Ársþing Lyftingasambands Íslands 2026

Boðun ársþings Lyftingasamband Íslands

Stjórn Lyftingasambands Íslands boðar hér með til ársþings sambandsins í samræmi við lög LSÍ.

Ársþingið verður haldið miðvikudaginn 25. mars 2026 kl. 17:00
í fundarsal Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands (ÍSÍ), 3. hæð, Laugardal, Reykjavík.

Dagskrá samkvæmt lögum LSÍ

  1. Þingsetning.
  2. Innganga nýrra lyftingafélaga.
  3. Kosnir 3 einstaklingar í  kjörbréfanefnd.
  4. Kosning þingforseta og þingritara.
  5. Fráfarandi stjórn gefur skýrslu sína.
  6. Gjaldkeri leggur fram, skoðaða reikninga LSÍ til samþykktar.
  7. Stjórn leggur fram fjárhagsáætlun fyrir næsta ár.
  8. Lagðar fram lagabreytingar og breytingar á mótareglum, sem fram hafa komið.
  9. Umræða um aðrar tillögur og önnur mál sem borist hafa til stjórnarinnar, svo og önnur mál er þingið vill ræða.
  10. Kosning stjórnar og varastjórnar. 
  11. Kosning skoðunarfólks reikninga.
  12. Kosning formanns tækninefndar.
  13. Önnur mál.
  14. Þingslit.

Þingfulltrúar

Aðildarfélög eiga rétt á að senda þingfulltrúa í samræmi við lög LSÍ. Kjörbréf skulu liggja fyrir við upphaf þings.

Tillögur til þingsins

Málefni sem óskað er eftir að tekin verði fyrir á ársþingi skulu berast stjórn LSÍ eigi síðar en miðvikudaginn 4. mars 2026 (21 degi fyrir þing).

Framboð til stjórnar

Framboð til stjórnar skulu berast stjórn LSÍ eigi síðar en sunnudaginn 15. mars 2026 (10 dögum fyrir þing).
Tilkynning um framboð skal liggja fyrir eigi síðar en föstudaginn 20. mars 2026 (5 dögum fyrir þing).

Þinggögn

Dagskrá og þinggögn skulu send aðildarfélögum eigi síðar en miðvikudaginn 11. mars 2026 (14 dögum fyrir þing).

Stjórn Lyftingasambands Íslands
Reykjavík, 21. febrúar 2026

Mikil stemning á Íslandsmóti í ólympískum lyftingum í Miðgarði

Fréttin var uppfærð síðast kl. 18:45.

Mikil orka og frábær stemning var í Miðgarði í dag þegar Íslandsmót í ólympískum lyftingum fór fram í glæsilegri aðstöðu Stjörnunnar. Mótið var haldið í samstarfi Lyftingasambands Íslands og Lyftingafélags Mosfellsbæjar, með öflugri aðstoð starfsfólks Miðgarðs og lyftingadeildar Stjörnunnar.

Þátttaka á mótinu var mjög góð en alls mættu 46 keppendur til leiks, þar af 13 karlar og 33 konur. Keppnin var hörð í mörgum þyngdarflokkum og sýndu keppendur mikinn metnað, styrk og fagmennsku.

Skipulag mótsins gekk afar vel og var umgjörð þess til fyrirmyndar, bæði hvað varðar aðstöðu keppenda og upplifun áhorfenda. Áhorfendur fjölmenntu í Miðgarð og sköpuðu skemmtilega og hvetjandi stemningu fyrir keppendur.

Við viljum færa samstarfsaðilum okkar kærar þakkir fyrir góðan stuðning. Þar ber helst að nefna Gatorade, Kjörís, Next Level Gaming, Craft og SBD.

Að lokum viljum við þakka öllum sjálfboðaliðum sem lögðu mikla vinnu á sig við framkvæmd mótsins, sem og öllum þeim sem lögðu leið sína í Miðgarð til að styðja við íslenskt lyftingafólk og njóta spennandi keppni.

Myndir: Mattías Már Heiðarsson @mattimar.vz

Heildarúrslit Íslandsmóts LSÍ 2026

https://results.lsi.is/meet/slandsmeistaram-t-2026

Íslandsmeistarar í heildarkeppni urðu þau Þórbergur Ernir Hlynsson, LFR, 325 kg og 362,741 Sinclair stig og Guðný Björk Stefánsdóttir, LFM, 209 kg og 256,697 Sinclair stig.

Karlar

-79 kg flokkur – 2 keppendur

  • 1. sæti, Kristinn Hilmarsson, LFR, 200 kg (90/110)
  • 2. sæti, Brynjar Örn Thorlacius Kristjánsson, LFK, 170 kg (70/100)

-88 kg flokkur – 1 keppandi

  • 1. sæti, Kristófer Logi Hauksson, LFK, 215 kg (95/115)

-94 kg flokkur – 4 keppendur

  • 1. sæti, Rökkvi Hrafn Guðnason, LFR, 281 kg (123/158)
  • 2. sæti, Bergur Sverrisson, KA, 280 kg (130/150)
  • 3. sæti, Sigurður Óli Magnússon, LFA, 255 kg (110/145)

-110 kg flokkur – 6 keppendur

  • 1. sæti, Þórbergur Ernir Hlynsson, LFR, 325 kg (145/180)
  • 2. sæti, Einar Karelsson, Stjarnan, 254 kg (112/142)
  • 3. sæti, Guðmundur Grétar Magnússon, LFK, 240 kg (105/135)

Konur

Mynd: -53 kg, -58 kg og -63 kg
Mynd: -69 kg og -86 kg
Mynd: -77 kg og +86 kg

-53 kg flokkur – 1 keppandi

  • 1. sæti, Birna Ólafsdóttir, LFK, 101 kg (46/55)

-58 kg flokkur – 2 keppendur

  • 1. sæti, Freyja Björt Svavarsdóttir, LFR, 155 kg (65/90)
  • 2. sæti, Íris Rut Jónsdóttir, UMFN – Massi, 151 kg (65/86)

-63 kg flokkur – 5 keppendur

  • 1. sæti, Snædís Líf P Dison, LFR, 160 kg (70/90)
  • 2. sæti, Disa Edwards, UMFN – Massi, 154 kg (69/85)
  • 3. sæti, Vigdís Lilja Guðmundsdóttir, LFK, 145 kg (64/81)

-69 kg flokkur – 8 keppendur

  • 1. sæti, Sigurbjörg Eiríksdóttir, LFM, 171 kg (77/94)
  • 2. sæti, Steindís Elín Magnúsdóttir, LFR, 163 kg (73/90)
  • 3. sæti, Hólmfríður K. Kjartansdóttir, LFK, 155 kg (70/85)

-77 kg flokkur – 8 keppendur

  • 1. sæti, Guðný Björk Stefánsdóttir, LFM, 209 kg (91/118)
  • 2. sæti, Elín Birna Hallgrímsdóttir, LFR, 186 kg (78/108)
  • 3. sæti, Aþena Eir Jónsdóttir, UMFN – Massi, 170 kg (74/96)

-86 kg flokkur – 4 keppendur

  • 1. sæti, Ásdís Hjálmsdóttir Annerud, Stjarnan, 184 kg (80/104)
  • 2. sæti, Ásta Sachi Jónasdóttir, LFR, 160 kg (75/85)
  • 3. sæti, Auður Arna Eyþórsdóttir, Stjarnan, 142 kg (64/78)

+86 kg flokkur – 5 keppendur

  • 1. sæti, Friðný Fjóla Jónsdóttir, Stjarnan, 228 kg (100/128)
  • 2. sæti, Erla Ágústsdóttir, LFK, 226 kg (98/128)
  • 3. sæti, Unnur Sjöfn Jónasdóttir, LFK, 159 kg (66/93)

Íslandsmót LSÍ 2026 – Keppendalisti

Keppendalisti Íslandsmóts LSÍ 2026, haldið í Miðgarði í samstarfi við Lyftingafélag Mosfellsbæjar og lyftingadeild Stjörnunnar laugardaginn 7. febrúar hefur verið birtur með fyrirvara um villur.

Karlar – vigtun kl. 07:00 – keppni hefst kl. 09:00

Konur – vigtun kl. 08:00 – keppni hefst kl. 11:30

Mótið er þyngdarflokkamót þar sem verðlaunað er fyrir þrjú efstu sætin í hverjum flokki af hvoru kyni. Einnig eru verðlaun veitt fyrir hæsta samanlagðan árangur karla og kvenna. Verðlaunafhending er að loknum hverjum hópi fyrir sig.

Afrek á results.is eru skráð í þann þyngdarflokk sem einstaklingurinn skráir sig í, hægt er að skipta um þyngdaflokk þar til daginn fyrir mót. Vinsamlegast sendið þyngdarflokkabreytingar á lsi@lsi.is*.

*Á mótum þar sem keppt er í þyngdarflokkum hljóta keppendur 15 ára og yngri keppnisrétt í þeim flokki sem þeir vigtast inn í. Ef keppendur eru of léttir fyrir skráðan flokk fara þeir niður um flokk og ef þeir eru of þungir fyrir skráðan flokk fara þeir upp um flokk. 16 ára og eldri þurfa að vigtast inn í þann flokk sem þeir eru skráðir í á mótum sem keppt er í þyngdarflokkum á, en annars fyrirgera þeir rétti sínum til að keppa.

Keppendur eru beðnir að yfirfara skráningu og senda allar athugasemdir ef við á, á netfangið lsi@lsi.is.

Hópur 1 kl. 09:00

NafnKynFélagFlokkurFæðingarár
Brynjar Örn Thorlacius KristjánssonKarlLFK-791997
Kristinn HilmarssonKarlLFR-792007
Kristófer Logi HaukssonKarlLFK-882008
Bergur SverrissonKarlKA-941994
Sigurður Óli MagnússonKarlLFA-941995
Rökkvi Hrafn GuðnasonKarlLFR-942005
Viktor Jóhannes KristóferssonKarlKA-1102009
Guðmundur ÁsgeirssonKarlLFK-1101981
Guðmundur Grétar MagnússonKarlLFK-1102004
Jóhannes Þór ÆvarssonKarlLFK-941973
Hilmar Örn PéturssonKarlLFR-1102005
Þórbergur Ernir HlynssonKarlLFR-1102005
Einar KarelssonKarlStjarnan-1101998

Hópur 2 kl. 11:30

NafnKynFélagFlokkurFæðingarár
Birna ÓlafsdóttirKonaLFK-532008
Freyja Björt SvavarsdóttirKonaLFR-582005
Íris Rut JónsdóttirKonaUMFN – Massi-581991
Gísla Rún KristjánsdóttirKonaLFK-631981
Vigdís Lilja GuðmundsdóttirKonaLFK-632001
Snædís Líf P DisonKonaLFR-632000
Disa EdwardsKonaUMFN – Massi-631987
Elísabet Sara GísladóttirKonaUMFN – Massi-632003

Hópur 3 kl. 13:10

NafnKynFélagFlokkurFæðingarár
Birna Salóme FriðriksdóttirKonaLFR-692009
Erla GuðmundsdóttirKonaLFK-691980
Hólmfríður K. KjartansdóttirKonaLFK-691995
Margrét Bára ÞórkelsdóttirKonaLFK-691983
Sara Líf ÓlafsdóttirKonaLFK-692010
Sigrún ÁgústsdóttirKonaLFK-691996
Sigurbjörg EiríksdóttirKonaLFM-692001
Rakel Sara SnorradóttirKonaLFR-692006
Steindís Elín MagnúsdóttirKonaLFR-692008
Steinunn SveinsdóttirKonaLFK-861963
Ásta Sachi JónasdóttirKonaLFR-862000
Brynja María BjarnadóttirKonaLFR-861990
Ásdís Hjálmsdóttir AnnerudKonaStjarnan-861985
Auður Arna EyþórsdóttirKonaStjarnan-861998

Hópur 4 kl. 15:40

NafnKynFélagFlokkurFæðingarár
Aþena Eir JónsdóttirKonaUMFN – Massi-771998
Elín Birna HallgrímsdóttirKonaLFR-772000
Guðný Björk StefánsdóttirKonaLFM-772001
Guðrún Björg ElíasdóttirKonaLFK-771974
Signý SveinbjörnsdóttirKonaLFK-772004
Sigríður Lína ViðarsdóttirKonaLFK-771988
Valdís BrynjarsdóttirKonaLFR-772004
Erla ÁgústsdóttirKonaLFK+862001
Friðný Fjóla JónsdóttirKonaStjarnan+861997
Hildur Björk ÞórðardóttirKonaÍA+861985
Máney Dögg BjörgvinsdóttirKonaLFK+861995
Unnur Sjöfn JónasdóttirKonaLFK+862004

Landsliðsviðmið 2026 og uppfærð Íslandsmet

Stjórn LSÍ samþykkti landsliðsviðmið fyrir 2026 á síðasta stjórnarfundi og nálgast má þau hér á heimasíðunni undir Lög og reglugerðir

Einnig var samþykktar breytingar á íslandsmetum í fullorðinsflokk og metin lækkuð sem nemur 10 Q-stigum í kvennaflokk og 12 Q-stigum í karlaflokk. Öll met verða endurreiknuð frá 1.Júní 2025. Sjá nýja met standarda hér að neðan (endurreiknun á results.lsi.is mun birtast á næstu dögum):

Eygló Fanndal – Íþróttastjarna Reykjavíkur

Sjá frétt frá ÍBR: https://www.ibr.is/frettir/i%C3%BErottafolkrvk2025

Breytt fyrirkomulag var í ár þar sem einungis er verðlaunað einn íþróttamann en ekki karl/konu/kvár líkt og 2024.

Í frétt ÍBR segir:

Íþróttafólk Reykjavíkur heiðrað við hátíðlega athöfn í Ráðhúsi Reykjavíkur

Athöfn íþróttafólks Reykjavíkur fór fram við hátíðlegar aðstæður í Ráðhúsi Reykjavíkur í kvöld, þar sem framúrskarandi árangur reykvískra íþróttamanna og liða á árinu 2025 var heiðraður. Fjölmenni var viðstatt þegar verðlaun voru veitt í helstu flokkum og ljóst að árið hefur verið einstaklega árangursríkt í íþróttalífi borgarinnar.

Eygló Fanndal Sturludóttir íþróttastjarna Reykjavíkur 2025

Eygló átti stórkostlegt ár þar sem Evrópumeistaratitill fullorðinna er sá árangur sem hæst ber að nefna. Þar kom hún, sá og sigraði og fyrir þann árangur var hún líka valin önnur besta er kemur að heildarstigum óháð þyngdarflokki. Hún er fyrsti íslendingurinn til að verða Evrópumeistari í ólympískum lyftingum fullorðinna.  Fyrr á árinu varð hún Íslandsmeistari í 5. sinn í röð og svo tryggði hún sér einnig 1. sæti á Smáþjóðamótinu.

Við óskum Eygló til hamingju með árangurinn sem og öllum þeim sem tilnefnd voru.

Lyftingafólk ársins 2025

Stjórn LSÍ hefur valið lyftingafólk ársins, líkt og fyrri ár samkvæmt 18. grein í lögum LSÍ.

Lyftingakona ársins:

Eygló með 109 kg í snörun, nýtt Norðurlandamet í -71 kg flokki á Evrópumeistaramótinu í ólympískum lyftingum (Mynd: Gregor Winters).

Eygló Fanndal Sturludóttir (f. 2001) – Lyftingafélag Reykjavíkur

  • Eygló varð Evrópumeistari kvenna í -71 kg flokki á Evrópumeistaramótinu sem haldið var í Chisinau í Moldóvu í apríl 2025.
  • Þar lyfti hún 109 kg í snörun, 135 kg í jafnhendingu og því 244 kg í samanlögðum árangri. Þessi árangur er einstakur í sögu lyftinga á Íslandi en aldrei hefur keppandi orðið Evrópumeistari eða unnið til verðlauna á stórmóti (EM/HM/ÓL) í lyftingum í opnum flokki.
  • Fáir Íslendingar hafa orðið Evrópumeistarar í ólympískri íþrótt á sömu forsendum og keppt er í á Ólympíuleikunum.
  • Hún varð 2. stigahæsti kvennkeppandinn af 167 keppendum frá 37 Evrópulöndum á mótinu þvert á þyngdarflokka út frá svokölluðum ROBI stigum með 688.6 stig sem er það stigakerfi sem Alþjóðalyftingasambandið notar á Heimsmeistaramótum og Evrópumeistaramótum.
  • Zarina Gusalova frá Rússlandi varð önnur á eftir Eygló og keppti undir hlutlausum fána (AIN), Siuzanna Valodzka frá Hvíta-Rússlandi varð í þriðja sæti á mótinu en hún keppir einnig undir hlutlausum fána (AIN). Hún varð í fjórða sæti á ólympíuleikunum í París 2024.
  • Sjá má upptöku RÚV af Evrópumeistaratitlinum hér: https://www.ruv.is/frettir/ithrottir/2025-04-17-eyglo-fyrsti-islenski-evropumeistarinn-441805
  • Á tímabilinu sem valið er varð Eygló einnig í 4. sæti á Heimsmeistaramótinu 2024 í lyftingum sem fram fór í Bahrein. Þar endaði hún á eftir ríkjandi ólympíumeistara Olivia Reeves, norður-kóreskum keppanda Chun Hui Jong sem varð í öðru sæti og Kínverjanum Qiuxia Yang í þriðja sæti, allt stórþjóðir í ólympískum lyftingum.
  • Eygló lyfti 107 kg í snörun og 132 kg í jafnhendingu, alls 239 kg á HM og endaði m.a. fyrir ofan silfurverðlaunahafann frá París 2024, Mari Sanchez, Kólumbíu.
  • Þetta er besti árangur Íslendings á HM í ólympískum lyftingum.
  • Eygló varð í 31. sæti í kvennaflokki á ROBI stigum á Heimsmeistaramótinu þvert á alla þyngdarflokka, 226 kvennkeppendur frá 75 löndum kepptu á mótinu. Fyrir ofan hana á stigum voru 9 norður-kóreskir keppendur, 8 kínverskir keppendur, 4 kólumbískir, svo einn frá Bandaríkjunum, Egyptalandi, Tæpei, Tælandi, Mongólíu, Dóminíska lýðveldinu, Nígeríu, Suður-Kóreu og Armeníu.
  • Eygló varð Íslandsmeistari í -71 kg flokk og stigahæsti keppandinn þvert á þyngdarflokka.
  • Eygló keppti með liði Íslands á Smáþjóðamótinu í ólympískum lyftingum þar sem hún náði einnig besta árangri mótsins með 106 kg í snörun og 130 kg í jafnhendingu, samtals 236 kg.
  • Eygló bætti sig um 7 kg á tímabilinu og lyfti mest 244 kg og 299.23 Sinclair stig.
  • Eygló setti 13 Íslandsmet á tímabilinu í fullorðinsflokki (bæði í -71 kg og -76 kg flokk) og 2 Íslandsmet í flokki 23 ára og yngri (á árinu 2024).
  • Eygló setti 4 Norðurlandamet á tímabilinu í -71 kg flokk í snörun, jafnhendingu og samanlögðum árangri. Metið í jafnhendingu voru í eigu hinnar sænsku Patriciu Strenius sem varð Evrópumeistari 2018 í -69 kg flokk og 2022 í -71 kg flokk, í þriðja sæti á HM 2021 og í 4. sæti á ÓL 2020 í -76 kg flokki en Eygló átti sjálf metin í snörun og samanlögðum árangri.
  • Nýir þyngdarflokkar tóku gildi 1. júní 2025 og á Eygló ennþá eftir að keppa í þeim en hún hefur verið frá vegna meiðsla og þurfti m.a. að draga sig úr keppni fyrir HM 2025 sem fram fór í Noregi.
  • Wikipedia síða Eyglóar sem fer vel yfir feril hennar til þessa.

Lyftingakarl ársins:

Bergur með 168 kg fyrir ofan haus, þessa lyftu fékk hann ekki gilda (Mynd: Gregor Winters).

Bergur Sverrisson (f. 1994) – Lyftingadeild Knattspyrnufélags Akureyrar (KA)

  • Bergur keppti á fjórum mótum á tímabilinu en bestum árangri náði hann á Evrópumeistaramótinu í Chisinau í Moldóvíu þar sem hann endaði í13. sæti í -89 kg flokki.
  • Bergur lyfti 140 kg í snörun og 162 kg í jafnhendingu, alls 302 kg samanlagt sem gáfu honum 365 Sinclair stig.
  • Hann varð stigahæstur karlkeppenda á Jólamótinu 2024 með 140 kg í snörun og 160 kg í jafnhendingu, alls 364.2 Sinclair stig.
  • Hann var í liði Íslands sem vann Smáþjóðamótið í ólympískum lyftingum.
  • Hann keppti á Heimsmeistaramótinu í Förde í Noregi þar sem hann varð í 19. sæti í -88 kg flokki. Þar lyfti hann 135 kg í snörun og 158 kg í jafnhendingu.
  • Bergur setti þrjú Íslandsmet á árinu.

Ungmenni ársins karlar flokkur 18-20 ára:

Þórbergur Ernir Hlynsson var bestur allra karla á Norðurlandamóti Unglinga sem fram fór í lok Nóvember í Svíþjóð (Mynd: Per Wiklund).

Þórbergur Ernir Hlynsson (f. 2005) – Lyftingafélag Reykjavíkur

  • Þórbergur keppti á sex mótum á árinu, en árið var það síðasta í flokki 20 ára og yngri.
  • Hann varð Norðurlandameistari í -110 kg flokki karla þar sem hann lyfti 141 kg í snörun og 178 kg í jafnhendingu, samanlagt 319 kg.
  • Hann varð einnig stigahæstur allra karlkeppenda þvert á þyngdarflokka á Norðurlandamóti unglinga aðeins 0.6 stigum hærri en næsti keppandi Eliel Jännes frá Finnlandi. Afrek sem fáir ef einhver Íslendingur hefur náð í karlaflokki.
  • Þessi árangur gaf honum 354,4 Sinclair stig og 371 Q-stig, q-stig eru nýleg stigaformúla sem hefur verið að riðja sér til rúms í lyftingum og er talin réttari en Sinclair stig. Bestu lyftarar á Norðurlandamótum eru reiknaðir í Q-stigum.
  • Hann varð Íslandsmeistari í-102 kg flokki karla með 135 kg í snörun og 172 kg í jafnhendingu. Hann varð einnig stigahæstur allra karla á mótinu.
  • Hann varð í 11. sæti á Heimsmeistaramóti unglinga í-102 kg flokki 20 ára og yngri og lyfti 140 kg í snörun og 163 kg í jafnhendingu, samtals 303 kg.
  • Hann varð stigahæstur allra karla á Grétarsmótinu á Akureyri.
  • Hann féll úr keppni á Evrópumeistaramóti unglinga í -110 kg flokki 20 ára og yngri eftir að hafa snarað 140 kg á opnunarþyngd 170kg.
  • Þórbergur setti 3 íslandmet í fullorðinsflokki á tímabilinu, 15 Íslandsmet í flokki 20 ára og yngri og 15 Íslandsmet í flokki 23 ára og yngri.

Ungmenni ársins konur flokkur 18-20 ára:

Bergrós á HM 17 ára og yngri árið 2024 þar sem hún varð í öðru sæti.

Bergrós Björnsdóttir (f. 2007) – Lyftingafélag Reykjavíkur

  • Bergrós keppti aðeins á einu móti á árinu, Grétarsmótinu þar sem hún varð stigahæst kvenna með 85 kg í snörun og 108 kg í jafnhendingu, samanlagt 193 kg í -77 kg flokki kvenna.
  • Þessi árangur gaf henni 235.9 Sinclair stig
  • Hún setti 9 Íslandsmet í flokki 20 ára og yngri og 6 Íslandsmet í flokki 23 ára og yngri.

Ungmenni ársins karlar flokkur 16-17 ára:

Kristófer Logi Hauksson (f. 2008) – Lyftingafélag Kópavogs

Kristófer Logi vann silfur á Norðurlandamóti unglinga (Mynd: Per Wiklund).
  • Kristófer keppti á sex mótum á tímabilinu bæði í -89 kg flokki, -81 kg flokki og -88 kg flokki.
  • Bestum árangri náði hann á Haustmóti LSÍ þar sem hann snaraði 100 kg og jafnhenti 116 kg, samtals 216 kg í -88 kg flokik sem gáfu honum 271,8 Sinclair stig.
  • Hann vann silfur á Norðurlandamóti unglinga í -88 kg flokki karla 17 ára og yngri
  • Hann setti 7 Íslandsmet í flokki 17 ára og yngri, 3 Íslandsmet í flokki 20 ára og yngri og 3 Íslandsmet í flokki 23 ára og yngri á tímabilinu allt í -88 kg flokki.

Ungmenni ársins konur flokkur 16-17 ára:

Steindís Elín á Norðurlandamóti unglinga í Svíþjóð (Mynd: Per Wiklund).

Steindís Elín Magnúsdóttir (f. 2008) – Lyftingafélag Reykjavíkur

  • Steindís keppti á fjórum mótum á tímabilinu í -69 kg flokki og -71 kg flokki.
  • Bestum árangri náði hún á Norðurlandamóti unglinga þar sem hún varð í 6. sæti í -69 kg flokki kvenna 17 ára og yngri með 6 4kg í snörun og 84 kg í jafnhendingu, samtals 148 kg og 185.5 Sinclair stig.
  • Hún varð í 12. sæti á Evrópumeistaramóti 17 ára og yngri sem fram fór í Madrid á Spáni í -69 kg flokki þar sem hún lyfti 63 kg í snörun og 83 kg í jafnhendingu.
  • Hún setti 7 Íslandsmet á árinu í -69 kg flokki kvenna 17 ára og yngri, 5 Íslandsmet í flokki 20 ára og yngri og 5 Íslandsmet í flokki 23 ára og yngri.

Ungmenni ársins flokkur 15 ára og yngri:

Theodór Einar Magnússon (f. 2010) – Lyftingafélag Reykjavíkur

  • Theodór keppti á tveimur mótum á tímabilinu.
  • Bestum árangri náði hann á Íslandsmeistaramóti unglinga þar sem hann varð í fyrsta sæti í -73 kg flokki 15 ára og yngri og lyfti 60 kg í snörun og 75 kg í jafnhendingu, samtals 135 kg og 191.9 Sinclair stig.
  • Hann setti 9 Íslandsmet í -61 kg flokki 15 ára og yngri og 3 Íslandsmet í -73 kg flokki 15 ára og yngri á tímabilinu.

Ungmenni ársins flokkur 15 ára og yngri:

Úlfdís Silja Skúladóttir Waage (f. 2014) – Kraftlyftingafélag Akureyrar

  • Úlfdís keppti á Páskamóti KFA í lyftingum í -49 kg flokki aðeins 11 ára gömul.
  • Hún snaraði 12 kg og jafnhenti 15 kg, samtals 27 kg sem gáfu henni 43.7 Sinclair stig.

Norðurlandamót fullorðinna 2025 – Heildarúrslit

Heildarúrslit má nálgast hér: https://results.lsi.is/meet/nordic-championship-ntf-stadfest-dagsetning-2025 og https://nordicweightlifting.com/

Upptaka af mótinu er aðgengileg á nýstofnaðri YouTube-rás sambandsins: https://www.youtube.com/@IcelandicWeightlifting

Stigahæstu keppendur mótsins voru hin finnska Janette Ylisoini með 237 kg samanlagt í -77 kg flokki kvenna og hinn sænski Hugo Ottosson með 355 kg samanlagt í -110 kg flokki karla.

Árangur Íslendinga á mótinu (frétt verður uppfærð með myndum þegar þær berast):

Ísland náði sér í þrjú silfurverðlaun og ein bronsverðlaun á mótinu.

Katla Björk Ketilsdóttir varð önnur í -63 kg flokki kvenna þegar hún snaraði 86 kg og jafnhenti 103 kg, samtals 189 kg. Þetta var fjórða Norðurlandamót Kötlu og hún var því reynsluboltinn í landsliðinu, þetta er einnig besti árangur hennar á Norðurlandamóti.

f.v. Katla Björk Ketilsdóttir, Inka Tiainen (Finnlandi) og Susanne Johansson frá Svíþjóð. Mynd: BerndsenPhoto

Guðný Björk Stefánsdóttir varð önnur í -77 kg flokki þegar hún snaraði 98 kg og jafnhenti 118 kg, samtals 216 kg. Snörunin var nýtt persónulegt met hjá henni og bæting um 1 kg. Þessi árangur var líka annar stigahæsti árangur kvenna á mótinu en Janette Ylisoini frá Finnlandi varð stigahæst og einnig sigraði hún -77 kg flokkinn með 237 kg samanlagt.

Ásdís Hjálmsdóttir Annerud sem keppti fyrir Íslandshönd á Ólympíuleikunum 2008, 2012 og 2016 í spjótkasti, keppti í fyrsta sinn fyrir Ísland á móti í ólympískum lyftingum og náði í silfur í -86 kg flokki kvenna. Ásdís sem varð fertug fyrir rétt tæpum þremur vikum átti stórgott mót og fór með allar sínar lyftur í gegn, seríuna 74 kg, 77 kg og 80 kg í snörun, í jafnhendingu lyfti hún 99 kg, 102kg og loks 105 kg. Þetta voru einnig met í mastersflokkum 35-39 ára og 40-44 ára. Allt er fertugum fært!

Ásdís Hjálmsdóttir gerir sig klára fyrir snörun. Mynd: BerndsenPhoto

Selma Gísladóttir vann brons í -86 kg flokknum en hún átti einnig gott mót og fór með 5/6 lyftum í gegn. Hún lyfti mest 82 kg í snörun og 102 kg í jafnhendingu, samtals 184 kg eða einu kílói minna en Ásdís sem fór fram fyrir hana með því að lyfta loka lyftunni. Bæði Ásdís og Selma eru búsettar í Svíþjóð og þetta var líka fyrsta mót Selmu þar sem hún keppir fyrir landsliðið.

f.h. Ásdís Hjálmsdóttir, Anna Sofie Jensen og Selma Gísladóttir

Tindur Elíasen eini íslenski karlkeppandi mótsins varð í 5. sæti í -88 kg flokk. Hann setti nýtt Íslandsmet í flokki 20 ára og yngri og 23 ára og yngri í jafnhendingu og samanlögðum árangri þegar hann lyfti 119 kg í snörun, 142 kg í jafnhendingu og 261 kg samtals. Áður hafði hann lyft 142 kg á innanfélagsmóti í ágúst en þau gilda ekki til meta.

Erla Ágústsdóttir féll úr keppni í snörun með 98 kg í fyrsta sinn á ferlinum, hún kom hinsvegar sterk til baka í jafnhendingunni og bætti sinn besta árangur um 3 kg og lyfti 125 kg.

Erla Ágústsdóttir í snörun

Thelma Mist Oddsdóttir lyfti mest 72 kg í snörun og 89 kg í jafnhendingu, samtals 161 kg og varð í 4. sæti í -58 kg flokki.

Freyja Björt Svavarsdóttir lyfti 60 kg í snörun og 80 kg í jafnhendingu, samtals 140 kg og varð í 5. sæti í -58 kg flokki.

Snædís Líf Pálmarsdóttir sýndi af sér keppnishörku þegar hún lyfti 71 kg í snörun í þriðju tilraun og jafnhenti síðan 95 kg, samtals 166 kg og varð í 7. sæti í -63 kg flokki kvenna.

Sólveig Ásta Gautadóttir tók cat.2 alþjóðleg dómararéttindi, Lárus Páll Pálsson (cat.1) starfaði einnig á mótinu.

f.v. Willum Þór Willumson forseti ÍSÍ, Guðmundur Sigurðsson (Heiðursfélagi LSÍ nr.1) og Arnór Ásgeirsson framkvæmdastjóri LSÍ

Liðakeppni kvenna (öll lið áttu keppanda sem féll úr leik):

Danmörk 34 stig

Finnland 32 stig

Svíþjóð 28 stig

Ísland 24 stig

Liðakeppni karla

Danmörk 28 stig

Svíþjóð 25 stig

Noregur 23 stig

Finnland 22 stig

Færeyjar 5 stig

Ísland 2 stig

Úrslit frá Norðurlandamóti fullorðinna 2025

Norðurlandamót fullorðinna fer fram helgina 15. og 16. nóvember í Miðgarði, Garðabæ.

Úrslit mótsins má skoða hér fyrir neðan fyrir hvern hóp fyrir sig.

Laugardagur

F1: -53 kg og -58 kg kvenna

M1: -65 kg, -71 kg og -79 kg karla

F2: -63 kg kvenna

F3: -69 kg og -77 kg kvenna

Sunnudagur

M2: -88 kg og -94 kg karla

M3: -110 kg og +110 kg karla

F4: -86 kg og +86 kg kvenna

Photo: BerndsenPhoto

Norðurlandameistaramótið NM Senior um helgina

Norðurlandameistaramótið fer fram í Miðgarði, Garðabæ um helgina (15. – 16. nóvember).

Streymi verður frá mótinu: https://www.youtube.com/@icelandicweightlifting

Minnum á að fylgjast með upplýsingum á Instagram og Facebook.

Dagskrá er eftirfarandi (frítt er inn á mótið)

Keppendalista má nálgast hér:

Ísland teflir fram fullu liði í kvenna flokki (8) en aðeins einum karl keppanda.

Lið Íslands er eftirfarandi:

Freyja Björt Svavarsdóttir -58 kg
Thelma Mist Oddsdóttir -58 kg

Katla Björk Ketilsdóttir -63 kg

Snædís Líf Pálmarsdóttir Dison -63 kg

Guðný Björk Stefánsdóttir -77 kg

Selma Kristín Gísladóttir -86 kg
Ásdís Hjálmsdóttir Annerud -86 kg

Erla Ágústsdóttir 86+ kg

Tindur Eliasen -88 kg

Upplýsingar fyrir keppendur hér / Information for competitors here.

Evrópumeistaramót U20 og U23 : Úrslit

Eins og áður hefur komið fram átti Ísland þrjá keppendur á Evrópumeistaramóti ungmenna sem fram fór í Durres, Albaníu 28.Október til 4.Nóvember. Öll úrslit má nálgast hér: https://www.easywl.com/ALB_2025/index.php

Nýjustu fréttir af lyfingasambandinu koma alltaf á Instagram síðu sambandsins: https://www.instagram.com/icelandic_weightlifting/

Tindur Elíasen (f.2005) varð í 18.sæti í -88kg flokki karla 20 ára og yngri, hann snaraði best 122kg og jafnhenti 135kg, samanlagt 257kg. Þetta var fyrsta stórmót Tinds. Snörun, jafnhendingin og samanlagður árangur voru ný íslandsmet bæði í flokki 20 ára og yngri sem og 23 ára og yngri.

Þórbergur Ernir Hlynsson (f.2005) féll úr keppni í -110kg flokki karla 20 ára og yngri. Hann snaraði 140kg, reyndi svo tvisvar við 145kg. Í jafnhendingunni glímdi hann við svima og munaði litlu að illa færi þegar hann féll 2x á pallinn. Þórbergur hefur verið á mikilli siglingu síðastliðið ár og farið upp úr 95kg í tæp 110kg, það er vonandi að hann jafni sig fljótt og að við fáum að fylgjast með honum fylla vel út í 110kg flokkinn.

Thelma Mist Oddsdóttir (f.2002) keppti í -58kg flokki kvenna 23 ára og yngri. Hún gerði vel of fór í gegn með 5/6 lyftum. Hún snaraði 70 og 73kg, og jafnhenti 85, 88 og 91kg. Jafnhendingin var bæting um 1kg á hennar besta árangri. Þessi árangur dugði henni í 9.sæti í flokknum. Einnig setti hún ný íslandsmet í flokki 23 ára og yngri.

Nokkrar myndir út keppninni má sjá hér að neðan, landsliðsþjálfari í ferðinni var Sigurður Darri Rafnsson og Erla Ágústsdóttir var honum til aðstoðar: