Íslandsmeistarmótið í ólympískum lyftingum var haldið í gær af Lyftingafélagi Mosfellsbæjar. Það voru 25 keppendur í ár, þar af 19 konur. Töluvert var um afskráningar hjá körlunum en ýmsar ástæður liggja þar að baki. Á Íslandsmeistarmóti er keppt í þyngdarflokkum, og svo er verðlaunað fyrir stigahæstu konu og karl samkvæmt sinclair stigum. Eygló Fanndal Sturludóttir bar sigur úr býtum í stigakeppninni kvenna, með 88kg í snörun og 106kg jafnhendingu. Sá árangur skilaði henni glæsilegum 239.69 stigum. Heiðrún Stella Þorvaldsdóttir og Katla Björk Ketilsdóttir áttu 2. og 3. sætið í stigakeppni kvenna en voru þær mjög jafnar á stigum. Heiðrún Stella með 231.7 stig og Katla með 231.2 stig.
Eygló Fanndal Sturludóttir með 106kg
Hjá körlunum vann Gerald Brimir Einarsson afgerandi sigur í stigakeppninni með 115kg snörun og 150kg jafnhendingu og 310.34 stigum. Gerald hefur einugnis síðan 2019 og á því stuttan feril og eflaust töluvert rými fyrir bætingar.
Mótið er haldið af Lyftingafélagi Mosfellsbæjar í íþróttamiðstöðinni að varmá. Vigtun hefst klukkan 8:00 fyrir KVK, 9:00 fyrir KK laugardaginn 5. mars.
Katla Björk Ketilsdóttir og Árni Rúnar Baldursson á fyrsta fundi
Helgina 11-12 febrúar fór fram fyrsti fundur íþróttamannanefndar norðurlandana, í Svíþjóð! IWF styrkti verkefnið og sendi einn karl og eina konu frá hverju landi. Við erum gríðarlega stolt að hafa fengið að taka þátt í þessu verkefni, en sennilega stoltari af því að Katla Björk Ketilsdóttir var kosin Chair (formaður) og mun því leiða hópinn í gegnum næstu verkefni, ásamt því að hafa atkvæðisrétt hjá Norðurlandasambandinu (NWF).
Lyftingaþing 2022 fer fram sunnudaginn 20.mars þar sem fram fer kjör til stjórnar LSÍ og lagðar eru fram lagabreytingar, ársreikningar sambandsins, afreksstefna og annað sem viðkemur starfi LSÍ.
Við munum hefja þingið stundvíslega 10:00.
Þingið verður haldið í höfuðstöðvum ÍSÍ, Engjavegi 6.
Val á lyftingafólki ársins fór fram í Desember, einnig velur sambandið ungmenni ársins í flokki 18-20 ára, 16-17 ára og 15 ára og yngri. Afhending farandbikara mun eiga sér stað á næstu vikum. Sérstaka athygli má vekja á gríðarlega góðum árangri ungmenna sambandsins á árinu 2021.
Valið er samkvæmt 18. Grein í lögum LSÍ.
18. grein, Stjórn og varamenn hafa atkvæðisrétt um val á lyftingakonu og karli ársins, valið skal ávallt miðast við tímabilið 1. Desember til 30. Nóvember. Ef óskað er eftir því getur kosning verið nafnlaus. Val á lyftingakonu og karli ársins skal miðast við árangur íþróttamannsins á liðnu ári og er þá sérstaklega horft til Sinclair stigatölu sem og árangur á alþjóðlegum mótum. Íþróttamenn koma ekki til greina í vali á lyftingakonu og karli ársins á meðan þeir taka út refsingu og í eitt ár eftir að refsingu lýkur vegna brota á lyfjalögum ÍSÍ, IWF og/eða WADA.
Þuríður Erla Helgadóttir LFK (f. 1991) náði besta árangri íslenskrar konu á árinu á Evrópumeistaramóti Senior (fullorðinna) í Moskvu í Apríl en þar lenti hún í 9. Sæti sem er besti árangur sem íslensk kona hefur náð á Evrópumeistaramóti. Mótið var loka úrtökumót fyrir ólympíuleikana í Tokyo sem gerði það enn sterkara. Á mótinu náði hún 83 kg í snörun, 108 kg í jafnhendingu sem gaf henni 191 kg í samanlögðum árangri og 263,2 Sinclair stig sem er besti árangur Þuríðar á móti síðan 2017 og næst besti árangur hennar frá upphafi. Þuríður keppir í -59 kg flokki kvenna og á öll íslandsmet í þeim flokki en þau eru 87 kg í snörun sem hún setti árið 2019 á EM í Georgíu, 108 kg í jafnhendingu og 191 kg í samanlögðu sem hún setti á EM í Moskvu í ár eins og áður sagði. Þuríður keppti aðeins á einu móti á árinu 2021 en hún hefur verið búsett í Sviss undanfarin á og covid-19 takmarkanir settu strik í reikninginn varðandi fjölda móta. Þetta er sjöunda árið í röð sem Þuríður er valin lyftingakona ársins.
Arnór Gauti HaraldssonLFG (f. 1998) náði besta árangri íslenska karla á árinu á Reykjavík International Games sem haldnir voru í janúar og vann hann það mót. Á mótinu náði hann 136 kg í snörun sem er núgildandi íslandsmet í senior flokki sem og U23, 156 kg í jafnhendingu og 292 kg í samanlögðum árangri sem færði honum 346 Sinclair stig. Í Senior flokki á hann 136 kg í snörun eftir RIG 2021 og 294 kg eftir Sumarmótið 2020. Árangur Arnórs á RIG færði honum keppnisrétt á Heimsmeistaramótinu sem haldið var í Úsbekistan um miðjan Desember og var fyrsta stórmótið sem Arnór fór á í ólympískum lyftingum þar endaði hann í 24.sæti í -89kg flokki karla. Þetta er annað árið í röð sem Arnór hlýtur nafnbótina Lyftingamaður ársins.
Eygló Fanndal Sturludóttir á HM í Uzbekistan með 92kg í snörun
Eygló Fanndal Sturludóttir LFR [f.2001] hefur líkt keppt oft og víða á árinu alls átta sinnum og þar af fjórum sinnum erlendis allt í mismunandi löndum. Hún náði sínum besta árangri á tímabilinu 1.Des 2020 til 30. Nóvember 2021 á Evrópumeistaramóti Unglinga 20 ára og yngri í Rovaniemi Finnlandi þar sem hún endaði í 6.sæti í -71kg flokki og lyfti 89kg í snörun og 108kg í jafnhendingu. Samanlagður árangur þar var 197kg eða 247.4 Sinclair stig, gríðarlega hörð keppni var í flokknum en silfurverðlaunahafinn lyfti 201kg, brons 200kg, 4.sæti 199kg, og 5.sæti 198kg. Eygló bætti hinsvegar sinn besta árangur á árinu þegar hún lyfti 202kg á Heimsmeistaramóti fullorðinna í Tashkent í Uzbekistan 7.-17. Desember, 92kg í snörun og 110kg í jafnhendingu og sýndi með því að hún er með allra bestu ungmennum í Evrópu. Það er þyngsti samanlagði árangursem íslensk kona hefur lyft á móti í ólympískum lyftingum. Í Desember 2021 setti hún einnig 6 ný norðurlandamet unglinga, fyrst á Jólamóti LSÍ 5.Desember þar sem hún setti nýtt met í snörun í -76kg flokki með 88kg og svo tvíbætti hún bæði jafnhendingarmetið með því að lyfta 105 og 108kg. Samanlagði árangurinn 193 og 195kg voru norðurlandamet. Loks var 92kg í snörun nýtt norðurlandamet unglinga (20 ára og yngri) í -71kg flokki.
Brynjar Logi á Evrópumeistaramóti Unglinga 20 ára og yngri 2021
Brynjar Logi Halldórsson LFR (f.2002) hefur verið á mikilli siglingu á árinu, hann keppti á sjö mótum á árinu þar af tveimur erlendis. Besta árangri náði hann á Norðurlandamóti unglinga þar sem hann lyfti 120kg í snörun og 151kg í jafnhendingu í -81kg flokki, 330.7 Sinclair stig. Jafnhendingin var nýtt íslandsmet í fullorðinsflokki og einnig samanlögðum árangri. Á EM U20 ára lyfti hann 115kg í snörun og 143kg í jafnhendingu í -81kg flokki og endaði í 17 sæti á sínu fyrsta stórmóti.
Úlfhildur á HM 17 ára og yngri í Jeddah (Saudi-Arabíu)
Úlfhildur Arna Unnarsdóttir LFR (f.2005) fagnaði góðu gengi á árinu. Besta árangrinum á tímabilinu 1.Des 2020 til 30.Nóvember 2021 náði hún á Norðurlandamóti Unglinga 17 ára og yngri þar sem hún sigraði -71kg flokk kvenna og lyfti 83kg í snörun og 98kg í jafnhendingu, samanlagt 181kg og 222.8 Sinclair stig. Hún keppti einnig á Evrópumeistaramóti unglinga 17 ára og yngri í Póllandi þar sem hún endaði í 6.sæti í -71kg flokk og á HM unglinga 17 ára og yngri í Jeddah í Saudi Arabíu þar sem hún endaði í 9.sæti. Hún toppaði árið 5.Desember þegar hún varð sænskur unglingameistari 20 ára og yngri þegar hún lyfti 85kg í snörun og 100kg í jafnhendingu en Úlfhildur er búsett í Svíþjóð og því gjaldgeng sem keppandi á mótinu.
Brynjar Ari á HM 17 ára og yngri í Jeddah (Saudi-Arabíu)
Brynjar Ari MagnússonLFR (f.2004) keppti á tveimur mótum á tímabilinu, norðurlandameistaramóti unglinga 2020 þar sem hann sigraði í flokki 17 ára og yngri í -89kg flokki með því að lyfta 118kg í snörun og 130kg í jafnhendingu (294 Sinclair stig) hann setti einnig íslandsmet 17 ára og yngri í snörun og samanlögðum árangri á mótinu. Hann keppti einnig á HM unglinga 17 ára og yngri í Jeddah í Saudi Arabiu í Október 2021 þar sem hann lyfti 110kg í snörun og 130kg í jafnhendingu og endaði í 12.sæti.
Bjarki Þórðason LFK (f.2006) náði bestum árangri drengja 15 ára og yngri, hann náði bestum árangri á Jólamóti LSÍ þegar hann lyfti 75kg í snörun og 105kg í jafnhendingu í, hann vigtaðist 86.15kg inn í mótið sem gaf honum 212.4 Sinclair stig.
Bergrós Björnsdóttir UMFS (f.2007) náði frábærum árangri á Norðurlandamóti Unglinga 17 ára og yngri þar sem hún endaði í 2.sæti í -71kg flokki kvenna og lyfti 80kg í snörun og 97kg í jafnhendingu, 177kg samanlagt og 217.4 Sinclair stig. Með þessum árangri endaði hún í 11.sæti yfir stigahæstu íslensku konurnar á árinu 2021 af 61 keppanda og er það magnaður árangur miðað við aldur!