Lilja Lind hefur lokið keppni

Lilja undirbýr sig fyrir lokatilraunina í snörun

Lilja undirbýr sig fyrir lokatilraunina í snörun

Lilja Lind Helgadóttir (f.1996) hefur lokið keppni á heimsmeistaramóti unglinga í Póllandi. Hún fór aðeins með opnunarþyngdirnar sínar í gegn 72kg í snörun og 90kg í jafnhendingu. Hún átti mjög góðar tilraunir við 75kg og 77kg í snörun. Í aðdraganda mótsins tognaði hún lítillega á læri sem setti strik í lokaundirbúning fyrir mótið en hún reyndi tvisvar sinnum við 95kg í jafnhendingu en lappirnar leyfðu það ekki í dag. Það dugði þó Lilju þó í 10. sæti í keppninni en 12 hófu leik, keppandi frá Braselíu og Suður-Kóreu helltust úr leik í jafnhendingunni.

Lilja undirbýr sig fyrir lokatilraun í jafnhendingu

Lilja undirbýr sig fyrir lokatilraun í jafnhendingu

Við óskum henni til hamingju með að klára sitt fyrsta stórmót og vonandi kemur hún tvíelfd til leiks á næsta mót. Mótið er liður í forkeppni ólympíuleikanna og fer árangur Lilju Lindar því á heimslistann.

Lilja Lind keppir í dag

Lilja Lind Helgadóttir hefur keppni í -75kg flokki kvenna á heimsmeistaramóti unglinga í Wroclow í Póllandi klukkan 10 á íslenskum tíma.

Einhver færsla varð á keppendum milli flokka en keppendalistinn er eftirfarandi:start_listHægt er að fylgjast með beinni útsendingu á netinu á eftirfarandi vefsíðu: http://www.iwf.net/wroclaw_live/

Við munum koma með fréttir eins fljótt og þær berast og við mælum einnig með nýstofnaðari instagram síðu lyftingasambandsins þar sem hægt er að sjá fréttir í formi mynda: https://instagram.com/icelandic_weightlifting/

Æfingabúðir EWF á Spáni 5-12 Júlí

ewf_logo

Evrópska lyftingasambandið (EWF) heldur æfingabúðir í Valencia á Spáni dagana 5-12. Júlí. Öll aðildarsambönd mega senda einn þjálfara, einn pilt (17 ára eða yngri) og eina stúlku (17 ára eða yngri) og greiðir EWF uppihald og þátttöku kostnað.

LSÍ óskaði eftir tilnefningu að þátttakendum og fór það svo að eftirtaldir fara:

Þjálfari: Lárus Páll Pálsson (Ármann)
KK: Arnór Gauti Haraldsson (f.1998) (LFH)
KVK: Helena Ingvarsdóttir (f.1999) (LFK)

LSÍ styrkir hópinn um 50.000kr per einstakling, eftirtaldir einstaklingar voru með hæsta Sinclair 17 ára og yngri í karla og kvenna flokki.

Sjá frekari upplýsingar um æfingabúðirnar: http://ewfed.com/news_det.php?id=89

Guðmundur Sigurðsson: Afmæliskveðja

Lyftingasamband Íslands óskar Guðmundi Sigurðsyni til hamingju með 69 árin. Guðmundur er einn af upphafsmönnum íþróttarinnar á Íslandi og keppti fyrst árið 1963 og síðasta mót var árið 2012.

Þessi mynd birtist í vikunni 1963

Þessi mynd birtist í vikunni 1963

Hann keppti á fjölda alþjóðlegra móta á árunum 1972-1982 í milliþungavigt (-90kg) meðal annars Ólympíuleikunum 1972 þar sem hann varð í 13. sæti og Ólympíuleikunum 1976 þar sem hann varð í 8.sæti.

Guðmundur lyfti 200kg í jafnhendingu stuttu eftir ólympíuleikana 1976

Guðmundur lyfti 200kg í jafnhendingu stuttu eftir ólympíuleikana 1976

Hann keppti 4x á Evrópumeistaramótum (’72, ’74, ’76 og ’80) og náði bestum árangri 1974 eða 8. sæti. Hann keppti einnig á HM ’74 og ’79 og varð í 11.sæti á HM 1974.

Einnig hefur hann verið virkur keppandi í öldungaflokkum og hefur þar sett 9 heimsmet og orðið heimsmeistari ’89, ’91, ’93, ’95 og 2006, þá varð hann Evrópumeistari öldunga 2008.

Flest mót Guðmundar eru í gagnagrunni LSÍ og getur verið gaman að rýna þar í árangur hans: http://results.lsi.is/lifter/gudmundur-sigurdsson

50 ára keppnissaga

Fimmtíu ára keppnissaga frá 1963 til 2012

Þjálfaramenntun ÍSÍ: Sumarfjarnám

Sumarfjarnám 1. og 2. stigs þjálfaramenntunar ÍSÍ mun hefjast mánudaginn 29. júní nk. og tekur það átta vikur á 1. stigi en fimm vikur á 2. stigi. Nám beggja stiga er allt í fjarnámi, engar staðbundnar lotur og gildir námið jafnt fyrir allar íþróttagreinar. Námið hefur verið afar vinsælt undanfarin ár og þátttakendur komið frá fjölda
íþróttagreina. Námið veitir réttindi til íþróttaþjálfunar og jafnframt rétt til áframhaldandi náms til frekari réttinda. Þátttökugjald á 1. stig er kr.25.000.- og öll námskeiðsgögn eru innifalin í því verði og send á heimilisföng þátttakenda. Þátttökugjald á 2. stig er kr. 22.000.-

Skráning er á namskeid@isi.is eða í síma 514-4000 og þarf henni að vera lokið fyrir föstudaginn 26. júní. Með skráningu þarf að fylgja fullt nafn, kennitala, heimilisfang, netfang og símanúmer og taka þarf skýrt fram á hvaða stig verið er að skrá. Rétt til þátttöku á 1. stigi hafa allir sem lokið hafa grunnskólaprófi.
Allar nánari uppl. um fjarnámið og aðra þjálfaramenntun ÍSÍ gefur Viðar Sigurjónsson í síma 460-1467 & 863-1399 eða á vidar@isi.is

Sumarfjarnám 1. og 2. stigs 2015 í þjálfaramenntun ÍSÍ

Svæðisleikarnir í Crossfit

Lyftingasamband Íslands óskar keppendum á „Evrópuleikunum“ í crossfit til hamingju með árangurinn og þeim sem tryggðu sér þátttökurétt á Heimsleikunum í Júlí. Í raun er mun stærra svæði en Evrópa sem tekur þátt í þessum leikum en „Meridian svæðið“ spannar Evrópu, allt Rússland, Mið-Austurlönd og Afríku.

Hluti af keppendunum tók þátt á Norðurlandamótinu i ólympískum lyftingum 2014

Hluti af keppendunum tók þátt á Norðurlandamótinu i ólympískum lyftingum 2014

Við óskum Björvin Karli (Hengill) og liði Crossfit Reykjavíkur til hamingju með árangurinn en Björgvin var í 2.sæti í einstaklingskeppninni og CFR í 3.sæti í liðakeppninni.

8 konur á allra tíma topp 10 listanum frá breytingu á þyngdarflokkum 1998 voru á meðal þátttakenda og tryggðu 5 þeirra sér þátttökurétt á leikunum. En 5 stigahæstu einstaklingarnir í karla og kvenna keppnunum tryggja sér þátttökurétt á heimsleikunum.

Ragnheiður Sara Sigmundsdóttir (1.sæti) – Svæðismeistari í Crossfit 2015

Katrín Tanja Davíðsdóttir (2.sæti)

Annie Mist Þórisdóttir (3.sæti)

Þuríður Erla Helgadóttir (5.sæti)

Anna Hulda Ólafsdóttir (3.sæti í liðakeppninni)

Björk Óðinsdóttir (7.sæti)

Hjördís Ósk Óskarsdóttir (11.sæti)

Oddrún Eik Gylfadóttir (18.sæti)

Hin Rússneska Oxana Slivenko, silfurverðlaunahafi frá ólympíuleikunum 2008 og þrefaldur heimsmeistari og fjórfaldur evrópumeistari í ólympískum lyftingum var á meðal keppenda og endaði í 8.sæti.

Hér má sjá allra tíma topp-10 listann (1.6.2015)

# Nafn Félag Fæðingarár Árangri náð Líkamsþyngd Mót Samanlagt Sinclair
1 Þuríður Erla Helgadóttir Ármann 1991 2.5.2015 59,75 Íslandsmeistaramót 2015 183 252,19
2 Hjördís Ósk Óskarsdóttir FH 1984 2.5.2015 62,55 Íslandsmeistaramót 2015 180 240,35
3 Annie Mist Þórisdóttir LFR 1989 15.3.2015 68,4 Bætingamót LFR 2015 188 237,14
4 Anna Hulda Ólafsdóttir LFR 1985 31.5.2014 57,18 Nordic Championship 2014 166 236,16
5 Björk Óðinsdóttir KFA 1988 31.5.2014 61,49 Nordic Championship 2014 172 232,34
6 Katrín Tanja Davíðsdóttir LFR 1993 2.5.2015 68,9 Íslandsmeistaramót 2015 182 228,58
7 Lilja Lind Helgadóttir LFG 1996 25.10.2014 76,84 Nordic Junior/Youth Championship 2014 183 216,37
8 Ragnheiður Sara Sigmundsdóttir UMFN 1992 31.5.2014 68,72 Nordic Championship 2014 168 211,32
9 Oddrún Eik Gylfadóttir NCBC/Ármann 1988 3.1.2015 57,3 Ladies Open 2015 145 205,97
10 Freyja Mist Ólafsdóttir LFR 1996 24.1.2015 68,6 Reykjavik International Games 2015 163 205,25

Liðabikar LSÍ

LSÍ kynnir liðabikar LSÍ.

Sjá reglugerð um liðabikar: lidabikar_final

——–

Mót sem teljast til liðabikars 2015 eru Sumarmótið (4.Júlí), Haustmótið (17.Október) og Jólamótið (19.Desember).

Mótin eru stigamót þar sem verðlaunað er fyrir fyrsta, annað og þriðja sæti samkvæmt Sinclair stigatöflu í karla og kvenna flokki.

7 konur skipa fullt lið í þyngdarflokkunum -48kg,-53kg,-58kg,-63kg,-69kg,-75kg og +75kg.

8 karlar skipa fullt lið í þyngdarflokkunum -56kg, -62kg, -69kg, -77kg, -85kg, -94kg, -105kg, +105kg

Mest telja 2 einstaklingar í hverjum þyngdarflokk.

Hægt er að vera með 2 varamenn í kvenna keppni og 2 varamenn í karla keppni sem telja ef einstaklingur fellur úr keppni.

Eftirfarandi fjöldi stiga er veittur:

  1. sæti í þyngdarflokk fær 7 stig
  2. sæti í þyngdarflokk fær 5 stig
  3. sæti í þyngdarflokk fær 4 stig
  4. sæti í þyngdarflokk fær 3 stig
  5. sæti í þyngdarflokk fær 2 stig
  6. sæti í þyngdarflokk fær 1 stig

Liðabikarinn er farandbikar og er afhentur því liði sem hlýtur flest samanlögð stig út úr þessum þremur mótum. Liðin í öðru og þriðja sæti fá einnig silfur og brons verðlaun.

Ef tvö lið eru jöfn að stigum í lok keppninnar þá vinnur það lið sem hefur flesta sigra (1.sæti). Ef ennþá eru tvö lið jöfn þá vinnur það lið sem hefur hærri samanlagðan Sinclair af öllum sigurvegurum (1.sæti).

Allir íþróttamenn verða að vera skráðir í Felix kerfi ÍSÍ til þess að mega keppa á mótum hjá LSÍ og íþróttamaðurinn má ekki keppa fyrir tvö mismunandi lið í áðurnefndri liðakeppni á keppnisárinu.

Íþróttamenn sem taka þátt í liðakeppni LSÍ verða að hafa íslenskt vegabréf eða vera með fasta búsetu á Íslandi.

——

Tíu nýir dómarar útskrifaðir

Tíu dómarar útskrifuðust með grunnréttindi IWF á laugardaginn eftir þriggja daga námskeið sem haldið var af formanni Norska lyftingasambandsins Per Mattingsdal.

Eftirfarandi fengu dómararéttindin:

Jónína Sveinbjarnardóttir LFK
Gísli Baldur Bragason LFK
Stefán Ragnar Jónsson FH
Magnús B. Þórðarson LFH
Rut Sigurvinnsdóttir LFH
Hildur Halldórsdóttir Laxdal LFK
Þórdís Dungal Ármann
Maríanna Ástmarsdóttir UMFN
Rannveig Hlíðar Guðmundsdóttir UMFN
Vilhelm Patrick Bernhöft LFR

Listi yfir alla dómara LSÍ má nú nálgast á heimasíðu LSÍ: https://lyftingar.wordpress.com/about/domarar/

Dómaranámskeið 2015

Dómaranámskeið LSÍ verður haldið í íþróttamiðstöðinni í Laugardal daganna 21-23 Maí.
Hvert aðildarfélag getur sent tvo félagsmenn á námskeiðið gjaldfrjálst og fer skráning fram á lsi@lsi.is, verðið er 5000kr fyrir aðra.

Kennari verður Per Mattingsdal formaður norska lyftingasambandins og Alþjóðadómari IWF.

Drög af dagskrá er meðfylgjandi: Program Ref. Seminar in Reykjavik 2015

Reglur IWF: http://www.iwf.net/wp-content/uploads/downloads/2015/01/IWF-TCRR-2013-2016.2015.01.22.pdf