Af óviðráðanlegum ástæðum er lyftingaþingi LSÍ frestað til 2.apríl nk.
Allir velkomnir, aðeins skráðir fulltrúar félaga hafa atkvæðisrétt og við vonumst til að sjá sem allra flesta formenn og/eða framkvæmdastjóra á þinginu. Hér er fjöldi fulltrúa sem hvert félag getur tekið sent á þingið.
Íslandsmeistaramót LSÍ var haldið laugardaginn 8.febrúar síðastliðinn. Lyftingarfélag Mosfellsbæjar hélt mótið í samstarfi við LSÍ í húsakynnum WorldFit á Tjarnarvöllunum í Hafnarfirði. 44 keppendur mættu til leiks, 13 karlar og 31 kona, frá sjö félögum. Sambandið þakkar öllum styrktaraðilum mótsins sem og WorldClass/WorldFit fyrir afnot af húsnæði.
Besta lyftingarkona og lyftingamaður mótsins
Eygló Fanndal Sturludóttir var stigahæst allra kvenna á mótinum, þvert á þyngdarflokka með 280.2 Sinclair stig (229kg í samanlögðum árangri) og Þórbergur Ernir Hlynsson var stiguhæstur karla, með 349.2 Sinclair stig (307kg í samanlögðum árangri). Þetta er besti árangur Þórbergs á Sinclair stigum.
Fitness Sport veitti verðlaun fyrir besta lyftingafólkið.
Lyftingakona og lyftingamaður mótsins
19 ný íslandsmet voru sett á mótinu
Í karlaflokki setti Þórbergur Erni Hlynsson, frá LFR tvö íslandsmet í fullorðins/opnum flokki -102kg, 172kg í jafnhendingu og 307kg í samanlögðu. Þórbergur var að keppa í annað skipti í -102kg flokki en áður hefur hann yfirleitt keppt í -96kg flokki. Hann setti íslandsmet í snörun í flokki 20 ára og yngri og 23 ára og yngri þegar hann lyfti 135kg. Með þeirri lyftu jafnaði hann einnig met Bjarma Hreinssonar í fullorðinsflokki sem staðið hefur frá árinu 2019. Þórbergur setti einnig tvö met í unglingaflokkum í jafnhendingu, fyrst með 165kg opnunarlyftu sinni og svo með 172kg í annarri tilraun. Með þeirri lyftu sló hann einnig met í samanlögðum árangri með total upp á 300kg og loks 307kg.
Í kvennaflokki setti Guðný Björk Stefánsdóttir, Lyftingafélagi Kópavogs, setti þrjú íslandsmet í -76kg flokki kvenna en hún vigtaðist fislétt inn í flokkinn 71.2kg. Í snörun lyfti hún 97kg best, 121kg í jafnhendingu og því samanlagt 218kg sem allt voru ný íslandsmet í fullorðins/opnum flokki. Jafnhendingin og samanlagður árangur var persónulegt met hjá Guðný á móti.
Duc Hung Bui, frá Lyftingafélagi Reykjavíkur, íslandsmet í flokki 35-39 ára með 90kg jafnhendingu í -67kg flokki. Haukur Parelius Finnson frá Lyftingarfélagi Reykjavíkur, setti íslandsmet í -89kg í flokki 55-59 ára með opnunarlyftu sinni, 71kg í snörun.
Disa Edwards, frá Massa, fjögur íslandsmet í -64kg flokki 35-39 ára. Disa setti met í snörun þegar hún lyfti 62kg og í jafnhendingu, fyrst með 73kg lyftu og svo aftur þegar hún jafnhenti 76 kílóum. Þá setti hún met í samanlögðu með 138kg.
Í -87kg flokki, 60-64ára setti aldursforseti mótsins, Steinunn Sveinsdóttir frá Lyftingarfélagi Kópavogs, sex íslandsmet, eitt í snörun, 28kg og tvö í jafnhendingu og þrjú í samanlögðum árangri en Steinunn setti íslandsmet í hverri tilraun í jafnhendingar seríunni 34-36-38kg og í samanlögðum árangri með 62-64-66kg.
Að lokum setti Anna Guðrún Halldórsdóttir, Lyftingadeild Hamars, tvö met í +87kg flokki 55-59 ára. Anna Guðrún setti met þegar hún snaraði í annarri tilraun 57kg og jafnhenti í 78kg. Lyftingasambandið hefur skráð masters met þannig að ef eldri keppandi lyftir yfir meti í yngri aldursflokkum þá fær hann einnig metin skráð þar, Anna Guðrún fékk því skráð alls 15 met á sig í flokkum M35-39, M40-44, M45-49, M50-54 og M55-59.
Íslandsmeistarar í karlaflokki
Íslandsmeistari í -73kg flokki: Kristinn Hilmarsson (Lyftingarfélagi Reykjavíkur)
Íslandsmeistari í -89kg flokki: Sigurður Darri Rafnsson- Lyftingafélagi Reykjavíkur, Jóhann Valur Jónsson (Lyftingafélagi Kópavogs), 3.sæti Konráð Krummi Sigurðsson (Lyftingafélagi Kópavogs)
Nú þegar Íslandsmeistaramót fullorðinna er nýafstaðið hefst skráning á Íslandsmeistaramót unglinga sem haldið verður af Lyftingadeild ÍA í húsnæði ÆGIS GYM á Akranesi, laugardaginn 8.mars nk.
– Um námskeiðið: Í nýja og endurbætta námskeiðinu Sterkari Hugur kennir Íslandsmethafinn í spjótkasti og þrefaldi Ólympíufarinn Ásdís Hjálmsdóttir Annerud okkur að þjálfa hugann til þess að verða andlega sterkara íþróttafólk og geta náð okkar besta árangri þegar það skiptir mestu máli. Farið verður í af hverju allt íþróttafólk þarf að þjálfa hugann líka, Ásdís segir sína sögu þegar kemur að hugarþjálfun, kennir sínar 5 grunnaðferðir í hugrænni þjálfun og sýnir okkur nákvæmlega hvernig við getum notað þær til að undirbúa okkur fyrir keppni og byggja upp sjálfstraust.
Lyftingakonan Bergrós Björnsdóttir var útnefnd íþróttakona Árborgar 2024 á uppskeruhátíð fræðslu- og frístundanefndar Árborgar sem haldin var á Hótel Selfossi í gær.
Þrettán karlar og ellefu konur voru tilnefnd voru í kjörin en sérskipuð valnefnd kaus á milli íþróttafólksins ásamt því sem almenningur kaus í netkosningu.
Bergrós vann silfur í -71kg flokki kvenna á Heimsmeistaramóti 17 ára og yngri í Perú en þetta eru fyrstu verðlaun sem Íslendingur vinnur á HM í ólympískum lyftingum frá upphafi. Á HM bætti hún Íslandsmetið í sínum aldurs- og þyngdarflokki, bæði í jafnhendingu og snörun. Bergrós á nú öll Íslandsmetin undir 15 ára og undir 17 ára í -64 og -71 kg flokki.
Lyftingakonan Anna Guðrún Halldórsdóttir var þann 5.janúar sl. kjörin íþróttamaður Hveragerðis árið 2024.
Sex íþróttamenn voru tilnefndir í ár.
Anna Guðrún er núverandi heims- og evróupumeistari í -87 kg flokki 55-59 ára. Þá hefur hún sett fjölda Íslandsmeta, Evrópumeta og heimsmeta í sínum aldursflokki og er núverandi íslands- Evrópu- og heimsmethafi í flokki 55-59 ára í 87 og +87 kg flokki. Þá keppti hún í apríl á miðjarðahafsmóti í Durres í Albaníu þar sem hún vann gull og var valin Grand master með flest stig reiknuð ásamt því að setja Evrópu- og heimsmet.
Við óskum þeim Bergrósu og Önnu Guðrúnu innilega til hamingju!
Íslandsmót senior verður haldið á höfuðborgarsvæðinu þann 8.febrúar nk. Skráning er hafin á mótið og henni lýkur 24.janúar nk. klukkan 23:59.
Með fyrirvara um fjölda keppenda þá er stefnt að því að klára mótið að öllu leyti á laugardeginum.
Mótið er þyngdarflokkamót og 3 stigahæstu einstaklingarnir í hverjum þyngdarflokki eru verðlaunaðir. Afrek á results.is eru skráð í þann þyngdarflokk sem einstaklingurinn skráir sig í, hægt er að skipta um þyngdaflokk þar til daginn fyrir mót. Vinsamlegast sendið þyngdarflokkabreytingar á lsi@lsi.is.
Keppnisgjald er kr. 7500,- og greiðir félag keppenda til mótshaldara.