Friðný Fjóla Jónsdóttir í 15.sæti í -87kg flokki, Erla með þrjú íslandsmet!

Friðný Fjóla Jónsdóttir og Erla Ágústdóttir kepptu í dag síðastar íslensku keppendanna á Evrópumeistaramótinu í Ólympískum lyftingum sem fram fer í Sofia í Búlgaríu. Báðar kepptu þær í B-hóp, Friðný í flokki -87kg og Erla +87kg en flokkarnir voru keyrðir saman. Friðný Fjóla keppti á sínu fyrsta stórmóti, hún opnaði fyrst örugglega í 88kg, fór síðan í 92kg sem fóru nokkuð auðveldlega upp en missti aðeins lásinn á hægri hendi og fékk ógilt. Þriðja tilraun var við 93kg en hún fór ekki upp. Í jafnhendingu opnaði Friðný á 105kg sem hún fékk ógilt fyrir pressu sem kviðdómur greip inn í, þar næst fór hún í 106kg sem flaug upp og að lokum í 112kg sem hefði verið bæting á hennar besta árangri um 1kg, hún clean-aði þeirri þyngd en klikkaði í jarkinu. Friðný endaði í 15.sæti í -87kg flokk kvenna. Hin norska Solfrid Koanda bar höfuð og herðar yfir aðra keppendur í flokknum þegar hún snaraði 120kg og jafnhenti 160kg og bætti sinn besta árangur um 8kg og setti norðurlandamet í öllum lyftum (snörun, jafnhendingu og samanlögðum árangri). Hún færðist einnig upp úr 8.sæti í það 6. á OQR og er orðinn nokkuð örugg með sæti í París en keppt er í +81kg flokki kvenna þar.

Friðný með 88kg í snörun á Evrópumeistaramótinu í Búlgaríu. Ljósmynd: Isaac Morillas Sanchez (www.worldweightliftingmedia.com)

Erla opnaði á 93kg, fór svo í 97kg sem var nýtt íslandsmet í +87kg flokki að lokum fór hún í 100kg í þriðju tilraun en hún þurfti að lyfta á eftir sjálfri sér í loka lyftunni. Hún flaug upp og 5kg bæting í snörun og tvö íslandsmet. Einnig er hún aðeins annar íslendingurinn í kvenna flokki til að snara 100kg (hinn er Eygló Fanndal Sturludóttir). Í jafnhendingunni opnaði hún á 110kg, fór svo í 115kg sem hún rétt missti í loka stöðu. Hún lét það ekki á sig fá og kom til baka í þriðju tilraun og kláraði lyftuna. Nýtt íslandsmet í samanlögðum árangri, 4kg bæting á íslandsmetinu sem hún setti á jólamótinu fyrir rétt um 2 mánuðum síðan. Árangur Erlu dugði henni til 8.sætis í +87kg flokki kvenna.

Erla með 100kg í snörun á Evrópumeistaramótinu í Búlgaríu. Ljósmynd: Isaac Morillas Sanchez (www.worldweightliftingmedia.com)

1 hugrenning um “Friðný Fjóla Jónsdóttir í 15.sæti í -87kg flokki, Erla með þrjú íslandsmet!

  1. Flott frammistaða hjá þeim báðum,og frábært mót á fjölmennasta stórmóti íslendinga í Ól,lyftingum frá upphafi. Til hamingju stelpur,en hvar eru strákarnir???

Skildu eftir svar við Guðmundur Sigurðsson Hætta við svar