53. ársþing Lyftingasambands Íslands

Ársþing Lyftingasambands Íslands (LSÍ), hið 53. í röðinni, var haldið 25. mars 2026 í húsakynnum ÍSÍ við Engjaveg. Þingið fór fram samkvæmt lögum sambandsins og sátu það fulltrúar fimm aðildarfélaga.

Formaður LSÍ, Harpa Þorláksdóttir, setti þingið og fór yfir viðburðaríkt starfsár þar sem fram komu helstu verkefni, árangur og þróun í starfi sambandsins. Ársskýrsla stjórnar fyrir árið 2025 var samþykkt samhljóða.

Á þinginu voru ársreikningar sambandsins kynntir og samþykktir, en rekstur ársins 2025 skilaði hagnaði upp á um 3,8 milljónir króna. Þá var einnig lögð fram og samþykkt fjárhagsáætlun fyrir árið 2026.

Forseti ÍSÍ, Willum Þór Þórsson, ávarpaði þingið og fjallaði um stöðu og framtíðarsýn íþróttahreyfingarinnar. Við það tækifæri var Ingi Gunnar Ólafsson sæmdur gullmerki ÍSÍ og Hrund Scheving silfurmerki ÍSÍ fyrir framlag sitt til ólympískra lyftinga á Íslandi.

Engar nýjar tillögur bárust til þingsins, en lagabreytingar sem kynntar höfðu verið fyrirfram voru samþykktar samhljóða.

Kosningar fóru fram á þinginu, en þar sem ekki bárust fleiri framboð voru allir frambjóðendur sjálfkjörnir í stjórn og önnur trúnaðarstörf. Harpa Þorláksdóttir heldur áfram sem formaður sambandsins og situr áfram á gildandi kjörtímabili.

Í lok þings voru þrír einstaklingar heiðraðir með útnefningu sem heiðursfélagar LSÍ fyrir framlag sitt til íþróttarinnar: 10. Óskar Sigurpálsson, 11. Ásgeir Bjarnason og 12. Eygló Fanndal Sturludóttir.

Að því loknu sleit þingforseti, Hafsteinn Pálsson, þinginu.

Frá vinstri: Willum Þór Þórsson, forseti ÍSÍ, Óskar Sigurpálsson 10. heiðursfélagi LSÍ, Eygló Fanndal Sturludóttir 12. heiðursfélagi LSÍ og Harpa Þorláksdóttir, formaður LSÍ.
Frá vinstri: Willum Þór Þórsson, forseti ÍSÍ, Ingi Gunnar Ólafsson, handhafi gullmerki ÍSÍ, Hrund Scheving, handhafi silfurmerki ÍSÍ, Hafsteinn Pálsson, þingforseti og Harpa Þorláksdóttir, formaður LSÍ.

Færðu inn athugasemd