Ingunn Lúðvíksdóttir var í 2. sæti af 7 keppendum í 45-49 ára 76kg flokki á Masters Heimsmeistaramótinu í Wieliczka – Póllandi.
Hún var 70kg snörun, 85kg C&J og 155kg samanlagt.
Hún opnaði í 62kg snörun sem virtist vera mjög létt fyrir hana. Hún hækkað þvínæst í 65 kg sem einnig virtust vera lítið mál. Hún hækkaði þá 70kg og sú lyfta flaug einnig upp. Ingunn var í 2. Sæti eftir snörunina.
Í C&J opnaði Ingunn í 82kg sem hún tók nokkuð örugglega. Hún hækkaði því næst í 85kg sem einnig fóru upp. Hún hækkaði þá í 90kg kláraði lyftuna og fékk tvö hvít og eitt rautt ljós frá dómurum en juryið snéri lyftinni í no lift.
Niðurstaðan 2. sætið í C&J og 2. sæti sæti í samanlögðu með 155kg. Innilega til hamingju með árangurinn Ingunn.
Árdís Grétarsdóttir landaði 2. sæti af 7 keppendum í 50-54 ára 64kg flokki á Masters Heimsmeistaramótinu í Wieliczka – Póllandi. Hún snaraði best 57kg, náði 72 kg í C&J og 129kg samanlagt.
Þess má geta að þetta er aðeins hennar þriðja mót á eftir einu Íslandsmeistaramóti og Evrópumeistaramóti nú í maí. Hennar besti árangur fyrir mótið var 55kg snatch, 70kg C&J og 125kg samanlagt svo þetta eru bætingar í öllum lyftum og virkilega gaman á sjá svona framfarir hjá henni.
Hún opnaði í 55kg fallegri gildri snörun, hækkaði því næst í 57kg sem hún komst ekki alveg undir en hélt sig við þá þyngd í þriðju tilraun. Lyfti strax á eftir sjálfri sér og fékk því aðeins 2 mínútur milli lyfta, en kláraði 3 tilraunina sína fullkomlega og niðurstaðan 57kg snörun. 2kg bæting á hennar besta árangri á móti og 2. sætið í snörun í hópnum.
Í C&J opnaði hún í 68kg sem fóru nokkuð auðveldlega upp. Hún hækkaði því næst í 70kg sem er jöfnun á hennar besta árangri og sú lyfta fór einnig upp. Í þriðju tilrauninni fór hún í 72kg sem einnig fóru upp. Svo hún er með 2kg bætingu í C&J og 2. sætið í þeim hluta.
Samanlagt eru þetta því 129kg og 2. sætið í heild á Heimsmeistaramóti sem er frábær árangur á aðeins hennar þriðja móti.
Helga Hlín Hákonardóttir hafnaði í 4. sæti af 9 keppendum á Masters Heimsmeistaramótinu sem fram fer í Wieliczka – Póllandi þessa dagana. Hún keppir í 50-54ára, 59kg flokki. Hún snaraði 55kg og náði 67kg í C&J og 122kg samanlagt.
Helga opnaði með 55kg snörun sem hún fékk gilda, hækkaði því næst í 58kg en eitthvað sáu dómararnir athugavert við þá lyftu og gáfu henni tvö rauð og eitt hvítt. Hún hækkaði svo í 60kg í síðustu lyftunni sinni en komst því miður ekki undir hana og datt afturfyrir sig. Í C&J opnaði hún með 67kg gildri lyftu, hækkaði í 71kg en sú lyfta var dæmd ógild og endaði á að reyna við 73kg en náði ekki að cleana henni.
Niðurstaðan því 4. sætið í snatch, 4. sætið c&J og 4. sætið samanlagt.
Haustmót Lyftingasambans Íslands og Ægir Gym í Ólympískum lyftingum verður haldið í húsnæði Ægis Gym, Hafnarbraut 8, Akranesi laugardaginn 30. september 2023.
Skráningu lýkur 16. september 2023 kl 23:59
(*Með fyrirvara um fjölda keppenda þá er stefnt að því að klára mótið að öllu leyti á laugardeginum)
Mótið er sinclair stigamót og 3 stigahæstu einstaklingarnir verðlaunaðir.
Afrek á results.is eru skráð í þann þyngdarflokk sem einstaklingurinn vigtast inní á mótinu, ekki þarf að ná vigt í þeim flokki sem keppandi skráir sig í.
Keppnisgjald er kr. 7500,- og greiðir félag keppenda til mótshaldara.
Helga Hlín Hákonardóttir, formaður Lyftingasambandsins, stígur fyrst á pallinn af Íslensku keppendunum á mánudaginn 21. ágúst kl. 13:50 á Íslenskum tíma. Helga á best 58kg í snatch, 71kg í C&J og 127kg samanlagt.
Árdís Grétarsdóttir keppir á þriðjudaginn 22. ágúst kl. 7:00 á íslenskum tíma. Þess má geta að þetta er aðeins hennar þriðja mót á eftir einu Íslandsmeistaramóti og Evrópumóti nú í maí. Hennar besti árangur er 55kg snatch, 70kg C&J og 125kg samanlagt.
Hrund Scheving keppir miðvikudaginn 23. ágúst kl. 07:00 á Íslenskum tíma. Hrund er reynsluboltinn í hópnum og hefur keppt á fjölmörgum mótum frá árinu 2013. Hennar bestu tölur eru 78kg snatch, 96kg C&J og 174kg samanlagt frá árinu 2018. Hún átti svo í meiðslabrasi sem hún vann sig í gegnum. Á Evrópumeistaramót Masters í maí átti hún 72kg snatch, 93kg C&J og 165kg samanlagt sem allt var jöfnun á heimsmetum. Við bíðum spennt eftir bætingum hjá Hrund og vonandi nýjum heimsmetum og heimsmeistaratitili.
Ingunn Lúðvíksdóttir keppir einnig á miðvikudaginn 23. ágúst kl. 07:00 á Íslenskum tíma. Hennar besti árangur er 71kg snatch, 90kg C&J og 161kg samanlagt.
Alma Hrönn Káradóttir keppir svo síðust Íslendinganna laugardaginn 26. Ágúst kl. 10:00 á Íslenskum tíma. Hennar besti árangur er 77kg snatch, 98kg C&J og 174kg samanlagt.
Þetta er gríðarlega sterkur hópur og gaman að við eigum svona fjölmennt lið á þessu móti. Lyftingasamband Íslands óskar þeim alls hins besta á mótinu.
Dagana 22. – 24. september stendur Lyftingasamband Íslands fyrir þjálfaranámskeiði. IWF Level 1 og IWF Level 2. Sjá dagskrá hér fyrir neðan. Karoliina Lundahl, IWF Coach Developer mun kenna námskeiðið. Þátttakendur þurfa að hafa haldbæra þekkingu á grunnatriðum ólympískra lyftinga s.s. að hafa æft, keppt eða þjálfað lyftingar. Þátttakendur þurfa að vera skráðir í lyftingafélag. Til að nýta tímann sem best munu þátttakendur fá námsefnið sent fyrir námskeiðið og gert er ráð fyrir að þeir lesi sjálfir Level 1 efnið. Það er grunnefni og flestir þátttakendur ættu að vera nú þegar með haldbæra þekkingu á því efni. Það er því hægt að fara beint í Level 2 námsefnið á námskeiðinu sjálfu og nýta þannig tímann með Karoliinu sem best.
Skráningargjald er 10.000,- kr og skal leggja það inn á reikning lyftingasambandsins til að staðfesta skráningu. Námskeiðið er styrkt af IWF Development Program og því getum við boðið meðlimum lyftingafélaga þetta á þessu frábæra verði.
Kt. 430275-0119 Rnr. 0311-26-002992
Fyrirlestrarnir fara fram í húsnæði ÍSÍ við Engjaveg, sal C og verklegir tímar í Crossfit Reykjavík.
Léttar veitingar og hádegisverður á laugardeginum er innifalinn í verði. Hámarks þáttakendafjöldi er 30
Næsta landsliðsæfing fer fram í Stjörnunni, Miðgarði laugardaginn 26. ágúst kl. 9:00 – 11:00
Eftirfarandi er uppfærður listi yfir keppendur sem hafa náð a.m.k. C lágmörkum á Norðurlandamót síðustu 18 mánuði samkvæmt nýjum lágmarkaviðmiðum eða hafa náð lágmörkum samkvæmt gamla kerfinu. Athygli er vakinn á því að til þess að hafa keppnisrétt samkvæmt nýju viðmiðunum þurfa keppendur að hafa keppt á tímabilinu frá 6 mánuðum fyrir forskráningu og fram að lokaskráningu, sem að jafnaði er mánuði síðar, og hafa lyft a.m.k. 90% af þeim lágmörkum sem þau náðu áður. Einungis tveir keppendur geta keppt í hverjum þyngdarflokki fyrir Íslands hönd.
Senior Norðurlandamót verður haldið 27. október í Landskrona í Svíþjóð Junior og U17 Norðurlandamót verður haldið 11. nóvember í Rovaniemi í Finnlandi. Keppendur þurfa að hafa náð lágmörkum fyrir þessi mót tveimur mánuðum fyrir setta mótsdagsetningu.
Senior KK 81 1 Kári Einarsson 263 2 Bjarki Breiðfjörð 260 89 1 Sigurður Darri Rafnsson 297 2 Brynjar Logi Halldórsson 295 3 Gerald Brimir Einarsson 286 4 Axel Guðni Sigurðsson 282 5 Emil Ragnar Ægisson 279 6 Daníel Róbertsson 260 96 1 Alex Daði Reynisson 285
Erla Ágústsdóttir er gerði lokakaflann á Evrópumeistaramótinu í Búkarest svo sannarlega eftirminnilega með því að taka 2 brons með heim af keppnispallinum í dag.
Hún hafnaði í 4. sæti í snörun með 88kg, aðeins einu kílói á eftir Luiza Sahradyan frá Armeníu. Erla opnaði með öruggri 88kg lyftu, þyngdi því næst í 92kg sem er jafnt hennar besta árangri en missti því miður stöngina yfir sig. Hún tók svo aftur 92kg og var sorglega nálægt því að halda henni en aftur fór stöngin yfir hana.
Erla kom svo sterk inn í jafnhendinguna, opnaði með 108kg. Hún tók létt og öruggt clean, en smá ójafnvægi var í jerkinu, en Erla dansaði með stöngina og stóð það allt saman af sér og var með gilda lyftu. Hún þyngdi þá í 113kg sem er jöfnun á hennar besta árangri og náði þar einnig gildri lyftu. Síðasta lyftan var 115kg og tilraun til Íslandsmets í U23. Mjög sterkt og öruggt clean og stóð upp eins og hún væri með tóma stöng, en jerkið vildi því miður ekki alla leið.
Niðurstaða engu að síður 4. sæti í snörun, 3. sæti í jafnhendingu og 3.sæti í samanlögðu. Sahrah Fischer frá Austurríki sigraði flokkinn mjög örugglega með 240kg samanlagt og Meri Tumasyan frá Armeníu var í öðru sæti með 208kg samanlagt.
Það klingir fallega í medalíunum um hálsin á henni í dag og við Íslendingar meigum svo sannarlega vera stolt af þessari frábæru íþróttakonu sem fann sig fyrst í íþrótt þegar hún fann lyftingar og hér á hún svo sannarlega heima. Innilega til hamingju elsku Erla.
Mótinu lýkur í dag og erum við virkilega stolt af þessum flotta hópi íþróttafólks og starfsfólks.
Sérstaka þakki fær Isaac Morillas Sanchez hjá World Weightlifting Media fyrir frábærar myndir af keppendunum okkar á mótinu.
Brynjar Logi hafnaði í 10. sæti af 12 keppendum í gríðarlega sterkum 89kg flokki í dag.
Hann átti ekki sinn besta dag og lyfti einungis opnunarþyngdunum bæði í snörun og jafnhendingu. Hann opnaði snörunina með öruggri 132kg lyftu, fór svo í 136 lyftu sem hann komst ekki almennilega undir og reyndi svo aftur við þá þyngd í síðustu snöruninni en náði ekki að halda henni.
Í jafnhendingunni hóf hann keppni á 155kg lyftu, þyngdi því næst í 160 kg, en einhver hreyfing var á vinstri olnboga og fékk hann eitt hvítt og tvö rauð ljós. Ingi veifaði chalenge kortinu, en eftir endurskoðun kviðdóms var lyftan dæmd ógild. Þeir félagar ákváðu engu að síður að hækka í 165kg og reyna þannig við nýtt íslandsmet í jafnhendingu. Brynjar tók öruggt clean og stóð nokkuð sannfærandi upp úr því. En þegar þangað var komið varð allt grátt, svo hann henti stönginni frá sér og niðurstaðan 132kg snörun, 155kg jafnhending og 187kg samanlagt sem eru 8kg undir hans besta árangri.
Við höfum samt trú að að hann eigi helling inni, eins og hann sýndi okkur á sumarmótinu með 138kg snörun.
En svo er líka gott að minnast þess að Evrópumeistaramót eru ekki bara það sem gerist á keppnispallinum. Evrópumeistaramót er líka að fá risaknús frá Giorgi Asanidze, vera á upphitunarpalli við hliðina á Marin Robu eða sjá að frá því Antonino Pizzolato hitti þig síðast hefur hann fengið sér alveg eins klippingu.
Gamanið er ekki alveg búið hjá Brynjari því í dag kom Erla Ágústsdóttir til Rúmeníu. Hún keppir 3. ágúst kl. 13:00 (10:00 á íslenskum tíma) og ætlar Brynjar að aðstoða Inga Gunnar og Erlu á keppnisdegi.
Dagurinn gekk ekki alveg að óskum hjá Íslensku stelpunum í dag. 64kg B hóparnir í U20 og U23 voru sameinaðir í einn hóp, svo Íslenski hópurinn stóð frammi fyrir því að eiga 3 keppendur í sama hópi. Það voru því allar tiltækar hendur fengnar með á keppnissvæðið, Brynjar Logi og Alex Nói fóru í hlutverk aðstoðarþjálfara á meðan Ingi Gunnar stjórnaði ferðinni af sinni alkunnu snilld. Við erum líka svo heppin að eiga góða vini og Patric Bettembourg frá Svíþjóð kom okkur einnig til aðstoðar, en hann hefur tvisvar komið til Íslands með Sænskar stelpur og æft hjá okkur og kunnum við honum bestu þakkir fyrir aðstoðina. Bæði U20 og U23 flokkarnir er svo með A hópana síðar í dag og eru 10 keppendur í hvorum fyrir sig.
Keppnin hófst kl. 9:00 hér í Búkarest, eða kl. 6:00 á Íslenskum tíma. Þetta þýddi að stelpurnar þurftu að mæta í vigtun kl. 4:00 á Íslenskum tíma og vakna til að fara í rútu vel fyrir 3:00, svo það má kannski segja að þær hafi verið að lyfta um miðja nótt og er þetta eitthvað sem við getum búist við þegar við förum austur á bóginn í keppnir og er hluti af lærdóm og reynslu. Fyrir Arey og Snædísi er þetta fyrsta alþjóðlega mótið erlendis og er þetta því gríðarlega mikilvæg reynsla fyrir þær.
Arey átti fyrstu lyftuna af Íslensku stelpunum og snaraði fallegri öruggri 72kg lyftu. Hún reyndi þar næst við 74kg í annarri lyftu en komst ekki alveg undir stöngina. Í þriðju snöruninni sem einnig var 74kg fann hún ekki alveg jafnvægið og missti stöngina aftur fyrir sig svo einungis fyrsta lyftan var gild.
Snædis náði því miður ekki gildum snörunum. Fyrsta lyftan var þó ansi nálægt. Hún fékk tvö hvít og eitt rautt frá dómurunum, en kviðdómur snéri því við vegna “pressout”. Hún hækkaði svo í 75 í annarri og þriðju lyftu en komst því miður ekki undir stöngina.
Úlfhildur opnaði í 74kg snörun en misti stöngina afturfyrir sig. Hún hækkaði sig í 75kg í næstu lyftu og var sorglega nálægt því að ná henni en náði ekki alveg að halda stönginni. Hún fór þá aftur í 75kg en missti hana aftur fyrir sig. Úlfhildur er reynsluboltinn af þeim þremur, en eins og hún sagði sjálf þá er þetta ný reynsla að bomba út…. en það er ágætt að prófa það líka einhverntíman.
Í jafnhendingunni hóf Snædís leikinn og tók 83kg jafnhendingu. Hún hækkaði þá í 88kg, átti gott clean en jerkið gekk ekki að þessu sinni. Hún hækkaði svo í 91kg í sinni síðustu tilraun en hún fór því miður á sömu leið og 88kg. Snædís átti því aðeins eina gilda lyftu, en mikið af reynslu í bankann og kemur eflaust enn sterkari inn á næsta móti.
Úlfhildur hóf sína fyrstu jafnhendingu á öruggri 84kg lyftu, hækkaði sig svo í 92kg, en líklega hefur stöngin eitthvað lent illa á henni í clean því hún náði ekki að standa upp. Í þriðju lyftunni tók hún 92kg aftur, stóð auðveldlega upp með það og endaði mótið með neglu jerki.
Arey átti góða 90 kg lyftu í sinni fyrstu tilraun. Hún hækkaði svo í 93kg, og tók gott clean og stóð upp en komst ekki alveg undir jerkið. Hún reyndi svo aftur við 93kg en sama sagan endurtók sig.
Svo… hellingur af reynslu í bankann og að takast á við allskonar aðstæður á keppnisstað. Það er erfitt að vera svona margar í sama hópnum og reyna að láta það ekki hafa áhrif á sig hvernig hinum gengur. Einnig var hópurinn í heild mjög nálægt hver annarri í þyngdum svo það var mikið að gerast að stigaborðinu og breytingar á röðun keppanda. En þannig er þessi íþrótt og við lærum af reynslunni og höldum ótrauð áfram.