Þórbergur Ernir Hlynsson hafnaði í 8.sæti í 96kg flokki U20 á Evrópumeistaramótinu sem fram fer í Póllandi. Þórbergur opnaði með 130kg snörun og hækkaði svo í 134kg sem fóru upp. Lokatilraun Þórbergs voru 138kg sem hann rétt missti aftur fyrir sig.
Í jafnhendingu opnaði Þórbergur með 160kg lyftu sem hann náði ekki að standa. Hann hækkaði þá í 162kg sem fóru upp. Þar sem engin medalía var í boði ákvað teymið að láta reyna á persónulegt met og óskaði eftir 170kg á stöngina. Töluverður tími leið á milli lyftu tvö og þrjú hjá Þórbergi eða um 14 mínútur. Hann kom því vel hvíldur á sviðið og negldi cleanið en náði ekki að læsa jerkið. Niðurstaðan því 296kg samanlagt og gott innlegg í reynslubankann hjá þessum unga og efnilega lyftingamanni.
Það var stór dagur í dag í sögu íslenskra lyftinga þegar tveir íslenskir keppendur stóðu í fyrsta skipti saman á palli á stórmóti.
Eygló Fanndal Sturludóttir varð Evrópumeistari ungmenna í ólympískum lyftingum í 71kg flokki U23 (21-23 ára). Eygló setti nýtt norðurlandamet í fullorðinsflokki í samanlögðum árangri þegar hún lyfti 104kg í snörun og 133kg í jafnhendingu, alls 237kg sem var bæting á hennar eigin meti í samanlögðu um 1kg. Hún lyfti 26kg meira en næsti keppandi og hefði árangur hennar dugað til 6. sætis á Ólympíuleikunum í París síðastliðið sumar og silfur á Evrópumeistaramóti fullorðinna.
Guðný Björk Stefánsdóttir átti einnig frábæran dag en hún varð þriðja í sama þyngdar- og aldursflokki. Guðný Björk lyfti næst þyngst allra keppenda í snörun eða 96kg og 114kg jafnhendingu, samanlagt 210kg. Stórkostlegur árangur hjá þeim báðum.
Það var síðan skemmtileg stund þegar Hörpu, móður Eyglóar, hlotnaðist sá heiður að fá að afhenda verðlaunin fyrir samanlagðan árangur.
Mótið fer fram í Póllandi og stendur til 4.nóvember nk. Þórbergur Ernir Hlynsson keppir í 96kg flokki U20 á morgun föstudaginn 1. nóvember og Erla Ágústsdóttir keppir í +87kg flokki U23 sunnudaginn 3.nóvember.
fv. Patrik Helgeson, Jennifer Andersson (SWE), Harpa Þórláksdóttir, Eygló Fanndal Sturludóttir, Guðný Björk Stefánsdóttir, Stephanie Martin Lopez (3.sæti jafnhending) og Erna Héðinsdóttirfv. Eygló Fanndal Sturludóttir, Sigurður Darri Rafnsson (landsliðsþjálfari), Ingi Gunnar Ólafsson (landsliðsþjálfari) og Guðný Björk StefánsdóttirVerðlaunaafhending, Harpa og Eygló faðmast
Erna Héðinsdóttir alþjóðadómari og stjórnarmaður lyftingasambands Íslands hlaut fyrst Íslendinga silfurstjörnu evrópska lyftingasambandsins (EWF) sem henni var afhent í Raszyn í Póllandi í tengslum við Evrópumeistaramót Ungmenna.
Erna varð í sumar fyrsti íslenski lyftingadómarinn til að dæma á Ólympíuleikum þegar hún dæmdi í París og hefur dæmt á fjölda móta hjá Evrópska lyftingasambandinu (EWF) síðustu ár. Viðurkenninguna fær hún fyrir frábært starf á Ólympíuleikunum sem og fyrir ómetanlegt framtak við framgöngu lyftinga á Íslandi.
Til hamingju Erna!
f.v. Antonio Conflitti (forseti EWF), Erna Héðinsdóttir, Milan Mihajlovic (aðalritari EWF)Glæsileg viðurkenning!
Eygló Fanndal Sturludóttir varð norðurlandameistari í ólympískum lyftingum núna um síðastliðna helgi sem haldið var í Færeyjum en hún keppti þar ásamt átta öðrum keppendum frá Íslandi. Eygló sýndi heimsklassa árangur og fékk gildar 5/6 lyftum mest 104kg í snörun og 130kg í jafnhendingu. Hún átti frábæra tilraun við 134kg og nýtt norðurlandamet í loka tilrauninni sinni en rétt missti hana aftur fyrir sig í loka stöðu. Þetta var fyrsti norðurlandameistaratitill Eyglóar og einnig varð hún fyrsti íslendingurinn til þess að verða stigahæsti keppandi mótsins. Fjórir aðrir íslenskir keppendur unnu bronsverðlaun sem nánar er farið yfir hér að neðan.
Íslenska landsliðið sýndi frábæra frammistöðu þrátt fyrir að hafa staðið frammi fyrir ferðatengdum hindrunum vegna óhagstæðs veðurs til lendinga í Færeyjum, en hluti keppenda þurfti að fljúga í gegnum París og aðrir í gegnum Kaupmannahöfn til að komast á leiðarenda og því miður náðu náðu ekki keppandin Erla Ágústdóttirog alþjóða dómarinn Árni Rúnar Baldursson á leiðarenda. Amalía Ósk Sigurðardóttir lenti svo í því leiðindaratviki að ná ekki vigt en keppendur verða að vigtast inn í þann þyngdarflokk sem þeir eru skráðir.
Engu að síður sýndu íslensku keppendurnir svo sannarlega hvað í þeim býr og undirstrikuðu seiglu sína og ákveðni.
Hluti af íslenska hópnum í leifstöð, það sem átti að vera beint þægilegt flug til Færeyja endaði í ferð til Parísar og svo til Færeyja.
Athygli skal vakin á því að þetta er fyrsta norðurlandamótið þar sem keppt er í sérstökum og færri þyngdarflokkum en hefð er fyrir í lyftingum. Í kvennaflokki var keppt í -55kg flokk, -59kg flokk, -64kg flokk, -71kg flokk – 81kg flokk og +81kg flokk. Í karlaflokki -73kg flokk, -81kg flokk, -89kg flokk, -96kg flokk, -102kg flokk og +102kg flokk. Í gagnagrunni sambandsins gæti því verið ruglingslegt að lesa úrslitin.
Hluti af hópnum í Færeyjum
Einnig var í fyrsta sinn sem Færeyingar halda norðurlandamót í ólympískum lyftingum eftir að þeir fengu aðild að norðurlandasambandinu 2022 og tókst mótið gríðarlega vel og greinilegt að færeyjingar hafa betri aðstöðu til keppni í lyftingum en mörgt önnur lönd þar með talið Ísland.
Íþróttahöll þeirra Færeyjinga
Guðný Björk Stefánsdóttir varð þriðja í -71kg flokkinum og lyfti hún 96 kg í snörun og 110 kg í jafnhendingu, samtals 206 kg. Hún stóð upp með 122kg í þriðju tilraun í jafnhendingu eftir að hafa gert 115kg ógilt. Guðný var einnig sæmd Elite Pin Norðurlandasambandsins á mótinu og er hún 8. Íslendingurinn (4. konan) til að hljóta þá viðurkenningu, en Elite Piner viðurkenning sem veitt er þeim sem ná ákveðnum árangri eftir stöðlum Norðurlandanna.
Katla vann brons í -64kg flokk
Katla Björk Ketilsdóttir varð þriðja í -64kg flokkinum og lyfti hún 86 kg í snörun og 98 kg í jafnhendingu, samtals 184 kg. Hún vann einnig brons á NM 2021 með sama total 81/103=184kg.
Reynsluboltinn Þuríður Erla Helgadóttir varð þriðja í -59 kg flokkinum og lyfti hún 77 kg í snörun og 104 kg í jafnhendingu eftir smá bras í snörun og opnun í jafnhendingu, samtals 181kg. Þetta var fyrsta norðurlandamót hennar síðan 2019.
Þórbergur og Sigurður Darri sáttir með bronsið! Sigurður Darri var partur af þjálfarateymi Íslands á mótinu en hann er einnig virkur keppandi og var kosin fyrir hönd íslands í íþróttamannaráð norðurlandasambandsins.
Þórbergur Ernir Hlynsson er á blússandi siglingu og varð þriðji í -96 kg flokkinum og lyfti hann 132 kg í snörun og 162 kg í jafnhendingu, samtals 294 kg. Þrátt fyrir að fá ógilt á báðar opnunarlyfturnar sýnar. Þórbergur er aðeins 19 ára og því gjaldgengur á norðurlandamót unglinga sem fram fer í Nóvember og á Evrópumeistaramóti 20 ára og yngri sem hefst um helgina og hann er meðal keppenda!
Axel Guðni með opnunarþyngdina í jafnhendingu, 150kg.
Axel Guðni Sigurðsson keppti í -89kg flokki og var grátlega nærri því að vinna til bronsverðlauna en hann lyfti jafnmikilli þyngd og þriðja sætið alls 270kg en endaði fjórði. Hinn danski Thomas Ströier lyfti þyngdinni fyrst. Axel fékk aðeins opnunarlyfturnar sínar gildar 120kg í snörun og 150kg í jafnhendingu. Þetta var fyrsta alþjóðlega mótið hans og hann kemur því vonandi reynslunni ríkari í næsta mót.
Snædís Líf Pálmarsdóttir og Thelma Mist Oddsdóttir kepptu í -59kg flokk og enduðu í sjötta og sjöunda sæti en báðar voru nálægt sínum besta árangri. Snædís lyfti 71kg í snörun og 88kg í jafnhendingu samtals 159kg og Thelma 68kg í snörun og 90kg í jafnhendingu alls 158kg.
Haustmót LSÍ fer fram laugardaginn 7.september nk. í húsakynnum Ægis Gym á Akranesi. Skráning er hafin á mótið og henni lýkur 23.ágúst nk. klukkan 23:59.
Með fyrirvara um fjölda keppenda þá er stefnt að því að klára mótið að öllu leyti á laugardeginum. Mótið er sinclair stigamót og 3 stigahæstu einstaklingarnir verðlaunaðir. Keppnisgjald er kr. 7500,- og greiðir félag keppenda til mótshaldara. Skráning hér
Keppni hefst á morgun 7.Ágúst í ólympískum lyftingum eins og fram hefur komið í fyrri færslu.
Erna Héðinsdóttir alþjóðadómari mun dæma þrjá flokka á mótinu, -49kg flokk kvenna 7.Ágúst 19:30 að staðartíma, -73kg flokk karla 8.Ágúst 19:30 að staðartíma og -81kg flokk kvenna 10.Ágúst klukkan 16:00 að staðartíma.
Erna fékk að sjá upphitunaraðstöðu keppenda í dagErna ásamt Tina Beiter frá Danmörku á upplýsingafundi fyrir dómara
RÚV mun sýna -61kg flokk karla á RÚV2 klukkan 13:05 á morgun 7.Ágúst
Einnig mun RÚV sýna +81kg flokk kvenna Sunnudaginn 11.Ágúst klukkan 12:30 á RÚV2
Keppni í ólympískum lyftingum í París fer fram daganna 7.-11. Ágúst. Ísland á ekki keppanda að þessu sinni og í raun ekki síðan 1980 en Eygló Fanndal Sturludóttir var grátlega nærri því að tryggja sér keppnisrétt í -71kg flokki kvenna fyrst íslenskra kvenna en hún hefði aðeins þurft að lyfta 2-3kg meira til að tryggja sér þátttöku og vera á meðal 10 efstu í þyngdarflokknum.
Erna Héðinsdóttir (cat.1) alþjóðadómari er hinsvegar okkar fulltrúi á leikunum og mun starfa í 48 manna alþjóðlegu dómarateymi á leikunum.