
Haustmóti frestað
Mynd



Í dag, föstudag, tóku 13 einstaklingar próf til B dómararéttinda hjá Lyftingasambandi Íslands. Við fögnum þessari viðbót við dómarahópinn og hlökkum til að vinna með þeim á komandi mótum. Á morgun laugardag er Íslandsmót unglinga þar sem nýju dómararnir okkar munu koma sterkir inn.
Mótið fer fram í Crossfit Reykjavík og hefst kl. 13:00. Allir velkomnir.

A.T.H. Keppendur þurfa að sýna skilríki við vigtun.

.

Skráningaform hér —> https://forms.gle/AvZ62KscHqo2fu8E7


Skráning er hafin á sumarmótið sem að þessu sinni er haldið af lyftingadeild Ármanns.
ATH skráning fer beint í gegnum þá: Armann.oly@gmail.com

Dagana 6-13.apríl var Evrópumót Senior haldið í Batumi í Georgiu. Ísland sendi 2 fulltrúa á mótið þau Þuríði Erlu Helgadóttir og Einar Inga Jónsson, með þeim fór svo sem keppnisþjálfari Ingi Gunnar Ólafsson

Þuríður Erla keppti 8.apríl þar bætti hún persónulegt met sitt í snörun og snaraði 87kg en hún var aðeins undir sínu best í jafnhendingu en skilaði þó 102kg, frábær árangur hjá henni.
Einar Ingi keppti 10.apríl en hann snaraði 115kg og jafnhenti 147kg, sem er aðeins undir hans besta árangri.