Hrund sigraði í 45-49 ára 71kg flokki á Masters Heimsmeistaramótinu í Wieliczka – Póllandi. Með 70kg snörun, 90kg C&J og 160kg samanlagt.

Hrund opnaði í 65kg snörun sem flaug fallega upp hjá henni. Hún tók svo 70kg nokkuð auðveldlega í sinni annarri tilraun. Þess má geta að á mótinu er keppt á tveimur pöllum og Ingunn og Hrund voru báðar að snara 70kg á sama tíma á sitt hvorum pallinum.

Hrund reyndi síðan við 73kg snörun sem var tilraun til heimsmets, en sú lyfta vildi ekki alla leið og 2. sætið í snörun niðurstaðan.
Í C&J opnaði hún í 88kg tilraun, en jerkið var í einhverju ójafnvægi, smá dans með stöngina og lyftan dæmd ógild. Hrund hækkar í 90kg og neglir þá lyftu örugglega. Í síðustu tilraun reyndi Hrund við 94kg og tilraun til heimsmets í flokkinum sínum. Lyftan fór alla leið upp, en eitthvað sáu dómararnir athugavert við lyftuna, gáfu henni tvö rauð og eitt hvítt og því ógilda lyftu.
Hún sigraði engu að síður í C&J.

Hún er því heimsmeistari í sínum flokki með 160kg samanlagt.

Í stigakeppni 45-49 ára hafnaði Hrund svo í 2. sæti.
Innilega til hamingju með Heimsmeistaratitilinn Hrund
Innilegar hamingjuóskir með árangurinn Hrund!! 🙌❤