Katla hefur keppni í dag klukkan 9, má búast við spennandi mótsdegi, en hún er í fanta formi og hefur verið að setja óformleg íslandsmet á æfingum, svo það verður spennandi að sjá niðurstöðu. Hæt er að horfa á mótið í gegnum Pay per view hjá https://www.weightliftinghouse.co.uk/
Úlfhildur Arna Unnarsdóttir og Brynjar Logi Halldórsson voru löndum sínum til mikils sóma á Heimsmeistaramóti ungmenna sem haldið var í Hereklion á Krít. Úlfhildur keppti í -71kg flokki og vigtaðist þar inn 69.85kg. Hún kom sterk inn í mótið og opnaði með 75kg í snörun, fór þaðan í 80kg sem gekk ekki upp, en kláraði það í þriðju tilraun. Í jafnhendingunni opnaði Úlfhildur á 95kg, tók svo 99kg og kláraði með 101kg, sem er 1kg bæting á hennar eigin íslandsmeti í flokki 17 ára og yngri. Úlfhildur, með þessum glæsilega árangri er orðin yngst íslenskra kvenna til að jafnhenda yfir 100kg á móti. Úlfhildur endaði í 18 sæti. Þess má til gamans geta að Úlfhildur var yngsti keppandinn, en hún er fædd árið 2005, og á því 3 ár eftir til að klifra hærra upp styrkleikalistann.
Ljósmynd frá All things Gym
Brynjar Logi Halldórsson keppti í -89kg flokki og vigtaðist þar inn 86.95kg. Brynjar átti frábæran dag í snörun þegar að hann tók 120-123-125kg og fékk allar þrjár lyftur gildar. 125kg snörunin var bæting á hans eigin íslandsmeti um 2kg. Jafnhendingin gekk vel, Brynjar opnaði í 140kg, fór svo í 146 sem hann fékk dæmda ógilda af kviðdóm. Brynjar tók því 146kg aftur og kláraði hana svo engin vafi væri á því að lyftan væri gild. Niðurstaða Brynjars var því 125/146 og 271kg í samanlögðum árangri, og bæting á þriggja ára gömlu Íslandsmeti um 2kg. Brynjar endaði í 19 sæti.
Ísland á tvo keppendur á HM u20 sem haldið er í Krít, Úlfhildi og Brynjar Loga. Úlfhildur er fyrst á pallinn en hún keppir föstudaginn 6. maí. klukkan 12:30 að staðartíma, sem þýðir 9:30 á íslenskum.
Úlfhildur Arna Unnarsdóttir á HM 17 ára og yngri í fyrra
Brynjar Logi Halldórsson keppir á laugardaginn 07.05 klukkan 10:30 að staðartíma, þannig að klukkan 7:30 á íslenskum
Þann 20. mars var haldið lyftingaþing í húsnæði ÍSÍ við Engjaveg 6. Nokkrar breytingar voru á stjórn. Magnús B. Þórðarson hélt áfram sem formaður, Árni Rúnar Baldursson steig til hliðar sem varaformaður og tók við stöðu ritara af Jens Anda Fylkissyni. Helga Hlín Hákonardóttir var kosin varaformaður. Þór Reynir Jóhannson steig til hliðar sem gjaldkeri en tók stöðu sem Skoðunarmaður ásamt Ívari Ísak Guðjónssyni. Margrét G. Jónsdóttir var kosin gjaldkeri. Kári Walter kom inn í stjórn sem meðstjórnandi og tók við af Einari Inga Jónssyni sem var kosinn fulltrúi íþróttamanna ásamt Kötlu Björk Ketilsdóttur. Ásgeir Bjarnason, Ingi Gunnar Ólafsson og Sigurður Darri Rafnsson héldu áfram í varastjórn en Eggert Ólafsson kom nýr þar inn. Ásgeir Bjarnason var einnig kosinn formaður tækninefndar.
Íslandsmeistarmótið í ólympískum lyftingum var haldið í gær af Lyftingafélagi Mosfellsbæjar. Það voru 25 keppendur í ár, þar af 19 konur. Töluvert var um afskráningar hjá körlunum en ýmsar ástæður liggja þar að baki. Á Íslandsmeistarmóti er keppt í þyngdarflokkum, og svo er verðlaunað fyrir stigahæstu konu og karl samkvæmt sinclair stigum. Eygló Fanndal Sturludóttir bar sigur úr býtum í stigakeppninni kvenna, með 88kg í snörun og 106kg jafnhendingu. Sá árangur skilaði henni glæsilegum 239.69 stigum. Heiðrún Stella Þorvaldsdóttir og Katla Björk Ketilsdóttir áttu 2. og 3. sætið í stigakeppni kvenna en voru þær mjög jafnar á stigum. Heiðrún Stella með 231.7 stig og Katla með 231.2 stig.
Eygló Fanndal Sturludóttir með 106kg
Hjá körlunum vann Gerald Brimir Einarsson afgerandi sigur í stigakeppninni með 115kg snörun og 150kg jafnhendingu og 310.34 stigum. Gerald hefur einugnis síðan 2019 og á því stuttan feril og eflaust töluvert rými fyrir bætingar.