Norðurlandamót fullorðinna og gerði hún sér lítið fyrir þegar hún hafnaði í þriðja sæti í sínum flokki (-58kg) og kom heim fyrst allra íslenskra kvenna með verðlaunapening á Norðurlandamóti í lyftingum. Á því móti lyfti hún 56kg í snörun og 80kg í jafnhendingu og jafnaði þar með íslandsmetið sem hún hafði sett í júlí sama ár á Akureyri í jafnhendingu og endaði með 136kg samanlagt.  Á síðasta móti ársins sem haldið var í Sporthúsinu 22. Desember síðastliðinn afrekaði Anna það að slá þrjú íslandsmet í sínum flokki (-58kg) þegar hún snaraði 67kg og jafnhenti 86kg og var þar með með samanlagt 153kg.

Jólamót Sporthússins

Síðasta mót ársins fór fram í Sporthúsinu  22. desember síðastliðinn. Mótið heppnaðist vel og var því góður endapunktur á frábæru lyftingarári. Á mótinu voru sett 8 Íslandsmet. Anna Hulda Ólafsdóttir setti þrjú íslandsmet í -58 kg flokki kvenna þegar hún lyfti 67kg í snörun, 86kg í jafnhendingu og 153kg samanlagt og náði þar með þeim árangri að vera með hæstu skráð sinclair stig kvenna á Íslandi. Þuríður Erla Helgadóttir setti íslandsmet í -63kg flokki þegar hún lyfti 86kg í jafnhendingu. Sindri Pétur Ingimundarson setti 3 íslandsmet í drengjaflokki (-77kg) þegar hann snaraði 99kg, fór með 130kg í jafnhendingu og lyfti því samanlagt 229kg og að lokum setti Hrannar Guðmundsson íslandsmet í karlaflokki (-77kg) þegar hann snaraði 109kg.

Veitt voru verðlaun fyrir fyrsta annað og þriðja sæti í kvenna og karlaflokki með tilliti til sinclair stiga. Úrslit fóru svo; í kvennaflokki varð Anna Hulda Ólafsdóttir hlutskörpust, Þuríður Erla Helgadóttir hafnaði í 2. sæti og systir hennar Lilja Lind Helgadóttir hafnaði í 3ja sæti. Í karlaflokki sigraði reynsluboltinn Gísli Kristjánsson, í öðru sæti lenti Hrannar Guðmundsson og í þriðja sæti hafnaði Sindri Pétur Ingimundarsson. Heildarúrslit og myndir frá mótinu má sjá hér að neðan.

Tölurnar úr jólamóti sporthússins

This slideshow requires JavaScript.

Expó 2012 Úrslit

Hérna koma úrslitin í Expó Mótinu þann 10.11.2012. Keppt var í liðakeppni þar sem 4 keppendur voru í hverju  liði. 3 stigahæstu einstaklingarnir telja og er stigahæsta liðið sem vinnur. Keppt var í blönduðum liðum bæði karla og kvenna.

Myndir frá keppninni má sjá hér.

LSÍ þakkar öllum keppendum og starfsfólki fyrir frábært mót. Þetta er fjölmennasta mótið sem haldið hefur verið í Ólympískum Lyftingum frá upphafi og sýnir glöggt þá frábæru uppbyggingarstarfsemi sem hefur átt sér stað í íþróttinni á undanförnum misserum.

 

Katrín Tanja Norðurlandameistari Unglinga

This slideshow requires JavaScript.

Katrín Tanja varð Norðurlandameistari í Ólympískum Lyftingum fyrst íslenskra kvenna og Lilja Lind var einnig í baráttu um Gullverðlaun en lenti í 2. sæti í sínum flokki og Sindri var hársbreidd frá Gullverðlaunum.

Helgina 27-28 október 2012 fór fram Norðurlandamót unglinga í Ólympískum lyftingum í Parkano í Finnlandi. Ísland sendi 3. keppendur sem voru öll að keppa um verðlaunasæti og í öllum flokkum var gríðarlega spennandi keppni um Gullverðlaunin þar sem Íslendingarnir blönduðu sér í topp baráttuna.

Lilja Lind hóf keppni fyrir Íslands hönd og lyfti mest 64 kg. í Snörun sem er nýtt Íslandsmet. Hún var með þyngstu opnunar lyftuna i Jafnhendingu og tók 80 kg. Í næstu lyftu tók hún 84 kg. sem tryggði henni annað sætið og var einnig nýtt Íslandsmet í Jafnhendingu. Til þess að vinna varð hún að hækka um 6 kg. á stönginni og hún reyndi við 90 kg. sem hefði verið 5 kg. persónuleg bæting hjá henni. Hún var ekki langt frá því að ná lyftunni en missti hana fram og endaði því í öðru sæti i sínum flokki en hún setti einnig Íslandsmet í Samanlögðu sem var 148 kg. og var því með þrjú Íslandsmet í Stúlknaflokki (-17 ára) sem er frábær árangur.

Katrín Tanja hóf þarnæst keppni í Meyjaflokki (-20 ára) og hún Snarið 74 kg. sem var einnig nýtt Íslandsmet. Yfirburðir Katrínar voru þónokkrir þar sem hún þurfti eingöngu að ná byrjunarþyngd í Jafnhendingu til þess að tryggja sér Gullverðlaun og hún kláraði það með einstaklega fallegri lyftu. Hún náði mest 80 kg. í Jafnhendingu og tryggði þar með Íslandi fyrsta Kvenn- Norðurlandameistaratitil í Ólympískum lyftingum í 40 ára sögu Lyftingasambands Íslands.
Verðlaunaafhending og þjóðsöngurinn
https://www.facebook.com/photo.php?v=10151309134790407

Þá var komið ad Sindra, hann Snaraði 90 kg. sem var drengjamet í annarri lyftu og ákvað að hækka næst uppi 96 kg. sem hefði verið persónuleg bæting en hann rétt missti lyftuna. Spennan var síðan magnþrungin þegar komið var að keppni í Jafnhendingu. Allur flokkurinn var mjög jafn en Sindri lyfti 116 kg. sem var nýtt drengjamet  í  annarri lyftu. Þegar komið var að síðustu lyftunni ákvað Sindri að reyna við gullið og hækka um heil 12 kg. milli tilrauna en það er mjög óvanalegt að hækka svo mikið og hann reyndi við 128 kg! Hann lyfti stönginni auðveldlega upp á axlir og allur salurinn þagnaði um stund, enginn bjóst vid þessu. Hann lyfti stönginni svo upp fyrir haus en var aðeins of fljótfær og missti stöngina áður en hann náði jafnvægi og endaði því í 4. sæti þrátt fyrir hetjulega baráttu!
Hér má sjá lyftuna hjá Sindra;


Ef hann hefði náð að klára hana þá hefði hann náð Gullverðlaunum. Sjón er sögu ríkari. Þetta er 17 ára strákur og er að lyfta 1,77x líkamþyngd, sem þýðir að hann er að lyfta nánast tvöfallt það sem hann vegur sjálfur.!

Íslensku keppendurnir hafa lagt hart að sér á undanförnum misserum til þess að ná sem bestum árangri á þessu móti og hafa verið að æfa stíft niðri í lyftingaaðstöðu Ármanns í Laugabóli. Hart hefur verið deilt um aðstöðuna og er mikilvægt að ríki og borg tryggi íslenskri lyftingaæsku góða aðstöðu til þess að fylgja þessum frábæra árangri eftir.

Norðurlandamót unglinga 2012

This slideshow requires JavaScript.

Fréttatilkynning frá Lyftingasambandi Íslands

Núna um helgina 27-28 október 2012 fer fram Norðurlandamót unglinga í Ólympískum lyftingum í Parkano í Finnlandi. Ísland mun senda 3. keppendur sem eru öll að fara að keppa um verðlaunasæti og vonandi verður það gullverðlaunasæti ef allt gengur eftir áætlun.

Keppendur fyrir Íslands hönd verða;

Katrín Tanja Davíðsdóttir, Íslandsmethafi í meyjaflokki, sem hefur einnig náð glæsilegum árangri í Crossfit.
Lilja Lind Helgadóttir, sem er Íslandsmethafi í stúlknaflokki.
Sindri Pétur Ingimundarsson, sem er Íslandsmethafi í drengjaflokki.

Íslensku keppendurnir hafa lagt hart að sér á undanförnum misserum til þess að ná sem bestum árangri á þessu móti og hafa verið að æfa stíft niðri í lyftingaaðstöðu Ármanns í Laugabóli.

Mikil aukning hefur verið á iðkendafjölda Ólympískra lyftinga undanfarið og hefur iðkendafjöldinn margfaldast á undanförnum árum og er óhætt að segja að það vanti tilfinnanlega betri aðstöðu til þess að hægt sé að halda áfram þeirri uppbyggingu sem er hafin í þessari fornfrægu íþróttagrein.

Hægt verður að fylgjast með mótinu á eftirfarandi vefslóð http://bambuser.com/channel/parkanonpuntti og hefst mótið kl. 09.00 að íslenskum tíma á laugardaginn.

Nánari upplýsingar er hægt að nálgast á http://www.parkanonpuntti.net/pm-2012/schedule/