í dag þann 07.04 klukkan 13 fer fram fyrirlestur vegna anti doping
Date and time: 07 April 2022, 14:00-15:00 CET
Registration link: https://us06web.zoom.us/webinar/register/WN_H8fa3uJvS8WFkaR3OTu_1w
Hvetjum við áhugasama um að kynna sér þetta!
í dag þann 07.04 klukkan 13 fer fram fyrirlestur vegna anti doping
Date and time: 07 April 2022, 14:00-15:00 CET
Registration link: https://us06web.zoom.us/webinar/register/WN_H8fa3uJvS8WFkaR3OTu_1w
Hvetjum við áhugasama um að kynna sér þetta!
Þann 20. mars var haldið lyftingaþing í húsnæði ÍSÍ við Engjaveg 6.
Nokkrar breytingar voru á stjórn. Magnús B. Þórðarson hélt áfram sem formaður, Árni Rúnar Baldursson steig til hliðar sem varaformaður og tók við stöðu ritara af Jens Anda Fylkissyni. Helga Hlín Hákonardóttir var kosin varaformaður. Þór Reynir Jóhannson steig til hliðar sem gjaldkeri en tók stöðu sem Skoðunarmaður ásamt Ívari Ísak Guðjónssyni. Margrét G. Jónsdóttir var kosin gjaldkeri. Kári Walter kom inn í stjórn sem meðstjórnandi og tók við af Einari Inga Jónssyni sem var kosinn fulltrúi íþróttamanna ásamt Kötlu Björk Ketilsdóttur.
Ásgeir Bjarnason, Ingi Gunnar Ólafsson og Sigurður Darri Rafnsson héldu áfram í varastjórn en Eggert Ólafsson kom nýr þar inn. Ásgeir Bjarnason var einnig kosinn formaður tækninefndar.
Íslandsmeistarmótið í ólympískum lyftingum var haldið í gær af Lyftingafélagi Mosfellsbæjar.
Það voru 25 keppendur í ár, þar af 19 konur. Töluvert var um afskráningar hjá körlunum en ýmsar ástæður liggja þar að baki. Á Íslandsmeistarmóti er keppt í þyngdarflokkum, og svo er verðlaunað fyrir stigahæstu konu og karl samkvæmt sinclair stigum. Eygló Fanndal Sturludóttir bar sigur úr býtum í stigakeppninni kvenna, með 88kg í snörun og 106kg jafnhendingu. Sá árangur skilaði henni glæsilegum 239.69 stigum. Heiðrún Stella Þorvaldsdóttir og Katla Björk Ketilsdóttir áttu 2. og 3. sætið í stigakeppni kvenna en voru þær mjög jafnar á stigum. Heiðrún Stella með 231.7 stig og Katla með 231.2 stig.

Hjá körlunum vann Gerald Brimir Einarsson afgerandi sigur í stigakeppninni með 115kg snörun og 150kg jafnhendingu og 310.34 stigum. Gerald hefur einugnis síðan 2019 og á því stuttan feril og eflaust töluvert rými fyrir bætingar.

Úrslitin voru í eftirfarandi flokkum kvenna
-55kg flokkur kvenna
1. sæti Heiða Mist Kristjánsdóttir (LFK)
-59kg flokkur kvenna
1. sæti Heiðrún Stella Þorvaldsdóttir (HENGILL)
2. sæti Rakel Ragnheiður Jónsdóttir (LFG)
-64kg flokkur kvenna
1. sæti Katla Björk Ketilsdóttir (MASSI)
2. sæti Thelma Mist Oddsdóttir (LFK)
3. sæti Erna Freydís Traustadóttir (Massi)
-71kg flokkur kvenna
1. sæti Eygló Fanndal Sturludóttir (LFR)
2. sæti Auður Arna Eyþórsdóttir (LFG)
3. sæti Sólveig Þórðardóttir (LFR)
-76kg flokkur kvenna
1. sæti Kristín Dóra Sigurðardóttir (LFM)
2. sæti Guðný Björk Stefánsdóttir (LFG)
3. sæti Aldís Huld Höskuldsdóttir (LFK)
+87kg flokkur kvenna
1. sæti Friðný Fjóla Jónsdóttir (HENGILL)
2. sæti Erla Ágústsdóttir (LFK)
3. sæti Ragna Helgadóttir (LFK)
Úrslitin voru í eftirfarandi flokkum karla
-73kg flokkur karla
1. sæti Viktor Jónsson (LFG)
-81 flokkur karla
1. sæti Bjarki Breiðfjörð (UMFS)
-89kg flokkur karla
1. sæti Gerald Brimir Einarsson (LFG)
2. sæti Jóhann Valur Jónsson (LFG)
-96kg flokkur karla
1. sæti Kári Walter
Á https://www.twitch.tv/lyftingasambandislands munum við streyma beint frá Íslandsmeistaramótinu.
Streymið hefst klukkan 10:00
Kvk -55,-59,-64 kl 10:00
Kvk -71-76+87 kl 12:30
Kk 15:00
Mótið er haldið af Lyftingafélagi Mosfellsbæjar í íþróttamiðstöðinni að varmá.
Vigtun hefst klukkan 8:00 fyrir KVK, 9:00 fyrir KK laugardaginn 5. mars.

Helgina 11-12 febrúar fór fram fyrsti fundur íþróttamannanefndar norðurlandana, í Svíþjóð!
IWF styrkti verkefnið og sendi einn karl og eina konu frá hverju landi.
Við erum gríðarlega stolt að hafa fengið að taka þátt í þessu verkefni, en sennilega stoltari af því að Katla Björk Ketilsdóttir var kosin Chair (formaður) og mun því leiða hópinn í gegnum næstu verkefni, ásamt því að hafa atkvæðisrétt hjá Norðurlandasambandinu (NWF).

Úrslit í kvennaflokki

Úrslit í karlaflokki
https://results.lsi.is/meet/reykjavik-international-games-2022

Þar sem að núverandi reglugerð leyfir áhorfendur höfum við opnað fyrir miðasölu! Tryggið miða á http://www.rig.is
Keppni hefst klukkan 10:00 30.jan
Streymi má einnig finna á http://www.rig.is