
Ný stjórn, Jólamót, RIG og fleira
40 ára afmælisþing Lyftingasambands Íslands var haldið 23 nóvember síðastliðinn. Vel var mætt á þingið og hafði Sigríður Jónsdóttir þingforseti og fulltrúi frá ÍSÍ það eftir hversu frábært það væri að sjá þessa miklu grósku í starfi Lyftingasambandsins. Iðkendur í ólympískum lyftingum á Íslandi hafa margfaldast á síðustu þrem árum.
Illugi Gunnarsson menntamálaráðherra var gestur þingsins. Illugi sagði frá sinni eigin reynslu af lyftingum og tók undir gildi íþróttarinnar, bæði líkamlegs eðlis sem og efnahagslegs ávinnings. Hann tók undir orð formanns LSÍ í setningarræðunni um það hversu vel það hentar fólki á öllum aldri að stunda lyftingar sem einstaklings íþróttagrein. Illugi lagði mikla áherslu á það hvað hann saknaði þess mikið að sjá ekki lyftingar í sjónvarpi lengur. Það var ein af þeim íþróttum sem hann man eftir að hafa alist upp við að horfa á í sjónvarpi.
Eftir að menntamálaráðherra lauk ávarpi sínu tók við af honum annar gestur þingsins Ma Jian Ping kínverskur lyftingaþjálfari sem að var þessa sömu helgi með verklegt lyftinganámskeið hjá Lyftingafélagi Garðabæjar. Hann kynnti stuttlega fyrir viðstöddum hvernig staðið er að hlutunum í Kína. Hann fór meðal annars yfir það hvernig afreksstefna kínverja er uppbyggð, hvernig staðið er að vali í landslið þeirra og hvernig undirbúning fyrir stórmót er háttað.
Ný stjórn Lyftingasambands Íslands var kosin, en hún er eftirfarandi: Lárus Páll Pálsson formaður, Árni Björn Kristjánsson varaformaður, Elísabet Sóley Stefánsdóttir gjaldkeri , Ásgeir Bjarnason ritari og Sigmundur Davíðsson meðstjórnandi. Í varastjórn eru Andri Gunnarsson, Arnar Þór Tulinius, Bjarki Guðmundsson og Ingi Gunnar Ólafsson.
Stjórn lyftingasambandsins og varastjórnendur hafa fundað og skipt á milli sín verkum. Það eru gleðitíðindi fyrir sambandið hversu margir áhugasamir einstaklingar hafa gefið sig fram og er ekki von á öðru en góðu lyftingaári.
Næsta lyftingamót verður jólamót LSÍ. Haldið í húsakynnum LFG / CrossFit – XY í Garðabæ laugardaginn 14. desember. Skráningafrestur er til 10. desember á lsi@lsi.is Þátttökugjald er 1000kr og greiðist við skráningu inná reikning 311-26-2992 kt: 430275-0119
Undirbúningur er hafinn fyrir RIG 2014. Mótið verður haldið í húsakynnum LFR /CrossFit Reykjavík laugardaginn 25. janúar.
Lágmörk verða fyrir RIG mótið og er því um að gera fyrir alla þá sem hafa ekki náð lágmörkum eða skráðum árangri að taka þátt í jólamótinu og freista þess að ná þeim.
Lágmörkin eru eftirfarandi:
Karlar
Líkamsþyngd – Snörun – C&J
56 – 56kg – 70kg
62 – 62kg – 80kg
69 – 69kg – 90kg
77 – 77kg – 100kg
85 – 85kg – 105kg
94 – 94kg – 115kg
105 – 100kg – 120kg
105+ – 105kg – 125kg
Konur
Líkamsþyngd – Snörun – C&J .
48 – 30kg – 50kg
53 – 40kg – 55kg
58 – 50kg – 60kg
63 – 55kg – 65kg
69 – 58kg – 68kg
75 – 61kg – 70kg
75+ – 63kg – 72kg
Hægt er að hafa samband við stjórn LSÍ
Lárus Páll Pálsson, laruspallpallsson@gmail.com, 8622432
Elísabet Sóley Stefánsdóttir, elisabet@innihald.is, 8916607/7724474
Árni Björn Kristjánsson, arnib11@gmail.com , 6162694
Ásgeir Bjarnason, asgbjarnason@gmail.com, 8686992
Sigmundur Davíðsson, sigmundur@centrum.is, 6911961
Andri Gunnarsson, andrigun@lv.is, 8990085
Ingi Gunnar Ólafsson, ingigo75@gmail.com, 8664294
Bjarki Guðmundsson, bjarkig28@gmail.com, 8670470
Arnar Þór Tulinius, arnartulinius@gmail.com, 6906582
Íslandsmet hafa verið uppfærð
Skráningar á íslandsmetum hafa verið uppfærðar fyrir jólamótið og má sjá undir Íslandsmet hérna á síðunni.
Alls hafa verið sett á árinu 26 íslandsmet í fullorðinsflokkum og 14 íslandsmet í unglingaflokkum. Þau eru eftirfarandi:
Anna Hulda Ólafsdóttir: 2 íslandsmet í 58kg flokki og 6 íslandsmet í 63kg flokki
Hrannar Guðmundsson: 6 íslandsmet í 77kg flokki
Lilja Lind Helgadóttir: 2 íslandsmet í 75kg flokki og 3 íslandsmet í +75kg flokki, þau met eru einnig stúlkna(-20 ára) og meyja(-17 ára) met
Katrín Tanja Davíðsdóttir: 3 íslandsmet á árinu í 69kg flokki og þau met eru einnig stúlkna(-20 ára) met
Sigurður Bjarki Einarsson: 3 íslandsmet í 94kg flokki
Björgvin Karl Guðmundsson: 1 íslandsmet í 85kg flokki
Darri Már Magnússon: 1 íslandsmet í drengjaflokk(-17 ára)
Veitt verða sérstök verðlaun á jólamóti LSÍ fyrir stigahæstu unglingana í öllum flokkum og hvetjum við unga lyftingamenn til að koma og reyna sig. Skráning fer fram á lsi@lsi.is. Skráningarfrestur er til 10.Desember.
Ef einhverjar meta skráningar hafa farið framhjá stjórninni bendum við á að senda athugasemdir á lsi@lsi.is.
Jólamót LSÍ
Mynd

Lyftingafréttir
Fjölmargt er að gerast núna um þessar mundir í Lyftingaheiminum.
Um næstu helgi þann 23. nóvember verður haldið Lyftingaþing í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal.
Sömu helgi er námskeið sem Lyftingafélag Garðabæjar heldur með Ma Jianping sem er Kínverskur þjálfari og mun sýna okkur hvernig Kínverjarnir eru að lyfta, en Kínverjar hafa náð gríðarlegum árangri í Ólympískum lyftingum og er síðasta heimsmeistaramót sem haldið var í Póllandi gott dæmi um það, þar sem þeir unnu 3 gullverðlaun og 1 silfurverðlaun í samanlögðu (Total) í Karlaflokkum og 3 gullverðlaun, 1 silfurverðlaun og 2 bronsverðaun í samanlögðu (Total) í kvennaflokkum .
Þeir sem eru áhugasamir um þetta námskeið geta skráð sig á þessari vefsíðu: http://chineseweightlifting.com/
Norðan heiða er Akureyrarmót í Ólympískum lyfingum þann 30. Nóvember, áhugasamir geta skráð sig á þessari vefsíðu: http://kfa.is/news.php Í
Íþróttaakademía Keilis hefur verið mjög dugleg við að bjóða upp á frábær námskeið fyrir ólympískar lyftingar og almenna styrktarþjálfun. Nú um síðustu helgi kom Dietmar Wolf til landsins of fór yfir þjálfunarálag við lyftingar. Dietmar stundaði Ólympískar lyftingar áður en hann snéri sér að þjálfun í kraftlyftingum og hefur náð frábærum árangri. Von er á Dietmar aftur til landsins í byrjun nærsta árs og verður áhugavert að fylgjast með honum.
Nánir upplýsingar eru á heimasíðu Keilis.
Fjölmörg ný Lyftingafélög eru að koma upp nú um þessar mundir og vill Stjórn Lyftingasambandsins hvetja þá sem hafa áhuga á Ólympískum lyftingum að hafa samband við okkur til þess að við getum hjálpað til við stofnunina og/eða að finna lyftingafélag sem er nálægt þér til þess að þú getir byrjað.
Ef þú hefur áhuga á að stunda Ólympískar lyftingar, endilega hafðu samband við LSÍ með tölvupósti á lsi@lsi.is
Lilja Lind Norðurlandameistari.
Unglingalandsliðið komið til Kaupmannahafnar!
Mynd
Lyftingaþing Lyftingasambands Íslands (2. boðun)
Reykjavík, 23.10.2013
Lyftingaþing Lyftingasambands Íslands verður haldið í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal sem er staðsett að Engjavegi 6, þann 23. nóvember 2013. Dagskrá hefst kl. 15.00
Tilkynna skal framboð til stjórnar og/eða málefni sem sambandsaðilar vilja að tekin verði fyrir á þinginu með tölvupósti á lsi@lsi.is fyrir föstudaginn 8. nóvember.
Dagskrá
1) Þingsetning.
2) Kosin kjörbréfanefnd 3ja manna.
3) Kosning fyrsta og annars þingforseta og tveggja þingritara.
4) Kosnar nefndir þingsins.
Nefndir þessar eru skipaðar 3 mönnum hver.
5) Fráfarandi stjórn gefur skýrslu sína
6) Gjaldkeri leggur fyrir endurskoða reikninga sambandsins til samþykktar.
7) Stjórn leggur fram fjárhagsáætlun fyrir næsta ár.
8) Lagðar fram laga- og leikreglnabreytingar þær, sem fram hafa komið.
9) Teknar til umræðu aðrar tillögur og önnur mál sem borist hafa til stjórnarinnar, svo og önnur mál er þingið vill ræða.
ÞINGHLÉ
10) Nefndarálit og tillögur og atkvæðagreiðsla um þær.
11) Ákveðið gjald æfifélaga
12) Kosning stjórnar, varastjórnar, endurskoðenda og fulltrúa á Íþróttaþing.
a) Formaður.
b) 1-2 úr fráfarandi stjórn.
c) 2-3 meðstjórnendur.
d) 3 varamenn.
e) 2 endurskoðendur,
f) Fulltrúi Íþróttaþing.
13) Kosnir 3 menn í lyftingadómstól og 3 til vara.
14) Kosinn formaður dómaranefndar.
15) Önnur mál.
16) Þingfundargerðir lesnar og staðfestar.
17) Þingslit.
Vinsamlega staðfestið þáttöku ykkar eins og að ofan greinir með tölvupósti á lsi@lsi.is.
Fyrir hönd Lyftingasambands Íslands
Stjórn Lyftingasambands Íslands
Lyftingaþingi Lyftingasamband Íslands frestað
Lyftingaþinginu sem átti að vera núna þann 20. október hefur verið frestað vegna ófullnægjandi boðunar til aðilarfélaga.
Stjórnin harmar þau óþægindi sem af þessu kunna að hljótast. Áhugasömum sem hafa áhuga á að starfa innan Lyftingasambandssins er bent á að almennur félagafundur verður haldin í staðinn í A-Sal ÍSÍ að Engjavegi 6, kl. 14.00 sama dag og hugsanlega verður horft á myndbrot frá Heimsmeistaramótinu í Ólympískum lyftingum sem fram fer nú um helgina í Póllandi.
Stjórnin
Úrslit frá Haustmóti 2013
Haustmót LSÍ var haldið þann 28. september 2013 í Sporthúsinu.
Mótið heppnaðist vel, en keppt var í sinclair stigum í kvenna og karlaflokki. Úrslit fóru svo að Árni Björn Kristjánsson fór með sigur úr bítum í karlaflokki með 271,17 stig og Þuríður Erla Helgadóttir sigraði kvennaflokkinn með 212,86 stig. Heildar úrslit má sjá hér að neðan:
Í karlaflokki:
| Þfl | Nafn | Fæðingarár | Líkamsþyngd | Besta Snara | Besta Jafnhending | Samtals | Sæti | Sinclair |
| -105 | Árni Björn Kristjánsson | 1987 | 104.85 | 110 | 138 | 248 | 1 | 271.17 |
| -85 | Einar Orri Pétursson | 1991 | 83.10 | 65 | 85 | 150 | 7 | 181.31 |
| -69 | Róbert Eyþórsson | 1991 | 68.60 | 72 | 92 | 164 | 5 | 221.45 |
| -77 | Stefán Snær Stefánsson | 1992 | 76.25 | 70 | 95 | 165 | 6 | 208.94 |
| -85 | Davíð Björnsson | 1995 | 80.05 | 84 | 110 | 194 | 4 | 239.13 |
| -94 | Árni Freyr Bjarnason | 90.50 | 100 | 131 | 231 | 3 | 267.97 | |
| -94 | Sigurður Hafsteinn Jónsson | 1990 | 89.61 | 100 | 130 | 230 | 2 | 268.01 |
Í kvennaflokki:
| Þfl | Nafn | Fæðingarár | Líkamsþyngd | Besta Snara | Besta Jafnhending | Samtals | Sæti | Sinclair |
| -63 | Þuríður Erla Helgadóttir | 1991 | 60.05 | 70 | 85 | 155 | 1 | 212.86 |
| -75 | Erna Héðinsdóttir | 1976 | 69.60 | 45 | 60 | 105 | 6 | 131.09 |
| -63 | Svanhildur Vigfúsdóttir | 1977 | 59.50 | 55 | 72 | 127 | 3 | 175.54 |
| -75 | Hildur Grétarsdóttir | 72.40 | 63 | 78 | 141 | 5 | 172.1 | |
| -75 | Lilja Lind Helgadóttir | 1996 | 74.75 | 67 | 84 | 151 | 2 | 181.12 |
| (+)75 | Hildur Björk Þórðardóttir | 1985 | 96.25 | 38 | 50 | 88 | 7 | 94.59 |
| -75 | Birgit Rós Becer | 1989 | 69.45 | 60 | 80 | 140 | 4 | 175.01 |





