Lyftingaþing 2017 (11.mars)

Lyftingaþing 2017 fer fram næsta laugardag 11.mars þar sem fram fer kjör til stjórnar LSÍ og lagðar eru fram lagabreytingar, ársreikningar sambandsins, afreksstefna (2017-2020) og annað sem viðkemur starfi LSÍ.

Við munum hefja þingið stundvíslega 13:30 þ.e. 30mín seinna en áður hafði verið auglýst.

Þingið verður haldið í höfuðstöðvum ÍSÍ, Engjavegi 6.

Mótareglur LSÍ (þrýstið hér) verða lagðar fyrir þingið til kostninga og hvetjum við alla lyftingamenn að kynna sér innihald þeirra og koma með athugasemdir í tíma fyrir þingið.

Eftirfarandi lagabreytingar (https://lsi.is/wp-content/uploads/2015/03/log_lsi_2015.pdf)  liggja fyrir og verður kosið um þær á þinginu:

8.grein Liður 13
Núverandi grein
Kosinn formaður dómaranefndar
Breytingar tillaga
Kosinn formaður tækninefndar

18.grein
Núverandi grein
Stjórn og varamenn hafa atkvæðisrétt um val á lyftingakonu og karli ársins, valið skal ávallt miðast við tímabilið 1. Desember til 30. Nóvember. Ef óskað er eftir því getur kosning verið nafnlaus. Val á lyftingakonu og karli ársins skal miðast við árangur íþróttamannsins á liðnu ári og er þá sérstaklega horft til Sinclair stigatölu sem og árangur á alþjóðlegum mótum. Lyftingakarl eða kona ársins skulu ekki hafa orðið uppvís af lyfjamisferli.
Breytingar tillaga
Stjórn og varamenn hafa atkvæðisrétt um val á lyftingakonu og karli ársins, valið skal ávallt miðast við tímabilið 1. Desember til 30. Nóvember. Ef óskað er eftir því getur kosning verið nafnlaus. Val á lyftingakonu og karli ársins skal miðast við árangur íþróttamannsins á liðnu ári og er þá sérstaklega horft til Sinclair stigatölu sem og árangur á alþjóðlegum mótum.Íþróttamenn koma ekki til greina í vali á lyftingakonu og karli ársins á meðan þeir taka út refsingu og í eitt ár eftir að refsingu lýkur vegna brota á lyfjalögum ÍSÍ, IWF og/eða WADA.

19.grein (ný grein)
Formaður tækninefndar er kosinn ár hvert á lyftingaþingi. Formaður tækninefndar þarf að hafa lokið tækniprófi/dómaraprófi IWF í ólympískum lyftingum (e. IWF Technical Officials Examination). Hann/hún útnefnir 4 einstaklinga með sér í tækninefnd sem lokið hafa tækniprófi/dómaraprófi.

Smáþjóðleikar í ólympískum lyftingum

ATH Breyting 17.3.2017
Sólveig Sigurðardóttir fer í stað Jakobínu Jónsdóttur sem þurfti að afbóka sig

Lið Íslands á smáþjóðleikana í ólympískum lyftingum hefur verið valið, en keppnin er liðakeppni milli smáþjóða evrópu sem fram fer í San Marino í ár 21-22.Apríl.

Þrír karlar og tvær konur skipa lið Íslands og fór valið fram þannig að árangur keppenda á árinu 2016 og RIG 2017 gilti með Sinclair stigatölunni sem þá var í gildi. Nýr Sinclair (2017-2020) tók gildi eftir Íslandsmeistaramótið. Sjá listana sem notaðir voru við valið hér að neðan.

Lið Íslands 2017:

Karlar:
Björgvin Karl Guðmundsson – Hengill
Einar Ingi Jónsson – LFR
Guðmundur Högni Hilmarsson – LFR

Konur:
Björk Óðinsdóttir – KFA
Sólveig Sigurðardóttir – LFR

KK Listi:

# Nafn Félag Þyngd Total Sinclair
1 Andri Gunnarsson LFG 127,90 343,00 354,56
2 Björgvin Karl Guðmundsson Hengill 84,65 285,00 341,28
3 Einar Ingi Jónsson Iceland 68,77 253,00 341,07
4 Guðmundur Högni Hilmarsson Iceland 89,65 288,00 335,52
5 Bjarmi Hreinsson Iceland 94,00 285,00 325,13
6 Emil Ragnar Ægisson UMFN 76,10 255,00 323,27
7 Daníel Róbertsson Ármann 79,25 254,00 314,79
8 Ingólfur Þór Ævarsson KFA 108,45 289,00 312,39
9 Jakob Daníel Magnússon  LFH  87,20  262,00 309
10 Davíð Björnsson Ármann 79,50 248,00 306,83

KVK Listi

# Nafn Félag Þyngd Total Sinclair
1 Þuríður Erla Helgadóttir Ármann 57,70 184,00 260,03
2 Ragnheiður Sara Sigmundsdóttir UMFN 68,90 201,00 252,44
3 Björk Óðinsdóttir Iceland 62,40 183,00 244,75
4 Anna Hulda Ólafsdóttir Iceland 62,07 177,00 237,57
5 Hjördís Ósk Óskarsdóttir Iceland  62,58 176,00 234,9
6 Jakobína Jónsdóttir Iceland 56,62 163,00 233,60
7 Sólveig Sigurðardóttir LFR 62,80 175,00 233,05
8 Aníta Líf Aradóttir LFR 67,95 180,00 227,96
9 Freyja Mist Ólafsdóttir LFR 77,80 194,00 227,94
10 Birna Blöndal Sveinsdóttir KFA 52,55 146,00 221,74

Lágmörk á mót erlendis 2017-2018

LSÍ hefur gefið frá sér lágmörk á mót erlendis fyrir árin 2017 til 2018. Lágmörk eru gefin út til næstu tveggja ára sem auðveldar íþróttamönnum undirbúning.

Lágmörk Fullorðinsflokkar

Lágmörk Unglingaflokkar

Helstu breytingar frá fyrri árum eru eftirfarandi:

B-lágmark þýðir að íþróttamaður þarf að greiða flugfargjaldið sitt sjálfur en ekki 50% af kostnaði við heildar ferð og teljum við það til hagsbóta fyrir íþróttamanninn.

Á árinu 2017 verður ekki greitt A-lágmark á NM unglinga, það verður hinsvegar gert á árinu 2018. Ástæða þess er tvíþætt; 1) lyftingasambandið hefur nú ráðið starfsmann í hlutastarf og fylgir því ákveðinn kostnaður og 2) að Ísland heldur NM fullorðinna 2018 og því verður meira fjármagn til staðar til að standa undir kostnaði við ferðir unglingalandsliðsins.

 

EM senior og HM youth næst á dagskrá

 

Það verður nóg um að vera hjá lyftingafólkinu  okkur í apríl:

EM í ólympískum lyftingum fer fram dagana 2-8.apríl og munum við senda þau Þuríður Erlu Helgadóttur og Andra Gunnarsson

Þuríður mun keppa mánudaginn 3.apríl í -58 kg flokki og Andri mun keppa laugardaginn 8.apríl í +105kg fokki

Á sama tíma eða 3-10.apríl fer fram HM unglinga sem haldið er í Bankok í Thailandi og munum við senda Kötlu Ketlisdóttur en hún mun keppa í -58kg flokki og keppir hún föstudaginn 7.apríl

Íslandsmótið 2017

Íslandsmótið 2017 fór fram í Íþróttamiðstöðinni Varmá í Mosfellsbæ þann 19. febrúar, í öruggri umsjá Lyftingafélags Mosfellsbæjar. 43 keppendur mættu til leiks að þessu sinni frá 9 félögum.

Hæst bar glæsilegur árangur lyftingafólks ársins, þeirra Þuríðar Erlu Helgadóttur (Ármann) og Andra Gunnarssonar (LFG), en þau urðu stigahæstu keppendurnir og settu bæði Íslandsmet í öllum greinum í sínum flokkum.

Andri tók 160kg í snörun sem er 3kg bæting á fyrra meti og 190kg í jafnhendingu sem er 4kg bæting. Samtals lyfti hann því 350kg sem gefa honum 360,1 Sinclair stig en nýr Sinclair kvarði tók gildi nú um áramótin.

Þuríður Erla keppti í 63kg flokki og bætti Íslandsmet Bjarkar Óðinsdóttur (KFA) í snörun um 1kg er hún tók 84kg og bætti síðan jafnhendingarmet Hjördísar Óskar Óskarsdóttur (FH) um 1kg er hún lyfti 106kg. Sú lyfta var ótrúlega baráttulyfta sem hefur hlotið verðskuldaða athygli. Samanlagt tók Þuríður því 190kg sem gefa henni 260,1 Sinclair stig en það er hæsta Sinclair skor sem íslensk kona hefur náð.

Spennandi og skemmtileg keppni var í mörgum flokkum á mótinu. Í 69kg flokki karla var hörkubarátta milli ungra og upprennandi lyftingamanna, en þar sigraði Brynjar Ari Magnússon (LFH) eftir mikla keppni við Dag Fannarsson (LFM) en báðir lyftu þeir 135kg samanlagt.

Einar Ingi Jónsson (LFR) keppti í annað skipti í 77kg flokki og sigraði með 252kg sem gáfu honum 330,4 Sinclair stig sem var það næst hæsta hjá körlunum. Einar átti tvær tilraunir við Íslandsmet í jafnhendingu, 147kg, en hafði ekki erindi sem erfiði í þetta skiptið.

Í 85kg flokki sigraði Daníel Róbertsson (Ármann) með 265kg sem er bæting á hans besta árangri en Daníel hefur verið á mikilli siglingu að undanförnu. Hann var jafnframt með þriðji stigahæsti karl mótsins með 321,0 Sinclair stig. Daníel varð einnig meistari í fyrra en þá lyfti hann 242kg samanlagt.

Í 94kg flokki sigraði Goði Ómarsson (LFG) og varði titilinn frá því í fyrra. Hann tók 258kg í samanlögðu sem er 10kg meira en á mótinu í fyrra og þá átti hann einnig tilraun við Íslandsmet, 159kg, í lokalyftunni í jafnhendingu sem tókst ekki að þessu sinni.

Ingólfur Þór Ævarsson (KFA) varði titilinn í 105kg flokknum er hann lyfti 285kg samanlagt, 11kg meira en hann lyfti í fyrra.

Í 58kg flokki kvenna sigraði Sigríður Jónsdóttir (LFK).

Eins og áður hefur komið fram sigraði Þuríður Erla Helgadóttir (Ármann) í 63kg flokki en það var fjölmennasti flokkur mótsins með 9 keppendur. Aníta Líf Aradóttir (LFR) varð önnur með 177kg samanlagt sem gaf henni 232,3 Sinclair stig sem var það næst hæsta hjá konunum.

Lilja Lind Helgadóttir (LFG) varði titilinn í 69kg flokki eftir mikla baráttu við Viktoríu Rós Guðmundsdóttur (LFH). Lilja Lind lyfti 162kg samanlagt en Viktoría Rós 159kg en úrslitin réðust ekki fyrr en í síðustu lyftu.

Hörð keppni var einnig í 75kg flokki kvenna en þar skildi einunigs 1kg milli gulls og silfurs. Sigurvegari varð Soffía Bergsdóttir (Ármann) með 154kg en Birta Hafþórsdóttir (LFH) varð önnur með 153kg.

Í fyrsta sinn var keppt í nýjum þyngdarflokkum kvenna en reglur IWF breyttust um áramótin og í stað +75kg flokks koma 90kg og +90kg flokkar. Sesselja Sigurðardóttir (KFA) er fyrsti Íslandsmeistarinn í 90kg flokknum en hún lyfti 138kg samanlagt.

Öll úrslit má finna á http://results.lsi.is/meet/islandsmeistaramotid-2017

Uppfærður keppendalisti og Tímaseðill

Þyngdarflokkur Nafn Kennitala Flokkur Félag
-53 Birna Dís Ólafsdóttir 040392-2629 kvk LFH
Þyngdarflokkur Nafn Kennitala Flokkur Félag
-58
Birna Blöndal Sveinsdóttir 050587-3049 KVK KFA
Sigríður Jónsdóttir 210792-2449 KVK LFK
Elísabet Metta Svan Ásgeirsdóttir 212942339 KVK LFR
Þyngdarflokkur Nafn Kennitala Flokkur Félag
-63 Birna Aradóttir 160299-2669 KVK Lyftingafélag Reykjavíkur
Hrafnhildur Finnbogadóttir 2404002270 KVK Ármann
Thelma Hrund Helgadóttir, 412972719 KVK Lyftingafélag Hengils
Aníta Líf Aradóttir 060188-2549 KVK LFR
Amalía Ósk Sigurðardóttir 020897-2879 KVK LFK
Þuríður Erla Helgadóttir 3007912559 KVK Ármann
Sonja Ólafsdóttir 111179-3959 KVK Lyftingafélag Mosó
Helena Ingvarsdóttir 180199-2259 KVK LFK
Amalía Ósk Sigurðardóttir 240796-2019 KVK LFK
Þyngdarflokkur Nafn Kennitala Flokkur Félag
-69kg Lilja Lind Helgadóttir 310896-2259 KVK LFG
Viktoría Rós Guðmundsdóttir 051091-2219 KVK LFH
Sólveig Sigurðardóttir 1405952259 KVK LFR
Þyngdarflokkur Nafn Kennitala Flokkur Félag
Sesselja Sigurðardóttir 040290-3709 kvk KFA
-75 Rakel Hlynsdóttir 809934479 kvk
Ásta Ólafsdóttir 020398-2059 KVK LFK
Sandra Pawlik 071292-3399 kvk LFK
Soffía Bergsdóttir 090487-2489 kvk Ármann
Erna Björk Kristinsdóttir 030788-2309 kvk LFR
Þyngdarflokkur Nafn Kennitala Flokkur Félag
-90kg Freyja Mist Ólafsdóttir 111196-2309 LFR
Birta Hafþórsdóttir 312983509 KVK LFH
Þyngdarflokkur Nafn Kennitala Flokkur Félag
-69 Róbert Þór Guðmarsson 120901-3890 KK LFH
Brynjar Ari Magnússon 030204-2120 KK LFH
Dagur Fannarsson 1001012890 KK Lyftingafélag Mosó
Grétar Júlíus Þorsteinsson 401993149 KK Lyftingafélag Mosó
Þyngdarflokkur Nafn Kennitala Flokkur Félag
-77kg Árni Rúnar Baldursson 050795-2929 KK Lyftingafélagið Hengill
Guðmundur Jökull Ármansson 1412982759 KK LFH
Matthías Björn Gíslason 110901-2910 KK LFH
Einar Ingi Jónsson 150296-4399 KK LFR
Carl Johan Nils Malmstrom 2907973739 KK Lyftingafélag Mosó
þyngdarflokkur Nafn Kennitala Flokkur Félag
-85kg Orri Bergmann Valtýrsson 1801962349 KK LFH
Veigar Ágúst Hafþórsson 280900-2060 KK LFH
Ragnar Ágúst Ragnarsson 160293 – 2179 KK LFH
Sveinn Atli Árnason 2607952369 KK LFK
Stefán Rossen 3010942489 KK FH ?
Arnór Gauti Haraldsson 305982619 KK LFH
Daníel Róbertsson 210912199 KK Ármann
Ægir Birgisson 2812665009 KK LFG
Sveinn Atli Árnason 260795-2369 KK LFK
þyngdaflokkur Nafn Kennitala Flokkur Félag
-94 Þórhallur Andri Guðnason 507903049 KK KFA
Goði Ómarsson 020491-3109 KK LFG
Kjartan Elvar Baldvinsson 1001012890 KK Lyftingafélag Mosó
Franz Jónas Arnar Arnarson 110793-3759 KK Ármann
Þyngdarflokkur Nafn Kennitala Flokkur Félag
-105 kg Kristján Hrafn Kristjánsson 702962689 kk ármann
Ingólfur Þór Ævarsson 1207913549 kk KFA
Ingvi Karl Jónsson 141098-3149 kk Ármann
Þorsteinn Þórarinsson 110193-3279 kk LFK
Þyngdarflokkur Nafn Kennitala Flokkur Félag
105 Andri Gunnarsson 1401833859 kk LFG

 

Tímaseðill og vigtun 

Vigtun
07:00-08:00 KVK
08:00-09:00 KK
Tími Grúbbur Flokkar Fjöldi í grúbbu
9:00-11:00 KVK – A -53, -58, -63 12
11:00-12:30 KVK – B -69, -75,-90 10
Verðlaunaafhending kvk
13:00-15:00 KK – A -69, -85 13
15:00-17:30 KK – B -77, -94, -105, 105 14

 

Keppendalisti fyrir Íslandsmótið 2017

Þyngdarflokkur  Nafn
-53 Birna Dís Ólafsdóttir
Þyngdarflokkur  Nafn
-58 Elísabet Metta Svan Ásgeirsdóttir
Birna Blöndal Sveinsdóttir
Sigríður Jónsdóttir
Þyngdarflokkur  Nafn
-63 Birna Aradóttir
Hrafnhildur Finnbogadóttir
Thelma Hrund Helgadóttir,
Aníta Líf Aradóttir
Amalía Ósk Sigurðardóttir
Þuríður Erla Helgadóttir
Sonja Ólafsdóttir
Helena Ingvarsdóttir
Amalía Ósk Sigurðardóttir
Þyngdarflokkur  Nafn
-69kg Lilja Lind Helgadóttir
Viktoría Rós Guðmundsdóttir
Sólveig Sigurðardóttir
 Þyngdarflokkur Nafn
-75 Sesselja Sigurðardóttir
Rakel Hlynsdóttir
Ásta Ólafsdóttir
Sandra Pawlik
Soffía Bergsdóttir
Erna Björk Kristinsdóttir
Þyngdarflokkur  Nafn
-90kg Freyja Mist Ólafsdóttir
 Karlar
Þyngdarflokkur  Nafn
-69 Róbert Þór Guðmarsson
Brynjar Ari Magnússon
Dagur Fannarsson
Grétar Júlíus Þorsteinsson
Þyngdarflokkur Nafn
-77kg Árni Rúnar Baldursson
Guðmundur Jökull Ármansson
Matthías Björn Gíslason
Einar Ingi Jónsson
Carl Johan Nils Malmstrom
Þyngdarflokkur Nafn
-85kg Orri Bergmann Valtýrsson
Veigar Ágúst Hafþórsson
Ragnar Ágúst Ragnarsson
Sveinn Atli Árnason
Stefán Rossen
Arnór Gauti Haraldsson
Daníel Róbertsson
Ægir Birgisson
Sveinn Atli Árnason
Þyngdarflokkur Nafn
-94 Þórhallur Andri Guðnason
Goði Ómarsson
Kjartan Elvar Baldvinsson
Franz Jónas Arnar Arnarson
Þyngdarflokkur Nafn
-105 kg Kristján Hrafn Kristjánsson
Ingólfur Þór Ævarsson
Ingvi Karl Jónsson
Þorsteinn Þórarinsson
Þyngdarflokkur Nafn
105 Andri Gunnarsson

Tímaseðill fyrir mótið verður klár í kvöld, en mótið mun hefjast á keppni kvenna kl.09:00 í Íþróttahúsinu að Varmá í Mosfellsbæ

Breytingar á þyngdarflokkum kvenna

Nú um áramótin tóku gildi nýjar reglur Alþjóðalyftingasambandsins (IWF). Meðal helstu breytinga er að þyngdarflokkum kvenna hefur verið fjölgað úr 7 í 8. +75kg flokkurinn fellur út og í staðinn koma -90kg og +90kg flokkar. Í stúlknaflokki 17 ára og yngri (Youth) fellur +69kg flokkurinn út og í staðinn koma -75kg og +75kg flokkar. Stjórn LSÍ hefur ákveðið viðmið (standard) til meta í nýju flokkunum en árangur til meta er reiknaður upp frá þyngdarflokkabreytingunum 1998. Viðmiðin í +90kg flokki eru 80kg í snörun og 100kg í jafnhendingu.

Einnig er vert að benda á reglu 6.8.2. en þar er felld úr gildi reglan um að séu keppendur jafnir þá hafi sá sigur sem er með lægri líkamsþyngd. Nú sigrar sá sem lyfti þyngdinni fyrr.

Reglur IWF: http://www.iwf.net/wp-content/uploads/downloads/2017/01/IWF_TCRR_20170119.pdf