Meistaramót UMSK: Keppendalisti og tímaseðill

Tímaseðill:

Vigtun: 10:00-11:00
KVK: 12:00-13:30
KK: 13:40-16:00

Úrslit munu birtast í afreksgagnagrunni LSÍ

Keppendalistinn fyrir Meistaramót UMSK

KVK
# Flokkur Nafn Flokkur Félag
1 -48 Sigríður Dögg Auðunsdóttir U17,KVK LFK
2 -53 Hrafnhildur Arnardóttir U15,KVK LFK
3 -63 Amalía Ósk Sigurðardóttir U20,KVK LFK
4 -63 Elín Rósa Magnúsdóttir U15,KVK LFK
5 -63 Hrafnhildur Finnbogadóttir U17,KVK Ármann
6 -63 María Rún Þorsteinsdóttir KVK Hengill
7 -69 Hanna Rut Friðbertsdóttir U17,KVK LFM
8 -69 Guðrún Kristín Kristinsdóttir U17 LFK
9 -69 Rakel Hlynsdóttir KVK Hengill
10 -75 Álfrún Ýr Björnsdóttir KVK LFH
11 -90 Erika Mjöll Jónsdóttir U20,KVK Hengill
KK
# Flokkur Nafn Flokkur Félag
1 -62 Matthías Abel Einarsson U17,KK Hengill
2 -69 Dagur Fannarsson U17,KK LFM
3 -69 Fannar Hannesson U15,KK LFG
4 -69 Kristófer Guðmundsson U15,KK LFG
5 -69 Fannar Guðmundsson U15,KK LFG
6 -77 Árni Rúnar Baldursson KK Hengill
7 -77 Daníel Askur Ingólfsson U20,KK LFH
8 -85 Guðmundur Jökull Ármansson U20,KK LFG
9 -85 Fannar Már Arnarsson KK LFK
10 -85 Sveinn Atli Árnasson KK LFK
11 -94 Hilmar Örn S. Jónsson KK LFG
12 -94 Einar Alexander Haraldsson KK Hengill
13 -94 Bjarni Guðmundsson KK LFG
14 -94 Hörður Arge sveinsson KK LFG
15 -105 Ingvi Karl Jónsson U20,KK Ármann
16 -105 Þorsteinn Þorarinsson KK LFK

Katla Björk Ketilsdóttir keppir 1:00 í nótt

Katla Björk Ketilsdóttir (UMFN) mun keppa á HM 17 ára og yngri sem fram fer í Bankok klukkan 1:00 í nótt (6.Apríl). Hún keppir klukkan 8:00 á staðartíma og er að fara að fara að hefja vigtun þegar þetta er skrifað.

Live Stream

Live Scoreboard

Katla keppir í stórum C-hópi keppenda (15 keppendur), Katla er ein norðurlandabúa sem keppir á mótinu. En alls eru 44 keppendur skráðir í -58kg flokk kvenna sem er fjölmennasti þyngarflokkurinn í kvenna keppninni. Mótið er undankeppni fyrir Ólympíuleika æskunnar (f.2001 eða fyrr) sem fara fram á næsta ári og er þetta mót því sérstaklega fjölmennt 445 keppendur, 197 konur og 248 karlar.

Screenshot from 2017-04-06 22-20-53

Íslandsmet Kötlu í -58kg flokki 17 ára og yngri, 20 ára og yngri og 23 ára og yngri eru:

Snörun: 69kg
Jafnhendingu: 82kg
Samanlagt: 151kg


Norðurlandametin í -58kg flokki 17 ára og yngri eru líklegast eftirfarandi en vitað er að Suvi Talasterä lyfti 88kg á árinu 2016 og spurning hvort það hafi verið á móti sem gilti til norðurlandameta, en hún er kominn upp um flokk núna.

-58 kg
Snörun              72kg        Heidi Kanervisto    1981   FIN     11-11-1998 Lahti (FIN)
Jafnhending     87kg        Suvi Talasterä        1999   FIN     29.10.2016 Hafnarfjordur(ISL)
Samanlagt        158kg      Suvi Talasterä        1999   FIN     29.10.2016 Hafnarfjordur(ISL)

Þuríður endaði í 13.sæti

Þuríður Erla Helgadóttir keppti í dag á EM og endaði í 13 sæti af 20 keppendum. Þuríður Snaraði 79 kg og Jafnhenti 103 kg. Hún átti góða tilraun við 83kg í snörun sem hún fékk dæmda ógilda vegna press out. Hún reyndi svo við 106 og 107 í janhendingu en náði ekki að klára þær lyftur að þessu sinni.

Með þessum lyftum fékk Þurí 249 sinclair stig.

Andri Gunnarsson keppir svo á föstudaginn 7,apríl kl.11 á staðartíma en það er klukkan 13 á íslenskum tíma

Þuríður keppir klukkan 9:00 að íslenskum tíma á EM

Þuríður Erla Helgadóttir keppir klukkan 9:00 í fyrramálið (4.Apríl) á Evrópumeistaramótinu í Ólympískum Lyftingum sem fram fer í Split í Króatíu. Þuríður keppir í B-hóp í -63kg flokki kvenna en hún á þriðja besta árangurinn af 12 keppendum í hópnum (190kg). Hægt er að fylgjast með Þuríði keppa á heimasíðu Evrópska Lyftingasambandsins (EWF) þar sem bæði er keppnistafla og bein útsending.

Bein útsending þrýsta hér

Screenshot from 2017-04-03 22-05-11

Í A-grúppu eru síðan 9 konur, A-grúppan verður sýnd beint á Eurosport 17:25 á morgun en allar A-grúppur mótsins eru sýndar beint á Eurosport. Þar er íslands vinkonan Anni Vuohijoki meðal keppenda.

Screenshot from 2017-04-03 22-13-53