Stjórn Lyftingasambands Íslands boðar hér með til ársþings sambandsins í samræmi við lög LSÍ.
Ársþingið verður haldið miðvikudaginn 25. mars 2026 kl. 17:00 í fundarsal Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands (ÍSÍ), 3. hæð, Laugardal, Reykjavík.
Dagskrá samkvæmt lögum LSÍ
Þingsetning.
Innganga nýrra lyftingafélaga.
Kosnir 3 einstaklingar í kjörbréfanefnd.
Kosning þingforseta og þingritara.
Fráfarandi stjórn gefur skýrslu sína.
Gjaldkeri leggur fram, skoðaða reikninga LSÍ til samþykktar.
Stjórn leggur fram fjárhagsáætlun fyrir næsta ár.
Lagðar fram lagabreytingar og breytingar á mótareglum, sem fram hafa komið.
Umræða um aðrar tillögur og önnur mál sem borist hafa til stjórnarinnar, svo og önnur mál er þingið vill ræða.
Kosning stjórnar og varastjórnar.
Kosning skoðunarfólks reikninga.
Kosning formanns tækninefndar.
Önnur mál.
Þingslit.
Þingfulltrúar
Aðildarfélög eiga rétt á að senda þingfulltrúa í samræmi við lög LSÍ. Kjörbréf skulu liggja fyrir við upphaf þings.
Tillögur til þingsins
Málefni sem óskað er eftir að tekin verði fyrir á ársþingi skulu berast stjórn LSÍ eigi síðar en miðvikudaginn 4. mars 2026 (21 degi fyrir þing).
Framboð til stjórnar
Framboð til stjórnar skulu berast stjórn LSÍ eigi síðar en sunnudaginn 15. mars 2026 (10 dögum fyrir þing). Tilkynning um framboð skal liggja fyrir eigi síðar en föstudaginn 20. mars 2026 (5 dögum fyrir þing).
Þinggögn
Dagskrá og þinggögn skulu send aðildarfélögum eigi síðar en miðvikudaginn 11. mars 2026 (14 dögum fyrir þing).
Stjórn Lyftingasambands Íslands Reykjavík, 21. febrúar 2026
Mikil orka og frábær stemning var í Miðgarði í dag þegar Íslandsmót í ólympískum lyftingum fór fram í glæsilegri aðstöðu Stjörnunnar. Mótið var haldið í samstarfi Lyftingasambands Íslands og Lyftingafélags Mosfellsbæjar, með öflugri aðstoð starfsfólks Miðgarðs og lyftingadeildar Stjörnunnar.
Þátttaka á mótinu var mjög góð en alls mættu 46 keppendur til leiks, þar af 13 karlar og 33 konur. Keppnin var hörð í mörgum þyngdarflokkum og sýndu keppendur mikinn metnað, styrk og fagmennsku.
Skipulag mótsins gekk afar vel og var umgjörð þess til fyrirmyndar, bæði hvað varðar aðstöðu keppenda og upplifun áhorfenda. Áhorfendur fjölmenntu í Miðgarð og sköpuðu skemmtilega og hvetjandi stemningu fyrir keppendur.
Við viljum færa samstarfsaðilum okkar kærar þakkir fyrir góðan stuðning. Þar ber helst að nefna Gatorade, Kjörís, Next Level Gaming, Craft og SBD.
Að lokum viljum við þakka öllum sjálfboðaliðum sem lögðu mikla vinnu á sig við framkvæmd mótsins, sem og öllum þeim sem lögðu leið sína í Miðgarð til að styðja við íslenskt lyftingafólk og njóta spennandi keppni.
Íslandsmeistarar í heildarkeppni urðu þau Þórbergur Ernir Hlynsson, LFR, 325 kg og 362,741 Sinclair stig og Guðný Björk Stefánsdóttir, LFM, 209 kg og 256,697 Sinclair stig.
Karlar
-79 kg flokkur – 2 keppendur
1. sæti, Kristinn Hilmarsson, LFR, 200 kg (90/110)
2. sæti, Brynjar Örn Thorlacius Kristjánsson, LFK, 170 kg (70/100)
-88 kg flokkur – 1 keppandi
1. sæti, Kristófer Logi Hauksson, LFK, 215 kg (95/115)
-94 kg flokkur – 4 keppendur
1. sæti, Rökkvi Hrafn Guðnason, LFR, 281 kg (123/158)
2. sæti, Bergur Sverrisson, KA, 280 kg (130/150)
3. sæti, Sigurður Óli Magnússon, LFA, 255 kg (110/145)
-110 kg flokkur – 6 keppendur
1. sæti, Þórbergur Ernir Hlynsson, LFR, 325 kg (145/180)
2. sæti, Einar Karelsson, Stjarnan, 254 kg (112/142)
3. sæti, Guðmundur Grétar Magnússon, LFK, 240 kg (105/135)
Konur
Mynd: -53 kg, -58 kg og -63 kgMynd: -69 kg og -86 kgMynd: -77 kg og +86 kg
-53 kg flokkur – 1 keppandi
1. sæti, Birna Ólafsdóttir, LFK, 101 kg (46/55)
-58 kg flokkur – 2 keppendur
1. sæti, Freyja Björt Svavarsdóttir, LFR, 155 kg (65/90)
Keppendalisti Íslandsmóts LSÍ 2026, haldið í Miðgarði í samstarfi við Lyftingafélag Mosfellsbæjar og lyftingadeild Stjörnunnar laugardaginn 7. febrúar hefur verið birtur með fyrirvara um villur.
Mótið er þyngdarflokkamót þar sem verðlaunað er fyrir þrjú efstu sætin í hverjum flokki af hvoru kyni. Einnig eru verðlaun veitt fyrir hæsta samanlagðan árangur karla og kvenna. Verðlaunafhending er að loknum hverjum hópi fyrir sig.
Afrek á results.is eru skráð í þann þyngdarflokk sem einstaklingurinn skráir sig í, hægt er að skipta um þyngdaflokk þar til daginn fyrir mót. Vinsamlegast sendið þyngdarflokkabreytingar á lsi@lsi.is*.
*Á mótum þar sem keppt er í þyngdarflokkum hljóta keppendur 15 ára og yngri keppnisrétt í þeim flokki sem þeir vigtast inn í. Ef keppendur eru of léttir fyrir skráðan flokk fara þeir niður um flokk og ef þeir eru of þungir fyrir skráðan flokk fara þeir upp um flokk. 16 ára og eldri þurfa að vigtast inn í þann flokk sem þeir eru skráðir í á mótum sem keppt er í þyngdarflokkum á, en annars fyrirgera þeir rétti sínum til að keppa.
Keppendur eru beðnir að yfirfara skráningu og senda allar athugasemdir ef við á, á netfangið lsi@lsi.is.