Ísland kom sá og sigraði smáþjóðamótið í lyftingum sem fram fór í Möltu núna um helgina. Ísland vann liðakeppni senior, liðakeppni kvenna og var í öðru sæti í liðakeppni karla. Þá var Eygló Fanndal stigahæst allra kvenna og Guðný Björk önnur í stigakeppni kvenna og Bergur í öðru sæti í stigakeppni karla.
Ísland endaði með 1244.02 stig, Malta með 1195.80 stig, Kýpur 1158.09 stig, Færeyjar 1047.8 stig, Lúxemborg 958.74 stig, Mónakó 766.53 stig og San Marino 752.20 stig. Þetta er þriðja smáaþjóðamótið í röð sem Ísland vinnur stigakeppnina. Smáþjóðamótið í lyftingum er haldið árlega og var þetta 46.árið í röð sem mótið er haldið og er það í raun eldra en hinir eiginlegu smáþjóðleikar.
Hægt er að sjá upptöku frá mótinu á vef EWF TV, það er frítt en það þarf að skrá sig.
Freyja Björt hóf leikinn í D grúppu kvenna sem junior keppandinn okkar með 58kg góðri snörun, hún gerði svo tvær tilraunir við 61kg sem hún náði því miður ekki. Í C&J opnaði hún í 75kg, tók því næst 80kg og reyndi svo við 84kg í lokalyftunni en hún fór ekki upp.
Kári Steinn var næstur á pallinn. Hann snaraði 112-116-120kg. Hann opnaði svo í 141kg í jafnhendingu og tók svo 145kg í annarri tilraun. Í þriðju tilraun reyndi hann við 150kg sem fóru ekki upp.
Næst var komið að B grúppu karla þar sem Bergur opnaði í snörun með 131kg. Í tilraun tvö snaraði hann 135kg en 140kg í þriðju tilraun fóru ekki upp. Hann opnaði svo með 150kg góðri lyftu í jafnhendingu. Reyndi svo tvisvar sinnum við 160kg og var seinni lyftan gild.
Í A grúppu karla lyfti Þórbergur Ernir, hinn junior keppandi liðsins, 130kg í fyrstu tilraun í snörun. 134 og 136kg í tilraun tvö og þrjú vildu hins vegar ekki upp að þessu sinni. Hann reyndi síðan við 160kg í fyrstu tilraun jafnhendingar, sem fór ekki upp. Tók þá 161kg í tilraun tvö og hækkaði svo í 177kg í þriðju tilraun sem var tilraun til 5 kílóa persónulegrar bætingar. Cleanið fór upp en ekki jerkið að þessu sinni.
Guðný Björk ogEygló Fanndalvoru svo síðastar á pallinn í A grúppu kvenna. Guðný opnaði með 90kg snörun. Missti svo 93kg í tilraun tvö en náði svo 96kg í þriðju tilraun. Í jafnhendingu opnaði hún með 115kg góðri lyftu. Tók svo 119kg í tilraun tvö en rétt missti svo 122kg í þriðju tilraun.
Eygló létti sig ekki fyrir mótið og lyfti því í -76kg flokki, en yfirleitt keppir hún í -71kg flokk. Hún tók seríuna 100-103-106kg í snörun. Opnaði með 125kg í jafnhendingu, tók svo 130kg í annarri lyftu og rétt missti svo jerkið í 134kg lokalyftu sinni en það hefði gefið Eygló 240kg í samanlögðum árangri. Allt voru þetta ný Íslandsmet en Guðný átti metin 97+121 = 218kg. Ef Eygló hefði lyft 134kg í -71kg flokk þá væri þetta 1kg bætingu á Norðurlandameti hennar í samanlögðum, einnig hefði 134kg verið bæting á norðurlandameti Patriciu Strenius í jafnhendingu sem er 133kg.
Líklegt er að Evrópumeistaramótið sem hefst um miðjan Apríl verði síðasta mót landsliðsfólks okkar í þessum þyngdarflokkum þar sem alþjóðalyftingasambandið mun byrja með nýja þyngdarflokka 1.Júní.
Hér má sjá streymi og upptökur frá öllum flokkum á Smáþjóðamótinu: https://ewfsport.tv/live. Kári og Freyja Björt luku keppni í dag en Bergur keppir á morgun, sunnudag klukkan 8:30, Þórbergur klukkan 13:00 og Eygló og Guðný klukkan 15:00 á íslenskum tíma.
Smáþjóðamótið í ólympískum lyftingum fer fram í Möltu næstkomandi laugardag og sunnudag. Mótið er liðakeppni þjóða sem hafa eina milljón íbúa eða færri og eru aðilar að Smáþjóðasambandinu. Mótið er haldið samhliða Opna Möltu mótinu og þátttökuþjóðirnar í ár eru 15 talsins og keppendur 125 talsins á mótunum tveimur.
Í hverju liði keppa 2 senior karla og 2 senior konur en auk þess junior (20 ára og yngri) lið skipað einum keppanda af hvoru kyni. Mótið er Sinclairstigamót og verðlaunað er fyrir stigahætsta liðið, stigahæsta lið karla og stigahæsta lið kvenna auk stigahæstu keppenda af hvoru kyni. Þess má geta að Ísland hefur sigrað liðakeppnina síðastliðin tvö ár og á því titil að verja.
Íslandsmeistaramót ungmenna var haldið laugardaginn 8.mars síðastliðinn. Lyftingadeild ÍA hélt mótið í samstarfi við LSÍ í húsakynnum Ægis gym á Akranesi. 23 keppendur mættu til leiks, 13 konur og 10 karlar, frá sex félögum. Sambandið þakkar öllum styrktaraðila mótsins, M-Fitness.
Emilía Nótt Davíðsdóttirvar stigahæst allra kvenna á mótinum, þvert á þyngdar-og aldursflokka með 196.9 Sinclair stig (151kg í samanlögðum árangri) og Rökkvi Hrafn Guðnason var stiguhæstur karla, með 329.9 Sinclair stig (270kg í samanlögðum árangri). Þetta er besti árangur Rökkva í samanlögðu og sinclair stigum en nokkur ár eru síðan að Rökkvi keppti síðast.
Í flokki 15 ára og yngri setti yngsti keppandi mótsins, Tristan Bergmann Einarsson, LFR, níu íslandsmet. Hann setti met í hverri snörum í seríunni 30-33-37 og í hverri jafnhendingunni í seríunni 50-54-57 og samanlögðum árangri 87-91-94kg.
Úrslit í karlaflokkum
Íslandsmeistari í flokki U15 -61kg Tristan Bergmann Einarsson (Lyftingafélag Reykjavíkur)
Íslandsmeistari í flokki U15 -73kg Theodór Einar Magnússon (Lyftingafélag Reykjavíkur)
Íslandsmeistari í flokki U17 -81kg Kristófer Logi Hauksson (Lyftingafélag Kópavogs)
Íslandsmeistari í flokki U17 -89 Guðjón Gauti Vignisson (Lyftingadeild ÍA)
Íslandsmeistari í flokki U20 -73 Kristinn Hilmarsson (Lyftingafélag Reykjavíkur)
Af óviðráðanlegum ástæðum er lyftingaþingi LSÍ frestað til 2.apríl nk.
Allir velkomnir, aðeins skráðir fulltrúar félaga hafa atkvæðisrétt og við vonumst til að sjá sem allra flesta formenn og/eða framkvæmdastjóra á þinginu. Hér er fjöldi fulltrúa sem hvert félag getur tekið sent á þingið.
Íslandsmeistaramót LSÍ var haldið laugardaginn 8.febrúar síðastliðinn. Lyftingarfélag Mosfellsbæjar hélt mótið í samstarfi við LSÍ í húsakynnum WorldFit á Tjarnarvöllunum í Hafnarfirði. 44 keppendur mættu til leiks, 13 karlar og 31 kona, frá sjö félögum. Sambandið þakkar öllum styrktaraðilum mótsins sem og WorldClass/WorldFit fyrir afnot af húsnæði.
Besta lyftingarkona og lyftingamaður mótsins
Eygló Fanndal Sturludóttir var stigahæst allra kvenna á mótinum, þvert á þyngdarflokka með 280.2 Sinclair stig (229kg í samanlögðum árangri) og Þórbergur Ernir Hlynsson var stiguhæstur karla, með 349.2 Sinclair stig (307kg í samanlögðum árangri). Þetta er besti árangur Þórbergs á Sinclair stigum.
Fitness Sport veitti verðlaun fyrir besta lyftingafólkið.
Lyftingakona og lyftingamaður mótsins
19 ný íslandsmet voru sett á mótinu
Í karlaflokki setti Þórbergur Erni Hlynsson, frá LFR tvö íslandsmet í fullorðins/opnum flokki -102kg, 172kg í jafnhendingu og 307kg í samanlögðu. Þórbergur var að keppa í annað skipti í -102kg flokki en áður hefur hann yfirleitt keppt í -96kg flokki. Hann setti íslandsmet í snörun í flokki 20 ára og yngri og 23 ára og yngri þegar hann lyfti 135kg. Með þeirri lyftu jafnaði hann einnig met Bjarma Hreinssonar í fullorðinsflokki sem staðið hefur frá árinu 2019. Þórbergur setti einnig tvö met í unglingaflokkum í jafnhendingu, fyrst með 165kg opnunarlyftu sinni og svo með 172kg í annarri tilraun. Með þeirri lyftu sló hann einnig met í samanlögðum árangri með total upp á 300kg og loks 307kg.
Í kvennaflokki setti Guðný Björk Stefánsdóttir, Lyftingafélagi Kópavogs, setti þrjú íslandsmet í -76kg flokki kvenna en hún vigtaðist fislétt inn í flokkinn 71.2kg. Í snörun lyfti hún 97kg best, 121kg í jafnhendingu og því samanlagt 218kg sem allt voru ný íslandsmet í fullorðins/opnum flokki. Jafnhendingin og samanlagður árangur var persónulegt met hjá Guðný á móti.
Duc Hung Bui, frá Lyftingafélagi Reykjavíkur, íslandsmet í flokki 35-39 ára með 90kg jafnhendingu í -67kg flokki. Haukur Parelius Finnson frá Lyftingarfélagi Reykjavíkur, setti íslandsmet í -89kg í flokki 55-59 ára með opnunarlyftu sinni, 71kg í snörun.
Disa Edwards, frá Massa, fjögur íslandsmet í -64kg flokki 35-39 ára. Disa setti met í snörun þegar hún lyfti 62kg og í jafnhendingu, fyrst með 73kg lyftu og svo aftur þegar hún jafnhenti 76 kílóum. Þá setti hún met í samanlögðu með 138kg.
Í -87kg flokki, 60-64ára setti aldursforseti mótsins, Steinunn Sveinsdóttir frá Lyftingarfélagi Kópavogs, sex íslandsmet, eitt í snörun, 28kg og tvö í jafnhendingu og þrjú í samanlögðum árangri en Steinunn setti íslandsmet í hverri tilraun í jafnhendingar seríunni 34-36-38kg og í samanlögðum árangri með 62-64-66kg.
Að lokum setti Anna Guðrún Halldórsdóttir, Lyftingadeild Hamars, tvö met í +87kg flokki 55-59 ára. Anna Guðrún setti met þegar hún snaraði í annarri tilraun 57kg og jafnhenti í 78kg. Lyftingasambandið hefur skráð masters met þannig að ef eldri keppandi lyftir yfir meti í yngri aldursflokkum þá fær hann einnig metin skráð þar, Anna Guðrún fékk því skráð alls 15 met á sig í flokkum M35-39, M40-44, M45-49, M50-54 og M55-59.
Íslandsmeistarar í karlaflokki
Íslandsmeistari í -73kg flokki: Kristinn Hilmarsson (Lyftingarfélagi Reykjavíkur)
Íslandsmeistari í -89kg flokki: Sigurður Darri Rafnsson- Lyftingafélagi Reykjavíkur, Jóhann Valur Jónsson (Lyftingafélagi Kópavogs), 3.sæti Konráð Krummi Sigurðsson (Lyftingafélagi Kópavogs)
Nú þegar Íslandsmeistaramót fullorðinna er nýafstaðið hefst skráning á Íslandsmeistaramót unglinga sem haldið verður af Lyftingadeild ÍA í húsnæði ÆGIS GYM á Akranesi, laugardaginn 8.mars nk.