Þórbergur nálægt sínu besta í Batumi

Þórbergur Ernir Hlynsson, -110 kg, steig á svið í Batumi í morgun í C hóp. Æfingar hafa gengið vel undanfarið og því var hann vel undirbúinn og klár í slaginn. Hann opnaði á 144 kg í snörun sem fór upp. Næst reyndi hann svo við 3 kg bætingu á sínu besta en missti stöngina í botnstöðu. Hann mætti ákveðinn í þriðju lyftu, 150 kg sem fóru því miður ekki upp. Eftir góða hvíld opnaði hann í 173 kg í jafnhendingu sem fóru auðveldlega upp. Hann fylgdi því eftir með virkilega góðum 179 kg, 1 kg frá sínum besta árangri. Þriðja og seinasta lyftan var svo tilraun til Íslandsmets en upp vildu ekki 183 kg. Samanlagt lyfti hann því 323 kg, sem er 2 kg frá hans besta árangri. Niðurstaðan 2. sæti af 8 keppendum í C hóp.

Þórbergur er á góðu skriði og þessi frammistaða sýnir góðan stöðugleika og spennandi tíma framundan. Þegar þetta er skrifað þá er hann sem stendur í 11. sæti af 29 keppendum þegar tíu eiga eftir að lyfta í A hóp. Hann mun því neðst geta endað í 21. sæti.

@craftverslun
@frumherji_hf
@gatoradeiceland
@sbdapparel

#LyftingasambandÍslands #oly #weightlifting #batumi

Guðný með Íslandsmet í öllum lyftum á EM

Guðný Björk Stefánsdóttir, -69 kg keppti í dag í A hóp í frábærum aðstæðum í Batumi. Guðný mætti vel stemmd og greinilegt að mikill stígandi hefur verið í æfingum hjá henni undanfarnar vikur. Hún opnaði í 94 kg í snörun sem fór auðveldlega upp og setti nýtt Íslandsmet í -69 kg flokknum. Næst reif hún upp 97 kg af miklum krafti og bætti eigið Íslandsmet um 3 kg. Hún reyndi svo við 100 kg í þriðju og seinustu lyftunni, sem hefði verið 2 kg meira en hennar besti árangur, þá í -77 kg flokknum. Þyngdin fór upp en því miður tókst henni ekki að standa upp úr botnstöðunni og í kjölfarið lenti stöngin harkalega á herðunum. Sem betur fer fór ekki illa og gat hún haldið keppni áfram.

Eftir hvíldina mætti Guðný ákveðin á pallinn og opnaði jafnhendingu í 115 kg sem fóru ekki upp. Hún lét það ekki á sig fá og kláraði 116 kg af krafti og setti nýtt Íslandsmet. Lokatilraun til 122 kg og bætingar um 1 kg á sínum besta árangri samanlagt var ótrúleg barátta en Guðnýju tókst því miður ekki að halda stönginni í jafnvægi í efstu stöðu og því endaði hún á að lyfta 213 kg samanlagt, sem er nýtt Íslandsmet í -69 kg flokknum.

Þrátt fyrir krefjandi keppni og töluvert mótlæti, þá kláraði Guðný sína keppni af krafti og setti um leið þrjú ný Íslandsmet í -69 kg flokknum.

Niðurstaðan því 97 kg í snörun og 116 kg í jafnhendingu, samtals 213 kg og 14. sæti af 34 keppendum.

@craftverslun
@frumherji_hf
@gatoradeiceland
@sbdapparel

#LyftingasambandÍslands #oly #weightlifting #batumi

Katla með bætingar í Batumi

Katla Björk Ketilsdóttir, -63 kg, steig fyrst Íslendinga á svið á Evrópumeistaramótinu í Batumi, Georgíu í morgun.

Katla opnaði á 86 kg í snörun sem fór létt upp. Næst lyfti hún 89 kg sem fór einnig upp og þar með hafði hún bætt sinn besta árangur í snörun um 1 kg. Hún rétt missti svo 91 kg í lokalyftunni sinni. Í jafnhendingunni byrjaði hún örugglega með því að lyfta 102 kg og ætlaði svo að fylgja því eftir með 106 kg sem fóru ekki upp. Hún mætti ákveðin í þriðju lyftu og með mikilli baráttu tókst henni að ná 106 kg upp og með því hélt hún áfram að bæta sinn besta árangur, aftur um 1 kg.

Samanlagt lyfti hún 195 kg, sem er bæting um 2 kg. Virkilega vel gert Katla!

Árangurinn skilaði henni þriðja sæti í B hóp og sem stendur 15. sæti af 28 keppendum þegar A hópur á eftir að lyfta.

@craftverslun
@frumherji_hf
@gatoradeiceland
@sbdapparel

#LyftingasambandÍslands #oly #weightlifting #batumi

Ársþing evrópska lyftingasambandsins fór fram í Batumi, Georgíu

17. apríl, Batumi, Georgía.

Ársþing evrópska lyftingasambandsins (EWF) fór fram í Batumi, Georgíu. Fulltrúar fjölmargra þjóða mættu á þingið. Fyrir utan almenn þingstörf má nefna framsetningu ársskýrslna, opnunarræðu forseta georgíska lyftingasambandsins, Lasha Talakhadze og kosningar í nefndir.

Það er mikilvægt fyrir okkur að taka þátt og viðhalda sterkum alþjóðlegum samskiptum, efla tengingar og opna á umræður sem munu án efa efla starfsemi lyftinga á Íslandi.

Arnór Ásgeirsson frá LSÍ og Modestas Simkus frá litháíska lyftingasambandinu á ársþingi EWF 2026

Frumherji hf. gerist aðalsamstarfsaðili Lyftingasambands Íslands

Lyftingasamband Íslands (LSÍ) og Frumherji hf. hafa undirritað samstarfssamning til tveggja ára. Með samningnum gerist Frumherji einn af aðalsamstarfsaðilum sambandsins og styður þannig beint við bakið á öflugu starfi og framúrskarandi afreksfólki í ólympískum lyftingum.

Sem hluti af samstarfinu mun vörumerki Frumherja prýða allan æfinga- og keppnisfatnað sambandsins. Það er því ljóst að merki þessa öfluga fyrirtækis mun fylgja íþróttafólkinu okkar á keppnisgólfin, jafnt innanlands sem utan, næstu tvö árin.

Það er LSÍ mikið gleðiefni að fá jafn rótgróið og öflugt fyrirtæki og Frumherja í hóp bakhjarla. Nafnið „Frumherji“ á sérstaklega vel við í þessu samstarfi, þar sem íslenskt lyftingafólk hefur svo sannarlega verið brautryðjendur á sínu sviði á undanförnum árum. Með miklum dugnaði og elju hefur íþróttafólkið okkar náð eftirtektarverðum árangri á alþjóðavísu og rutt brautina fyrir komandi kynslóðir.

„Við erum afar stolt af því að fá Frumherja til liðs við okkur. Að sjá vörumerki þeirra á fatnaði okkar er tákn um sterkt bakland sem hjálpar okkur að vaxa enn frekar,“ segir Arnór Ásgeirsson, framkvæmdastjóri LSÍ.

Samstarfið mun renna styrkari stoðum undir rekstur sambandsins og undirbúning keppenda fyrir stórmót næstu tveggja ára.

Frá undirritun samstarfs í höfuðstöðvum Frumherja: Guðný Björk Stefánsdóttir, landsliðskona, Sigurður Ástgeirsson, framkvæmdastjóri ökutækjasviðs Frumherja og Arnór Ásgeirsson, framkvæmdastjóri LSÍ.

Ölgerðin og Lyftingasamband Íslands skrifa undir tímamótasamning

Gatorade nýr bakhjarl Lyftingasambands Íslands.

Ölgerðin og Lyftingasamband Íslands (LSÍ) hafa undirritað viðamikinn samstarfssamning sem gildir til ársins 2028. Með samningnum verður vörumerkið Gatorade í forgrunni og Ölgerðin einn af aðalstyrktaraðilum sambandsins á komandi árum.

Samstarfið er mikið fagnaðarefni fyrir lyftingafólk, en Ölgerðin mun tryggja að landsliðsfólk Íslands í ólympískum lyftingum hafi aðgang að nauðsynlegum steinefnum og söltum til að hámarka endurheimt og árangur í kringum erfiðar æfingar og stórmót. Auk þess mun Ölgerðin styrkja veitingasölu á viðburðum og mótum sem og að merki Gatorade mun prýða fatnað sambandsins.

„Þetta er gríðarlega mikilvægt skref fyrir Lyftingasambandið. Að fá jafn sterkt vörumerki og Gatorade inn sem aðalstyrktaraðila styrkir grunninn undir starfsemi okkar og hjálpar okkar fremsta íþróttafólki að ná enn lengra,“ segir Arnór Ásgeirsson, framkvæmdastjóri LSÍ.

Á meðfylgjandi mynd við undirritunina eru fulltrúar Ölgerðarinnar og LSÍ: Guðný Björk Stefánsdóttir landsliðskeppandi, Valdís María Einarsdóttir f.h. Ölgerðarinnar, Arnór Ásgeirsson f.h. LSÍ og Rökkvi Hrafn Guðnason landsliðskeppandi.

Guðný Björk Stefánsdóttir landsliðskeppandi, Valdís María Einarsdóttir f.h. Ölgerðarinnar, Arnór Ásgeirsson f.h. LSÍ og Rökkvi Hrafn Guðnason landsliðskeppandi.