Minnum á Lyftingaþing 2016 sem fram fer á morgun 26.mars klukkan 12:00 niðrí höfuðstöðum ÍSÍ, Engjavegi 6 104 Reykjavik.
Greinasafn fyrir flokkinn: Uncategorized
Smáþjóðleikar 2016: Liðakeppni
Mynd

Smáþjóðleikarnir 2016
Hinir 38. árlegu smáþjóðleikar í Ólympískum lyftingum fóru fram í Kýpur nú um helgina. Í fyrsta sinn eru konur partur af liðakeppninni en 2 konur og 3 karlar telja til stiga fyrir hvert land.
Beðið er eftir nánari úrslitum úr keppninni en Ísland vitað er að Ísland endaði í öðru sæti á eftir Kýpur í heildarstigakeppninni.
Þær Lilja Lind Helgadóttir og Freyja Mist Ólafsdóttir kepptu fyrir Íslands hönd á föstudeginum en báðar eru þær á síðasta ári í unglingaflokki (20 ára og yngri). Lilja lyfti 70kg í snörun og 85kg í jafnhendingu sem gáfu 197,5 stig.
Freyja átti góðan dag og lyfti 75kg í snörun og 96kg í jafnhendingu sem var bæting um 1kg á persónulegu meti og nálgast unglingamet Lilju Lindar í jafnhendingu sem er 97kg og norðurlandamet unglinga 101kg í eigu hinnar finnsku Meri Ilmarinen.
Í karla keppninni var Einar Ingi Jónsson fyrstur og bætti hann enn og aftur íslandsmet sitt í snörun þegar hann lyfti 107kg í -69kg flokk karla. Það var bæting um 2kg á meti sem hann setti á Íslandsmeistaramótinu fyrir rétt rúmum 3 vikum. Hann jafnhenti síðan 136kg og fékk fyrir það 328,6 Sinclair stig.
Guðmundur Högni Hilmarsson og Bjarmi Hreinsson voru síðan báðir í -94kg flokk þó nokkur þyngdarmunur var á þeim. Guðmundur Högni vigtaðist inn 87,7kg en Bjarmi 94kg slétt.
Báðir áttu þeir mjög góða snörun, Guðmundur Högni snaraði nýtt unglingamet 130kg og Bjarmi nýtt fullorðinsmet 133kg. Þeir opnuðu síðan báðir á 152kg í jafnhendingu sem fór auðveldlega upp, það var líka nýtt met í samanlögðum árangri hjá Bjarma. Því næst klikkaði Bjarmi 2x á 157kg og Guðmunudur Högni á 160kg. Guðmundur Högni varð því stigahæstur í íslenska liðinu með 331,9 Sinclair stig og Bjarmi með 325,1 Sinclair stig.
Smáþjóðaleikar: Keppendalisti
Keppendalistinn á Smáþjóðaleikana hefur verið birtur. Konurnar keppa á föstudaginn kl.19:30 að staðartíma (17:30 að íslenskum tíma) og karlarnir kl 10:15 á laugardaginn (8:30 að íslenskum tíma).
Keppendalistann má sjá hér að neðan. Breyting er á mótinu í ár þar sem þrír karlar og tvær konur telja til stiga en þetta er í fyrsta sinn sem konur skipa lið með körlum.

Íslandsmeistaramót 2016: Úrslit
Alls mætti 51 keppandi til leiks á íslandsmótið 2016, 24 konur og 27 karlar. Enn einu sinni var þátttökumet slegið á lyftingamóti á Íslandi. Heildarúrslit má nálgast í gagnagrunni sambandsins: http://results.lsi.is/meet/islandsmeistaramot-2016
Laugardagur
Stiklað er á stóru hér að neðan
Rakel Ragnheiður Jónsdóttir (LFG) f.1999 átti stórgott mót þar sem hún fór með allar lyftur í gegn -53kg flokki kvenna og voru 45kg og 50kg í snörun met í bæði U17 og U20 ára flokki. Í jafnhendingu gerði hún betur og setti met með því að lyfta 55kg, 60kg og loks 62kg.
Þuríður Erla Helgadóttir (Ármanni) átti afrek dagsins þegar hún tvíbætti íslandsmet sitt í jafnhendingu og samanlögðum árangri með því að lyfta 102kg og síðan 104kg. Þetta gaf henni einnig stigahæsta árangur mótsins og í fyrsta sinn sem íslensk lyftingakona fer yfir 260 stiga Sinclair múrinn.
Jakobína Jónsdóttir (LFR) náði næst hæsta Sinclair árangri mótsins með góðri bætingu í jafnhendingu 87kg og endaði í öðru sæti í -58kg flokki kvenna.
Í -63kg flokki kvenna setti kviðdómur nokkuð óvænta spennu í flokkinn þegar hann dæmdi tvær lyftur af Hjördísi Ósk Óskarsdóttur (FH) í jafnhendingu og hætti hún í kjölfarið keppni.
Tvær ungar stelpur Helena Ingvarsdóttir (LFK) og Katla Björk Ketilsdóttir (UMFN) höfðu háð harða baráttu í flokknum um silfurverðlaun fengu því gull og silfur en þær lyftu sömu þyngd samanlagt.
Báðar settu þær met í snörun og jafnhendingu í U17 ára, fyrst Helena Ingvarsdóttir með 50kg og síðan Katla með 54kg.
Í jafnhendingunni skiptust þær á að bæta metið en það fór á endanum þannig að Helena Ingvarsdóttir lyfti 70kg í síðustu tilraun og vann því á því að vera um hálfu kílói léttari en Katla en Helena vigtaðist inn 58,25kg og Katla 58,75kg. Þessar stelpur eiga mikla framtíð fyrir sér og verður gaman að fylgjast með þeim á næstu árum.
Einar Ingi Jónsson (LFR) raðaði inn metum þegar hann snaraði 105kg og tvíbætti íslandsmet sitt í jafnhendingu með 134kg og 138kg. Þetta voru einnig met í U20 og U23 ára flokkum.
Jökull Máni Þrastarson (Ármann) átti fínar bætingar en hann keppti á sínu öðru móti.
https://www.instagram.com/p/BCWIoA7I75m/?taken-by=arninn95&hl=en
Íslandsmeistaramót 2016
ÍM 2016: Upplýsingar til keppenda
Í viðhenginu hér að neðan má nálgast upplýsingar um íslandsmótið sem fram fer um helgina.
ÍM 2016: Tímaseðill
Skráningu er lokið á Íslandsmeistaramótið 2016.
29 konur og 28 karlar eru skráðir til leiks á má nálgast keppendalistann á eftirfarandi vefslóð: http://results.lsi.is/meet/islandsmeistaramot-2016
Tímaseðill er eftirfarandi:
| Laugardagur | |
| Vigtun allir flokkar, fyrra holl forgangur | 11:00-12:00 |
| -58kg,-63kg,-75kg | 13:00-14:50 |
| -53kg, -69kg og +75kg | 15:00-16:40 |
| Verðlauna afhending KVK | 16:50 |
| Sunnudagur | |
| Vigtun allir flokkar, fyrra holl forgangur | 11:00-12:00 |
| -69kg, -77kg, -105kg og +105kg | 13:00-14:30 |
| -85kg og -94kg | 14:40-16:10 |
| Verðlauna afhending KK | 16:20 |
Smáþjóðleikar 2016
Smáþjóðleikar 2016 í ólympískum lyftingum fara fram í borginni Limassol á Kýpur 18-19.mars
Breyting er á mótinu í ár þar sem þrír karlar og tvær konur telja til stiga en þetta er í fyrsta sinn sem konur skipa lið með körlum. Ísland sendir 6 keppendur til Kýpur en liðið skipa eftirfarandi:
Karlar:
Einar Ingi Jónsson [LFR] [f. 1996]
Bjarmi Hreinsson [LFR] [f. 1993]
Guðmundur Högni Hilmarsson [LFR] [f.1996]
Gísli Kristjánsson [LFR] [f.1964]
Konur:
Lilja Lind Helgadóttir [LFG] [f.1996]
Freyja Mist Ólafsdóttir [LFR] [f.1996]
Íslandsmeistaramótið
Mynd
