
Katla Björk Ketilsdóttir keppir á HM unglinga 17 ára og yngri kl.01:00 á íslenskum tíma í nótt í -58 kg flokki
Hægt er að fylgjast með hér

Katla Björk Ketilsdóttir keppir á HM unglinga 17 ára og yngri kl.01:00 á íslenskum tíma í nótt í -58 kg flokki
Hægt er að fylgjast með hér
Katla Björk Ketilsdóttir (UMFN) mun keppa á HM 17 ára og yngri sem fram fer í Bankok klukkan 1:00 í nótt (6.Apríl). Hún keppir klukkan 8:00 á staðartíma og er að fara að fara að hefja vigtun þegar þetta er skrifað.
Katla keppir í stórum C-hópi keppenda (15 keppendur), Katla er ein norðurlandabúa sem keppir á mótinu. En alls eru 44 keppendur skráðir í -58kg flokk kvenna sem er fjölmennasti þyngarflokkurinn í kvenna keppninni. Mótið er undankeppni fyrir Ólympíuleika æskunnar (f.2001 eða fyrr) sem fara fram á næsta ári og er þetta mót því sérstaklega fjölmennt 445 keppendur, 197 konur og 248 karlar.

Íslandsmet Kötlu í -58kg flokki 17 ára og yngri, 20 ára og yngri og 23 ára og yngri eru:
Snörun: 69kg
Jafnhendingu: 82kg
Samanlagt: 151kg
Norðurlandametin í -58kg flokki 17 ára og yngri eru líklegast eftirfarandi en vitað er að Suvi Talasterä lyfti 88kg á árinu 2016 og spurning hvort það hafi verið á móti sem gilti til norðurlandameta, en hún er kominn upp um flokk núna.
-58 kg
Snörun 72kg Heidi Kanervisto 1981 FIN 11-11-1998 Lahti (FIN)
Jafnhending 87kg Suvi Talasterä 1999 FIN 29.10.2016 Hafnarfjordur(ISL)
Samanlagt 158kg Suvi Talasterä 1999 FIN 29.10.2016 Hafnarfjordur(ISL)

Opið lyftingamót UMSK verður haldið 23.apríl næstkomandi í Sporthúsinu í kópavogi.
Skráningafrestur er til 18.apríl á lsi@lsi.is
Í skráningu þarf að koma fram þyngdarflokkur, lyftingafélag og kennitala.
Athugið að lyftingafélögin þurfa að greiða fyrir keppendur sína áður en keppandi mætir í vigtun.
Þuríður Erla Helgadóttir keppti í dag á EM og endaði í 13 sæti af 20 keppendum. Þuríður Snaraði 79 kg og Jafnhenti 103 kg. Hún átti góða tilraun við 83kg í snörun sem hún fékk dæmda ógilda vegna press out. Hún reyndi svo við 106 og 107 í janhendingu en náði ekki að klára þær lyftur að þessu sinni.
Með þessum lyftum fékk Þurí 249 sinclair stig.
Andri Gunnarsson keppir svo á föstudaginn 7,apríl kl.11 á staðartíma en það er klukkan 13 á íslenskum tíma
Þuríður Erla Helgadóttir keppir klukkan 9:00 í fyrramálið (4.Apríl) á Evrópumeistaramótinu í Ólympískum Lyftingum sem fram fer í Split í Króatíu. Þuríður keppir í B-hóp í -63kg flokki kvenna en hún á þriðja besta árangurinn af 12 keppendum í hópnum (190kg). Hægt er að fylgjast með Þuríði keppa á heimasíðu Evrópska Lyftingasambandsins (EWF) þar sem bæði er keppnistafla og bein útsending.

Í A-grúppu eru síðan 9 konur, A-grúppan verður sýnd beint á Eurosport 17:25 á morgun en allar A-grúppur mótsins eru sýndar beint á Eurosport. Þar er íslands vinkonan Anni Vuohijoki meðal keppenda.

Sjöunda vísindarit EWF er komið út og eins og vanalega er það stútfullt af fróðleik:
http://www.ewfed.com/Magazine/EWF_Scientific_Magazine_EWF_N7.pdf


Þuríður Erla Helgadóttir mun keppa í -63kg flokki á þriðjudaginn 4.apríl í Split í Króatíu
Keppendalista má sá hér
Katla Björk Ketilsdóttir (UMFN) keppir í sterkum -58kg flokki á HM 17 ára og yngri í Taílandi.
Skráningarlistinn er eftirfarandi, raðað eftir löndum í stafrófsröð:
| NR | SEX | Name | Born | NAT | CATEGORY | ENTRY | |
| 120 | W | CHAMOUN | Sabah | 9.7.2000 | AUS | 58 | 160 |
| 99 | W | VALODZKA | Siuzanna | 17.8.2000 | BLR | 58 | 185 |
| 105 | W | SHCHAPANAVA | Alina | 12.4.2000 | BLR | 58 | 175 |
| 100 | W | SHATOVA | Galya | 29.8.2001 | BUL | 58 | 180 |
| 103 | W | ILIEVA | Atanaska | 14.6.2000 | BUL | 58 | 175 |
| 140 | W | RIOS | MANRIQUEZ | 9.6.2002 | CHI | 58 | 120 |
| 109 | W | RODRIGUEZ | QUINTERO | 20.2.2002 | COL | 58 | 175 |
| 114 | W | RODRIGUEZ | ARAYA | 14.4.2000 | CRC | 58 | 170 |
| 133 | W | BAGUI | CASTRO | 14.4.2002 | ECU | 58 | 140 |
| 134 | W | BREITNER | Vivien | 5.11.2000 | HUN | 58 | 137 |
| 135 | W | OLAH | Natalia | 18.12.2000 | HUN | 58 | 135 |
| 110 | W | STUDY | Bernadicta | 2.3.2002 | INA | 58 | 175 |
| 116 | W | MANE | Trupti | 20.9.2001 | IND | 58 | 165 |
| 124 | W | CHANU | Yumnam | 1.4.2000 | IND | 58 | 154 |
| 125 | W | KETILSDOTTIR | Katla | 8.11.2000 | ISL | 58 | 151 |
| 129 | W | CORBU | Giulia | 27.4.2000 | ITA | 58 | 149 |
| 132 | W | GALLISAI | Martina | 21.3.2001 | ITA | 58 | 144 |
| 115 | W | GUSHIKEN | Rina | 18.3.2000 | JPN | 58 | 165 |
| 118 | W | HASHIMOTO | Sumire | 2.2.2001 | JPN | 58 | 162 |
| 128 | W | SERIKBOLKYZY | Makhabbat | 10.12.2001 | KAZ | 58 | 150 |
| 131 | W | ZHUNIS | Guldana | 28.5.2000 | KAZ | 58 | 145 |
| 142 | W | XAIYASIT | Alisa | 16.2.2001 | LAO | 58 | 50 |
| 138 | W | AZHARI | Siti | 29.4.2004 | MAS | 58 | 122 |
| 102 | W | ROJAS | GONZALEZ | 19.3.2002 | MEX | 58 | 176 |
| 111 | W | GONZALEZ | SAN | 23.2.2000 | MEX | 58 | 171 |
| 130 | W | ENKHBAT | Batchimeg | 2.4.2002 | MGL | 58 | 145 |
| 139 | W | HAMPTON | Stella | 9.2.2000 | NZL | 58 | 120 |
| 107 | W | PAREDES | VASQUEZ | 4.8.2000 | PER | 58 | 175 |
| 137 | W | MORALES | HERNANDEZ | 11.10.2000 | PUR | 58 | 130 |
| 112 | W | MOROSAN | Marinela | 16.8.2001 | ROU | 58 | 170 |
| 121 | W | KHADZHIEVA | Ekaterina | 1.1.2000 | RUS | 58 | 160 |
| 122 | W | BYCHOK | Alena | 7.8.2002 | RUS | 58 | 158 |
| 104 | W | EMDU | Ailada | 23.10.2000 | THA | 58 | 175 |
| 141 | W | DOVLETOVA | Feruza | 3.9.2004 | TKM | 58 | 113 |
| 126 | W | KE | Yu-Fan | 11.7.2000 | TPE | 58 | 150 |
| 136 | W | XIE | Ya-Ling | 30.7.2001 | TPE | 58 | 130 |
| 123 | W | RAHMOUNI | Chaima | 25.3.2001 | TUN | 58 | 155 |
| 98 | W | LEVENT | Nuray | 8.5.2000 | TUR | 58 | 195 |
| 119 | W | TASCI | Gulsen | 14.2.2002 | TUR | 58 | 160 |
| 127 | W | SHYSHANOVA | Daria | 11.5.2003 | UKR | 58 | 150 |
| 117 | W | NEAL | Shelby | 27.3.2000 | USA | 58 | 162 |
| 101 | W | FAYZULLAEVA | Kumushkhon | 20.1.2002 | UZB | 58 | 180 |
| 113 | W | ABDULLAEVA | Shakhlokhon | 19.8.2001 | UZB | 58 | 170 |
| 106 | W | FERNANDEZ | APONTE | 22.5.2000 | VEN | 58 | 175 |
| 108 | W | SANTIAGO | Elizabeth | 25.3.2000 | VEN | 58 | 175 |
Vísindaráðstefna EWF var haldin í Slóvakíu í byrjun Mars og átti Ísland tvo fulltrúa á henni þá Harald Björn Sigurðsson (Ármann) og Eyþór Einarsson (UMFN). Evrópska lyftingasambandið (EWF) er búið að hlaða upp fyrirlestrum sem fram fóru þar: http://www.ewfed.com/news_det.php?id=155
Ný stjórn var kosinn á 43.Lyftingaþingi LSÍ sem haldið var síðasta laugardag (11.Mars).
Út úr stjórn fór Árni Björn Kristjánsson sem hlaut silfurmerki ÍSÍ að launum á þinginu fyrir starfs sitt í þágu LSÍ. Hildur Grétarsdóttir sem hefur verið gjaldkeri sambandsins síðustu 2 ár fór einnig úr stjórn ásamt þremur varamönnum: Lárus Pál Pálssyni, Vilhelm Patrick Bernhöft og Jakob Daníel Magnússyni. Öllum er þeim þakkað góð störf.
Nýja stjórnin er skipuð eftirfarandi:
Formaður: Ásgeir Bjarnason
Varaformaður: Ingi Gunnar Ólafsson
Ritari: Stefán Ragnar Jónsson
Gjaldkeri: Katrín Erla Bergsveinsdóttir
Meðstjórnandi: Erna Björk Kristinsdóttir
Varastjórn:
Grétar Skúli Gunnarsson
María Rún Þorsteinsdóttir
Rúnar Kristmansson
Jakobína Jónsdóttir
—
Sjá þinggerð 43.Lyftingaþings hér
Ársskýrslu LSÍ má nálgast hér
Ný lög sambandsins má nálgast hér
Ný samþykktar mótareglur sambandsins má nálgast hér
Ný samþykkt reglugerð um Liðabikar LSÍ má nálgast hér
Ný samþykkt reglugerð um Íslandsmeistaratitil liða má nálgast hér