Vegna aðstæðna verða því miður engir áhorfendur leyfðir á Íslandsmeistaramóti Senior 2021 Streymt verður mótinu af Twitch síðu sambandsins hér: https://www.twitch.tv/lyftingasambandislands

Vegna aðstæðna verða því miður engir áhorfendur leyfðir á Íslandsmeistaramóti Senior 2021 Streymt verður mótinu af Twitch síðu sambandsins hér: https://www.twitch.tv/lyftingasambandislands


Minnum alla á að koma með grímur í vigtun en einnig mæta með eigin drykkjarföng og sitt eigið kalk í keppni. Allir þurfa að vera í singleti og sótthreinsa sinn upphitunarbúnað (stangir og lóð) eftir sína keppni. Þeir sem ná ekki þyngd í vigtun skrást úr keppni. Þeir sem ná ekki einni gildri lyftu í snörun geta ekki haldið áfram keppni í jafnhendingu.
| Nafn | Félag | Þyngdarflokkur |
| Heiðrún Stella Þorvaldsdóttir | Hengill | 59 |
| Heiða Mist Kristjánsdóttir | LFK | 59 |
| Amalía Ósk Sigurðardóttir | LFM | 64 |
| Íris Rut Jónsdóttir | Massi | 64 |
| Hrafnhildur Finnbogadóttir | UMFS | 64 |
| Svandís Viðja Víðisdóttir | UMFS | 64 |
| Steinunn Anna Svansdóttir | LFK | 64 |
| Tinna María Stefnisdóttir | LFR | 64 |
| Margrét Þórhildur Maríudóttir | LFK | 71 |
| Hildur Guðbjarnadóttir | LFR | 71 |
| Valdís María Sigurðardóttir | LFR | 71 |
| Nafn | Félag | Þyngdarflokkur |
| Auður Arna Eyþórsdóttir | LFG | 71 |
| Helena Rut Pétursdóttir | Hengill | 71 |
| Viktoría Rós Guðmundsdóttir | UMFS | 71 |
| Kristín Dóra Sigurðardóttir | LFM | 71 |
| Hrund Scheving | LFK | 71 |
| Eygló Fanndal Sturludóttir | LFK | 71 |
| Alma Hrönn Káradóttir | LFK | 71 |
| Þórhildur Kristbjörnsdóttir | LFR | 71 |
| Tinna Marín Sigurðardóttir | LFR | 71 |
| Sólveig Þórðardóttir | LFR | 71 |
| Nafn | Félag | Þyngdarflokkur |
| Elín Birna Hallgrímsdóttir | LFR | 76 |
| Erna Héðinsdóttir | LFR | 76 |
| Guðbjörg Valdimarsdóttir | Hengill | 76 |
| Guðný Björk Stefánsdóttir | LFG | 76 |
| Valdís Bjarnadóttir | LFR | 87 |
| Anna Elísabet Stark | LFK | 81 |
| Unnur Sjöfn Jónasdóttir | LFG | 87 |
| Anna Guðrún Halldórsdóttir | Hengill | 87 |
| Indiana lind Gylfadottir | LFG | +87 |
| Nafn | Félag | Þyngdarflokkur |
| Bjarki Breiðfjörð Björnsson | UMFS | 73 |
| Einar Ingi Jónsson | LFR | 73 |
| Brynjar Logi Halldórsson | LFR | 81 |
| Árni Rúnar Baldursson | LFR | 81 |
| Birkir Örn Jónsson | LFG | 81 |
| Jóhann Valur Jónsson | LFG | 89 |
| Alex Daði Reynisson | LFG | 89 |
| Jóel Kristjánsson | LFR | 89 |
| Bernharð Anton Jónsson | Ármann | 102 |
| Gísli Kristjánsson | LFR | 109 |
Reykjavíkurleikar 2021 voru haldnir með ágætum í dag. Keppni kvenna hófst kl. 9:00 og var yfirferð mun fljótari en gert var ráð fyrir. Var þetta vegna fækkun keppenda á mótinu vegna meiðsla en aðeins tóku 7 konur þátt á RIG þetta árið af 10 og 8 karlar af 10. Þetta gerði það að verkum að mótshluti LSÍ var lauk 40 mínútum fyrir áætlun.
Viljum við þakka starfsfólki mótsins kærlega fyrir alla vinnu. Þið eruð yndisleg, án ykkar væri þetta ekki hægt.






Streymis hlekkur HÉR

Mótshluti LSÍ verður haldinn Sunnudaginn 31. janúar frá kl 9:00 í Sporthúsinu í Kópavogi
Engir áhorfendur eru leyfðir á mótinu en streymt verður mótinu, hlekkur á streymið kemur á heimasíðuna sem og á samfélagsmiðla LSÍ og á http://www.rig.is
| Birna Aradóttir |
| Birta Líf Þórarinsdóttir |
| Alma Hrönn Káradóttir |
| Inga Arna Aradóttir |
| Heiðrún Stella Þorvaldsdóttir |
| Hrund Scheving |
| Eygló Fanndal Sturludóttir |
| Kristín Dóra Sigurðardóttir |
| Arnór Gauti Haraldsson |
| Einar Ingi Jónsson |
| Daníel Róbertsson |
| Árni Rúnar Róbertsson |
| Birkir Örn Jónsson |
| Emil Ragnar Ægisson |
| Símon Gestur Ragnarsson |
| Brynjar Logi Halldórsson |
Vegna COVID hefur bæði dagsetning og staðsetningu mótshluta Ólympískra Lyftinga breyst.
Mótið verður nú haldið í Sporthúsinu í Kópavogi að Dalssmára 9-11 Sunnudaginn 31. janúar.
Áhorfendur eru ekki leyfðir á mótinu en verður því streymt.
Hlekkir á streymið verða birtir á samfélagsmiðlum sambandsins sem og hér á heimasíðunni.
Þegar mótshluti og verðlaunaafhending kvenna er lokið þurfa þær að rýma svæðið sem fyrst. Sama á við um mótshluta og verðlaunaafhendingu karla.

Mótaskrá LSÍ 2021 er birt með fyrirvara um breytingar
Dagsetningar fyrir NM 2021 eru ekki komnar
Fleiri mót eru að finna á heimasíðu IWF HÉR
Leyfi hefur fengist að halda Íslandsmeistaramót Senior þann 20. mars og eru keppendur beðnir um að hafa samband við sitt félag varðandi æfingar ef þeir stefna á að taka þátt á mótinu.

Sunnudaginn 20. desember komu loks lokatölur úr streymismóti EM Öldunga sem var haldið í seinasta mánuði. Þrjár íslenskar dömur tóku þátt á mótinu. Þær Hrund Scheving í M40 -76 kg flokki, Alma Hrönn Káradóttir í M35 -71 kg flokki og Helga Hlín Hákonardóttir í M45 -59 kg flokki. Vegna eðli mótsins þurftu keppendur að fylgja mikilum ákvæðum um uppsetningu, vigtun og lyfta síðan innan viss tímaramma. Auðvitað skáru dömurnar okkar fram úr á mótinu og allar urðu þær Evrópumeistarar í sínum þyngdar og aldurflokkum.
Geri aðrir betur!
TIL HAMINGJU DÖMUR!
ÞETTA ER FRÁBÆR ÁRANGUR!

Alma Hrönn Káradóttir keppti í M35 ára í -71 kg flokki. Þegar Alma er ekki að keppa fyrir hönd Íslands þá keppir hún fyrir hönd Lyftingafélags Kópavogs. Alma byrjaði að keppa í Ólympískum Lyftingum á Jólamóti LSÍ 2018 og heldur öllum þremur metum í M35 -71 kg flokki og hefur sett önnur 14 met. Á EM Masters náði Alma fyrsta sætinu með 75 kg í snörun, 98 kg í jafnhendingu, sem er jöfnun á eigin íslandsmeti og 173 kg í samanlögðu. Þetta skilaði henni 218 Sinclair stigum. Best á Alma 77 kg í snörun á móti og 174 kg í samanlögðu.

Hrund Scheving keppti í M40 ára í -76 kg flokki. Hrund keppir fyrir hönd Lyftingafélags Kópavogs þegar hún er ekki að keppa fyrir hönd föðurlandsins. Hrund keppti fyrst í Ólympískum lyftingum árið 2013 sem haldið var í Ármanni. Árið 2018 keppir Hrund á HM Masters og verður heimsmeistari í M40 í 69 kg flokki sem þá var og hét. Eftir NM Senior 2018 í september slítur Hrund hásin og keppir ekki vegna meiðslanna í rúmt ár en kemur til baka á jólamóti LSÍ 2019. Hrund lætur ekkert stoppa sig og er því mikil fyrirmynd.
Á EM Masters Virtual tók Hrund 72 kg í snörun, 90 kg í jafnhendingu, 162 í samanlögðu og 197,5 Sinclair stig.

Helga Hlín Hákonardóttir keppir í M45 í -59 kg flokki. Þetta streymismót var aðeins annað mót sem Helga tekur þátt í en samt sem áður heldur Helga 9 íslandsmetum í sínum þyngdarflokki í þremur öldungaflokkum og hefur sett önnur 24. Á steymismóti EM Öldunga tók Helga 52 kg í snörun, 60 kg í jafnhendingu og þá með 112 kg í samanlögðu en gaf þetta henni 155,3 Sinclair stig. Til gaman má geta þess að Helga er móðir Úlfhildar Unnarsdóttir sem tók þátt á NM Unglinga um seinstu helgi og lenti þar í öðru sæti í -71 kg flokki U17 með íslandsmetið á eftir öðru aðeins 15 ára gömul.