Mótinu verður gerð betri skil síðar en úrslit eru komin í gagnagrunn sambandsins:
Dagskrá og keppendalisti Haustmót 2024
Haustmót 2024

Haustmót LSÍ fer fram laugardaginn 7.september nk. í húsakynnum Ægis Gym á Akranesi.
Skráning er hafin á mótið og henni lýkur 23.ágúst nk. klukkan 23:59.
Með fyrirvara um fjölda keppenda þá er stefnt að því að klára mótið að öllu leyti á laugardeginum.
Mótið er sinclair stigamót og 3 stigahæstu einstaklingarnir verðlaunaðir.
Keppnisgjald er kr. 7500,- og greiðir félag keppenda til mótshaldara.
Skráning hér
Ólympískar lyftingar hefjast í París
Keppni hefst á morgun 7.Ágúst í ólympískum lyftingum eins og fram hefur komið í fyrri færslu.
Erna Héðinsdóttir alþjóðadómari mun dæma þrjá flokka á mótinu, -49kg flokk kvenna 7.Ágúst 19:30 að staðartíma, -73kg flokk karla 8.Ágúst 19:30 að staðartíma og -81kg flokk kvenna 10.Ágúst klukkan 16:00 að staðartíma.


RÚV mun sýna -61kg flokk karla á RÚV2 klukkan 13:05 á morgun 7.Ágúst
Einnig mun RÚV sýna +81kg flokk kvenna Sunnudaginn 11.Ágúst klukkan 12:30 á RÚV2
Ólympíuleikarnir í París: Lyftingar 7.-11. Ágúst
Sjá síðu EWF um ÓL: https://paris2024.ewf.sport
Keppni í ólympískum lyftingum í París fer fram daganna 7.-11. Ágúst. Ísland á ekki keppanda að þessu sinni og í raun ekki síðan 1980 en Eygló Fanndal Sturludóttir var grátlega nærri því að tryggja sér keppnisrétt í -71kg flokki kvenna fyrst íslenskra kvenna en hún hefði aðeins þurft að lyfta 2-3kg meira til að tryggja sér þátttöku og vera á meðal 10 efstu í þyngdarflokknum.
Erna Héðinsdóttir (cat.1) alþjóðadómari er hinsvegar okkar fulltrúi á leikunum og mun starfa í 48 manna alþjóðlegu dómarateymi á leikunum.

Hér má sjá upplýsingarit leikana um ólympískar lyftingar: https://iwf.sport/wp-content/uploads/downloads/2024/07/Paris2024_Guide_IF_Weightlifting_EN.pdf


Eygló Fanndal með frábært mót í Þýskalandi
Sjá ítarlega umfjöllun morgunblaðsins um Eygló: https://www.mbl.is/sport/frettir/2024/07/20/bodid_grimmt_til_thyskalands/

Sjötta júlí síðastliðin keppti Eygló Fanndal Sturludóttir á móti hinna bláu sverða (Pokal der blauen schwerter) í Þýskalandi og náði þar frábærum árangri þegar hún snaraði 103kg og jafnhenti nýju Íslandsmeti 133kg og jöfnun á norðurlandameti Patriciu Strenius í -71kg flokki kvenna í jafnhendingu. Þetta var jöfnun á hennar besta árangri í samanlögðum árangri 236kg. Ef maður setur saman hennar bestu snörun 106kg og þessa jafnhendingu hefði það dugað henni til að komast inn á ólympíuleikana í París.
Á móti hinna bláu sverða er keppt á sérstakri Sinclair formúlu sem er sköluð milli kynja, Eygló varð í 5.sæti í kvenna keppninni og 8.sæti í heildarkeppninni.
Eygló stefnir næst að keppni á EM U23 þar sem hún er á síðasta ári og Norðurlandamótinu í haust. Einnig mun hún keppa í þýsku Bundesliga-deildinni í lyftingum á næsta keppnis tímabili og munum við gera því betri skil seinna.

Evrópumeistaramót Masters
Ísland átti tvo keppendur á Evrópumeistaramótinu í Masters flokkum sem fram fór í Haugesund í Noregi 15-23. Júní síðastliðnum.

Anna Guðrún Halldórsdóttir keppti í flokki -87kg í aldursflokki 55-59 ára og sigraði flokkinn. Hún setti einnig ný íslandsmet í Masters flokki 58kg í snörun, 78kg í jafnhendingu og 136kg í samanlögðum árangri. Að auki er jafnhendingin og samanlagði árangurinn ný HEIMSMET í Masters flokki 55-59 ára.

Hrund Scheving keppti í þyngdarflokki -71kg í aldursflokki 45-49 ára en fékk ekki gilda lyftu í gegn í snörun í seríunni 68kg-70kg-70kg. Fyrsta mót hennar í yfir 10 ár sem hún fellur úr keppni en hún kemur vonandi sterk til baka á næsta mót!
Hægt er að sjá myndir frá keppninni hér: https://www.europeanmasterswl.com/photos.html
Og Heildarúrslit hér að neðan.
María Rún Þorsteinsdóttir ráðin framkvæmdastjóri Lyftingasambands Íslands

María Rún Þorsteinsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Lyftingasambands
Íslands, en hún var valin úr hópi 18 umsækjenda um starfið.
María Rún er með BA í stjórnmálafræði og viðbótardiplómu í opinberri stjórnsýslu, auk þess að vera með kennsluréttindi og menntaður styrktarþjálfari.
María Rún átti og rak CrossFit Hengil í Hveragerði í 11 ár eða til ársins 2023 og
starfaði þar sem framkvæmdastjóri og þjálfari, meðal annars í ólympískum lyftingum.
María Rún hefur umfangsmikla reynslu af rekstri, stjórnun og íþróttastarfi og kom
m.a. að stofnun CrossFit sambands Íslands og Lyftingadeildar Hengils og hefur setið
í stjórnum þeirra beggja.
Hún hefur einnig setið í stjórnum Íþróttafélagsins Hamars og Lyftingasambands
Íslands, og hefur m.a. komið að keppnishaldi í ólympískum lyftingum, þar á meðal á
Norðurlandamóti sem haldið var á Íslandi í ólympískum lyftingum árið 2018.
María Rún hefur störf 1. ágúst næstkomandi.
Mótadagskrá og keppandalisti Sumarmóts LSÍ – Akureyri

Keppandalisti
Konur
| Nafn | Félag | Þyngdarflokkur | Entrytotal |
| Rakel Sara Snorradóttir | Lyftingafélag Reykjavíkur | 71 | 110 |
| Hólmfríður Bjartmarsdóttir | Lyftingafélag Reykjavíkur | 71 | 110 |
| Steindís Elín Magnúsdóttir | Lyftingafélag Reykjavíkur | 71 | 125 |
| Freyja Björt Svavarsdóttir | Lyftingafélag Reykjavíkur | 59 | 131 |
| Anna G Halldorsdottir | Lyftingadeild Hamars | 87 | 131 |
| Bríet Anna Heiðarsdóttir | Lyftingafélag Reykjavíkur | 59 | 136 |
| Thelma Mist Oddsdóttir | Lyftingafélag Kópavogs | 59 | 165 |
| Indíana lind Gylfadóttir | Lyftingafélag Kópavogs | 81 | 170 |
Karlar
| Nafn | Félag | Þyngdarflokkur | Entrytotal |
| Kristinn Þór Hilmarsson | Lyftingafélag Reykjavíkur | 73 | 100 |
| Guðjón Gauti Vignisson | Lyftingadeild Íþróttabandalags Akraness | 81 | 142 |
| Aron Orri Alfreðsson | Lyftingadeild KA | 81 | 0 |
| Konráð Krummi Sigurðsson | Lyftingafélag Kópavogs | 89 | 200 |
| Kristófer Logi Hauksson | Lyftingafélag Kópavogs | 89 | 160 |




