Þar sem teknir voru í gildi nýjir þyngdarflokkar núna í lok þessa árs þá þurfti að endurreikna öll íslandsmet.
Ennþá á eftir að útfæra met hjá U17 og U23 ára.
Í flokki U15 ára þá verða öll met þurrkuð út og ný met sett.
Nýja þyngdarflokka má sjá hér 
Þar sem teknir voru í gildi nýjir þyngdarflokkar núna í lok þessa árs þá þurfti að endurreikna öll íslandsmet.
Ennþá á eftir að útfæra met hjá U17 og U23 ára.
Í flokki U15 ára þá verða öll met þurrkuð út og ný met sett.
Nýja þyngdarflokka má sjá hér 
Hérna er dagskrá og ráslistar jólamótsins birt með fyrirvara um breytingar
Laugardagurinn 15.des Íþróttahúsið Ásgarði
8:00-9:00 Vigtun kvk
9:00-10:00 Vigtun kk
Grúbba 1 kvk 10:00-11:50
Grúbba 2 kvk 11:50-13:50
Grúbba 1 kk 14:00-15:30
Grúbba 2 kk 15:30-17:00
| Grúbba 1: 10:00-11:50 | Þyngdarflokkur | Lyftingafélag |
| Tinna María Stefnisdóttir | -55 | LFR |
| Birta hannesdottir | -55 | LFR |
| Birna Blöndal | -55 | KFA |
| Úlfhildur Arna Unnarsdóttur | -59 | LFR |
| Kristrún Sveindóttir | -59 | LFK |
| Ásrún Arna Sch Kristmundsdóttir | -59 | LFK |
| Erika Eik Antonsdóttir | -59 | LFK |
| Margrét Lilja Burrell | -76 | LFR |
| Alma Hrönn Káradóttir | -76 | LFK |
| Valdís Bjarnadóttir | -81 | LFR |
| Fríðný Bachman | -81 | Hengill |
| Grúbba 2: 11:50-13:50 | Þyngdarflokkur | Lyftingafélag |
| Inga Arna Aradóttir | -64 | LFR |
| Álfrún Tinna Guðnadóttir | -64 | LFR |
| Una Ásrún Gísladóttir | -64 | LFR |
| Sólveig Þórðardóttir | -64 | LFK |
| Fanney Rós MagnúsdóttIR | -64 | LFK |
| Steinunn Anna Svansdóttir | -64 | LFK |
| Birna Aradóttir | -64 | LFR |
| Thelma Hrund Hermannsdóttir | -71 | Massi |
| Aþena Eir Jónsdóttir | -71 | Massi |
| Þórhildur Kristbjörnsdóttir | -71 | LFR |
| Birta Líf Þórarinsdóttir | -71 | LFR |
| Arey Rakel Guðnadóttir | -71 | LFR |
| Andrea Rún | -71 | ? |
| Eygló Fanndal Sturludóttir | -71 | LFK |
| Grúbba 1: 14:00-15:30 | Þyngdarflokkur | Lyftingafélag |
| Hlynur Smári Magnússon | -55 | LFR |
| Rökkva Hrafn Guðnason | -67 | LFR |
| Snorri Stefnisson | -67 | LFR |
| Brynjar Wilhelm Jochumsson | -67 | LFG |
| Arnór Gauti Haraldsson | -89 | LFH |
| Magni Mar Magnason | -89 | Ármann |
| Þórhallur Andri Guðnason | -89 | KFA |
| Andri Ásgeirsson | -96 | LFH |
| Arnar Thanachit Phutthang | -96 | Massi |
| Grúbba 2: 15:30-17:00 | Þyngdarflokkur | Lyftingafélag |
| Róbert Þór Guðmarsson | -73 | LFH |
| Guðbjartur Daníelsson | -73 | Ármann |
| Árni Rúnar Baldursson | -73 | Stjarnan |
| Jóel Kristjánsson | -81 | LFR |
| Árni Olsen Jóhannesson | -81 | Ármann |
| Brynjar Ari Magnusson | -81 | LFH |
| Emil Ragnar Ægisson | -81 | Massi |
| Arnar Kári Erlendsson | -81 | LFK |
| Fannar Hafsteinsson | -81 | LFG |
| Óliver Örn Sverrisson | -81 | LFR |
| Ingólfur ævarsson | -109 | Stjarnan |

Dagana 15.16.desember verður Jólamót LSÍ haldið í íþróttahúsinu Ásgarði.
Skráning er hafin á lsi@lsi.is
Fram þarf að koma:
Kennitala
Þyngdarflokkur (athugið nýja þyngdaflokka)
Lyftingafélag
Skráningafrestur er til 7.desember
Þrír íslendingar kepptu á HM í Ashgabat á dögunum, en það voru þau Þuríður Erla Helgadóttir, Ragnheiður Sara Sigmundsdóttir og Einar Ingi Jónsson
Árangur þeirra var eftirfarandi
Þuríður Erla keppti í -59kg þyngdarflokki, hún snaraði 79 kg og jafnhenti 105kg sem skilaði henni 26.sæti á mótinu
Ragnheiður Sara Sigmundsdóttir keppti í -71kg þyngdarflokki, hún snaraði 84kg og jafnhenti 95kg sem skilaði henni 24.sæti á mótinu
Einar Infi Jónsson keppti í -81kg þyngdarflokki, hann snaraði 111kg og jafnhenti 140kg sem skilaði honum 40.sæti á mótinu
HM 2018 er hafið og í ár er það haldið í Ashgabat Thurkmenistan.
Ísland sendir 3 keppendur í ár þau Þuríði Erlu Helgadóttir, Ragnheiði Söru Sigmundsdóttir og Einar Inga Jónsson. Þetta er í fyrsta skipti sem Ísland sendir karlmann að keppa á HM.
Þuríður Erla verður fyrst íslendinga til að keppa en hún mun keppa 3.nóvember kl.22:00 á staðartíma. Einar Ingi keppir næstur eða 4.nóvember kl.8:00am og Ragnheiður Sara keppir svo 6.nóvember kl.8:00am.
Hægt er að fylgjast með mótinu hérna
https://www.iwf.net/2018/10/30/watch-2018-world-championships/
Um síðustu helgi fór Birna Aradóttir til Pólands ásamt Inga Gunnari og keppti þar á Evrópumeistaramóti U20 ára.
Birna keppti í -63kg flokki stóð sig mjög vel og snaraði 81 kg sem er nýtt íslandsmet í hennar flokki, hún jafnhenti 88 kg og náði þar með samanlagt 169kg og 225,5 sinclair stig sem gaf henni 3 sæti í þyngdarflokknum.

Næstu helgi eða dagana 20-27.október fer fram keppni á Evrópumóti junior U20 og U23 ára í Póllandi.
Birna Aradóttir (LFR) (f.1999) fer og keppir þar fyrir Íslands hönd, hún ásamt Inga Gunnari keppnisþjálfara landsliðsins eru farin af stað til Póllands og verður gaman að fylgjast með þessari efnilegu stelpu um helgina.
Keppendalista má sjá hér :http://www.ewfed.com/2018/Junior/StartBook_Zamosc_2018.pdf
Birna keppi í B-grúppu -63kg flokk 20 ára og yngri. 22.Október klukkan 9:30 að staðartíma í Póllandi.


Brynjar Ari Magnússon (f.2004) setti 3 íslandsmet í U15 ára og hafnaði í 2.sæti í -77kg flokki 17 ára og yngri
Heildarúrslit: http://results.lsi.is/meet/nordic-junioryouth-championships-2018
Árangur íslensku keppandann á NM junior
14 íslenskir keppendur hófu keppni og árangur þeirra var eftirfarandi:
Birta Líf Þórarinsdóttir (LFR) keppti í -69kg flokki í U17, hún snaraði 66 kg og jafnhenti 85kg kg sem gaf henni 191,052 sinclair stig og 2.sæti á mótinu. Árangur Birtu var íslandsmet í jafnhendingu og samanlögðu í U17 ára.
Rakel Ragnheiður Jónsdóttir (LFG) keppti í -58kg flokki U20, hún snaraði 65 kg og jafnhenti 80kg sem gaf henni 201 sinclair stig og 1.sæti á mótinu. Rakel bætti með þessum árangri íslandsmetið í jafnhendingu 20 ára og yngri. Rakel keppti í fyrsta sinn í nýjum þyngdarflokk og bætti sinn besta árangur um 20kg samanlagt.
Hrafnhildur Finnbogadóttir (LFK) keppti í -63 kg flokki U20, hún snaraði 64 kg og jafnhenti 76kg sem gaf henni 183,7 sinclair stig og 4.sæti á mótinu.
Birna Aradóttir (LFR) keppti í -63 kg flokki U20, en náði ekki að lyfta opnunarþyngdinni sinni 77kg í snörun sem hún hækkaði síðan í 78kg í tilraun 2 og 3. Hún féll því úr keppni en Birna var sigurstrangleg í -63kg flokknum. Birna keppir næst á EM U20 sem fram fer í Póllandi í lok mánaðarins.
Katla Björk Ketilsdóttir (UMFN) keppti létt (63.5kg) í -69 kg flokki U20, hún snaraði 77kg og jafnhenti 90kg sem gaf henni 217,8 sinclair stig og 2.sæti í -69kg flokknum. Katla bætti besta árangur sinn í jafnhendingu um 2kg frá því á evrópumeistaramóti 17 ára og yngra í fyrra þar sem hún endaði í 5.sæti.
Aþena Eir Jónsdóttir (UMFN) keppti líkt og Katla í –69kg flokki U20, hún snaraði 65 kg og jafnhenti 91kg sem gaf henni 194,3 sinclair stig og 5.sæti í þyngdarflokknum.
Birta Hafþórsdóttir (LFG) keppti í -75 kg flokki U20, hún snaraði 80kg og jafnhenti 90kg sem gaf henni 204,5 sinclair stig og varð hún norðurlandameistari í sínum flokk. Hennar helsti keppinautur Maren Fikse frá Noregi féll úr keppni á opnunarþyngd sinni 76kg.
Rökkvi Hrafn Guðnason (LFR) var yngsti keppandi mótsins f.2005 og keppti í -69 kg flokki U17, hann snaraði 76 kg og jafnhenti 93 kg sem gaf honum 228,6 sinclair stig og 5.sæti í þyngdarflokknum. Með þessum árangri setti Rökkvi íslandsmet í U15 ára í jafnhendingu.
Brynjar Ari Magnússon (LFH) keppti í -77 kg flokki U17, hann snaraði 95 kg og jafnhenti 110 kg sem gaf honum 258,4 sinclair stig og 2.sæti í þyngdarflokknum. Brynjar setti 3 íslandsmet í U15 ára. Í snörun, jafnhendingu og samanlögðu með þessum árangri og bætti sinn besta árangur um 25kg í samanlögðu. Brynjar er fæddur 2004 og á því mörg ár eftir í aldursflokknum. Brynjar var aðeins 1kg frá því að vinna flokkinn en hinn sænski Alvin Broman lyfti meira en Brynjar að þessu sinni.
Róbert Þór Guðmarsson (LFH) keppti í -77 kg flokki U17 líkt og Brynjar, hann snaraði 86 kg og jafnhenti 114 kg sem gaf honum 254 sinclair stig og 3.sæti í þyngdarflokknum. Loka lyfta Róberts lyfti honum upp fyrir norðmanninn Aron Sussmann sem lyfti einu kílói minna en Róbert.
Ingimar Jónsson (LFG) keppti í -77 kg flokki U20, hann snaraði 107kg og jafnhenti 131kg sem gaf honum 298,6 sinclair stig og 2.sæti í þyngdarflokknum. Ingimar setti nýtt íslandsmet unglinga flokknum í snörun og bætti sinn besta árangur um 12kg í samanlögðu.
Axel Máni Hilmarsson (LFR) keppti í -85kg flokki U20, hann snaraði 113kg og jafnhenti 135kg sem gaf honum 301,7sinclair stig og 4.sæti í þyngdarflokknum. Axel var aðeins 1kg frá bronsverðlaunum og 3kg frá Silfri.
Sigurður Darri Rafnsson (LFR) keppti í -85 kg flokki U20 líkt og Axel, hann snaraði 105kg og jafnhenti 140kg sem gaf honum 299,524 sinclair stig og 5.sæti á mótinu. Jafnhendingin var 10kg bæting hjá honum.
Guðmundur Jökull Ármansson (LFG) keppti í -94 kg flokki U20, hann snaraði 95 kg og jafnhenti 115kg sem gaf honum 249 sinclair stig og 3.sæti í flokknum.
Veigar Ágúst Hafþórsson (LFH) keppti í -105 kg flokki U20, hann snaraði 98 kg og jafnhenti 130kg sem gaf honum 253,3 sinclair stig og 3.sæti í flokknum.
Fullt af myndum má sjá hjá Danska sambandinu á Facebook
Öll úrslit eru kominn inn í afreksgagnagruninn
Beðið er eftir staðfestum úrslitum úr liðakeppnum

Á föstudaginn munu 16 krakkar halda til Danmörku til að keppa á Norðurlandamóti junior ásamt 2 þjálfurum og foreldrum
Keppt verður bæði í U20 og U17 ára flokkum og munum við senda okkar allra sterkustu unglinga á mótið. Aldrei hefur eins stór og sterkur hópur krakka og unglinga farið frá Íslandi á Norðurlandamót.
Hópurinn er sem hér segir:
Stelpur:
Aþena Eir Jónsdóttir
Birna Aradóttir
Birta Hafþórsdóttir
Birta Líf Þórarinsdóttir U17
Hrafnhildur Finnbogadóttir
Katla Ketilsdóttir
Rakel Ragnheiður Jónsdóttir
Strákar:
Axel Máni Hilmarsson
Brynjar Ari Magnússon U17
Guðmundur Jökull Ármansson
Ingimar Jónsson
Sigurjón Guðnason
Sigurður Darri Rafnsson
Róbert Þór Guðmarsson
Rökkvi Hrafn Guðnason U17
Veigar Ágúst Hafþórsson
Það verður sýnt live frá mótinu á facebook viðburði mótsins
https://www.facebook.com/events/307110450086104/?notif_t=video_processed¬if_id=1538388817669640
Einnig munum við vera virk á instagramminu okkar @icelandic_weightlifting fram að mótinu og á mótinu sjálfu
Því miður verðum við að aflýsa haustmótinu sem átti að vera 13-14.október, ekki fékkst mótshaldari til að halda mótið.
Næsta mót er jólamótið sem haldið verður af Stjörnunni dagana 15-16.desember, nánar auglýst síðar.
Í ár verða það því miður bara 2 mót sem munu telja til Liðabikarsins í ár.